Tíminn - 18.02.1982, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18. febrúar 1982
fcSLSiil
tro
fréttir
Vídeómálin:
T uttugu
lögbanns-
beiðnir
■ Borgarftígetaembættinu i
Reykjavik hafa borist tuttugu
lögbannsbeiönir á vldeoleigur I
Reykjavik og annarsstaðar á
landinu.
Málið var tekið fyrir hjá
borgarftígeta i gær og þd strax
féllu tvö málin niður vegna þess
að samkomulag tókst á staðnum,
en afgreiðslu hinna var frestaö
fram á föstudag.
Það voru alls ellefu fyrirtæki I
Reykjavik sem fariö var fram á
lögbannsúrskurö yfir, en tvö utan
borgarinnar.
Þau eru Laugarásbiö, Háskóla-
bióog Regnboginn semfara fram
á lögbannsúrskurðina. —Sjtí.
Tók út við
innsiglinguna
í Grindavík
■ Það slys varð i fyrrinótt, þegar
netabáturinn örn KE 13 var aö
kom a lir róðri, að ungan mann tók
út, er sjór reið yfir bátinn aftan-
verðan, þar sem tveir menn voru
að huga að landfestum.
Annar mannanna slapp I skjól,
áður en brotið reið yfir og slapp
hann naumlega.
Björgunarsveitin Þorbjörn
leitaði i' gærdag og allt fram til
kvölds á f jörum, en leitin bar ekki
árangur. Var ætlunin aðhefja leit
að nýju nú i morgun. —AM
Vatna-
skemmdir
á vegum
■ Vegaskemmdir hafa orðiö
talsverðar á landinu sunnan og
vestanverðu af völdum votviðris
sem verið hefur undanfarna
daga.
Vatnaskemmdir urðu tals-
verðar i Árnessýslum en þtí
hvergi alvarlegar. Vegurinn fyrir
Hvalfjörð lokaðist i gærmorgun
af völdum aurskriða, en um há-
degisbilið var búið að opna hann
stærri bi'lum og eftir þvf sem leið
á daginn var vegurinn að komast
i lag og jafnvel var útlit fyrir að
hann yröi fær öllum bilum i gær-
kveldi.
Vestur á Snæfellsnesi féllu
skriður á veginn um ólafsvikur-
enni. Vegurinn lokaðist og i gær
var ekki fært að hefja ruðning
vegna vatnsflóða sem fylgdu
skriðufallinu. En vegagerðin
ætlar að gera veginn færan um-
ferð strax og tök verða á, en
þegar hægt verður að byrja þá
mun það taka skamman tima.
Vegurinn um Búlandshöfða er
afar erfiður yfirferðar vegna
vatnaskemmda og i gær var hann
aðeins fær stærri bilum. Þá féll
skriða á veginn milli Grundar-
fjarðar og Helgafellssveitar, en
þeirri skriðu var rutt af i gær. Svo
þar er fært öllum bilum.
Vegurinn um Heydal var ófær
um tima i gær vegna þess að mik-
il vatnsflóð voru á veginum I
Hnappadalnum, en þegar liða tók
á daginn þá voru flóðin farin að
minnka og vegurinn orðinn fær
stærri bilum.
Viða i Borgarfirði hafa orðið
vatnaskemmdir á vegum upp til
dala, t.d. á Hvitársiðu, en i gær
var unnið að viögerðum á þessu,
Vegfarendur eru þó minntir á aö
fara varlega, vegna þess að ekki
hefur tekist að kanna allar þær
vatnaskemmdir sem oröið hafa.
-Sjtí.
Tólf hurdir
brotnar
■ Tólf hurðir voru brotnarmeira
og minna i innbroti sem framið
var i húsinu við Skipholt 70 i
Reykjavik i fyrrinótt.
1 húsinu eru skrifstofur átta
iðnaðarmannafélaga og fóru inn-
brotsmennimir á allar skrifstof-
urnar. Engu var stolið i innbrot-
inu.
