Tíminn - 27.02.1982, Side 4
4
Laugardagur 27. febrúar 1982
stuttar fréttir
fréttir
- O /
Bjarki Tryggvason og Jón Bjarnason, eigendu1 Cesars i hinni
nýju og glæsilegu verslun. Mynd: SK Akurcyri.
Nýtt verslun-
arhúsnædi
Eigendur Cesars á Akur-
eyri, Bjarki Tryggvason og
Jón Bjarnason, íestu nýlega
kaup á húseiginni Brekkugötu
3 viö Káöhústorg á Akureyri,
og i siöustu viku opnaöi versl-
unin þar i lyrsta skipti meo
alla starfsemina undir einu
þaki, en tiskuverslunin var
áður til húsa i Halnarstræti 94.
1 Brekkugötu 3 er öll starf-
semi fyrirlækisins komin
undir eitt þak, hljómdeildin,
Prófkjör á
Siglufirði
í dag
Siglufjörður: t dag fer fram á
Siglufirði sameiginlegt próf-
kjör allra stjórnmálaflokk-
anna vegna bæjarstjórnar-
kosninganna i vor.
Timinn hefur fengið i
hendur prófkjörslista Fram-
sóknarflokksins og er hann
þannig skipaður: Bjarni
Þorgeirsson málameistari,
Bogi Sigurbjörnsson skatt-
stjóri, Guðrún Hjörleifsdóttir
kaupmaður, Hermann
Friðriksson múrarameistari,
Hrefna Hermannsdóttir iðn-
verkamaður, Skarphéðinn
Guðmundsson kennari, Sveinn
Björnsson verkstjóri, Sveinn
borsteinsson húsasmiöur og
Sverrir Sveinsson veitustjóri.
— Hei
tiskuverslunin og skrifstofur.
Nýja húsnæðið er allt hið
glæsilegasta, alls um 360
fermetrar aö flatarmáli.
t hljómdeildinni eu þaö hin
þekktu merki Luxor, Sharp og
Pioneer sem boðið er upp á i
hljómtækjum i miklu úrvali,
og sjónvörp af Luxor og Sharp
gerð. Þá er Cesar með mynd-
bandaleigu fyrir Regnbogann
i Reykjavik.
veiðar að byrja bráölega?
— Ætli aö þaö veröi nokkur
hrognkelsi i vor. Fyrst er
a.m.k. að vita hvort hægt er að
selja hrogín. Þaö má ekki fara
með mennina eins og i fyrra,
að veiða i allt lyrra vor, og
aíurðirnar eru ennþá i
geymslu. Þaö getur enginn
staðið i þvi aö leggja i veiöina
nema að fá hana borgaða
innan skamms tima. —HEI
Jafnvel gróði
af togara þó
rekinn sé
med tapi
Þórshöfn: „Okkur vantar
meiri atvinnu, vantar meiri
fisk á land”, svaraöi Jón
Jóhannsson á bórshöfn er
Timinn spurði hann um at-
vinnumálin á staönum um
þessar mundir. Aðspuröur
telur hann þó að brátt muni
rætast úr þeim vanda. „Þvi ég
held nú að Halldór Blöndal
ætli að láta okkur hafa togara
fyrir rest”, sagöi Jón kankvis
og reyndar sagðist hann búast
við að hann veröi afhentur um
mánaðarmótin april/mai.
— En nú segjast allir tapa á
nýjum togurum. Langar
ykkur að fara að tapa?
— Það er kannski tap á
skipinu. En þegar það er búið
að skila vinnunni i landi og
siðan sköttum al' henni og
tekjum sjómannanna og öllu
þvi tilheyrandi, þá verður það
gróði fyrir byggðarlagið.
Útgerðin tapar kannski, en
þegar dæmið hefur verið gert
upp allt i heild getur þó verið
hagnaður af öllu saman. Við
eigum heldur enga aðra val-
kosti en að fá meiri fisk. Þvi i
svona verðbólgu og svona
þjóðfélagi þá unir þvi enginn
að vera atvinnulaus svo
skiptir vikum og mánuðum.
bað er vonlaust mál.
— Hefur verið mikið at-
vinnuleysi i vetur?
— Já, vegna þess að við
höfum fengið sára litinn fisk.
Héðan eru bara gerðir út litlir
bátar og veðrin hafa verið
þannig að þeir hafa sára*
sjaldan getað róið.
