Fréttablaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 8
8 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Dóttir gigtarsjúklings skrifar: „Mig langaði svo að
koma á framfæri einu atviki sem móðir mín lenti í
núna í dag. Hún hefur verið hjá gigtarlækni í sirka ár
og hann skrifar upp á töflur fyrir hana. Töflurnar
kosta um 5.000 kr. og það má ekki ávísa þeim nema
gegn lyfseðli. Nú spyr ég: Er það eðlilegt að læknir
geti rukkað um 3.000 kr. fyrir það eitt að skrifa upp á
lyfseðil, verk sem tekur um það bil hálfa til eina
mínútu?“
Ef málið snýst eingöngu um að fá lyf sem þegar er
búið að ávísa er of dýrt að fá lyfin í gegnum sérfræð-
ing. Sérfræðingar eru dýrastir hér af öllum Norður-
landaþjóðunum. Ódýrasta leiðin er að láta heimilis-
lækninn skrifa upp á lyfin. Heimsókn til íslensks
heimilislæknis kostar þúsund krónur. Heimilislæknar
geta skrifað upp á öll gigtarlyf og þeir taka ekki
aukalega fyrir það – það er innifalið í heimsókninni. Á
Norðurlöndunum er einungis ódýrara að heimsækja
heimilislækni í Danmörku, þar sem það er ókeypis.
Munið einnig eftir að biðja lækninn að skrifa upp á
þriggja mánaða lyfjaskammta, þegar um er að ræða
lyf sem tekin eru að staðaldri, og fá fjölnotalyfseðil.
Neytendur: Þjónusta sérfræðilækna
Dýrt að skrifa upp á lyf
1 Hvað heitir félagið sem á
sunnudag keypti fjölmiðlahluta
365 miðla?
2 Hvað þykir sérstakt við vígslu
séra Hjartar Pálssonar sem
vígður var til prests á sunnu-
dag?
3 Hver er heimsmeistari í
Formúlu 1?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 26
DANMÖRK Eitt þekktasta hótel
Norðurlanda, Hótel D´Anglaterre
í Kaupmannahöfn, er að sögn
danska blaðsins Berlingske
Tiderne komið í eigu íslenska rík-
isins í gegnum Nýja Lands-
bankann.
Blaðið greindi frá þessu í gær
en þar segir að auk hótelsins eigi
Landsbankinn fleiri þekkta staði
eins og Kong Frederik, Front og
Copenhagen Corner. Nordic Partn-
ers keypti umræddar eignir árið
2007. Þá fjármagnaði Landsbank-
inn kaupin og hefur Nýi Lands-
bankinn nú stór veð í eignunum.
Haft er eftir Gísla Reynissyni,
stjórnarformanni Nordic Partn-
ers, að hann viti ekki til að samn-
ingum félagsins við Landsbank-
ann hafi verið breytt. Hann segir
þá hins vegar finna fyrir áhyggj-
um hjá fólki yfir því að íslenskur
banki standi að fjármögnuninni.
Þá segir Berlingske að íslensku
fjárfestarnir í Nordic Partners
hafi verið óheppnir með kaup sín
í Danmörku. Hótelin D´Anglater-
re og Kong Frederik séu rekin
með tapi auk þess sem komið hafi
í ljós að félagið hafi tekið yfir
áhvílandi skuldir fyrri eigenda
svo kaupverð hafi í raun verið
mun hærra en þær 700 milljónir
danskra króna sem áður hafa
verið nefndar. - ovd
Danskt blað segir þekktasta hótel Norðurlandanna komið í eigu íslenska ríkisins:
D Ánglaterre í eigu ríkisins
HÓTEL D´ANGLATERRE Hótelið er í
miðborg Kaupmannahafnar og einna
helst þekkt fyrir að þar gista jafnan
stórstjörnur sem heimsækja borgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
VILTU VITA
MEIRA?
LIFANDI OG SKEMMTILEGIR
FYRIRLESTRAR UM PÓLITÍK
Í STJÓRNMÁLASKÓLA
SAMFYLKINGARINNAR.
