Tíminn - 09.03.1982, Page 11
Þriðjudagur 9. mars 1982
11
á vettvangi dagsins
rrStadhæfing Sigurdar E.Guðmundssonar alröng”:
Margreynt að ná saman
fundi í stjórnkerfis-
nefnd í þrjá mánuði
segir Eiríkur Tómasson, formaður nefndarinnar
■ „Sannleikurinn er sá að sem
formaður stjórnkerfisnefndar
hafði ég i' rúma þrjá mánuði
margreynt að ná saman fundi i
nefndinni án árangurs þar sem
fulltrúi Alþýðuflokksins, Sjöfn
Sigurbjörnsdóttur, borgarfulltrúi
gat af einhverjum ástæðum
aldrei mætt á fundina”, segir
Eirikur Tómasson i yfiríýsingu
vegna þeirra ummæla Sigurðar
E. Guðmundssonar borgarfull-
trúa Alþýðuflokksins um að
Framsóknarflokkurinn og
Alþýðubandalagið hafi fyrirvara-
laust slitið samstarfi við Alþýðu-
flokkinn um endurskoðun á
stjórnkerfi Reykjavikur. Segir
Eiri'kur þessa staðhæfingu þvi al-
ranga og væntanlega stafa af
vanþekkingu hans.
Yfirlýsing Eiriks Tómassonar
er svohljdðandi:
,,í tilefni af þeim ummælum
Sigurðar E. Guðmundssonar
borgarfulltrúa Alþýðuflokksins,
að Framsóknarflokkurinn og
Alþýðubandalagið hafi slitið
fyrirvaralaust samstarfi við
Alþýðuflokkinn um endurskoðun
á stjórnkerfi Reykjavikurborgar,
vil ég taka fram eftirfarandi:
Staðhæfing Sigurðar er alröng
og stafar væntanlega af vanþekk-
ingu hans á málavöxtum. Sann-
leikurinn er sá að sem formaður
stjórnkerfisnefndar hafði ég i
rúma þrjá mánuði margreynt að
ná saman fundi i nefndinni án ár-
angurs þar sem fulltrúi Alþýðu-
flokksins, Sjöfn Sigurbjörnsdótt-
ir, borgarfulltrúi, gat af einhverj-
um ástæðum aldrei mætt á fund-
ina. Aður hafði ég, fyrir hönd
Framsóknarflokksins, lagt fram
itarlegar tillögur til breytinga á
stjórnkerfi borgarinnar i nefnd-
inni og gerði ég mér vonir um að
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir gæti fall-
ist á að minnsta kosti hluta til-
lagnanna þar sem fulltrúar
Alþýðuflokksins i borgarstjórn
höfðu flutt sams konar tillögur
áður, þ.e. meðan flokkurinn var i
minnihlutaaðstöðu. Ekkert benti
hins vegar til þess að Sjöfn eða
flokkur hennar væri til viðræðu
um tillögur þessar, þvert á móti
virtist hún þeim andsnúin.
I ljósi þess að ekki reyndist til
staðar samstaða með meirihluta
nefndarinnar um neinar tillögur
til aðkallandi breytinga á
stjórnkerfi borgarinnar og þess
að óðum dró að borgarstjórnar-
kosningum sá ég mérekki annað
fært en að leggja það til á fundi
nefndarinnar hinn 1. mars s.l. að
nefndin skilaði af sér störfum til
borgarráðs og borgarstjórnar.
Voru þau Adda Bára Sigfúsdóttir
og Markús öm Antonsson, sem
einnig sátu fundinn, sammála
þeirri málsmeðferð.
