Fréttablaðið - 04.11.2008, Page 2
2 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Auður, ertu alltaf með eitthvað
á prjónunum?
„Já, alltaf, enda verður ull gull í
höndunum á okkur.“
Auður Kristinsdóttir hefur gefið út prjóna-
blaðið Ýr í 20 ár.
OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, HOLTAGÖRÐUM,
OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, NÝBÝLAVEGI,
SUÐURLANDSBRAUT, OLÍS AKRANESI, OLÍS AKUREYRI,
OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI
12 STAÐIR
EFNAHAGSMÁL Tvær stærstu ferðaskrifstofur
landsins, Ferðaskrifstofa Íslands og Heimsferðir,
hafa skert starfshlutfall starfsmanna til að bregðast
við verulegum samdrætti í bókunum á ferðum.
„Starfsfólkið tók þessu af miklum skilningi,“ segir
Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri Úrvals-Útsýnar,
sem ásamt Plúsferðum og Sumarferðum eru í eigu
Ferðaskrifstofu Íslands. Hann segir eitt ganga yfir
alla, yfirstjórn jafnt sem almenna starfsmenn, allir
séu nú komnir í hálft starf og kjaraskerðingin eftir
því.
Um ástæðurnar segir hann að ekki þurfi að
fjölyrða. Gengishrun hafi leitt af sér færri bókanir
og fyrirtækið verði að bregðast við. Hann segir
aðgerðirnar vissulega harkalegar en þó skárri kost
en að grípa til uppsagna.
„Fólk tekur þessu ótrúlega vel og er skilnings-
ríkt,“ segir Guðbjörg Auðunsdóttir, trúnaðarmaður
hjá Úrvali-Útsýn. Hún segir starfsmenn vonast til
þess að ástandið sé tímabundið og þeir eigi þess kost
að sækja um hluta af atvinnuleysisbótum til að
kjörin skerðist ekki um helming.
Starfshlutfall starfsmanna Heimsferða verður 50
til 80 prósent í nóvember og desember, misjafnt
eftir því hversu mikið er að gera á þeirra starfsstöð,
segir Tómas J. Gestsson, framkvæmdastjóri
Heimsferða.
Hann segir starfsmenn sýna breytingunum
skilning, enda hafi eftirspurn eftir utanlandsferðum
minnkað hjá Heimsferðum eins og öðrum ferða-
skrifstofum. - bj
Ferðaskrifstofur skerða starfshlutfall starfsmanna til að komast hjá uppsögnum:
Starfsfólkið sýnir skilning
UTANLANDSFERÐIR Bókunum hefur fækkað mikið hjá íslensk-
um ferðaskrifstofum vegna erfiðs efnahagsástands.
IÐNAÐUR Hátæknifyrirtækið Vaki
hefur gert 200 milljóna króna
samning við stærsta laxeldisfyr-
irtæki heims, Marine Harvest.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig í
þróun hátæknibúnaðar fyrir fisk-
eldi. Hermann Kristjánsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir samninginn skapa mikla
möguleika. „Marine Harvest
hefur verið viðskiptavinur okkar
um margra ára skeið. Þessi samn-
ingur er eingöngu við hinn skoska
hluta félagsins. Hann skapar hins
vegar grundvöll fyrir samstarfi í
öðrum löndum þar sem félagið
starfar, svo sem í Noregi, Chile og
Kanada.“
Framleiðsla Vaka fer að lang-
mestu leyti í útflutning og áttatíu
prósent tekna koma aftur inn í
íslenskt hagkerfi. Hermann segir
að kreppan bíti ekki á félaginu,
nema með því að skapa óþægindi
vegna vandræða með millifærslur.
Hann er bjartsýnn á framtíð fisk-
eldis. „Við stöndum frammi fyrir
mikilli mannfjölgun. En við fáum
samt ekki meira úr sjónum, nema
með fiskeldi.“
Hjá Vaka starfa um fjörutíu
manns, hérlendis og utanlands.
- hhs
Hátæknifyrirtækið Vaki eykur umsvif sín í miðjum samdrættinum:
Gerir 200 milljóna samning
ELDISLAX Hátæknifyrirtækið Vaki er
sérhæft í þróun hátæknibúnaðar fyrir
fiskeldi.
