Tíminn - 09.03.1982, Blaðsíða 6
Þri&judagur 9. mars 1982
6 _____________
stuttar fréttir
■ Sigur&ur rtli
ISi'vnjólf sson
■ Sigur&ur
hanncsson
H l'ilfhildur Kögn-
valdsdótti r
Framboðslisti
framsóknarmanna
■ Fulltrúaríið framsóknar-
félaga Akureyrar samþykkti
samhljóða á fundi sinum 28.
febrúar s.l. tillögu uppstill-
ingarnefndar að framboðs-
lista Framsóknarflokksins
fyrir bæjarstjornarkosning-
arnar i vor.
Listinn er þannig skipaður:
1. Sigurður Óli Brynjólfsson
kennari, 2. Sigurður Jó-
hannesson fulltrúi, 3. Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir ritari,
4. Sigfriður Angantýsdóttir
kennari, 5. Jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri, 6. Þóra
Hjaltadóttir hagræðingur, 7.
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri, 8. Sólveig Gunnarsdótt-
ir ritari, 9. Fétur Pálmason
verkfræðingur, 10. Auður Þór-
hallsdóttir húsmóðir, 11.
'lYyggvi Gislason skólameist-
ari 12. Sigrún Höskuldsdóttir
kennari, 13. Ingimar Eydal
kennari, 14. Eva Pétursdóttir
nemi. 15, Ingimar Friðfinns-
son húsgagnasmiður, 16. Mar-
grét Emilsdóttir iðnverka-
kona, 17. Pálmi Sigurðsson
verkamaður, 18. Snjólaug
Aðalsteinsdóttir afgr.maður,
19. Jónas Karlsson verk-
fræðingur, 20. Gisli Konráðs-
son forstjóri 21. Stefán
Reykjalin byggingameistari
og 22. Jakob Frimannsson
fyrrv. kaupfélagsstjóri.
—HEI
■ Siglri&ur
Aiigimtvsdóttir
I .lóii Sigurftsson.
■ Þóra
dóttir
lljalta-
Kirkjuvika
stendur yfir
í Mosfells-
sveit
■ Kirkjuvika hófst i Mosfells-
sveit á sunnudaginn með
æskulýðsguösþjónustu i Lága-
fellskirkju. Fjölmenni var við
athöfnina.
í kvöld þriðjudagskvöld,
verður samkoma i Lágafells-
kirkju og hefst hún kl. 20.30.
Þar syngur John Spade, ensk-
ur barytonsöngvari, kirkjukór
Lágafellssóknar flytur kór-
verk undir stjóm Smára Öla-
sonar og lúörasveit leikur
undir stjórn Birgis D. Sveins-
sonar. Ræöu flytur Egill J.
Stardal sagnfræöingur.
öldruðu fólki er sérstaklega
boðið til þessarar samkomu.
Lágafellskirkju hefur borist
góð gjöf sem verður afhent á
þessari samkomu en það er of-
iö veggteppi eftir hina látnu
listakonu Vigdisi Kristjáns-
dóttur. Listaverkið nefnist
„Vetrarbrautin”, en Vigdis lét
svo ummælt áður en hún lést
að þetta veggteppi skyldi fært
Lágafellskirkju að gjöf.
A fimmtudagskvöld mun
svo dagskráin endurtekin að
Reykjalundi, með þeirri
breytingu þó, að þá syngur
Elisabet Erlingsdóttir.
Er það nýbreytni varðandi
kirkjuvikuna að flytja dag-
skrána annars staðar en i
kirkjunni og varð Reykja-
. lundur fyrir valinu. Er vonast
til að þessi nýbreytni mælist
vel fyrir af sjúklingum
Reykjalundar.
B.St.
Einangrunar-
plast einnig
framleitt á
Blönduósi
BLÖNDUÓS:I frétt frá Kaup-
félagi Skagfirðinga i Timan-
um 17. feb. 1982, þar sem segir
frá kaupum félagsins á ein-
angrunarplastverksmiðju á
Sauðárkróki er ekki rétt með
farið, aö það sé eina verk-
smiðjan sinnar tegundar á
Norðurlandi vestra, Hjólið s/f
hefur starfrækt einangrunar-
plastverksmiðju á Blönduösi
frá árinu 1975 og framleiðir
allar gerðir af ein-
angrunarplasti.
Sig. II. Þorsteinsson
skipti
MOSFELLSSVEIT: Útibús-
stjóraskipti verða við
Búnaöarbankann i Mosfells-
sveit hinn 15. mars n.k. Páll J.
