Tíminn - 09.03.1982, Side 11

Tíminn - 09.03.1982, Side 11
Þriðjudagur 9. mars 1982 11 á vettvangi dagsins rrStadhæfing Sigurdar E.Guðmundssonar alröng”: Margreynt að ná saman fundi í stjórnkerfis- nefnd í þrjá mánuði segir Eiríkur Tómasson, formaður nefndarinnar ■ „Sannleikurinn er sá að sem formaður stjórnkerfisnefndar hafði ég i' rúma þrjá mánuði margreynt að ná saman fundi i nefndinni án árangurs þar sem fulltrúi Alþýðuflokksins, Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, borgarfulltrúi gat af einhverjum ástæðum aldrei mætt á fundina”, segir Eirikur Tómasson i yfiríýsingu vegna þeirra ummæla Sigurðar E. Guðmundssonar borgarfull- trúa Alþýðuflokksins um að Framsóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið hafi fyrirvara- laust slitið samstarfi við Alþýðu- flokkinn um endurskoðun á stjórnkerfi Reykjavikur. Segir Eiri'kur þessa staðhæfingu þvi al- ranga og væntanlega stafa af vanþekkingu hans. Yfirlýsing Eiriks Tómassonar er svohljdðandi: ,,í tilefni af þeim ummælum Sigurðar E. Guðmundssonar borgarfulltrúa Alþýðuflokksins, að Framsóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið hafi slitið fyrirvaralaust samstarfi við Alþýðuflokkinn um endurskoðun á stjórnkerfi Reykjavikurborgar, vil ég taka fram eftirfarandi: Staðhæfing Sigurðar er alröng og stafar væntanlega af vanþekk- ingu hans á málavöxtum. Sann- leikurinn er sá að sem formaður stjórnkerfisnefndar hafði ég i rúma þrjá mánuði margreynt að ná saman fundi i nefndinni án ár- angurs þar sem fulltrúi Alþýðu- flokksins, Sjöfn Sigurbjörnsdótt- ir, borgarfulltrúi, gat af einhverj- um ástæðum aldrei mætt á fund- ina. Aður hafði ég, fyrir hönd Framsóknarflokksins, lagt fram itarlegar tillögur til breytinga á stjórnkerfi borgarinnar i nefnd- inni og gerði ég mér vonir um að Sjöfn Sigurbjörnsdóttir gæti fall- ist á að minnsta kosti hluta til- lagnanna þar sem fulltrúar Alþýðuflokksins i borgarstjórn höfðu flutt sams konar tillögur áður, þ.e. meðan flokkurinn var i minnihlutaaðstöðu. Ekkert benti hins vegar til þess að Sjöfn eða flokkur hennar væri til viðræðu um tillögur þessar, þvert á móti virtist hún þeim andsnúin. I ljósi þess að ekki reyndist til staðar samstaða með meirihluta nefndarinnar um neinar tillögur til aðkallandi breytinga á stjórnkerfi borgarinnar og þess að óðum dró að borgarstjórnar- kosningum sá ég mérekki annað fært en að leggja það til á fundi nefndarinnar hinn 1. mars s.l. að nefndin skilaði af sér störfum til borgarráðs og borgarstjórnar. Voru þau Adda Bára Sigfúsdóttir og Markús öm Antonsson, sem einnig sátu fundinn, sammála þeirri málsmeðferð. Það vita allir, sem til þekkja, ■ EirikurTómasson að það var Alþýðuflokkurinn sem i raun sleit samstarfinu á þessu sviði borgarmálefna. Við Fram- sóknarmenn, og ég vænti Alþýðu- bandalagsmenn einnig, erum hins vegar reiðubúnir, hvenær sem er, að taka höndum saman við Alþýðuflokkinn um breyting- ar á stjórnkerfi Reykjavikur- borgar, en okkur sýnistað enginn áhugi sé rfkjandi á því í röðum forystumanna flokksins i Reykja- vik.” menningarmái Einar Hákonarson sýnir K JAR VALSSTAÐIR EINAR HAKONARSON Málverkasýning 27.febr.—14. mars. Opið daglega 14—22. Vestursalur Fjaðrafok út af Sjónvarpi ■ Einar Hákonarson er vaskur málari, og þott hann gegni nú skólastjórastarfi við Myndlista- oghandiðaskólann, þá hefur hann ekki lagt pensilinn á hilluna — öðru nær, þvi enn hefur hann fyllt Kjarvalsstaði, og nú með 56 myndum, sem ýmist eru málaðar siðan siðast, ellegar eru i einka- eign. Opnun sýningarinnar gekk vist ekki hávaðalaust fyrir sig, þvi Einar Hákonarson óskaði ekki eftir að Sjónvarpið greindi frá sýningu hans og um þetta segir hann iMorgunblaðinu orðrétt: „Þetta mál allt á