Fréttablaðið - 02.11.2008, Side 30
14 2. nóvember 2008 SUNNUDAGUR
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Þýðing Victoriu Cribb á smásagna-
safninu Steintré eftir rithöfundinn
Gyrði Elíasson kom út í Englandi síð-
asta fimmtudag. Óvenjulegt er að
smásagnasöfn eftir einn höfund séu
þýdd og gefin út í heild sinni.
„Ég veit nú ekki hvernig Englend-
ingarnir komust á snoðir um bókina til
að byrja með,“ segir Gyrðir Elíasson
hógvær. „Útgáfufélagið Comma Press
er lítið en að ég held metnaðarfullt for-
lag. Ég veit að það sérhæfir sig í smá-
sögum frá Evrópu en það er sérstakt
fyrir bókmenntaforlög sem yfirleitt
vilja ekki líta við smásögum.“
Tímasetning útgáfunnar vekur einn-
ig athygli en eins og alþjóð veit andar
köldu milli Englendinga og Íslend-
inga um þessar mundir. Gyrðir segir
jafnan erfitt fyrir íslenska höfunda að
komast inn á enskan markað.
„Þetta er kannski ekki besti tíminn
til að gefa út bók í Englandi, en það er
þó aldrei að vita. En ég býst nú ekki
við að dreifingin verði mikil eða at-
hyglin sem hún fær.“
Spurður hvort hann sé ekki óþarf-
lega hógvær með þessi tímamót, þar
sem þetta er fyrsta bókin sem þýdd er
eftir hann í heilu lagi á ensku, segist
hann bara vera raunsær. „Ég er búinn
að vera það lengi í þessu. Bæði veit
maður hversu mikill munur er á stór-
um forlögum í Bretlandi og á þessum
litlu sem hafa engan dreifingarmátt.
En hins vegar er þetta fallega útgefin
bók og mér finnst þetta skemmtilegt.
Þeir hafa lýst yfir áhuga á að gera
eitthvað meira í framhaldinu en svo
verður það bara að koma í ljós.“ Þegar
ástandið í þjóðfélaginu ber á góma
segist Gyrðir eins og hver annar finna
hvernig andrúmsloftið í samfélag-
inu er í lægð. Hann er þó bjartsýnn á
framtíðina. „Ég hef trú á því að þessi
viðhorfsbreyting sem verður í samfé-
laginu eigi eftir að gagnast bókmennt-
unum seinna. Fólk les öðruvísi núna
og ég er bjartsýnn fyrir hönd bók-
menntanna.“ heida@frettabladid.is
SMÁSAGNASAFNIÐ STEINTRÉ EFTIR GYRÐI ELÍASSON: GEFIÐ ÚT Á ENSKU
Bjartsýnn fyrir hönd bóka
ÖNNUR NÁLGUN Gyrðir Elíasson rithöfundur er bjartsýnn á að fólk lesi bækur með öðru hugar-
fari í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MARIE ANTOINETTE FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1755.
„Ekkert er nýtt nema það
sem er gleymt.“
Marie Antoinette var drottn-
ing Frakklands frá 1774 til
1792. Hún og og maður
hennar, Loðvík XVI, voru sett
af þegar lýðveldi var stofn-
að í kjölfar frönsku bylt-
ingarinnar. Hún var háls-
höggvin árið 1793.
Haile Selassie var krýnd-
ur keisari yfir Eþíópíu árið
1930. Upphaflegt nafn
hans var Tafari Makonnen.
Hann var sonur ráðgjafa
keisarans en var sjálfur af
keisaraættum. Tafari gift-
ist barnabarni keisarans og
þegar dóttir keisarans sett-
ist í valdastól hlaut Tafari
titil ríkiserfingja, ras.
Ras Tafari tók upp nafnið Haile
Selassie við krýninguna. Það merkir
máttur þrenningarinnar. Hann var einn-
ig kallaður konungur konunganna, lá-
varður lávarðanna og ljónið af ætt-
kvísl Júda eins og talað er um í Biblí-
unni. Samkvæmt hefð var keisaraættin
í Eþíópíu talin vera komin af drottn-
ingunni af Saba og Salóm-
on konungi, og þá einn-
ig Davíð. Kenningar höfðu
komið fram um að allir
blökkumenn væru komn-
ir af sama stofni í Eþíóp-
íu og að þar myndi svarti
messías koma fram sem
myndi losa blökkumenn
við aldalanga kúgun. Töldu
margir að í Haile Selassie væri kominn
fram hinn svarti messías. Rastafari kall-
ast þessi trú og þekktasti fylgismaður
hennar er vafalaust tónlistarmaðurinn
Bob Marley.