Briem sem verið hefur útibús-
stjori frá stofnun útibúsins i
Mosfellssveit lætur þá af
störfum fyrir aldurs sakir, en
hann hóf fyrst störf I Búnaðar-
bankanum vorið 1939. Páll
■ Morit'/. W. ■ Páll .1. Briem
Sigurðsson
verður 70 ára hinn 6. aprfl n.k.
Nýr útibússtjóri i Mosfells-
sveit er Moritz W. Sigurðsson,
núverandi útibússtjóri við
Háaleitisútibú i Reykjavik.
Mortiz er fæddur árið 1939 og
hefur verið starfsmaður
Búnaðarbankans siðan i árs-
byrjun 1959.
Wmvrn
fréttir
Þingi Norðurlandaráðs slitið um helgina:
„NEYDDIR INN í
FLOKKADRÆTTI”
— segir Halldór Ásgrímsson, formaður íslensku
sendinefndarinnar
Frá Friftrik Indriöasyni, blafta-
manni Timans i Helsinki.
■ ,,Ég er mikill fylgjandi sjón-
varpssamstarfsins og tel það
vera stærsta og mikilvægasta
málið, hér á þessu þingi,” sagði
Halldór Ásgrimsson þingmaður,
formaður islensku sendinefndar-
innar, á þingi Norðurlandaráðs er
blaðamaður Timans ræddi við
hann, siðasta dag þingsins i
Helsinki.
„tslenska sendinefndin i heild
hefur lagt mikla áherslu á að
skýrt komi fram að við erum
málinu fylgjandi,” sagði Halldór.
„Mörg önnur mikilvæg mál hafa
verið rædd hér á þinginu og ekki
er vafi á þvi að viö Islendingar
njótum góðs af norrænu sam-
starfi á sviði menningarrann-
sókna- og atvinnumála, jafnvel
þótt mörgum finnist sem málið
gangi hægt fyrir sig og að ekkert
komi út úr þessum þingum.
Eiturlyfjamálin hafa vakið
mesta athygli hér á þinginu, þar
sem einn Dananna smyglaði
hassi hingað og braut með þvi
dönsk, finnsk og sænsk lög. Það er
mjög slæmt fyrir ráöið og hið
norræna samstarf, þegar mál
sem þessi fá mestu athyglina og
umræðuna, þvi mörg önnur mál
hefðu átt skilið að fá meiri
athygli.
Flokkadrættir
Það sem skýrt hefur komið
fram hér á þessi þingi, er að full-
trúarnir leggja mikið upp úr þvi
að pólitisku flokkarnir skipi sér i
ákveðna hópa. Sósialdemókratar
hafa verið duglegir við þetta, en
nú eru einnig hægri flokkarnir,
vinstri flokkarnir og mið-
flokkarnir með i spilinu.
Margir okkar frá tslandi höfum
heldur viljað að málefnaleg af-
staða réði, en ekki þessar póli-
tisku blokkir, en segja má að við
höfum meira og minna verið
neyddir inn i þetta. Þetta hefur
gengið svo langt, að nú er jafnvel
talað um valdahlutföll i ráðinu.
Annað dæmi um það hve langt
þetta hefur gengið, er að nú er
jafnvel Glistrup flokknum
danska, skipað i flokk með
ihaldssömum, þótt ekki séu allir
jafnhrifnir af þvi, þar sem honum
er ekki einu sinni skipað i flokk i
heimalandinu.
Þá hefur það komið skýrt fram
að auðvitað hugsar hver þjóð
fyrst og fremst um sin sjónarmið
og sin mál. Sviar og Danir hafa
t.d. mikið rætt sjónvarpsmálið og
Danir svo aftur eiturlyfjamálið.
Það sem ráðið gerir er svo að
reyna að samræma hin óliku
sjónarmið og fá fram sam-
norræna stefnuheild, sem oft er
svo ekki i samræmi viö stefnuna i
einstökum löndum.
Segja má að við íslendingar
höfum ekki hingað til þurft að
kvarta á þessu sviði, þvi oftast
hefur það verið svo að hinar
þjóðirnar hafa verið viljugar að
sveigja stefnu sína að okkar
sjónarmiðum, eins og t.d. i sjón-
varpsmálum og þær vilja leggja
nokkuð á sig til þess að hafa okk-
ur með, þótt þaðséþeim dýrara.”
