Fréttablaðið - 04.11.2008, Síða 40

Fréttablaðið - 04.11.2008, Síða 40
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 4. nóvember, 309. dagur ársins. 9.22 13.11 17.00 9.17 12.56 16.33 Samtök iðnaðarins - www.si.is Veljum íslenskt – okkar hagur! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -2 0 5 9 Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is Allt fram í lok september snerist helsta þrætuefni þjóðarinnar um það hvort reisa ætti styttu af Tómasi Guðmundssyni Reykja- víkurskáldi. Sjálfstæðismaðurinn Kjartan Magnússon, sem lagði fram hugmyndina, þótti við hæfi að styttan stæði í Hljómskálagarð- inum (Gísli Marteinn var einmitt nýbúinn að stinga upp á að þar yrði kaffihús) eða við sjálft tónlistar- húsið. Svandísi Svavarsdóttur leist illa á tillöguna, sagði hana gamal- dags og stirða auk þess mengaða af karllægum viðhorfum. Þetta voru síðustu dagar góðærisins. ÉG ræddi við færeyskan kunningja um daginn sem er einkar vel að sér í stjórnmálasögu Íslendinga. Ég sagði honum að skáldið hann Einar Már Guðmundsson hefði gefið Fær- eyingum norðurljósin árið 2006 með þessum orðum: „Ég hef heldur aldrei heyrt að nokkur Færeyingur hafi reynt að selja norðurljósin eins og skáldið Einar Benediktsson, sem bauð þau til kaups í London fyrir hundrað árum og ekki óviðeigandi að rifja upp nú þegar íslenskir kaupsýslumenn fara um heiminn eins og víkingar með greiðslukort.“ SÁ færeyski sagði að ástæðan fyrir því að samlandar hans hefðu ekki reynt að selja Bretunum þessa feg- urð væri sú að þeir væru ekki jafn hugmyndaríkir. Íslendingar ættu að herða upp hugann og hætta þessum sjálfsásökunum um að flatskjáa- kaup hefðu steypt þjóðinni í glötun. Aldrei hafi hann hitt Færeying sem hafi haldið því fram að kaup á VHS- tækjum hafi orsakað kreppuna þar í landi á tíunda áratugnum. Það hafi óhæfir ráðamenn og spilltir vald- hafar gert. FÆREYINGURINN hélt því svo fram að Íslendingar væru í huga hans þjóðin sem hefði fyrst stigið fram fyrir skjöldu og viðurkennt sjálfstæði Eystrasaltslandanna, þá full af hugrekki og stórmennsku. Mér varð þá hugsað til listaverks- ins Stuðnings við Túngötu. Það gáfu Lettar Íslendingum sem þakklætis- vott og létu eitt kvæða sinna stór- skálda fylgja: Við erum smáþjóð / Við munum verða eins stór / og hugur okkar stendur til. ÉG fór og skoðaði þetta verk eftir símtalið og áttaði mig á mikilvægi styttna bæjarins, hve þær geta glatt mann með því að minna á fegurð, göfgi eða vináttu. Ég hlakka til þess tíma þegar tal um styttuna af Tóm- asi verður aftur tímabært. Og tal- andi um það sem er tímabært, það er texti lagsins Styttur bæjarins sem Spilverk þjóðanna söng svo sannarlega um þessar mundir. „Þú og ég, við erum fimmmenningar, víkingar, aríar, Íslendingar! Fjall- konan, hún tyllir sér á stein, fær sér smók og hvílir lúin bein …alein…“ Styttur bæjarins

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.