Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.11.2008, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 04.11.2008, Qupperneq 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Ég er í músíkleikfimi hjá Hafdísi sem stofnaði Kramhúsið. Það er ótrúlega skemmtilegt, mikið af teygjuæfingum og alls konar dans- sporum. Við erum eins og ballerín- ur og afródansarar til skiptis,“ útskýrir Guðrún Eva Mínervu- dóttir þegar hún er innt eftir því hvernig hún haldi sér í formi. Guð- rún hefur sótt Kramhúsið í nokkur ár og líkar vel. „Þetta er góður félagsskapur og mjög góð stemning. Þarna er mátulega mikill hamagangur og ekkert of hörð keyrsla en ég er ekkert fyrir hraða leikfimi,“ segir hún og hlær. Guðrún Eva situr daglangt við skriftir og segir nauð- synlegt að hreyfa sig reglulega. Hún hefur fundið fullkomna blöndu af hreyfingu sem hún fær ekki leiða á en auk músíkleikfim- innar stundar hún jóga og lyftir. „Það eru rosalega góðir jóga- tímar í Kramhúsinu. Þar er ekki reynt að búa til leikfimi úr jóganu heldur eru tímarnir bara rólegir og slakandi og endurnærandi eins og þeir eiga að vera. Svo finnst mér líka gott að fara einu sinni í viku í Baðhúsið til að lyfta og fara svo í pottinn á eftir.“ Guðrún Eva hefur hollustuna bak við eyrað þegar kemur að mataræðinu og segir hollan mat betri en óhollan. „Mér finnst ekki gott að borða drasl en annars er ég ekki með neinar tiktúrur í mat. Reyni bara að borða venjulegan og hollan mat. Ég hef aldrei farið í sérstakt átak. Þetta snýst frekar um að halda sér í sæmilegu formi og viðhalda góða skapinu og ork- unni. Ég vinn algera kyrrsetu- vinnu og ef ég fer ekki í leikfimi þá fæ ég strax vöðvabólgu, ég er alveg búin að læra það.“ heida@frettabladid.is Mátulegur hamagangur Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur stundar heilsurækt í Kramhúsinu og Baðhúsinu. Þangað sækir hún jógatíma og dansar afródans og ballett í músíkleikfimitímum auk þess að lyfta. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur stundar jóga og tónlistarleikfimi í Kramhúsinu sér til heilsubótar. FJARÞJÁLFUN hentar sumum til að komast í gott form. Einkaþjálfari og viðskiptavinur eiga þá samskipti í gegnum Netið. Þjálfari afhendir viðskiptavini æfingaáætl- un og hann skilar árangurs- og matardagbók á móti. Ertu starfandi í greininni e›a í grein henni tengdri? Hefur flú áhuga á a› ljúka flví námi sem flú hófst? Bættu um betur – Húsasmí›i er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví a› meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá› flví hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur í verkefninu ljúki sveisprófi. Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu- setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›. fiar er einnig hægt a› skrá sig á kynningarfund sem ver›ur haldinn mi›vikudaginn 5. nóvember kl. 18.00 a› Skúlatúni 2, 105 Reykjavík. Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is. Hófst flú nám í húsasmí›i en laukst flví ekki? Ei n n t v ei r o g þ r ír 4 26 .0 0 3 Leiðrétting á auglýsingu sem birtist mánudaginn 3. nóvember í Fréttablaðinu

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.