—AB
■ Nýkjöiin stjórn Fclags framsóknarkvenna i Reykjavik, talið frá
vinstri: Gerftur Steinþórsdóttir, Sigriður Guðbrandsdóttir (var áður I
varastjórn), formaðurinn Sigrún Magnúsdóttir, Aslaug Brynjólfsdóttir
og Kristin Eggertsdóttir sem er nú i stjórninni i fyrsta sinn. Auk þeirra
cru i varastjórn: Þóra Þorleifsdóttir, fyrrum formaður félagsins,
Guftný Laxdal, Emma ilansen og Steinunn Finnbogadóttir.
Timainynd Róbert
Sigrún Magnúsdóttir kjörin
formaður Félags
framsóknarkvenna í Reykjavík:
„Fjölbreytt
starf er
framundan"
Vaxandi
framleiðsla »
frystihúsi BÚR:
Framleidd
45 tonn af
flökum á
einum degi
■ „Framleiðslan i frystihúsinu
hefur fariö mjög vaxandi undan-
farið. Hápunktur framleiðslunnar
var þó i gær, en þá voru framleidd
45 tonn af flökum á einum degi.
Þetta er mesta framleiðsla i
fyrirtækinu á einum degi á þessu
ári. Að jafnaði hafa verið fram-
leidd um 35 tonn af flökum á dag,
þannig að vikan gerir um 175
tonn”, sagði Björgvin Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavikur, i samtali við
Timann i gær.
Mestur hluti þessarar fram-
leiðslu eru karfaflök, en einnig
eru inn á milli þorsk- og ýsuflök.
Aflinn er unninn i venjulegri dag-
vinnu frá átta á morgnana til
fimm á daginn. „Bónusfyrirkom-
ulagið i frystihúsinu hefur gengið
mjög vel, enda afköstin eftir þvi,
og framleiönin með allra besta
móti”, sagöi Björgvin.
—Kás
Aðild Spánar að
Nato samþykkt
■ 28 þingmenn samþykktu s.l.
fimmtudag, að veita rikisstjórn-
inni heimild til að staöfesta fyrir
tslands hönd viöbótarsamning við
Norður-Atlantshafssamninginn
um aðild Spánar að bandalaginu.
Nafnakall var viðhaft við at-
kvæðagreiðslu og gáfu 28 þing-
menn jáyröi viö tillögunni, en
aðrir sátu hjá. Allir þingmenn
Alþýöubandalagsins sátu hjá, svo
og þeir Páll Petursson og
Guðmundur Bjarnason. Allir
þingmenn Sjálfstæöisflokks og
Alþýðuflokks greiddu tillögunni
atkvæði.
Til að riki fái upptöku i Atlants-
hafsbandalagið þurfa öll aðildar-
rikin að samþykkja.
OÓ
■ Félag framsóknarkvenna i
Reykjavik hélt aðalfund sinn
fyrir skömmu og baðst Sigrún
Sturludóttir, sem verið hefur for-
maður félagsins i fjögur ár ein-
dregiö undan endurkosningu, en
nafna hennar Sigrún Magnús-
dóttir var kjörin formaöur.
„Næsta fund, hinn 11. mars n.k.
ætlum við að hafa i léttari dúr. Þá
verður spiluð Framsóknarvist og
jafnframt ætlum við að hafa
ferðakynningu”, sagði Sigrún
Magnúsdóttir, nýkjörinn for-
maður er viö spurðum hana um
starfið framundan. „1 april er
hugmyndin aö halda fund með
konum úr verkalýðs- og sam-
vinnuhreyfingunni og i mai höf-
um við ákveöið að halda fund um
borgarmálefni”, sagöi Sigrún.
Þá kvaðst hún hafa ákveðið að
hafa sérstaka viðtalstima á skrif-
stofu félagsins á hverjum mánu-
degi á milli klukkan 16 og 18.
Jafnframt kvaðst hún hafa hug-
leitt að 1. mánudag i hverjum
mánuði yröu nokkurskonar sam-
verustundir með eldri konunum I
félaginu þar sem spjallaö yröi
saman yfir kaffibolla kannski
eitthvað fleira gert sér til
skemmtunar.
„Eftir kosningar ætlum við svo
að létta okkur upp meö þvi aö
fara i smá feröalag eins og gert
hefur verið undanfarin sumur. í
fyrra fórum viö t.d. og skoðuð-
um Garðyrkjuskóla rikisins i
Hveragerði. Nú hefur verið talað
um að heimsækja kannski
Klaustrið i Hafnarfirði og fá okk-
ur siðan kaffi saman á einhverj-
um skemmtilegum stað á eftir”,
sagði Sigrún.
—HEI