Tíminn - 20.05.1982, Page 1
handbók
— sjá
bls. 24
Langir
leggir
— sjá
bls. 11
Kristján Benediktsson um skoðanakönnun Dagblaðsins og Vísis:
„MUNUM FA BETRIIÍT-
KOMU I KOSNINGUNUM
— „minni „vísindamennska” við þessa skoðanakönnun en hinar fyrri
■ „1 fyrsta lagi sýnist mér
minni „visindamennska” á
vinnslu þessarar skoðanakönn-
unar Dagblaðsins og Visis en oft
hefur veriö áður hjá þessum
blöðum”, svaraði Kristján
Benediktsson borgarfulltr.
spurningu Timans um álit á
skoðanakönnun þeirri um úrslit
bo.'garstjórnarkosninganna er
D og V birti i gær. Samkvæmt
henni voru rúmlega
óákveðnir eða vildu ekki svara
en 63,3% af þeim sem svöruðu
sögðust styðja Sjálfstæðisflokk-
inn, sem myndi þá þýða 14
borgarfulltrúa.
„Ég hef hugmynd um að allt
öðruvisi hafi verið unnið að
þessari könnun nú, eri olt r.ður. I
fyrsta lagi held ég að hún íiafi
staðið yfir i langan tima sem er
óeölilegt með slikar kannanir.
Það hve margir segjast
óákveðnir eða vilja ekki svara
sýnist mér greinilega stafa af
þvi að D og V hefur nú tekiö
mikluharðari pólitiska afstöðu i
þessum kosningum en það hefur
áður tekið, sem út af fyrir sig
hlýtur að kasta rýrð á þessa
könnun nú. Það hlýtur að hafa
áhrif a þaö hverjir vilja svara
spurningum þessa blaðs um
pólitiska afstööu sina, þegar
menn daglega hlusta á lestur
leiðara úr þessu blaði, þar sem
einum flokki er hampað og hann
hafinn til skýja og hinum fundið
allt til foráttu. Sjálfur er ég al-
veg sannfærður um það að við
framsóknarmenn munum fá
mur betri útkomu i kosningu í-
um en þessi skoðanakönnun g“f-
'ur til kynn?.”, sagði Kristjái.
wm
■HHi
—HEI
eru vist allir sammála um aösumariösé komiö meira aö segja þeir allra svartsýnustu sem búast viö páskahreti fram á
haust. Ungu stúlkurnar á myndinni eru orðnar fullar af sumarfjöri og sé ekki þegar eins um þig, lesandi góður, þá getur þess ekki verið
langt að biða. (Timamynd Róbert).
Ótti við
Khomeini
— sjá bls. 7
■ „Við siglum i fyrramálið,”
sagði Niels Ársælsson skipstjóri
á Einari Benediktssyni, þvi
fræga skipi, þar sem hann stóð
um borð i skipi slnu i norður-
höfninni i Hafnarfirði I gær-
kvöldi og var að taka ís og á
annan hátt að gera klárt i fyrstu
veiðiferðina. Niels var spurður
hvort skipið væri bátur eða tog-
ari og svaraöi hann þvi til að
mannskapurinn hefði verið
munstraður á bát.
Þegar hann var spurður hvort
búið væri að uppfylla allar kröf-
ur Siglingamálastofnunar,
svaraði hann þvi játandi og
sömuleiðis spurningu um hvort
hann hefði fengið haffærni-
skirteini og alla pappira klára.
Oskar Vigfússon hjá Sjó-
mannasambandinu var spurður
hvort þar hefði veriö fylgst með
breytingum á vistarverum
áhafnar og hvort þær uppfylli nú
ákvæði þar um i samningum.
Hann sagðist ekki geta svarað
þessu nú, þar sem enn heföi ekki
verið úrskurðað hvort skipiö
flokkaðist sem bátur eða togari.
„Skipið hefur ekki fengið haf-
færnisskirteini og fær það ekki i
dag,” sagði Magnús Jóhannes-
son fulltrúi hjá Siglingamála-
stofnun i gær um skipið Einar
Benediktsson sem áætlaö er að
fari á veiðar i dag.
Magnús, sem gegnir störfum
siglingamálastjóra I fjarveru
hans, sagöi að enn skorti gögn
um stöðugleika skipsins og haf-
færnisskirteini verði ekki gefið
út fyrr en upplýsingar um full-
nægjandi stöðugleika liggja
fyrir.
Fullyröing skipstjórans um að
allir pappirar væru nú klárir
var borin undir Magnús. Hann
sagði: „Ég skil satt að segja
ekki hvernig manninum getur
dottið i hug að halda þvi fram.”
SV
Trúnad"
*
Erlent yfirlit:
B-listinn í öflugri sókn - sjá bls. 13,14,15,16,17,18,19 og 20
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐÍ
Fimmtudagur 20. maí 1982
113. tbl. — 66.árg.
Síðumúla 15— Pósthólf 370 Reykj.ivík— Ritstjórn 86300*— Auglýsingar 18300 — Afgreiðsla og áskrift86300— Kvöldsímar86387 og 86392
Skipstjórinn á togaranum Einari Benediktssyni:
ÆTLAR Á VEIÐAR ÁN
TILSKILINNA LEYFA