FYLGIST MEÐ Á HEIMASÍÐU UNGRA
Stjórnmálaskóli Samfylkingarinnar
verður haldin í Reykjavík 21., 23. og
25. október 2008 (þriðjudagskvöld,
mmtudagskvöld og laugardag).
Í skólanum verður boðið upp á úrval
góðra fyrirlestra um hugmyndafræði í
stjórnmálum, málefni líðandi stundar
og veitt innsýn í starf stjórnmálaokka.
Magnað tækifæri til að setja sig betur
inn í málin. Á meðal framsögumanna
verða ráðherrar, alþingismenn og virtir
fræðimenn. Í lok fyrirlestra er gert ráð
fyrir spjalli á léttu nótunum.
Engin skólagjöld eru innheimt og boðið
verður upp á barnapössun. Öll velkomin.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
STJÓRNMÁLASKÓLI
UNGIR JAFNAÐARMENN
HALLVEIGARSTÍG 1, 101 REYKJAVÍK - SÍMI 414 2210
UNGIR JAFNAÐARMENN
VILTU VITA
MEIRA?
LIFANDI OG SKEMMTILEGIR
FYRIRLESTRAR UM PÓLITÍK
Í STJÓRNMÁLASKÓLA UNGRA
JAFNAÐARMANNA.
Skólinn fer fram dagana 4. 6. og 8. nóvember í
Háskóla Íslands, stofu 101 í Odda.
ÞRIÐJUDAGURINN 4. NÓV. 19:30-22:00
Hafa gömlu hugmyndakerfin brugðist - þarf aðrar
hugmyndir fyrir nýja framtíð? Eiríkur Bergmann
stjórnmálafræðingur og Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra setur skólann og fjallar um
mikilvægi jafnaðarstefnunnar í dag.
FIMMTUDAGURINN 6. NÓV. 19:30-22:00
Hugsa fyrst kaupa s o - Neytendamálin á oddinn
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
Bryndís Pétursdóttir ritstjóri Neytendablaðsins.
LAUGARDAGURINN 8. NÓV.
Stjórnun Efnahagsmála á Íslandi í dag
13:00-14:30 ,Ólafur Darri Andrason hagfræðingur
ASÍ
Framkoma og grein skrif 15:00-16:30, Helga Vala
Helgadóttir Jónas Kristjánsson blaðamaður
Í LOK FYRIRLESTRA ER GERT RÁÐ FYRIR
SPJALLI Á LÉTTU NÓTUNUM.
ENGIN SKÓLAGJÖLD OG ALLIR ERU
VELKOMNIR.
VINNUMARKAÐUR Viðbúið er að dag-
foreldrum á höfuðborgarsvæðinu
fækki verulega á næstu vikum.
Margir þeirra hafa nú þegar aðeins
tvö til þrjú börn í vistun. Þeir hafa
heimild til að hafa hjá sér fjögur
til fimm börn. Á tiltölulega stutt-
um tíma hefur staða þeirra gjör-
breyst. Einungis nokkrir mánuðir
eru síðan allir biðlistar voru yfir-
fullir.
„Nokkrar dagmæður hafa hætt
nú á síðustu dögum. En margar
hafa ákveðið að bíða og sjá til fram
yfir áramótin. Ef ástandið lagast
ekki fyrir þann tíma er ljóst að
mjög margar munu hætta,“ segir
Ólöf Lilja Sigurðardóttir, dagmóðir
í stjórn Barnavistunar, félagi dag-
foreldra. Hún segir viðbúið að dag-
foreldrum muni fækka úr um 180
um síðustu áramót, í undir hundrað
um þau næstu.
Hluti skýringarinnar er að
mannekla á leikskólum hefur nú
að mestu verið leyst. Munurinn á
verði vistunar á leikskóla og hjá
dagforeldri hleypur á tugum þús-
unda. Jafnvel þó að foreldrar
myndu velja dagforeldri fram yfir
leikskóla er munurinn svo mikill
að líklega yrði ódýrari kosturinn
fyrir valinu.
