Tíminn - 09.03.1982, Qupperneq 10

Tíminn - 09.03.1982, Qupperneq 10
10 mmm Þriðjudagur 9. mars 1982 Úrval af Úrum Magnús Ásmundsson Úra- og skartgripaverslun Lngólfsstræti 3 Úraviðgerðir. — Póstsendum Simi 17884. Jfc RÍKISSPÍTALARNIR Iffisilausar stödur LANDSPÍTALINN SÉRFIIÆÐINGAR (2) i kvensjúkdóma- fræðum og f'æðingarhjálp óskast til starfa frá 1. mai n.k. eða eftir samkomulagi. Til greina kemur ráðning i hlutastarf. Umsóknir er tilgreini náms- og starfsferil sendist stjórnarnefnd rikisspitalanna fyrir 5. april n.k. Upplýsingar veita yfir- læknar Kvennadeildar i sima 29000. AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á lyf- lækningadeild frá 1. april n.k. til 1. árs. Umsóknir er greini nám og fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 25. mars n.k. Upplýsingar veita yfirlæknar lyf- lækningadeildar i sima 29000. KLEPPSSPÍTALINN Lausar eru til umsóknar sex stöður GÆSLUMANNA við Kleppsspitalann. Umsóknir berist Skrifstofu rikisspital- anna fyrir 25. mars n.k. Upplýsingar veitir starfsmannastjóri i sima 29000. Reykjavik, 7. mars 1982, RÍKISSPÍTALARNIR. Útboð Áburðarverksmiðja rikisins, Gufunesi, óskar eftir tilboðum i sölu á ca. 350 ferm. af mótavið. Útboðsgögn fást á skrifstofunni i Gufu- nesi. Frestur til að skila tilboðum er til 18. mars 1982. Áburðarverksmiðja rikisins. UTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i borun og sprengingar á 20.000 rúmm. úr klöpp á Kirkjubólshlið i Skutulsfirði. Miðað skal við aö búið verði að sprengja 10.000 rúmm. þann 1. mai og verki lokið þann 20. mai 1982. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Vegagerðar rikisins á ísafirði og hjá aðal- gjaldkera Vegagerðar rikisins, Borgar- túni 5, Reykjavik, frá og með þriðjudeg- inum 8. mars, gegn 500,- króna skilatrygg- ingu. Fyrirspurnir ásamt óskum um upp- lýsingar og/eða breytingum skulu berast Vegagerð rikisins skriflega eigi siðar en 15. mars. Gera skal tilboð i samræmi við útboðs- gögn og skila i lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar rikisins við Vestfjarðaveg, 400 ísafirði fyrir kl. 13 þann 29. mars 1982. Kl. 13.30 sama dag verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. ísafirði i mars 1982. Vegamálastjóri. þingfréttir Kolbeinsey verdi haldið ofansjávar ■ Stefán Guðmundsson hefur mælt fyrir þingsályktunartillögu, sem hann flytur um Kdbeinsey, og fjallar um að sjómerki verði sett upp sem allra fyrst á eyjunni og að athuganir fari fram á þvi, hvort og á hvern hátt megi sem best tryggja að eyjan standist heljaröfl stórviðra og isa. 1 ræðu sinni sagði Stefán, að megintilgangur tillögunnar væri að auka öryggi sjófarenda og að athugað verði hvort koma megi i veg fyrir að eyjan hverfi i sæ. Hann sagði, að meö aukinni sókn á þetta hafsvæði væri brýnna en áður að komið verði upp sjómerki á Kolbeinsey til öryggis sjófarendum. Fyrir nokkru var sett upp ratsjármerki áeyjunni,en það stóðstekki þann veðraham sem þarna geisar. En þótt svo hafi farið er engin ástæða til að ekki sé hægt að ganga svo tryggilega frá biinaði að hann standist ekki sjó og veður. Kolbeinsey erað hverfa i sæ, en hún er grunnlinupunktur og er Is- lendingum nokkurs viröi að hann haldist á sinum stað. Flutnings- maöur rakti nokkrar mælingar, sem gerðar hafa verið á Kol- beinsey, hinar elstu frá 1580, en þá var eyjan 753 metrar x 113 m og 113 m á hæð.Siðustu mælingar voru gerðar 1978 og þá var hún 37.7 m x 42.8 m og aðeins 5.4 m á hæð. Greinilegt er hvert stefnir, og ber þvi að leita allra