Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 10

Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1982 10 heimilistíminn umsjón: AKB Hildur Hálfdanardóttir. Rannveig Þórólfsdóttir. ■ Salóme Björnsdóttir (t. hægri) með Soffiu Eygló Jónsdóttur, sem unnið hefur á skrifstofu Hjúkrunarheimilisins frá byrjun og gleðst nú yfir því að draumurinn um Hjúkrunarheimilið er orðinn að veruleika. Tímamyndir: Anna ■ ísleifur Hannesson er 85 ára. Hann hefur búið í Kópavogi i 40 ár, en er Ámesingur að ætt og uppruna, fæddur i Stóru-Sandvik. Þad er sólríkt í Sunnuhlíð ■ Rabbað saman, meðan beðið er eftir kaffinu. ? i |l|tí , V '\W-j i Heimsókn í nýtt hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi ■ Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi, sem hlotið hefur nafnið Sunnuhlíð, var vígt eins og áður hefur komið fram 20. maí s.l. Sá dagur var sannkallaður hátiðisdagur allra Kópavogsbúa og þeirra fjölmörgu annarra sem lagt hafa hönd á plóginn við byggingu heimilisins. Að baki er rúmlega þriggja ára öflugt starf níu félagasamtaka í Kópavogi, en stofnendur og aðilar að fjársöfnun og framkvæmdum voru Junior Chamber, Kópavogi, Kirkjufélag Digranesprestakalls, Kiwanis- klúbburinn Eldey, Kvenfélag Kópavogs, Lionsklúbbur Kópavogs, Lionsklúbburinn Muninn, Rauðakrossdeild Kópavogs, Rotaryklúbbur Kópavogs og Soroptimista- klúbbur Kópavogs. Stofnfundur Hjúkrunarheimilisins var haldinn 17. mars 1979. Kosin var stjórn og fjárhagsráð auk þess sem félagasamtökin tilnefndu menn i sér- stakt fulltrúaráð. Fjársöfnun meðal bæjarbúa hófst og fyrsta skóflustunga var tekið 26. janúar 1980. Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópa- vogi er 1450 m að stærð auk 750 m2 kjallara. Þar verður rúm fyrir 38 vistmenn auk þess sem vonir standa til að unnt verði að nýta aðstöðuna til dagvistunar fyrir mun fleiri aldraða Kópavogsbúa. Heimilið er reist fyrir almennt söfnunarfé auk opinberra fjárframlaga. Hér á síðunni segir frá heimsókn í Sunnuhlíð einn dag í síðustu viku. Hún var 5 ára um aldamótin Salóme Björnsdóttur hitti ég í kaffistofu Sunnuhlíðar. Salóme er 86 ára gömul (að verða 87), en sagðist vera stálhraust yfirleitt, en hún hefði fengið inflúensu og verið slöpp undanfarið og þvi hefði hún fengið pláss i um Itálfan - mánuð i Sunnuhlíð. Salóme býr ein og því kom sér vel fyrir hana að geta dvalist þar á meðan hún nær sér eftir veikindin. Salóme er fædd í Álftártungu í Borgarfirði árið 1895, en þar bjuggu þá foreldrar hennar. Þegar Salóme var á öðru árinu fluttu foreldrar hennar til Ameríku, en Salóme varð eftir hjá móðursystur sinni i Stapadal í Arnar- firði og ólst þar upp. „Foreldrar minir voru fátækir og gátu ekki tekið með sér nema þrjú af okkur systkinunum, hinum var komið fyrir. Einn bróðir minn var Bjarni Björnsson, leikari, en hann ólst upp hjá Markúsi skólastjóra, hér í Reykjavík. Það var voðalegt þetta hrun, þegar íslendingarn- ■ Dóttir og dótturdóttir i heimsókn hjá Þórdisi Einarsdóttur. Frá v. Rósa Jóhannsdóttir, Guðrún Viggósdóttir og Þórdís Einarsdóttir. ■ Hjónin Helga Einarsdóttir og Þórður Þorsteinsson, frumbyggjar Kópavogs. Þórður var fyrsti vistmaðurinn, sem kom í Sunnuhlið. Þegar Þórður og Helga fiuttu í Kópavoginn var þar engin byggð utan Digranesbæjaríns, Fífuhvammsbæjar og Kópavogshælis. Þau hjón mega muna timana tvenna, en Þórður var fyrsti og eini hreppstjórinn í Kópavogi. Hann er nú 80 ára, en Helga er 83 ára. ir hentust af landinu. En fátæktin var mikil og þeir höfðu von um betra lif í Ameriku. Ég hitti einu sinni systur mínar. Þær komu upp og voru hjá mér og þá fundum við sárt til þess að hafa ekki getað alist upp saman. Ég bjó lengi á ísafirði, en svo drukknaði maðurinn minn. Ég byggði hús á ísafirði, fékk lán fyrir þvi, eftir að hann dó, en það eyðilagðist í snjóflóði. Ég á nú þrjú börn á lifi og heilmörg barnabörn og barnabamabörn og hef lengi búið i Kópavogi í litlu húsi, sem ég á þar. Ég hef unnið mikið um ævina, í fiskvinnu, við ræstingar og ég vann i 18 ár í Málningu hf. Það hafa allir verið mér mjög góðir og ég hef ekki yfir neinu að kvarta. Tæpt ár síðan reisugiilið var haldið Við erum óskaplega ánægð með að það skyldi takast að koma þessu upp, sagði Hildur Hálfdanardóttir, framkv.- stjóri. - Það er ekki nema tæpt ár síðan reisugillið var haldið. Við fórum upphaflega af stað með bygginguna án rikisstyrks og aðeins með fé frá Kópavogsbúum og framlögum frá klúbb- unum. Fljótlega kom til stuðningur bæði bæjar og ríkis, en rúmlega helmingur af byggingarkostnaði heimilisins er fram- lag Kópavogsbúa sjálfra og annarra velunnara. Hjúkrunarheimilið er sjúkrastofnun og rekið eins og aðrar hjúkrunarstofn- anir á landinu með dagpeningum, sem daggjaldanefnd úrskurðar. Hér er gert ráð fyrir að sjúklingamir hressist og meiningin að festa sem fæst rúm, en hins vegar gerum við okkur grein fyrir þvi að það eru alltaf einhverjir, sem hér þurfa að dveljast að staðaldri. Enn er ekki búið að ljúka nema annarri álmunni og er reyndar verið að leggja síðustu hönd á hana þessa dagana og ennþá vantar mikið og gjafir eru vel þegnar. Við erum með langan óskalista um það sem vantar, en á vígsludegi bárust margar gjafir og styttist þá listinn töluvert. En ennþá er brýn þörf á fjárstuðningi fólks, þvi að kostnaður er geysimikill á lokastigi. Andleg og líkamleg þjálfun er mikilvæg fyrír vistmenn Rannveig Þórólfsdóttir, hjúkrunarfor- stjóri, sagði að þegar allir vistmenn yrðu komnir í þá álmu, sem nú er komin í notkun, yrðu þeir samtals 22. Seinni álman yrði svo tekin í notkun siðar á árinu og ætlunin væri að þá kæmi svo aðstaða til endurhæfingar og sjúkraþj álf- unar. „Best hefði þó verið“, sagði Rannveig „ að sú aðstaða hefði verið fyrir hendi strax, þvi að andleg og likamleg þjálfun er nr. 1 fyrir vistmenn. En vegna sumarleyfa, gæti ég hugsað að það yrði ekki fyrr en með haustinu, sem við fáum iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara".

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.