Fara ekki hrognkelsa-
Fjórfalt tilefni
hátíðahalda
Stöðvarf jörður: „Þaö má
segja að viö höl'um haft
fjórfalt tilefni til hátiða-
halda,” sagöi Guömundur
Gislason kaupfélagsstjóri á
Stöðvarliröi er Timinn ræddi
við hann vegna 100 ára af-
mælis samvinnuhreyfingar-
innar sem minnst hefur verið
um land allt.
Auk þess að Stöðfirðingar
héldu upp á 100 ára aímæli
samvinnuhreyfingarinnar og
80 ára afmæli Sambandsins
minntust þeir 50 ára afmælis
Kauplélags Stöðfiröinga og
tóku i' notkun að hluta nýtt 600
íermetra verslunarhús, sem á
að rúma alla starfsemi lélags-
ins þegar það verður fullgert.
Að sögn Guömundar varð
Kaupfélagið að visu 50 ára á
árinu 1981, en írestað var að
minnast þess sérstaklega þar
til Lhluti nýja verslunarhúss-
ins, þe. lager kaupfélagsins
var tekinn i notkun. En inn-
réttingar i hina nýju verslun
sagði hann ekki tilbúnar fyrr
en með vorinu.
Laugardaginn 20. feb. efndi
Kaupfélagið til „opins húss” i
þess framtiðarhúsnæði þar
sem dekkuð voru borð og lólki
af félagssvæöinu var boðið
upp á kaffi og kökur. Hól'ið var
sett af Hákoni Hanssyni,
stjórnarformanni Kaupfélags-
ins, siðan rakti Björn Stefáns-
son, fyrrv. kaupfélagsstjóri 50
ára sögu félagsins og núver-
andi kaupíélagsstjóri
Guðmundur Gislason
byggingarsögu hins nýja húss.
Um 300 manns sóttu þetta hóf
viðs vegar aö af félagssvæðinu
sem skarast á móti félags-
svæðum kaupfélaganna sitt
hvoru megin við, á Fáskrúðs-
firði og Berufirði.
Aðalverslunarhús Kaup-
félags Stöðfirðinga sem tekið
verður úr notkun er hiö nýja
verður tilbúið sagði
Guðmundur byggt fyrir
siðustu aldamót og önnur hús
félagsins litlu yngri, og öll i
fremur lélegu ástandi hin
siðari ár. Með nýja húsnæðinu
ætti bæði öll starfsemi að
verða auðveldari og þjónustan
við félagsmennina að batna.
— HEI
Vöruskiptajöfnuðurinn í janúar:
NEIKVÆÐUR UM YF-
IR 176 MILUÚNIR
■ Ennþá höldum viö áfram að
vera snöggt um duglegri viö að
auka innflutning til landsins en
útflutning. í janúarmánuði s.l.
voru fluttar til landsins vörur
fyrir röskar 540 milljónir króna
sem var um 52% meira en i
janúar i lyrra. Útflutningurinn
nam hins vegar um 363,6
milljónum sem var aöeins um
13% aukning frá janúarmánuöi
1981. Vöruskiptajöfunðurinn varö
þvi neikvæður um -176.5 milljónir
króna i þessum fyrsta mánuöi
ársins, samkvæmt lrétt l'rá
Hagstofunni.
bess má geta að stórinnflutn-
ingur til Álversins, Járnblendi-
sins, Landvirljunar eða ílugvélar
og skip eiga litinn hluta i fyrr-
nefndum innflutningi eða aðeins
35,3 millj. sem er 32,5% aukning
frá sama tima i íyrra, og aðeins
um þriðjungur útflutnings áls i
mánuðinum, sem nú var fyrir
103,4 milljónir króna og er um
194% hærri upphæð en i janúar-
mánuði i fyrra.
— HEI
áaiUe-
■ Aðalsteinn Friðfinnsson, kaupfélagsstjóri, veitir gestum á afmælishátið Kaupfélags Grundfirðinga
Afmælisfagnadur
Kaupf élags Grundf irðinga
■ Það hefur farið framhjá
fæstum að i tilefni af 100 ára af-
mæli fyrsta kaupfélagsins og 80
ára afmæli Sambandsins voru
afmælishóf haldin á vegum kaup-
félaganna um alllt land.
