Fréttablaðið - 04.11.2008, Page 28
16 4. nóvember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði,
stórafmæli og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
LAURA BUSH FORSETAFRÚ
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1946.
„Ást á bókum, að halda á
þeim, fletta síðunum, horfa
á myndirnar og lifa sig inn í
heillandi sögurnar, fer saman
við það að elska að læra.“
Laura Bush er forsetafrú Banda-
ríkjanna. Hún giftist George
W. Bush árið 1977 og eiga þau
saman tvær dætur, tvíbura sem
fæddust árið 1981.
Áhöfnin á Brúarfossi bjargaði
44 mönnum af enska flutninga-
skipinu Daleby þennan dag árið
1942. Bæði skipin voru í skipa-
lest milli Bandaríkjanna og Ís-
lands sem í voru 50 kaupskip
auk tveggja herskipa og eins
vopnaðs togara. Stórir hópar
þýskra kafbáta gerðu árás á
skipalestina og voru fylgdarskip-
in alltof fá til að geta spornað
við þeim.
Eftir stöðugar árásir í fjórar
nætur, var aðeins þriðjungur
kaupskipa enn ofansjávar 4.
nóvember, þar á meðal Brúar-
foss. Veður fór þá versnandi og
var erfiðara fyrir kafbátana að
athafna sig en þó varð skipið
Daleby fyrir tundurskeyti. Brúar-
foss flýtti sér að bjarga sjóliðun-
um. Stærsti hluti áhafnarinnar
komst í björgunarbáta en nokkr-
ir urðu eftir í skipinu. Þá fóru
menn af Brúarfossi tvær ferðir
á björgunarbátum til að bjarga
þeim. Þannig björguðust sjö
menn. Brúarfoss missti af skipa-
lestinni við þetta en veður var
orðið vont og ekki varð meira
vart við þýsku kafbátana.
ÞETTA GERÐIST: 4. NÓVEMBER 1942
Breskri áhöfn bjargað
timamot@frettabladid.is
Árbók Þingeyinga, sem er
útbreiddasta átthagarit á
Íslandi, er 50 ára en það
hefur verið gefið út sam-
fellt frá árinu 1958. Skipt er
um ritstjóra og ritnefnd á
þessum tímamótum en Sig-
urjón Baldur Hafsteinsson
tekur við stjórn blaðsins af
þeim Guðna Halldórssyni
og Sigurjóni Jóhannessyni,
sem hafa ritstýrt árbókinni
saman frá árinu 1994. Sig-
urjón er frá Reykjavík en á
ættir að rekja til Laxamýr-
ar rétt sunnan við Húsavík.
Í fyrsta hefti árbókarinn-
ar árið 1958 skrifar þáver-
andi ritstjóri hennar, Bjart-
mar Guðmundsson, bréf til
lesenda. Hann segir ritinu
ætlað að vera tengiband við
héraðsbúa heima fyrir en
að það sé ekki síður ætlað
þeim sem fluttir eru á brott
en eru heima í huga sínum
og endurminningum. Sigur-
jón Hafsteinsson segir ár-
bókina gegna sams konar
hlutverki í dag.
„Við reynum að birta
greinar og fréttir úr hverj-
um hrepp fyrir sig, sem
eru níu talsins og teygja
sig frá Eyjafjarðarsveit og
yfir í Bakkafjörð. Í ritinu
eru birtar greinar, sögur,
ljóð og annálar en mark-
mið bókarinnar er að fræða
og skemmta ungum sem
öldnum. Tilgangur hennar
hefur verið að þjappa fólki
á svæðinu saman og þótt
samgöngur séu orðnar betri
og einhver riðlun hafi orðið
á stjórnsýslueiningum þá
reynum við að halda í þessi
mörk,“ segir Sigurjón.
Hann segir ýmsan fróð-
leik að finna í árbókunum
og að þar séu mikilvægar
heimildir. „Annálaskrifin
eru gamalkunnugt stef en
þar er sagt frá árferði, af-
urðum, skóla og menning-
arlífi hreppanna svo eitt-
hvað sé nefnt. Ég veit til
þess að ungir jafnt sem
aldnir hafa í gegnum tíðina
rifist um að fá að lesa um
hvernig hafi árað í nálæg-
um hreppum þegar blaðið
kom í hús.“
Sigurjón segir markmið-
ið að höfða enn frekar til
yngri kynslóða í framtíð-
inni. Í afmælisveislu sem
verður haldin í Safnahús-
inu á Húsavík klukkan
fimm í dag verður vefút-
gáfa árbókarinnar opnuð á
slóðinni www.arbok.is. Er
henni meðal annars ætlað
að höfða til ungs fólks á
svæðinu auk brottfluttra.
„Hugmyndin er að gera
árbókina sýnilega á vefn-
um þannig að fólk geti skoð-
að hvað hefur verið skrifað
áður og hvað er í deiglunni.