SKIPULAGSMÁL Búddistar á Íslandi
eru skrefi nær því að fá reist
búddahof í Hádegismóum. Engin
andmæli bárust við breytingu á
deiliskipulagi vegna þess.
Tillagan lá frammi í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar frá 19.
september til 31. október.
Skipulagsráð Reykjavíkur
samþykkti breytt deiliskipulag
vegna byggingar hofsins í byrjun
september.
Taílenski auðkýfingurinn dr.
Prasert Prasathong Osoth, sem
meðal annars er eigandi Bangkok
Airways, er í forsvari fyrir
félagið sem reisir hofið. - hhs
Búddahof í Hádegismóum:
Komið skrefi
nær veruleika
MORGUNBLAÐSHÖLLIN Fær góðan
nágranna þegar búddahof rís í Hádegis-
móum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Hagar töpuðu 1,4
milljörðum króna á síðustu sex
mánuðum ársins, sem lauk í enda
ágúst. Á sama tíma í fyrra
hagnaðist félagið um 715
milljónir.
Undir Högum eru Bónus, Hag-
kaup, Debenhams og fleiri fyrir-
tæki og versl-
anir.
Rekstrartekj-
ur námu 29,3
milljörðum
króna, sem er
fimmtán
prósenta
aukning frá í
fyrra. Eigið fé
nam 6,7
milljörðum
króna sem er 24 prósentum
minna en í lok síðasta ársfjórð-
ungs. Eiginfjárhlutfall var 23,4
prósent.
Í tilkynningu er haft eftir Finni
Árnasyni forstjóra að óstöðug-
leiki íslensku krónunnar og mikil
verðbólga hafi mikil neikvæð
áhrif á reksturinn. - jab
Ástandið sker í afkomutölur:
Hagar skila tapi
FINNUR
ÁRNASON
DÓMSMÁL Héraðsdómur hafnaði í
gær frávísunarkröfu Jóns
Ólafssonar athafnamanns, sem og
kröfu hans um að dómari í máli
hans víki sæti. Jóni er gefið að
sök að hafa svikið um 360
milljónir króna undan skatti.
Lögmenn Jóns og annarra
sakborninga í málinu lögðu fram
frávísunarkröfur sem byggja á
því að greinargerð sem dómari
bað saksóknara að skila sé í raun
málflutningur sækjandans. Þar
með séu kröfur um munnlegan
málflutning að engu hafðar.
Dómari féllst á hvoruga
kröfuna. Kröfunni um að dómar-
inn víki verður skotið til Hæsta-
réttar. - bj
Skattamál Jóns Ólafssonar:
Kröfu um frá-
vísun hafnað
VEIÐI Jón Sigurður Ólason, yfirlög-
regluþjónn á Akranesi, fór á fjór-
hjóli til rjúpnaveiða síðastliðinn
laugardag í Sanddalstungu
skammt hjá Norðurárdal. Slíkt er
ólöglegt, að mati Ívars Erlends-
sonar, meðstjórnanda í Skotveiði-
félagi Íslands (Skotvís). Jón varð
síðar fyrir því óláni að fótbrjóta
sig þar um slóðir.
„Ég hef ekki brotið neitt af
mér,“ segir Jón Sigurður. Honum
þykir það leitt að vera sakaður um
slíkt, ekki síst vegna stöðu sinnar
en hann hefur einnig átt sæti í
nefnd dómsmálaráðherra um
endurskoðun vopnalaga.
„Við fórum á fjórhjólum upp
eftir en við vorum ekki á veiðum á
hjólunum,“ segir hann. Hann segir
að þeir hafi ekið eftir vegslóða
sem lá inn múlann og skilið hjólin
eftir þar á slóðanum og segist
hann ekki telja slíkt lögbrot.
„Meðan maður keyrir ekki utan
vegar og er ekki á hjólinu við veið-
arnar þá á þetta að vera í lagi.
Þessi götuskráðu hjól eru ekkert
öðruvísi að þessu leyti en bílar.“
Hann segir enn fremur að skyttur
fari akandi á bílum þennan veg
þegar fært er en sú var ekki raun-
in síðastliðinn laugardag. Menn
verði hins vegar að gæta þess,
segir hann, að hleypa ekki af
innan við 250 metra frá farar-
tækinu.
