Tíminn - 09.06.1982, Side 3
fréttir
Margra ára reynsla tryggir gæðin.
Mestselda sláttuþyrlan í áraraðir.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
uma!lf ^ SAMBANDSINS
um aill lana Armula 3 Reykiavik S 38 900
BÆNDUR
PZ. SLÁTTUPYRLURNAR
KOM N AR
2 STÆRÐIR
VINNSLUBREIDD
135og165sm
■ Þótt setningarathöfn Listahátiðar hafi farist fyrir á laugardaginn létu þessar
brosmildu og fallegu stúlkur sig ekki muna um að sýna islenskan klæðnað og skartgripi
á Lækjartorgi. Tímamynd: Ari
Kjarasamningavidrædur sveitar-
félaga fluttar til Reykjavikur?
STÓRT SROR
AFTUR Á BAK
■ „Það væri stórt spor aftur á bak og
varhugavert fordæmi að færa samnings-
gerð i kjaramálum bæjarstarfsmanna,
frá einstökum sveitarstjórnum til sam-
eiginlegrar samninganefndar sveita-
stjórnanna í Reykjavik eins og Samband
isl. sveitarfélaga áformar nú,“ sagði
Albert Kristinsson, nýkjörinn 1. vara-
forseti BSRB í samtali við Timann i gær.
„Ef af þessari breytingu verður þá
hefur það í för með sér stórfellda
skerðingu á samningsrétti okkar, og
samningsaðstöðu. Einnig ber að lita á
það, að þetta er ekki aðeins hættulegt
fordæmi i kjaramálum, heldur einnig i
málefnum landshluta og héraða,“ sagði
Albert.
- Sjó.
■ Borgarráð samþykkti á fundi sinum
i gær að hafna skaðabótakröfu frá sex
arkitektum sem áttu tillögu i samkeppni
um skipulag íþrótta- og útivistarsvæðis i
suður-Mjódd i Breiðholti sem visað var
frá vegna formgalla. Var formgallinn i
þvi fólginn að tillöguhöfundar skiluðu
inn sex teikningum með tillögu sinni í
stað ijögurra eins og tekið er fram i
keppnislýsingu. Visaði dómnefnd tillög-
unni þvi frá. „Eigi verður annað séð, en
þetta mat dómnefndarinnar sé rétt og að
hún hafi þetta úrskurðarvald", segir i
umsögn borgarlögmanns, sem lögð var
til grundvallar þegar borgarráð tók
ákvörðun sína.
Skaðabótakrafa . arkitektanna sex
hljóðar upp á 67 þús. kr. auk vaxta og
kostnaðar, en hins vegar voru fyrstu
verðlaun í samkeppninni 65 þús. kr.
í umsögn borgarlögmanns um þetta
segir m.a.: „Ef krafa lögmannsins yrði
H.lgln M.U. aprll lin
,1. 161'jbl.a - 44. árg.
Arkltoktar helmta skaöabaetur vegna þess aö tlllösu þelrra um
sklpulas Iþrótta- ogútlvlstarsvæöls var vlsað frá vegna formsalla:
SKAÐABÓTAKRAFAN HÆRRI
EN UPPHÆÐ 1. VERDLAUNA
„Eins og þetU Ittur ðt (ré
okkur. þá er lekin þerna inðgg
ékvöröun um sö benda Uliög
unni út, én þess sö UU é hsna I
vtöars tsmhengl Samkvcmt
Mboöslýflngu heföi ekki étl sö
samþykkt væri samkeppnisaðilumopnuð
leið til þess framvegis að skila inn
formgöliuðum tillögum, en krefja siðan
bóta, er næmu jafnvel hærri upphæðum
en veitt eru verðlaunatillögum.
Aðili, sem þátt tekur í slíkri
samkeppni, verður að bera sjálfur þann
kostnað, sem leiðir af þátttöku hans ef
tillaga vinnur ekki til verðlauna. Þá
kröfu verður að gera til þátttökuaðila,
að þeir kynni sér vel samkeppnis-
skilmála og viki ekki frá skýrum ákvæð-
um þeirra og jafnvel án þess að senda þá
fyrst inn fyrirspurn til dómnefndar um
túlkun á slíkum ákvæðum. Aðili, sem
víkur frá samkeppnisreglum með þeim
hætti sem hér var gert, verður því sjálfur
að bera þann kostnað, sem hann kann
að hafa lagt í rétt sem aðrir aðilar, sem
ekki vinna til verðlauna.".
- Kás
Frétt Timans um skaðabótakröfu arkitektanna
ÁSTANDIÐ BATN-
AÐ í „HEYLEYSIS-
HREPPUNUM”
■ „Við þorðum ekki annað en taka 10
tonn af heyi til miðlunar ef á þyrfti að
halda“, sagði Kjartan bóntli og oddviti
Unaösdal i Snæfjallahreppi er rætt var
við hann um heyflutningana frá
Hvammstanga i Inndjúp s.l. föstudag.
„En ég veit ekki hvort það þarf að
nota það, því veðrið hefur nú batnað
snögglega, siðan að samið var um þessi
kaup“. Ekki kvað Kjartan að menn
hefðu almennt verið orðnir heylausir.
Sennilega dygði það fram undir mánaða-
mótin. „En maður veit nú ekki hvort þá
verður kominn kúahagi að gagni", sagði
Lögbanns-
mál
Kjartan. Hann sagði uin 60 kýr á 3
bæjum í hreppnum.
Hann sagði þetta óvenju harðan
vetur, sem kom eftir slæma grassprettu
siðasta sumar og heyfengur þar af
leiðandi með minna móti. Veturinn
settist síðan mjög snemma að, i byrjun
september þannig að gjafatími búpen-
ings er orðinn mjög langur. En hagi taki
þó fljótt við sér nú þegar tiðin hefur
batnað.
- Þið eigið þá eiginlega orðið inni að
fá nú gott sumar? „Já, ég held að við
eigum það orðið inni hjá Guði að fá gott
sumar“, sagði Kjartan sposkur.
- HEI
Haukdal
tekið fyrir
ídag
■ Lögbannsmál Eggerts Haukdal á
hendur séra Páli Pálssyni verður tekið
fyrir hjá sýslumanni Rangárvallasýslu i
dag, og i framhaldi af þvi hjá Markúsi
Sigurbjörnssyni, fulltrúa Borgarfógeta,
sem hefur verið skipaður setudómari í
málinu. Að þvi loknu má fljótlega búast
við úrskurði í málinu.
Eggert hefur krafist lögbanns við
afnotum séra Páls Pálssonar, af túnum
sem tilheyra Bergþórshvoii I, því hann
telur sig hafa túnin á leigu. Samkvæmt
heimildum Tímans, þá sagði Páll
Pálsson upp þessum leigusamningi á
siðasta ári, og nýtir því túnin sjálfur
nú.
- AB
BORGARRAD HAFNAR SKABA-
BÚTAKRÖFU ARKITEKTANNA
— sem áttu tillöguna sem dæmd var úr leik vegna formgalla
f samkeppninni um skipulag íþróttasvæðis í suður-Mjódd