sér nokkurn aðdraganda”, sagði Einar þegar Morgunblaðið ræddi við hann. „Þegar árið 1971 mótmælti Félag islenskra myndlistarmanna fréttaflutningi sjónvarps frá myndlistarsýningum. Þá var sagt frá myndlist i' lok fréttatima á föstudögum. Eftir þessi mótmæli kom Vökuþátturinn sem nú er orðinnað mestu þáttum um kvik- myndir og leiklist. Siðast þegar ég hélt málverka- sýningu, þá vildi ég ekki fara i þessa ruslakistu sjónvarps, sem myndlistarmenn kalla sin á milli, vegna þess að ekki er lagt neitt mat á myndlist i sjónvarpi, eins og gerter með leiklist, tónlist og svo framvegis. Fréttaflutningur sjónvarps af menningarviðburð- um er almennt fyrir neðan allar hellur, en ef bolta er lyft, þá er rokið upp til handa og fóta.” Það kann að vera, að Einar Há- konarson hafi dálitið til sins máis, en á hinn bóginn, ef ég man rétt viðtal við Einar i útvarpinu, sem eru þó viss forréttindi, því flestir verða nú að borga þar sína auglýsingu. Annars hefur hljóð- varpið sett sér ákveðna reglu, sem sé þá, að segja frá opnun sýninga eftiralla menn.en efum samsýningu er að ræða, þá er greint frá þvi, eða minnt á hana, áður en lokað er. Sjónvarpið mætti gjarnan hafa svipaðarreglur (og hefurþær) en ekki li'st mér á að sjónvarpið fari eftir „mati á myndlist”. Það er of hættuleg regla, ef ég þekki manneskjuna rétt. Það er að segja, þegar um kynningu á sýn- ingum er að ræða.þótt vel væri án efa þegið, að fjallað yröi um sýn- ingar i einhvers konar Vöku. All- ar tilraunir með að gjöra listina að innanfélagsmótum fámennra hópa, eru dæmdar til að fara út um þúfur. En nóg um það. Sýningin Sem áður var sagt, þá eru 56 myndir á þessari sýningu. Flest- ar nýjar eða nýlegar. Þó eru þarna nokkur eldri verk, sem eru i einkaeign. Það er annars örðugt að skil- greinaþessa sýningu Einars. Við- fangsefnin eru að vísu svipuð, og við höfum áður séð. Manneskjan, eða maðurinn, landið og veðrátt- an. Hann beitir myndflötinn engu sérstöku ofbeldi. Teikningin er klár, og randteikning er áberandi til að afmarka litina og formin. Með þvf móti verða sum verkin dálitið „teiknuð”eins og stundum ersagt. Best vegnar honum, þeg- ar hann stillir saman rólegum og fjörugum myndflötum eins og i mynd sem hangir austastá norð- ur vegg salarins. Yfirleitt þóttu mér litlarmyndir betri en stórar, þótt myndir eins og Valhúsahæð séu býsna áhrifamiklar. Það verður að segjast eins og er, að dáli'tillsvipur raðsmiði er á þessari sýningu Einars Hákonar- sonar, en þaö sem mest er um vert, er þaö, að góðu myndimar eru með þvi besta er hann hefur gjört. bridge Islandsmótin að hefjast ■ Sveit Sævars Þorbjörns- sonar sigraði i úrslitakeppni Reykjavikurmótsins i sveita- keppni, sem spiluð var um helgina. Auk Sævars eru i sveitinni þeir Þorlákur Jóns- sin, Jón Baldursson og Valur Sigurðsson. Þær fjórar sveitir, sem höfnuðu i efstu sætunum i mótinu spiluðu úrsláttar- keppnium titilinn. S.l. laugar- dag áttust við sveitir Sævars og Arnar Arnþórssonar og sigraði sveit Sævars i 40 spila leik með 83:60 eítir lrekar jafna byrjun (45:45 eítir 28 spil). Annaö var upp á tengingnum i leik Þórarins Sigþórssonar og Ásmundar Pálssonar, en siðarnefnda sveitin sigraði með 136:43. 