Niðurgreiðslur til dagforeldra
nema 39.375 krónum miðað við
hjón með eitt barn í vistun í níu
klukkustundir. Algengt er að for-
eldrar greiði rúmlega fjörutíu þús-
und krónur á móti. Mun ódýrara er
að greiða fyrir börn í leikskóla.
Þar kostar mánuðurinn fyrir hvert
barn 16.236 krónur.
Félag dagforeldra fundar á
fimmtudag vegna þess ástands
sem er að skapast í stéttinni. Þar
verða meðal annars þær kröfur
ræddar að samkeppnisstaða dag-
foreldra við leikskólana verði jöfn-
uð. Jafnframt að samstarf þeirra á
milli verði aukið til muna.
Til stóð að þjónustusamningur
yrði gerður milli borgarinnar og
dagforeldra nú í nóvember. Ólöf er
ekki bjartsýn á að af því verði.
„Svo virðist sem ákvörðun hafi
verið tekin um að láta dagforeldra-
kerfið lognast út af hægt og
rólega,“ segir hún.
„Þjónustusamningurinn er alls
ekki út af borðinu,“ segir Þorbjörg
Helga Vigfúsdóttir, formaður leik-
skólaráðs. „Við viljum tryggja
dagforeldrum betra umhverfi og
foreldrum lægri gjöld með þess-
um þjónustusamningi. En við
getum hins vegar ekki klárað hann
á meðan fjármál borgarinnar eru í
uppnámi.“ holmfridur@frettabladid.is
ÓLÖF OG BÖRNIN Ólöf Lilja Sigurðardóttir, dagmóðir og stjórnarmaður í Barnavistun,
félagi dagforeldra, er ekki bjartsýn á framtíð stéttarinnar.
Dagforeldar
óttast um
framtíð sína
Skortur er á börnum hjá dagforeldrum í Reykjavík.
Mikil fækkun blasir við í stéttinni verði ekkert að
gert. Þjónustusamningur frestast en ekki hefur
verið hætt við hann, segir formaður leikskólaráðs.
ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR
Formaður leikskólaráðs segir ekki hægt
að klára þjónustusamning á meðan
fjármál borgarinnar séu í uppnámi.
ALÞINGI Siv Friðleifsdóttir,
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins, vill að fjármálaráðherra
og viðskiptaráð-
herra birti
minnisblöð
vegna funda og
samtala sem
þeir áttu um
starfsemi
Landsbankans í
Bretlandi.
Vill Siv að
viðskiptaráð-
herra upplýsi
hverjir voru viðstaddir fund hans
og fjármálaráðherra Breta 2.
september og hvaða málefni voru
rædd. Jafnframt að fjármálaráð-
herra upplýsi um vitneskju sína
um tilboð Breta um tilfærslu
Icesave-reikninga í breska lögsögu
gegn 200 milljóna punda fyrir-
greiðslu íslenska ríkisins. - bþs
Siv Friðleifsdóttir, Framsókn:
Vill sjá minnis-
blöð ráðherra
SIV
FRIÐLEIFSDÓTTIR
FÉLAGSMÁL Stúdentatíð í kreppu-
hríð er yfirskrift raðar málþinga
sem Stúdentaráð Háskóla Íslands
stendur fyrir 5. til 7. nóvember
næstkomandi.
Í tilkynningu frá Stúdentaráði
segir að það vilji bregðast við
ástandinu og krísunum með
sínum bestu vopnum sem séu
hugmyndir, opin umræða og
stefnumótun framtíðarinnar.
Málþingin eru haldin milli
klukkan 12 og 13 á háskólasvæð-
inu en þar gefst stúdentum kostur
á að spyrja um peningamál,
atvinnuhorfur og framtíðina.
Dagskrá málþinganna má finna á
slóð Stúdentaráðs, student.is. - ovd
Stúdentar ræða kreppuna:
Stefnumótun
framtíðarinnar
VEISTU SVARIÐ?