Það vita allir, sem til þekkja,
■ EirikurTómasson
að það var Alþýðuflokkurinn sem
i raun sleit samstarfinu á þessu
sviði borgarmálefna. Við Fram-
sóknarmenn, og ég vænti Alþýðu-
bandalagsmenn einnig, erum
hins vegar reiðubúnir, hvenær
sem er, að taka höndum saman
við Alþýðuflokkinn um breyting-
ar á stjórnkerfi Reykjavikur-
borgar, en okkur sýnistað enginn
áhugi sé rfkjandi á því í röðum
forystumanna flokksins i Reykja-
vik.”
menningarmái
Einar Hákonarson sýnir
K JAR VALSSTAÐIR
EINAR HAKONARSON
Málverkasýning
27.febr.—14. mars.
Opið daglega 14—22.
Vestursalur
Fjaðrafok út af
Sjónvarpi
■ Einar Hákonarson er vaskur
málari, og þott hann gegni nú
skólastjórastarfi við Myndlista-
oghandiðaskólann, þá hefur hann
ekki lagt pensilinn á hilluna —
öðru nær, þvi enn hefur hann fyllt
Kjarvalsstaði, og nú með 56
myndum, sem ýmist eru málaðar
siðan siðast, ellegar eru i einka-
eign.
Opnun sýningarinnar gekk vist
ekki hávaðalaust fyrir sig, þvi
Einar Hákonarson óskaði ekki
eftir að Sjónvarpið greindi frá
sýningu hans og um þetta segir
hann iMorgunblaðinu orðrétt:
„Þetta mál allt á sér nokkurn
aðdraganda”, sagði Einar þegar
Morgunblaðið ræddi við hann.
„Þegar árið 1971 mótmælti Félag
islenskra myndlistarmanna
fréttaflutningi sjónvarps frá
myndlistarsýningum. Þá var sagt
frá myndlist i' lok fréttatima á
föstudögum. Eftir þessi mótmæli
kom Vökuþátturinn sem nú er
orðinnað mestu þáttum um kvik-
myndir og leiklist.
Siðast þegar ég hélt málverka-
sýningu, þá vildi ég ekki fara i
þessa ruslakistu sjónvarps, sem
myndlistarmenn kalla sin á milli,
vegna þess að ekki er lagt neitt
mat á myndlist i sjónvarpi, eins
og gerter með leiklist, tónlist og
svo framvegis. Fréttaflutningur
sjónvarps af menningarviðburð-
um er almennt fyrir neðan allar
hellur, en ef bolta er lyft, þá er
rokið upp til handa og fóta.”
Það kann að vera, að Einar Há-
konarson hafi dálitið til sins máis,
en á hinn bóginn, ef ég man rétt
viðtal við Einar i útvarpinu, sem
eru þó viss forréttindi, því flestir
verða nú að borga þar sína
auglýsingu. Annars hefur hljóð-
varpið sett sér ákveðna reglu,
sem sé þá, að segja frá opnun
sýninga eftiralla menn.en efum
samsýningu er að ræða, þá er
greint frá þvi, eða minnt á hana,
áður en lokað er.
Sjónvarpið mætti gjarnan hafa
svipaðarreglur (og hefurþær) en
ekki li'st mér á að sjónvarpið fari
eftir „mati á myndlist”. Það er of
hættuleg regla, ef ég þekki
manneskjuna rétt. Það er að
segja, þegar um kynningu á sýn-
ingum er að ræða.þótt vel væri án
efa þegið, að fjallað yröi um sýn-
ingar i einhvers konar Vöku. All-
ar tilraunir með að gjöra listina
að innanfélagsmótum fámennra
hópa, eru dæmdar til að fara út
um þúfur. En nóg um það.
Sýningin
Sem áður var sagt, þá eru 56
myndir á þessari sýningu. Flest-
ar nýjar eða nýlegar. Þó eru
þarna nokkur eldri verk, sem eru
i einkaeign.
Það er annars örðugt að skil-
greinaþessa sýningu Einars. Við-
fangsefnin eru að vísu svipuð, og
við höfum áður séð. Manneskjan,
eða maðurinn, landið og veðrátt-
an. Hann beitir myndflötinn engu
sérstöku ofbeldi. Teikningin er
klár, og randteikning er áberandi
til að afmarka litina og formin.