1 keppninni um þriöja sætið sigraði sveit Arnar sveit Þórarins örugglega (138:76), segja má aö hin annars mjög góða s^eit Þórarins hafi verið i „jórnbrautaslysunum" um siðustu helgi. Sveitir Sævars og Ás- mundar spiluðu 60 spilaleiki i 4 lotum um titilinn og má segja að drengirnir haii sigrað með öryggi, en þeir unnu allar lot- uijnar: 50-24, 38-30, 56-34, 46-43 eð|a alls 190-131 Sævari i vil. Keppnisstjóri var Agnar Jörgensen. islandsmótin Mikið er um aö vera i islensku bridgeliíi um þessar mundir. Úrslit Reykjavikur- mótsins fóru lram nú um helgina, eins og iram kemur hér að ofan og um næstu helgi verður bridgehátiðin mikla. Þá er búið að skipuleggja dag- skrána fyrir íslandsmótin i sveitakeppni og tvimenning, sem hefjast nú i lok mánaðar- ins. 1 sveitakeppninni taka þátt 24 sveitir, sem spila undanúrslit i fjórum sex sveita riðlum. Tvær efstu sveitirnar komast svo i úrslit. Tvimenningskeppnin er hins vegar öllum opin. Dagskráin verður sem hér segir: Sveitakeppni Undanúrslit: keppnisgjald kr. 1400 pr. sveit Spilastaður: Hótel Loft- leiðir, Kristalssalur. 2. umf. löstudag 26/3 . kl. 20.00 2. umf. laugardag27/3....kl. 13.15 3. umf. laugardag 27/3 .... kl. 20.00 4. umf. sunnudag 28/3................kl. 13.15 5. umf. sunnudag 28/3....kl. 20.00 Úrslit: 1. umf. fimmtudag 8/4 .... kl. 13.15 2. umf. fimmtudag 8/4....kl. 20.00 3. umf. föstudag 9/4. . kl. 13.15 4. umf. föstudag 9/4.kl.20.00 5. umf. laugardag 10/4 ...kl. 13.15 6. umf. laugard. 10/4. kl. 20.00 7. umf. sunnudag 11/4,...kl. 13.15 Tvimenningu Undanúrslit: keppnisgjald kr. 400 pr. par Spilastaður: Domus Medika 1. umf. fimmtudagur 22/4 kl. 13.00 2. umf. fimmtudagur22/4.kl. 19.00 3. umf. föstudagur23/4 ...kl. 17.00 Úrslit: Spilastaður: Hotel Hekla l.umf. laugardagur 24 24. kl. 13.00 2. umf. laugardagur 24/4. .kl. 19.30 3. umf. sunnudagur25/4 ..kl. 13.00 I tengslum við þessi mót, munu Flugleiðir að öllum lik- indum bjóða keppendum upp á 1S1 kjör, þ.e. u.þ.b. 50% af- slátt. Þá verða væntanlega „helgarpakkar” i boði fyrir keppendur, en nánari upp- lýsingar um verð liggja ekki enn fyrir. Bridgehátið 82 Þátturinn mínnir enn einu sinni á almælismót BR og Stórmót Flugleiða sem hefjast n.k. íöstudag. Undirbúningur l'yrir mótin gengur vel. Eins og áður heíur komið fram i blaðinu, fá mótshaldarar videótæki Óðals lánuð og nú siðast hefur fyrirtækið Gellir lánað af örlæti fimm ITT sjón- varpstæki, sem verða noluð i tengslum við videótækin, á- horlendum til góðs. Er þvi ó- hætt að fullyrða, að aðstaða fyrir áhoríendur verður upp á það besta. Butler i Breiðholti S.l. þriðjudag var áætlað að spila Butler keppni hjá félag- inu, en vegna slæmrar þátt- töku var gripið lil þess að spila eins kvölds tvimenning. Tólf pör tóku þátl og sigruðu þeir Heimir Tryggvason og Arni Már með 140 stig. 1 kvöld er hins vegar ællunin aðbyrja Butler tvimenninginn og eru spilarar beðnir um að mæta vel og slundvislega. Spilamennskan hefsl kl. 19.30 i húsi Kjöts og fisks, Seljabraut 54. Félagið spilaði nýlega við bridgemenn frá Húsavik sveitakeppni á 6 borðum og urðu úrslit þau, að heima- menn sigruðu naumlega 62 stig gegn 58. Þá var einnig spilaður tvimenningur, en þá sigruðu norðanmenn. Skagiirðingar Áformað er að sækja félaga i Bridgelélagi Sauðárkróks heim um komandi Sæluviku, sem verður i ár vikuna 21. til 28. mars. Farið verður norður með flugi föstudaginn 26. og heim sunnudaginnn 28. mars. Þáttlaka tilkynnist til Sig- mars Jónssonar i sima: 12817 og 16737. Eftir 10 umferðir i Baromet- erkeppni eru eftirtalin pör efst: 1. Guðmundur Aronsson — Siguröur Ámundason....99 2. Garöar Þórðarson — Guðmundur ó. Þórðarson 92 3. Arnar Ingólfsson — Sigmar Jónsson........86 4. óli Andreason — Sigrún Pétursdóttir...83 -5. Andrés Þórarinsson — Hafsteinn Pétursson....72 Sauðárkrókur Laugardaginn 28. febr. var spilaður aðaltvimenningur, félagsins með þátttöku 18 para. Spilaður var barometer og spiluð voru 3 spil milli para. Eftirtalin pör náöu yfir meðalskor: 1. Einar Svansson — SkúliJónsson..........81 2. Alda Guðbrandsdóttir — Jón Sigurðsson........56 3. Kristján Blöndal — Bjarki Tryggvason.....51 4. Reynir Pálsson — Stefán Benediktsson...46 Magnús Ólafsson skrifar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.