tiltækra ráða til verndar Kolbeinsey ef þess er nokkur kostur. Er þvi eðlÚegt að hið opinbera leiti allra tiltækra ráða og standi fyrir þeim at- hugunum og framkvæmdum, sem nauðsynlegar verða að teljast, og greiði þann kostnað sem af kann að hljótast. Eyjólfur Konráð Jónsson lýsti yfir eindregnum stuðningi við til- löguna og hið sama gerði Bene- dikt Gröndal, sem lagði áherslu á aö Kolbeinsey væri grunnlinu- punktursem bætti allverulega við fiskveiðilögsögu okkar. Hann minntist á að aðrar þjdðir hafi ekki viðurkennt eyjuna sem grunnlfnupunkt, hefðu Danir til dæmis gert fyrirvara á um Kol- beinsey og Hvalbak vegna fisk- veiðilögsögunnar milli Islands og Grænlands, en hann lagði tU að lögð yrði rik áhersla á að fram- kvæma það, sem til er lagt i til- lögunni, og styrkja Kolbeinsey á allan hátt. Tryggja ber eðlilega byggða- þróun f Árneshreppi ■ Matthias Bjarnason mælti fyr- ir þingsályktunartillögu um að- gerðir til að tryggja eðlilega byggðaþróun i Árneshreppi i Strandasýslu. Flutningsmenn með honum eru Steingrimur Her- mannsson, Sighvatur Björgvins- son, Þorv. Garðar Kristjánsson og Ólafur Þ. Þórðarson. Tillagan fjallar um að rikis- stjórninni verði falið, að láta framkvæma undirbúning og hönnun að hafnarframkvæmdum i Arneshreppi og gera kostnaðar- áætlun um þær og tillögu til fjár- öflunar til að standa undir þeim, og að stefnt verði að þvi að vinna geti hafist vorið 1983. Þessar aðgerðir verði þær fyrstu af hálfu rikisvaldsins nú til þess aö treysta og efla byggð i nyrsta hreppi Strandasýslu. Kostnaður við hönnun og undir- búning greiðist úr rikissjóði. Mannfjöldaþróun i Arneshreppi hefur veriöafar breytileg undan- farna áratugi. A árinu 1910 voru ibiíar Arnes- hrepps 431, en þeim fjölgaöi um 11.1% á næsta áratug og voru 479 áriö 1920. Þá verður nokkur breyting næstu árin á eftir, þegar ibúum hreppsins fækkar i 434 á árinu 1930 eða um 9.4%. En með hinni miklu atvinnuuppbyggingu, sem varð á fjórða áratugnum, fjölgar ibúum i hreppnum og á árinu 1940eru þeir 515,f jölgun um 18.7%. 1950 er farið að siga veru- lega á ógæfuhliðina þvi þá er ibúatalan orðin 413, og fækkun verður á áratugnum 1950-1960 um 30.5% eöa i 287 ibúa. A árinu 1970 heldur þessi þróun áfram og fer ibúatalan niður i 216 á árinu 1960, en fæstir eru ibúar i Ameshreppi á árinu 1978, aðeins 168. Siðan hefur heldur f jölgað og ibúar þar á siðastliðnu ári voru 175. Samgöngur i Strandasýslu eru afar erfiðar og Árneshreppur er oft einangraður vegna snjda og hafnir eru fáar og smáar, og i þvi efni er nauðsyn að bæta um. I greinargerð með tillögunni segir um það efni: I hafnarmálum hefur sorglega litið verið gert. Að visu hefur ver- ið varið smáfjárveitingu til þess að bæta aðstöðu til uppskipunar á Norðurfirði og litilf jörlegur styrkur veittur til bryggjugerðar i Djúpuvfk. 1 Ameshreppi eru i reynd fjdrir staðir þar sem er nokkur hafnar- aðstaða: 1 fyrsta lagi á Eyri við Ingólfsfjörð, en sá staöur er nú i eyði. 1 öðm lagi i Djúpuvik. Þar er útgerð og þar hefur verið unnið nokkuð við bryggjugerð, en aðal- lega af einstaklingum i Djúpuvik sem hafa að verulegu leytikostað þessa framkvæmd. Nauösyn er að styrkja hana enn frekar og bæta þar aðstöðu. A Gjögri er nokkurútgerðog þar er nauðsyn- legt aö bæta aöstöðu. En á Norðurfirði er kaupfélag hrepps- ins, og þar er brýn nauðsyn að gera höfnþar sem væntanleg skip Skipaútgerðar rikisins eða önnur hliðstæð skip geti lagst að bryggjuogekkiþurfi að nota upp- skipunarbáta til þess að skipa öll- um vörum