Fréttablaðið - 04.11.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
4. nóvember 2008 — 302. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Mátulegur hamagangur
Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur st d
hún jógatím
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/STEFÁN
Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur
stundar jóga og tónlistarleikfimi í Kramhúsinu sér til heilsubótar.
FJARÞJÁLFUN hentar sumum til að komast í gott
form. Einkaþjálfari og viðskiptavinur eiga þá samskipti í
gegnum Netið. Þjálfari afhendir viðskiptavini æfingaáætl-
un og hann skilar árangurs- og matardagbók á móti.
Ertu starfandi í greininni e›a í grein henni tengdri?Hefur flú áhuga á a› ljúka flví námi sem flú hófst?Bættu um betur – Húsasmí›i er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví
a› meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá› flví
hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur
í verkefninu ljúki sveisprófi.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›. fiar
er einnig hægt a› skrá sig á kynningarfund sem ver›ur haldinn
mi›vikudaginn 5. nóvember kl. 18 00 a› Skúl
Hófst flú nám í húsasmí›ien laukst flví ekki?
Leiðrétting á auglýsingu sem birtist
mánudaginn 3. nóvember í Fréttablaðinu
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR
Heldur sér í formi með
ballett og lyftingum
• heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
FYRIRTÆKJAGJAFIR
Gjafir sem
lifa lengur
Sérblað um fyrirtækjagjafir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
4
5
4
8
8
HVESSIR Í dag verður vaxandi suð-
austan átt, 8-13 m/s um hádegi en
15-23 m/s vestan til í kvöld og nótt.
Rigning víðast hvar. Hiti 5-10 stig.
VEÐUR 4
Phoenix
er hættur
Stórleikarinn Joa-
quin Phoenix ætlar
út í tónlistina.
FÓLK 20
Undirbýr
ævintýramynd
Ragnar Bragason
hyllir Melville og
Dickens.
FÓLK 26
Vinsæl lesning
Árbók Þingeyinga hefur verið gefin
út samfellt frá árinu 1958.
TÍMAMÓT 16
fyrirtækjagjafirÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2008
FÓLK Eitt stærsta umboðs- og
útgáfufyrirtæki heims, Nettwerk
Music Group, hefur boðið
tónlistarkonunni Lay Low
útgáfusamning. Að sögn Kára
Sturlusonar, umboðsmanns
hennar, felur tilboðið í sér útgáfu
á nýjustu plötu hennar, Farewell
Good Night‘s Sleep, víða um
heim.
„Þeir tala um að nýja platan
komi út í Bandaríkjunum og
Evrópu í apríl á næsta ári og
reikna með því að í desember
byrji eiginlegt kynningarstarf.
Þetta þýðir að það þarf að fara
mikið út að spila og fylgja
plötunni eftir,“ segir Kári.
Fleiri ganga með grasið í
skónum á eftir Lay Low, þar á
meðal stórt breskt útgáfufyrir-
tæki, og er tilboðs að vænta frá
því síðar í vikunni. - fb / sjá síðu 26
Getur valið úr tilboðum:
Lay Low eftir-
sótt úti í heimi
BANDARÍKIN Kosningabaráttan í
Bandaríkjunum hefur verið
óvenjulöng og ströng. Hún hófst
fyrir nærri tveimur árum og lýkur
í dag þegar annaðhvort Barack
Obama eða John McCain verður
kjörinn forseti.
Heimsbyggðin hefur fylgst með
kosningabaráttunni vestra af
meiri áhuga en nokkru sinni og
andrúmsloftið í Bandaríkjunum
hefur verið spennu þrungið.
Skoðanakannanir benda lang-
flestar til þess að Obama eigi
sigurinn vísan. Víst er að það
kæmi verulega á óvart ef McCain
hefði betur á síðustu stundu og
lögreglusveitir búa sig undir
óeirðir ef svo fer. Á landsvísu
hefur Obama mælst með 7 til 8
prósenta forskot, samkvæmt
flestum skoðanakönnunum.