Ekki er ljóst hvort Haile Selassie taldi
sjálfur að hann væri messías. Hann hélt
því alltént ekki á lofti en hann styrkti
veglega rastafari-hreyfinguna.
ÞETTA GERÐIST: 2. NÓVEMBER 1930
Selassie krýndur keisari
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað-
ir, afi og langafi,
Guðmundur Valdimarsson
Móasíðu 6a, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 26. október.
Útför hans fer fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn
4. nóvember kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Oddfellowregluna á Akureyri. Minningarkort
fást í AB búðinni og hjá Jóni Bjarnasyni úrsmið.
Þóranna Þórðardóttir
E. Ásrún Guðmundsdóttir Árni Ragnarsson
Margrét Unnur Akselsdóttir Erik Andersson
Valdimar R. Guðmundsson Daðey A. Sigþórsdóttir
og afabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Gunnars Þorsteins
Þorsteinssonar
Kársnesbraut 67, Kópavogi.
Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir
Sigrún Björk Gunnarsdóttir Ásgeir Indriðason
Júlíana Signý Gunnarsdóttir Örn Jónsson
Óðinn Gunnsteinn Gunnarsson Auður Hallgrímsdóttir
Anna Margrét Gunnarsdóttir Guðmundur Jóelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
Gunnars Reynis
Bæringssonar
Laugarásvegi 55, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við yndislegu starfsfólki deild-
ar 13D á Landspítalanum við Hringbraut fyrir góða
umönnun og alúð.
Guðrún Arnfinnsdóttir
Elín Arndís Gunnarsdóttir Einar Helgason
Gunnar Már Gunnarsson Helga I. Sigurbjarnadóttir
Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir Daníel Þorsteinsson
barnabörn.
Hugheilar þakkir sendum við öllum nær
og fjær sem auðsýndu okkur samúð og
vináttu vegna andláts og jarðarfarar ást-
kærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu.
Guðlaugar Pétursdóttur
Kjerúlf
Þökkum starfsfólki Hrafnistu fyrir veitta umönnun og
aðhlynningu. Guð blessi ykkur öll.
Þórunn Kjerúlf Ivey David Parker Ivey
Vilborg J. Kjerulf Jens Nielsen
Ásta Haraldsdóttir Hjálmar Sveinsson
Hafdís Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir samúðarkveðjur og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langalangömmu,
Sveinsínu Oddsdóttur
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem sýndu henni tryggð
og alúð hennar síðustu ár og veittu henni gleðistundir
á hennar löngu ævi. Hún mat það mikils.
Sigríður Lúthersdóttir Sveinn Þórðarson
Jóhann Lúthersson Magnea Þorfinnsdóttir
Hilmar Lúthersson Kolbrún Guðmundsdóttir
Reynir Lúthersson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Bryndísar G. Thorarensen
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á hjúkrun-
arheimilinu Sunnuhlíð fyrir góða umönnun.
Kristín Thorarensen Örn Vigfússon
Guðríður M. Thorarensen Þórður Ásgeirsson
Egill Thorarensen Ásdís Matthíasdóttir
Guðlaugur Thorarensen Gloria Thorarensen
Daníel Thorarensen
Sigurður Thorarensen Áslaug Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kærar þakkir sendum við öllum þeim
fjölmörgu er sýndu fjölskyldunni hlýhug
við andlát,
Guðlaugar Gísladóttur
frá Hvalsnesi, Borgarholtsbraut 73,
Kópavogi.
Starfsfólki Hlíðarbæjar og á deild 3 í Sunnuhlíð send-
um við þakklætiskveðjur fyrir frábæra umönnum og
virðingu í hennar garð.
Tómas Grétar Ólason
Margrét Tómasdóttir Matthías Guðm. Pétursson
Anna Guðrún Tómasdóttir Matthías Kjartansson
Guðlaug Þóra Tómasdóttir Daníel Þór Ólason
Magnea Tómasdóttir Pétur Gauti Valgeirsson
ömmubörn og langömmubarn.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
Magnús Kristófersson
Dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 24. október, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. nóvember kl. 15.00.
Margrét Pálfríður Magnúsdóttir
Ingibergur Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is