Fréttablaðið - 02.11.2008, Page 5
Á F R A M S T E L P U R — M E Ð S T E R K B E I N
Það er hægt að sigra. Það getur tekið tíma. Það getur komið
bakslag. En það hefst að lokum. Með úthaldi, seiglu og vilja.
Með sterkum beinum.
Kvennalandsliðið í fótbolta skipa stelpur með sterk bein. Í bókstaf-
legum skilningi. Það staðfesta nýlegar mælingar á beinþéttni
þeirra. Hjá þeim reyndist beinþéttni langt yfir meðallagi og má
ætla að landsliðskonur hafi 24% þéttari bein en jafnöldrur þeirra.
Beinvernd og Mjólkursamsalan óska landsliðskonum til hamingju.
Nú fara þær beina leið á Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu sumarið 2009.
Það verður í fyrsta sinn sem íslenskt A-landslið í knattspyrnu fer í úrslitakeppni stórmóts.
Stelpur á öllum aldri geta auðveldlega skipað sér í landslið gegn
beinþynningu. Rétt hreyfing, kalkrík fæða, t.d. mjólkurvörur,
auk D-vítamíns – það er beina leiðin í landsliðið, beina leiðin
til sigra í framtíðinni.
Höldum áfram að hvetja stelpur með sterk bein til sigurs.