■ t slagviðrinu i gærmorgun varð vatnselgurinn fborginni geysimikili
viða. Flæddi vatn sums staðar inn I kjallara húsa, og hér vinna starfs-
menn einmitt aö þviað dæia vatni úr kjallara Feliaskóla I Breiðholti, en
þangaö inn flæddi talsvert vatnsmagn. Tfmamynd — Róbert.
„SNJÓKÓFIÐ
VAR EINS
ÞÉTTOG
HVEITIRYK”
— segir Þorsteinn Sigurdsson,
lögregluþjónn á Patreksfirdi,
® „Snjókófið var eins þétt og
hveitiryk og hefðum við runnið
einu hænufcti nær vegarbrúninni
hefðum við oltið heilmargar
veltur niður hliðina þarna, sem er
snarbrött, einir tvö hundruð til
tvöhundruð og fimmtiu metrar,”
sagði Þorsteinn Sigurðsson, lög-
regluþjónn á Patrcksfiröi, en
hann lentil snjóflóöi, þegar hann
var að koma Ur sjúkraflutningum
frá Barðaströnd á sjúkrabfl
staðarins.
Þessiatburðurgerðistum kl. 16
sl. þriðjudag, þegar tveir lög-
regluþjónar frá Patreksfirði ftíru
suður á Barðaströnd, til þess að
sækja tvo sjúklinga. Gekk allt
snurðulaust á suðurleið, en þegar
þeir voru á leið til Patreksf jarðar
að nýju féll snjóflóð á bilinn.
„Við vorum staddir við svo-
nefndan Neðsta-Sneiðing á
Kleifarheiði, um 15 km. frá
Patreksfirði þegar þetta gerðist.
Þetta var eins og byssuskot. Ég
var á hægri ferð niður heiðina
þegar snjórinn tók aö þyrlast allt
i kring um bilinn. Hann virtist
takast á loftogflautalveg fram á
blákantinn á veginum. Ef við
hefðum fariö fram af er enginn
vafi á að það hefði kostað okkur
öll lífið. Það haföi rignt og snjór-
inn því talsvert blautur og var
eins og steypa, þegar við kom-
umst út. Ég þorði ekki að hreyfa
bilinn, vegna þess hve tæpt hann
stóð.
Við kölluðum á mjólkurbil, sem
var ekki langt undan og hann dró
okkur út úr þessu, svo líklega
hefur þetta verið um klukku-
stundar töf.”
Þorsteinn sagði aö sem betur
fer heföu sjúklingarnir ekki verið
mjög veikir og hefði þeim ekki
orðið meintaf og enn mun sjúkra-
blllin sem er nýr Chevrolet, hafa
sloppið óskemmdur. —AM
Hagnaður
Útvegsbank-
ans yfir
24 milljónir
■ Hagnaður Útvegsbankans á
siðasta ári nam 24,2 milljónum
króna á árinu 1981, þegar búið var
að afskrifa 2,3 milljónir kr. af
eignum bankans. Innlán bankans
höfðu aukist um 215,7 milljónir
króna á árinu, eða 56% og námu i
árslok 601,3 milljónum. Útlán
jukust um 179,8 milljónir eða
45,1% og námu 578,8 milljónum i
árslok, þar af voru 46,5% lán til
sjávarútvegs.
Af fyrrnefndum 24,2 millj. kr.
hagnaði var 16,3 m ráðstafað i
varasjóð, 5 m. i eftirlaunasjóð
starfsmanna og 2,8 m. i húsbygg-
ingasjóð. Bankinn greiddi 7,5
milljónir kr. i skatt af gjaldeyris-
verslun á árinu.
Eigið fé bankans jókst um 91,8
millj. kr. á árinu, að meðtöldu 50
millj. króna láni sem rikissjóöur
sér um að endurgreiða á næstu 12
árum. —HEI
DIESEL 1982
SJÁLFSKIPTIB - BEINSKIPTIR
Beinskiptir: Verö.....kr. 237.140,00
Verð til leigubílstjóra kr. 173.740,00
Sjálfskiptir: Verö....kr. 245.310,00
Verð til leigubílstjóra kr. 179.700,00
DATSUN 280C
Datsun €« umboðið
INGVAR HELGASON
Vonarlandi við Sogaveg • Sími 33560
—Sjó.