Þeirra á meðal gerði Kaupfélag
Grundfirðinga viðskiptavinum
sinuxn „hóflegan dagamun”, eins
og Aðalsteinn Friðfinnsson orðaði
þa i stuttu tilskrifi til blaðsins,
sem við birtum hér með:
„í tilefni af 100 ára afmæli
kaupfélaganna og 80 ára afmæli
Sambands isl. samvinnufélaga
gerði kaupfélag Grundfirðinga
viðskiptavinum sinum hóflegan
dagamun, föstudaginn 19.
febrúar, þótt afmælið væri ekki
fyrr en daginn eftir.
Þaö var ekki án ástæðu að
minnast afmælis þessara
mæðgina, þótt sumum finnist
SIS orðið allt of fyrirferíarmikið
og timi til kominn að stöðva
framgang þess og helst að láta
það leggja árar i bát.
Viðurkennt er þó af flestum eða
■ Sunddeild Ármanns er nú að
hleypa af stokkunum nýstárlegri
aðferð til fjáröflunar. Sunddeildin
er isamvinnu við veitingastaðinn
Góðborgarann á Hagamel 67 að
fara af staö með keppni i hraðáti.
Keppnin hefst á morgun i Góð-
borgaranum og er hún öllum opin
og fer þannig fram að hver
keppandi fær þrjá Góðborgara,
einn skammt af frönskum
kartöflum og eitt glas af coca
cola. Þessar veitingar á hann aö
öllum landsmönnum að stofnun
þess hafi á þrengingartimum
orðið til þess að lyfta þjóðinni frá
lökum lifskjörum til stórum betri.
T.d. má minnast þess að SIBS
vann kraftaverk, sem aldrei mun
gleymast islenskri þjóð og er
rómað viða um heim. En á að
snúa sókn i vörn, þótt berklaveik-
inni sé sem betur fer útrýmt? A
það ekki við um alla þá sem vinna
að einhverju góðu málefni, hvort
sem einstaklingar, hlutafélög,
samvinnufélög eða önnur samtök
eiga i hlut, að fásinna er að leggja
árar i bát, þegar árangri er náö.
Nei, það ætti enginnn aö gera.
Innilegar hamingjuóskir færum
við hjá Kaupfélagi Grundar-
fjarðar þeim sem á einhvern hátt
hafa lagt stórri hugsjón lið, til
þess aö fá hrundið málefnum
hennar i framkvæmd.
Enn þökkum við öllum þeim
sem sóttu afmælisfagnað okkar
hér og fylgja sérstakar þakkir til
starfsmanna fyrr og nú.”
a m
reyna að innbyrða á sem
skemmstum tima.
Verðlaunin eru ekki af skorn-
um skammti. Þeim keppanda
sem tekst að ljúka þessu af á
skemmstum tima fær eitt stykki
Suzuki bifreið i verðlaun.
Eins og áður sagði byrjar
keppnin á morgun en siðan
verður keppt á mánudögum og
fimmtudögum milli kl. 20-22 og
alla sunnudaga og stendur keppn-
in yfir i allan mars mánuð. röp-.
■ Þröstur Einarsson sigraði á
Skákþingi Kópavogs.
Skákþingi lýkur
með hrað-
skákmóti í dag
Kópavogur: Skákþingi Kópavogs
lýkur formlega i dag með hrað-
skákmóti og verðlaunaaf-
hendingu, sem l'ram fer að
Hamraborg 1.
Einn af efnilegustu unglingum
innan Taflfélags Kópavogs,
Þröstur Einarsson, sigraði á
Skákþingi Kópavogs sem er
nýlokið. Þröstur er 18 ára gamall
en hefur samt öðlast töluverða
reynslu á undanförnum árum
með þátttöku á skákmótum. Má
þar m.a. nefna tvö undanfarin
Norðurlandamót.
Keppnin á Skákþinginu var
óvenju jöfn að þessu sinni. Eftir 9
umferðir eftir Monrad-kerfi voru
5 efstir og jafnir með 6 vinninga
hver. I 6—10 sæti komu aðrir
fimm með 5 og hálfan vinning. 1
sérstakri aukakeppni sigraði
Þröstur siðan örugglega. Þátt,-
takendur voru alls 23. —HEI
Bíll í verðlaun
— fyrir keppni F hraðáti