Með þvf móti verða sum verkin
dálitið „teiknuð”eins og stundum
ersagt. Best vegnar honum, þeg-
ar hann stillir saman rólegum og
fjörugum myndflötum eins og i
mynd sem hangir austastá norð-
ur vegg salarins. Yfirleitt þóttu
mér litlarmyndir betri en stórar,
þótt myndir eins og Valhúsahæð
séu býsna áhrifamiklar.
Það verður að segjast eins og
er, að dáli'tillsvipur raðsmiði er á
þessari sýningu Einars Hákonar-
sonar, en þaö sem mest er um
vert, er þaö, að góðu myndimar
eru með þvi besta er hann hefur
gjört.
bridge
Islandsmótin að hefjast
■ Sveit Sævars Þorbjörns-
sonar sigraði i úrslitakeppni
Reykjavikurmótsins i sveita-
keppni, sem spiluð var um
helgina. Auk Sævars eru i
sveitinni þeir Þorlákur Jóns-
sin, Jón Baldursson og Valur
Sigurðsson.
Þær fjórar sveitir, sem
höfnuðu i efstu sætunum i
mótinu spiluðu úrsláttar-
keppnium titilinn. S.l. laugar-
dag áttust við sveitir Sævars
og Arnar Arnþórssonar og
sigraði sveit Sævars i 40 spila
leik með 83:60 eítir lrekar
jafna byrjun (45:45 eítir 28
spil). Annaö var upp á
tengingnum i leik Þórarins
Sigþórssonar og Ásmundar
Pálssonar, en siðarnefnda
sveitin sigraði með 136:43. 1
keppninni um þriöja sætið
sigraði sveit Arnar sveit
Þórarins örugglega (138:76),
segja má aö hin annars mjög
góða s^eit Þórarins hafi verið
i „jórnbrautaslysunum" um
siðustu helgi.
Sveitir Sævars og Ás-
mundar spiluðu 60 spilaleiki i 4
lotum um titilinn og má segja
að drengirnir haii sigrað með
öryggi, en þeir unnu allar lot-
uijnar: 50-24, 38-30, 56-34, 46-43
eð|a alls 190-131 Sævari i vil.
Keppnisstjóri var Agnar
Jörgensen.
islandsmótin
Mikið er um aö vera i
islensku bridgeliíi um þessar
mundir. Úrslit Reykjavikur-
mótsins fóru lram nú um
helgina, eins og iram kemur
hér að ofan og um næstu helgi
verður bridgehátiðin mikla.
Þá er búið að skipuleggja dag-
skrána fyrir íslandsmótin i
sveitakeppni og tvimenning,
sem hefjast nú i lok mánaðar-
ins. 1 sveitakeppninni taka
þátt 24 sveitir, sem spila
undanúrslit i fjórum sex
sveita riðlum. Tvær efstu
sveitirnar komast svo i úrslit.
Tvimenningskeppnin er hins
vegar öllum opin. Dagskráin
verður sem hér segir:
Sveitakeppni
Undanúrslit: keppnisgjald kr.
1400 pr. sveit
Spilastaður: Hótel Loft-
leiðir, Kristalssalur.
2. umf. löstudag 26/3 . kl. 20.00
2. umf. laugardag27/3....kl.
13.15
3. umf. laugardag 27/3 .... kl.
20.00
4. umf. sunnudag
28/3................kl. 13.15
5. umf. sunnudag 28/3....kl.
20.00
Úrslit:
1. umf. fimmtudag 8/4 .... kl.
13.15
2. umf. fimmtudag 8/4....kl.
20.00
3. umf. föstudag 9/4. . kl. 13.15
4. umf. föstudag 9/4.kl.20.00
5. umf. laugardag 10/4 ...kl.
13.15
6. umf. laugard. 10/4. kl. 20.00
7. umf. sunnudag 11/4,...kl.