á land i þessum eina hrepp á íslandi. Við flutningsmenn þessarar til- lögu teljum að langbrýnasta verkefnið i Arneshreppi i Strandasýslu sé nú að hanna og gera kostnaðaráætlun um hafnar- framkvæmd i Norðurfirði, þannig að ibúar þessa hrepps geti búið við lik skilyrði og aðrir staðir ■ i okkar landi. Það er algerlega úti- lokaö, eins og allir híjóta að skilja, að þessir fáu ibúar, sem búa i þessum strjábýla hreppi, geti staðið að einhverju leyti und- ir þessum hafnarframkvæmdum. Þvi verður að sjá um að af þess- um framkvæmdum geti orðið. í fyrsta lagi þarf allt það sem hafnalög leyfa að greitt sé til slikra framkvæmda. 1 öðru lagi teljum við, að fyllilega komi til greina að Byggðasjóður komi þar inn í myndina, og vitnum i lögin um Framkvæmdastofnun rikisins hvað varðar Byggöasjóð, en i 28. gr. þeirra laga segir: ,,Hlutverk Byggöasjóðs er að stuðla að jafnvægi I byggð lands- ins með þvi' að veita fjárhagsleg- an stuðning til framkvæmda og eflingar atvinnulifs með hliðsjón af landshlutaáætlunum, sbr. 10. gr., og til að bæta aðstöðu til bú- setu i einstökum byggðarlögum og koma i veg fyrir, að lifvænleg- ar byggðir fari i eyði.” Við, sem þessa tillögu flytjum, minnumst þess, hver afdrif hreppanna norðan Arneshrepps i Strandasýslu urðu, þegar byggð lagðist algerlega niður i Sléttu- hreppi og Grunnvikurhreppi i Norður-ísafjarðarsýslu fyrir tæp- um fjórum áratugum. Við teljum þvi brýna nauðsyn bera til að samfélagið meti að verðleikum þá þrautseigju og þann dugnað, sem þaðfólk hefursýnt sem hefur staðið af sér alla erfiðleika sem steöjað hafa að ibúum Arnes- hrepps á siðustu árum og áratug- um, með þvi að skapa þvi lág- marksskilyrðitilþess að getaun- að sæmilega isinu byggðarlagi og þurfa ekki að búa á þessu sviði, einsog mörgum öörum,við iakari kjör og aðstæöur en flestir aðrir þegnar þessa lands. Þvi teljum við brýna nauðsyn á flutningi þessa máls og treystum þvi, að Alþingi, sem markaöi merka stefnu i byggðamálum fyrirrúmlega þremur áratugum, sýni þessu máli skilning með þvi að samþykkja þessa þings- ályktunartillögu, sem á að vera einn fyrsti þátturinn eftir nokkurt hlé til þess að efla byggð á Ames- hreppi i Strandasýslu. G róðurverndarnef nd um verði f jölgað ■ Stjórnarfrumvarp um breyt- ingu á lögum um landgræðslu hefurverið lagtfram, sem miðar að þvi að gróðurverndarnefndir veröi starfandi í hverri sýslu og kaupstaö og að hægt verði að grípa til skjótvirkra ráðstafana ef gróður sýnist i hættu. Breytingarákvæðin eru eftir- farandi: l.gr. 19. gr. laganna orðist þannig: 1 hverri sýslu og hverjum kaupstað skal starfa þriggja manna gróður- verndarnefnd. Sýslunefndir og bæjarstjómirkjósa nefndimar til fjögurra ára i senn. 1 sýslum landsins skal leitað tillagna við* komandi búnaðarsambands. Nefndinkýs sér formann. Funda- og feröakostnaður svo og þóknun fyrir unnin störf gróðurverndar- nefndar greiðist af fé Land- græðslu rikisins að 2/3 hlutum og viðkomandi sýslusjóði eða bæjar- sjóði að 1/3 hluta. 2.gr. Við 23. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Ef gróðri er svo komið að skjótra verndaraðgerða telst þörf, að mati gróðureftirlits Landgræðslu rikisins, getur land- búnaðarráðuneytið, að höfðu samráði við sveitarstjórn þá, sem hlut á að máli, ákvarðað tima- bundna takmörkun á beitarálagi þar til fullnægjandi gróður- verndaraðgeröir, að mati gróöur- verndarnefndar og Landgræðslu rikisins, hafa verið gerðar, eða itala er komin til framkvæmda.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.