Tíminn - 09.03.1982, Side 1
Heimsendir í fyrramálið? — Sjá opnu
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
1 * «
í
i'Viðey
mm
myndin
... >
Krydd-
Samgönguráðherra um Steindórsmálið:
Afrýja ekki
■ ,,Ég hef ákveðið að áfryja
ekki úrskurði borgarfógetaem-
bættisins i Steindórsmálinu”,
sagði Steingrimur Hermanns-
son, samgönguráðherra I viðtali
við Tímann i gær.
Steingrímur sagði að ástæða
þessarar ákvörðunar væri m.a.
sú að ef lögbannsóskinni yrði
áfryjað til Hæstaréttar, þá tæki
slikt mál a.m.k. ár fyrir Hæsta-
rétti. Sagði Steingrimur að
dómur i' stefnu Steindórsmanna
en þeir stefndu ráöuneytinu
fyrir afturköllun atvinnuleyf-
anna, myndi liklega geta gengið
á svipuðum tima, þannig að
hann vildi heldur láta reyna á
það mál fyrir undirrétti.
Olfur Markússon, formaður
Frama sagði i viðtali við Tim-
ann í gærkveldi að ef það væri
rétt að áfrýjunarmál sem þetta
tæki svona langan tfma, þá sæi
hann engan tilgang i þvf að fara
út i slika áfrýjun. Sagði hann að
þeir hjá Frama væru engan
veginn hressir með þessa þróun
mála.
Guölaugur Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Steinddrs
var hins vegar mjög ánægður
með þessa ákvörðun samgöngu-
ráðherra og taldi hana vera
áfangasigur fyrir Steindórs-
menn —AB
Sjá nánar bls. 3
■ ,,Þótt fáir hafi tekið eftir
þvi, þá var stofnað f siðustu
önn kvenfélag hér i skdlan-
um sem nefnist UNGVERJ-
UR t UPPHLUT (Verjurn-
ar)” segir i frétt sem blaðinu
var send ofan úr Hamra-
hliðarskóla i gær. Hyggjast
kvenfé!ags,,konur” halda
sérstakan baráttudag þann
8. mars ár hvert.
Ljósmyndari blaðsins brá
sér á staðinn þar sem verið
var að halda daginn hátið-
legan og hitti hann þar fyrir
þennan föngulega „meyja-
hóp”, þar á meðal þær
„Ungfrú Stundvis” og ,,Ung-
frú Léttlynd”. Segja ,,þær”
markmið sitt að þjóðnýta
karlþjóðina undir kjör-
orðinu: „Stöndum saman”.
Þá vitum við það. (Tima-
mynd G.E.)
Þriðjudagur 9. mars 1982
54. tbl. — 66. árg.
Hæstiréttur hnekkir gæsiuvarðhaldsúrskurði Fíkni-
efnadómstólsins yfir stórtækum hass-smyglara:
FÉKK ÞRJU KILÓ AF
HASSI MEÐ PÓSTl!
— hafdi áður smyglad inn yfir 300 grömmum af hassolíu frá
Indlandi meö því að setja oiíuna í gúmmíverjur og gleypa þær
■ „Þessi úrskurður Hæstaréttar
tefur náttúrlega fyrir rannsókn
málsins. En staðan i þvi nú er sú
að maðurinn hefur viðurkennt að
hafa fengið til landsins póst-
sendingu með þremur kilóum af
hassi. Auk þess vissum við að
hann ásamt öðrum manni kom
um áramótin úr ferð til Indlands,
en þar keyptu þeir mikið af hassi
sem þeir breyttu i hassoliu, settu
siðan i gúmmiverjur og gleyptu
til að geta smyglaö henni milli
landa. A þessari löngu leið höfðu
verjurnar gengiö niður af þeim
a.m.k. þrisvar en þeir gleyptu
alltaf aftur”, sagði Bjarnþór
Aðalsteinsson yfirmaður fikni-
efnadeildar lögreglunnar i
Reykjavik, þegar Timinn spurði
hann hvort það kæmi niður á
rannsókn stóra fikniefnamálsins
sem verið hefúr til meðferðar að
undanförnu aö Hæstiréttur
hnekkti gæsluvarðhaldsúr-
'skurðinum yfir eina manninum
sem enn sat i gæslu vegna rann-
sóknarinnar.
„Enn eru margir endar lausir i
þessu máli. T.d. vitum við ekki
hvaðan póstsendingin kom. Og nú
fær þessi maður sem við álitum
forsprakkann i þessu máli tæki-
færi til að ráðfæra sig við þá sem
eru honum meðsekir”, hélt
Bjarnþór áfram.
— Hvað var það mikið af hass-
oliu sem þeir smygluðu frá Ind-
landi?
„Það var eitthvað á fjórða
hundrað grömm, en það sam-
svarar rúmum tveimur kilóum af
hassi”, sagði Bjarnþór.
'■—Sjó