13.15
Tvimenningu
Undanúrslit: keppnisgjald
kr. 400 pr. par
Spilastaður: Domus Medika
1. umf. fimmtudagur 22/4 kl.
13.00
2. umf. fimmtudagur22/4.kl.
19.00
3. umf. föstudagur23/4 ...kl.
17.00
Úrslit:
Spilastaður: Hotel Hekla
l.umf. laugardagur 24 24. kl.
13.00
2. umf. laugardagur 24/4. .kl.
19.30
3. umf. sunnudagur25/4 ..kl.
13.00
I tengslum við þessi mót,
munu Flugleiðir að öllum lik-
indum bjóða keppendum upp á
1S1 kjör, þ.e. u.þ.b. 50% af-
slátt. Þá verða væntanlega
„helgarpakkar” i boði fyrir
keppendur, en nánari upp-
lýsingar um verð liggja ekki
enn fyrir.
Bridgehátið 82
Þátturinn mínnir enn einu
sinni á almælismót BR og
Stórmót Flugleiða sem hefjast
n.k. íöstudag. Undirbúningur
l'yrir mótin gengur vel. Eins
og áður heíur komið fram i
blaðinu, fá mótshaldarar
videótæki Óðals lánuð og nú
siðast hefur fyrirtækið Gellir
lánað af örlæti fimm ITT sjón-
varpstæki, sem verða noluð i
tengslum við videótækin, á-
horlendum til góðs. Er þvi ó-
hætt að fullyrða, að aðstaða
fyrir áhoríendur verður upp á
það besta.
Butler i Breiðholti
S.l. þriðjudag var áætlað að
spila Butler keppni hjá félag-
inu, en vegna slæmrar þátt-
töku var gripið lil þess að spila
eins kvölds tvimenning. Tólf
pör tóku þátl og sigruðu þeir
Heimir Tryggvason og Arni
Már með 140 stig.
1 kvöld er hins vegar ællunin
aðbyrja Butler tvimenninginn
og eru spilarar beðnir um að
mæta vel og slundvislega.
Spilamennskan hefsl kl. 19.30 i
húsi Kjöts og fisks, Seljabraut
54.
Félagið spilaði nýlega við
bridgemenn frá Húsavik
sveitakeppni á 6 borðum og
urðu úrslit þau, að heima-
menn sigruðu naumlega 62
stig gegn 58. Þá var einnig
spilaður tvimenningur, en þá
sigruðu norðanmenn.
Skagiirðingar
Áformað er að sækja félaga
i Bridgelélagi Sauðárkróks
heim um komandi Sæluviku,
sem verður i ár vikuna 21. til
28. mars. Farið verður norður
með flugi föstudaginn 26. og
heim sunnudaginnn 28. mars.
Þáttlaka tilkynnist til Sig-
mars Jónssonar i sima: 12817
og 16737.
Eftir 10 umferðir i Baromet-
erkeppni eru eftirtalin pör
efst:
1. Guðmundur Aronsson —
Siguröur Ámundason....99
2. Garöar Þórðarson —
Guðmundur ó. Þórðarson 92
3. Arnar Ingólfsson —
Sigmar Jónsson........86
4. óli Andreason —
Sigrún Pétursdóttir...83
-5. Andrés Þórarinsson —
Hafsteinn Pétursson....72
Sauðárkrókur
Laugardaginn 28. febr. var
spilaður aðaltvimenningur,
félagsins með þátttöku 18
para. Spilaður var barometer
og spiluð voru 3 spil milli para.
Eftirtalin pör náöu yfir
meðalskor:
1. Einar Svansson —
SkúliJónsson..........81
2. Alda Guðbrandsdóttir —
Jón Sigurðsson........56
3. Kristján Blöndal —
Bjarki Tryggvason.....51
4. Reynir Pálsson —
Stefán Benediktsson...46
Magnús Ólafsson
skrifar