Aðspurður segir Ívar hins vegar
það vera ólöglegt að fara til veiða
á fjórhjóli. Skipti þá ekki máli
hversu langt frá hjólinu skyttan
sé þegar hleypt er af.
„Þetta hefur verið freisting hjá
fáeinum veiðimönnum að fara til
veiða á hjólunum en fólk hefur
verið duglegt við að láta lögregl-
una vita,“ segir Sigmar B. Hauks-
son, formaður Skotvíss. „Í þessu
tilfelli vil ég segja það að maður-
inn sem um ræðir er afar virtur
meðal okkar skotveiðimanna og
þykir okkur því afar sorglegt að
hann skuli hafa látið undan freist-
ingunni en óskum honum að öðru
leyti góðs bata.“
Á spjallborði vefsíðunnar hlað.
is var því haldið fram að Jón Sig-
urður hafi ekki haft pinna í byssu
sinni en pinni þessi kemur í veg
fyrir að menn geti hlaðið byssu
sína fleiri skotum en þremur.
Veiði með pinnalausum byssum er
því ólögleg. Hann svaraði því með
eftirfarandi hætti: „Að byssurnar
hafi verið pinnalausar er raka-
laust bull. Verð að segja að mér
finnst helvíti hart að vakna eftir
skurðaðgerð í framhaldi af slæmu
slysi og hitta Gróu á Leiti svona
illilega fyrir.“ jse@frettabladid.is
Yfirlögregluþjónn í
lögleysu á fjöllum
Yfirlögregluþjónn á Akranesi er sakaður um ólöglegar veiðar um helgina þegar
hann fór til veiða á fjórhjóli. Fólk hefur verið duglegt að láta lögregluna vita
þegar menn freistast til slíks, segir formaður Skotvíss.
RJÚPUR Á FLUGI Yfirlögregluþjónn virðist hafa brotið lög þegar hann fór á veiðar um
helgina.
EFNAHAGSMÁL Sænska fjármála-
fyrirtækið Moderna, sem er í eigu
Milestone, fjárfestingarfélags
Karls Wernerssonar og fjölskyldu,
semur nú upp á nýtt við Nýja
Glitni, eftir þrot gamla bankans.
Karl Wernersson, stjórnarfor-
maður Milestone, segir samstarf
Moderna og Glitnis vaxandi og
leitað verði leiða til að „þétta“ það
samstarf. Meðal eigna Moderna
eru fjárfestingarbankinn Askar
Capital og Sjóvá. Fjármálaeftirlit-
ið kannar nú stöðu bótasjóða
tryggingafélaganna eftir hrun
bankakerfisins og hefur kallað
eftir upplýsingum frá VÍS, TM og
Sjóvá. - kdk
Moderna og Nýi Glitnir semja:
Segja verið að
þétta samstarfið
VIÐSKIPTI Óskað hefur verið eftir
því að verslanir BT verði teknar
til gjaldþrotaskipta. Verslanirn-
ar hafa verið lokaðar frá því
fyrir helgi á meðan reynt var að
endurskipuleggja reksturinn.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu
kemur fram að tilraunir til að
halda rekstri gangandi hafi ekki
borið árangur. Vonir standi til
þess að hægt verði að koma BT í
rekstur á ný. Fyrir liggi kauptil-
boð í rekstur verslananna, en
framhaldið velti á skiptastjóra.
Verslanirnar verða lokaðar
þar til niðurstaða fæst. Um 50
manns hafa starfað hjá verslun-
unum. - bj
BT verslanir gjaldþrota:
Reyna að koma
rekstri í gang
ÚR REGLUGERÐ
Við veiðar er m.a. óheimilt að
nota: Vélknúin farartæki, nema
báta á sjó til fuglaveiða enda
gangi þeir ekki hraðar en níu
sjómílur meðan á veiði stendur.
Vélknúin farartæki á landi, önnur
en vélsleða, fjórhjól og önnur
torfærutæki, má nota til að flytja
veiðimenn til og frá veiðilendum
og þá eingöngu á vegum eða
merktum vegaslóðum. Skotvopn
skulu vera óhlaðin meðan á akstri
stendur. Þau skulu einnig vera
óhlaðin nær vélknúnu farartæki á
landi en 250 m.
SPURNING DAGSINS