Þeir Obama og McCain hafa síð-
ustu daga verið á fleygiferð um
svonefnd lykilríki, þar sem mjótt
hefur verið á mununum milli
þeirra. - gb / sjá síðu 6
Bandaríkjamenn velja sér í dag arftaka George W. Bush forseta:
Kosningaspennan í hámarki
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
NIÐURRIF BRUNARÚSTANNA HAFIÐ EN UPPBYGGING ÓVISS Talið er að eldsupptök í stórbrunanum sem varð í apríl í fyrra í miðbæ
Reykjavíkur verði aldrei upplýst. Hrólfur Jónsson, hjá framkvæmdasviði Reykjavíkur, segir að því miður sé ekki útlit fyrir að uppbygging
geti hafist þar strax þótt byrjað sé að fjarlægja rústirnar á svæðinu. Ekki sé vitað hversu mikið fé til framkvæmda sé til. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEÐRIÐ Í DAG
Klárar hjá KR
Knattspyrnumaður-
inn Guðmundur
Benediktsson er
genginn í raðir KR
á ný þar sem
hann ætlar
að klára
ferilinn.
ÍÞRÓTTIR 22
VIÐSKIPTI Reynist það rétt að stjórn
Kaupþings hafi afskrifað skuldir
starfsmanna vegna hlutabréfa-
kaupa í bankanum munu stjórn-
völd sækja það fast að samningum
þar að lútandi verði rift, segir
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra.
Fjármálaeftirlitið (FME) rann-
sakar nú fréttir um að stjórn
Kaupþings hafi látið afskrifa
skuldir starfsmanna.
Fram kom fram í fréttum Ríkis-
útvarpsins og Stöðvar 2 í gær að
um hafi verið að ræða skuldir
fjölda starfsmanna, og að um háar
upphæðir hafi verið að ræða.
Fréttablaðið hefur ekki fengið það
staðfest hjá heimildarmönnum.
Sigurður Einarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Kaupþings,
sagðist í gær ekki hafa heimild til
að tjá sig um málið. Vísaði hann til
þess að lán til starfsmanna séu
viðskipti, og í viðskiptum við
banka sé trúnaður áskilinn.
Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra segir að sam-
kvæmt upplýsingum sem hann
hafi fengið frá FME hafi allar
skuldir Kaupþings verið færðar í
Nýja Kaupþing.
„Þetta þarf að rannsaka hratt og
leiða strax til lykta,“ segir Björg-
vin. Ef um eitthvað óeðlilegt hafi
verið að ræða verði þess freistað
að rifta þeim gjörningi.
„Það verður enginn steinn látinn
óhreyfður í þessu máli, og það
verður aldrei nokkurn tímann látið
líðast að neitt óeðlilegt hafi átt sér
stað,“ segir Björgvin. „Allir skuld-
arar verða að njóta jafnræðis,
engir fá að njóta sérmeðferðar.“
Þeir fyrrverandi stjórnarmenn
í Kaupþingi sem Fréttablaðið náði
sambandi við í gær könnuðust
ekki við að stjórnin hafi samþykkt
að fella niður skuldir starfs-
manna.
„Ég get staðfest að það hefur
ekki verið tekið fyrir í stjórninni,“
segir Brynja Halldórsdóttir, fyrr-
verandi stjórnarmaður.
Aðrir stjórnarmenn, sem tjáðu
sig með því skilyrði að ekki yrði
vitnað í þá undir nafni, könnuðust
við að skuldastaða starfsmanna
hefði verið rædd í stjórninni. Þeir
fullyrtu þó að ekki hefði verið
tekin nein ákvörðun um að afskrifa
skuldirnar.
Nýja Kaupþing yfirtók öll lán
eins og þau stóðu þegar tekið var
við, segir Finnur Sveinbjörnsson,
bankastjóri Nýja Kaupþings.
Hann vildi í gærkvöldi ekki upp-
lýsa hversu háar upphæðir starfs-
menn skuldi Nýja Kaupþingi
vegna hlutabréfakaupa.
Ekki náðist í Hreiðar Má Sig-
urðsson, fyrrverandi forstjóra
bankans, við vinnslu fréttarinnar.
Fram kemur í tilkynningu frá
Landsbankanum að bankinn hafi
ekki veitt starfsmönnum lán fyrir
hlutabréfakaupum sem hluta af
starfskjörum. Því hafi ekki verið
um niðurfellingar slíkra skulda að
ræða hjá bankanum. - bj
Ráðherra lætur rannsaka
afskriftir hjá Kaupþingi
Það verður ekki liðið hafi stjórn Kaupþings afskrifað skuldir starfsmanna segir viðskiptaráðherra. Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður, segist bundinn trúnaði um viðskipti við starfsmenn eins og aðra.