Tíminn - 04.03.1982, Síða 1
„Fleiri fjölskyldur þyrftu ad taka skiptinema” bls. 10
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAD!
Fimmtudagur 4. mars 1982
50. tbl. — 66. árg.
Erlent
yfirlit:
Gód
ádeila
— bls. 19
íslensk
tíska
- bls. 12
Uppá-
haltís-
leikarar
— bls. 2
PÓl-
land
bls. 7
Flugumferðarstjóramálið tekur nýja stefnu:
PRÖFNEFNDIN VAR SETT
AF OG ÖNNIIR SKIPUÐ!
Mál flugumferöarstjór-
anemans, sem Timinn greindi
frá fyrir nokkru hefur nú tekiö
nýja stefnu, þar sem prófúr-
lausn hans hefur verið yfirfarin
af nýrriprófnefnd, eftir að próf-
nefndin sem áður gegndi störf-
um.neitaðiað yfirfara úrlausn-
ina á þeim forsendum að
stúdentsprófsskirteini hans
væri falsað. Sú prófnefnd var
sett af þegar sú nýja var skipuð.
Það var að tilhlutan flugráðs,
sem settur flugmálastjóri,
Pétur Einarsson, skipaði nýja
prófnefnd til þess að yfirfara öll
prófin, sem tekin voru á þessu
grunnnámskeiði, og voru þá
önnur próf innkölluð, og yfiríar-
in á nýjan leik, ásamt úrlausn-
inni sem ekki hafði áður verið
yfirfarin. Að visu voru það að-
eins þrir úr nýju neíndinni sem
yfirfóru gögnin, vegna þess að
einn neitaði á sömu forsendum
og þeir sem áður höfðu neitað,
að fara yfir úrlausn nemans.
Elias Gissurarson, formaður
Félags islenskra flugumferðar-
stjóra var i gær furðu lostinn,
þegar blaðamaður Timans
færði honum þessi tiöindi, og
sagði hann aö stjórn félagsins
myndi koma saman og funda
um þetta mál við fyrstu hentug-
leika.
Flugráðmun á íundi sinum nú
i dag fjalla um mál þetta.og
niðurstöður nýju prófnefndar-
innar. —AB Sjá nánar bls. 4.
Ekki
hækkar
allt í verð-
bólgunni:
KflFFI-
■ Eftir 49 daga er komið surnar! Það kann að hijóma ótrúlega, en sumardagurinn fyrsti er þann 22.
april nk. Sumarið er lika þegar farið að liggja I leynum hér og hvar, til dæmis f Hljómskálagaröinum.
Þetta er að minnsta kosti engin vetrarmynd, eöa hvaö þykir ykkur? (Tfmamynd Kóbert).
■ Hafa margir áttað sig á þvi
að a.m.k. ein vara sem flestir
neita daglega og oft á dag
hefur ekki hækkað i verði svo
misserum skipti? Hér er átt við
kaffiö sem brent er og malað
innanlands. Siðast var leyfð
verðhækkun á kaffi i september-
mánuðiárið 1980, eða fyrir hálfu
öðru ári og siðan hefur pakkinn
kostað og kostarenn 12.90 krón-
ur.
Skýringin er sú að sögn tals-
manna Verölagsskrifstofunnar,
að á þessum tima hefur heims-
markaðsverð á kaffi lækkað
svo, að verðið innanlands hefur
getaö staöið i stað þrátt fyrir
gengislækkanir og hækkaðan
vinnslukostnað.
Aðra nauðsynjavöru má
nefna sem m.a.s. hefur stöðugt
lækkað i verði i meira en ár og
er nú töluvert ódýrari en haustið
1980. Það er strásykur. f
nóvember 1980 kostaði hvert
kíló, samkvæmt upplýsingum i
Hagtiðindum, 8.20 kr. i febrúar
1981 kostaði hann 9,35 kr. i mai
sama ár 8.10 kr., i ágúst 7.15
krónur og i nóvember 6.90 kr.
sem hann kostaði enn i verslun
sem hringt var til i gær,—HEI