Þá er árbókin komin með
síðu á Facebook eins og
stór hluti Íslendinga. Þar
hefur hún fengið góðar við-
tökur og eignast um 400
vini á tæpum mánuði,“ upp-
lýsir Sigurjón.
Hægt verður að hlýða á
upplestur úr fyrstu árbók-
inni, ávarp fráfarandi rit-
stjóra og margt fleira í
afmælisveislunni í kvöld.
„Með vorinu er svo ætlun-
in að efna til fleiri funda og
setja bókina í samhengi við
sams konar útgáfu í fortíð
og nútíð,“ segir Sigurjón.
vera@frettabladid.is
ÁRBÓK ÞINGEYINGA: FAGNAR 50 ÁRUM MEÐ AFMÆLISVEISLU OG NÝRRI VEFSÍÐU
Tengiband við héraðsbúa
MIKILVÆGAR HEIMILDIR Sigurjón Baldur Hafsteinsson, sem tekur nú
við ritstjórn árbókarinnar, segir fyrri árganga bókarinnar hafa að geyma
mikilvægar heimildir og margvíslegan fróðleik. Með nýrri vefsíðu
árbókarinnar er ætlunin að ná betur til unga fólksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bestu þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát
Jónasar R. Jónassonar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Dagdvöl Sunnuhlíðar
í Kópavogi.
Erla Jónasdóttir
Sigrún Jónasdóttir
Fanney Jónasdóttir og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkur, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Mörtu Gunnlaugar
Guðmundsdóttur
frá Markholti, Mosfellsbæ.
Lára Haraldsdóttir Sigurður E. Sigurðsson
Hilmar Haraldsson Helga Jónsdóttir
Ragnar Ingi Haraldsson
Guðjón Haraldsson Nína H. Leifsdóttir
Schjetne
Kolfinna Snæbjörg Haraldsdóttir
Friðþjófur Haraldsson Sigríður Ármannsdóttir
Guðmundur Birgir Haraldsson Margrét Jóhannsdóttir
Garðar Haraldsson Sólveig Ástvaldsdóttir
Helga Haraldsdóttir
Jón Sveinbjörn Haraldsson Sigrún A. Kröyer
og ömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Sigurbjargar Svanhvítar
Steindórsdóttur
Borgarheiði 13, Hveragerði.
Sigurbjörg Gísladóttir Hannes Kristmundsson
Magnea Ásdís Árnadóttir
Svanhvít Gísladóttir Reynir Gíslason
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ingi Jónsson
Hringbraut 50, áður til heimilis á
Kópavogsbraut 1b, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
5. nóvember kl. 13.00.
Jón Ingi Ingason Kristín Jónsdóttir
Markús Ingason Oddný Hólmsteinsdóttir
Sólfríður Guðmundsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín og besti
vinur, móðir okkar og amma, dóttir,
tengdamóðir, systir og mágkona,
Herdís Björg
Gunngeirsdóttir
Ársölum 3, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 6.
nóvember nk. kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsam-
lega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á NÝ DÖGUN, samtök um sorg og sorgarvið-
brögð.
Friðrik Björnsson
Gunngeir Friðriksson Edda Björg Sigmarsdóttir
Ásgeir Friðriksson Helga Lára Ólafsdóttir
Sigurrós Friðriksdóttir
Sigurrós Eyjólfsdóttir
Viðar Gunngeirsson Halla Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir og tengdamóðir,
Ástdís Guðjónsdóttir
Suðurgötu 37, Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landakotsspítala
föstudaginn 31. október. Jarðarförin auglýst síðar.
Haraldur Theodórsson
Guðjón Haraldsson Sigríður Siemsen
Þórir Haraldsson Mjöll Flosadóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
María Guðbjartsdóttir
Hringbraut 50, áður til heimilis að
Dalbraut 16, Reykjavík,
sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 30. október, verður jarðsungin fimmtu-
daginn 6. nóvember kl 13.00 frá Fossvogskirkju.
Sigríður Ósk Óskarsdóttir Hermann Sigfússon
Halldóra Björt Óskarsdóttir Guðmundur R. Jónsson
Þráinn Ingólfsson Guðríður Hermannsdóttir
Ólafur Jón Ingólfsson Margrét Á. Hallsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær dóttir mín, móðir, amma, systir,
móðursystir og mágkona,
Katla Sigurgeirsdóttir
Þórsgötu 22, Reykjavík,
andaðist á Líknardeild Landspítalans föstudaginn
31. október. Jarðarförin auglýst síðar.
Anna G. Kristgeirsdóttir
Elva Rakel Sævarsdóttir
Aron Kristinn Haraldsson
Stella Sigurgeirsdóttir Jóhann Bjarni Pálmason
Salka Þorgerður Jóhannsdóttir Stelludóttir
Daði Sigurgeirsson
Kristgeir Sigurgeirsson