Fréttablaðið - 02.11.2008, Page 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Við erum leiðandi í framboði ódýrra fargjalda.
Frábært verð, þægindi og góð þjónusta eru
órjúfanleg heild hjá Iceland Express.
Bókaðu ferðina þína á www.icelandexpress.is
Við erum hagkvæm
– þú getur bókað það
Verð frá:
12.490 kr.
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum. Takmarkað sætaframboð
og valdar dagsetningar til og frá London, Kaupmannahöfn og Berlín.
Ég hef lagt mig fram um að fylgjast ekki of vel með frétt-
um undanfarið. Það tekur tíma að
átta sig á atvinnuleysi og öðrum
fylgifiskum efnahagsástandsins.
Fréttatíminn er ekki lengur eftir-
sóknarverður. Ein falleg kreppu-
fregn kom hins vegar við mig eins
og marga Íslendinga og hún er auð-
vitað af láninu frá Færeyingum.
Það blasir við að lánið er myndar-
legt með tilliti til fjölda Færeyinga.
Lán þeirra upp á meira en 6 millj-
arða jafngildir því að íslenska þjóð-
in hefði lánað annarri þjóð um 36
milljarða, sem mér skilst að sé
fjárhæð sem dugar til að reka
Landspítalann í heilt ár.
SAMT held ég að það sé ekki bara
upphæðin sjálf sem okkur finnst
svo dæmalaust myndarlegur gjörn-
ingur. Miklu frekar er það sú stað-
reynd að þessi fámenna þjóð skuli
fyrst af öllum bjóðast til að lána
okkur. Þjóðir heims hafa nefnilega
ekki beinlínis verið í kapphlaupi
við að koma okkur til hjálpar. Fær-
eyingar birtast hins vegar óum-
beðnir og bjóða fram aðstoð. Þegar
á reynir virðist segin saga að Fær-
eyingar koma til hjálpar, síðast
með þjóðarsöfnun eftir snjóflóðin.
VIÐ höldum því gjarnan fram að á
milli okkar og Dana sé sérstakur
strengur. Menn líta jafnvel á Dan-
ann sem bróður. Stóri bróðir reyn-
ist ágætur yfir bjór. Snobbið er
minna fyrir Svíunum og við höfum
aldrei litið á þá sem hluta af kjarna-
fjölskyldunni. Þeir hafa ekki talist
innan „circle of trust“. Norðmenn-
irnir eru duglegir að hringja og
kanna stöðuna, en símtöl er auðvit-
að ekki það sem vantar. Við höfum
ekki heldur mikið af fjarskyldum
Finnum að segja. Skyldleikinn
blasir þó við þá sjaldan sem við
hittum þá, þó þeir séu óskiljanleg-
ir. Þess vegna er bara ágætt að þeir
tala lítið.
EFTIR standa svo Færeyingar,
vinalegir og sjarmerandi með heill-
andi tungu. Við skiljum þá ólíkt
betur en aðra fjölskyldumeðlimi
sem við látumst þó skilja á fund-
um. Færeyskar fréttir greina frá
10 prosents minking í bruttotjóðar-
úrtøkuni og størri arbeiðsloysi enn
vanligt, eru útlitini sum Íslending-
ar hava fyri 2009. Til hughreyst-
ingar er vitnað í Geir Haarde for-
sætisráðharri sem segir að
grundstøðið er gott.
TILFINNINGIN hefur verið sú að
við séum ein með okkar vanda, en
góðir frændur í Færeyjum hafa
breytt þeirri tilfinningu. Þó ekki
fari mikið fyrir minnsta frændan-
um í fjölskyldunni er hann alltaf
fremstur í flokki þegar á reynir.
Frændur góðir
9.15 13.11 17.06
9.10 12.55 16.41
Í dag er sunnudagurinn
2. nóvember, 307. dagur ársins.