Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1982 England vel undirbúið Frá Erik Mogensen fréttamanni Tímans á Spáni: ■ Kevin Keegan fyrirliði enska lands- liðsins ábyrgist að undirbúningur liðsins sé fullkominn og að þeir séu í toppformi. Hefur hann tröllatrú á sigri i fyrsta leiknum gegn Frökkum sem gæti haft úrslitaþýðingu, segir spænska blaðið E1 Pais. Blaðið hefur siðan eftir Keegan: „Vörnin er þétt fyrir og sóknin er glögg HM- PUNKTAR Kevin Keegan lykilmaðurinn í enska landsliðinu, hefur í tvígang verið kosinn Knatt- spyrnumaður Evrópu. Aðeins einn annar leikmaður í HM nú hefur náð sama árangri í þessum efnum, Karl Heinz-Rummenigge. 30 þúsund löggur og hermenn mynda sérsveitir örygg- isvarða meðan á HM stendur. Spánverjarnir taka greinilega enga áhættu i þessum efnum. Bryan Robson er dýrasti leikmaðurinn í enska landsliðshópnum. Hann verður væntanlega í aðalhlutverki á miðj- unni hjá enskum í keppninni. Breski lávarðurinn er markvörður Spánverja kallaður vegna framkomu sinnar á leikvelli. Lordinn þykir hafa vissan „stíl“ yfir sér. Vörðurinn, sem ku heita Luis Arconada leggur stund á hagfræði í frístundum sinum. Bikarinn sem fyrirliði sigurvegaranna í HM gómar og veifar í lok keppninnar, er tryggður fyrir um 18 milljónir islenskra króna. Hann er hafður í geymslu í bankahólfi i Madrid, umkringdur öryggisvörðum (að ut- anverðu, vonandi). Kamerun er eitt landanna sem er með í HM. Straumur knattspyrnumanna hefur verið frá landinu til Frakklands siðustu árin og munu atvinnumenn þessir eiga að sjá fyrir þokkalegri frammistöðu lands sins í HM. Frægasti knattspyrnumaður Kame- run heitir Milla og skoraði m.a. sigurmarkið i frönsku bikarkeppn- inni. Hann leikur með SEC Bastia. á tækifæri þannig að ég get ekki séð af hverju við ættum ekki að ná langt í keppninni" segir Keegan. England lauk undirbúningsleikjum stnum með 1-0 sigri yfir Skotlandi, segir spænska blaðið, en hvergi er minnst á leikina gegn íslandi og Finnum. Erik/röp-. Frakkar áhyggju- fullir — vegna getuleysis sóknarinnnar Frá Erik Mogensen fréttamanni Timans á Spáni: ■ Aðeins niu dögum fyrir fyrsta leik Frakka i HM-keppninni hér á Spáni sem verður gegn Englendingum leitar lands- liðsþjálfari Frakka, Michel Hidaldo að nógu öflugri sóknartaktik fyrir lið sitt. Aðalvandamál franska landsliðsins undanfarið hefur verið getuleysi sóknar- innar, eins og best kom í ljós í 1-0 tapinu gegn Wales á dögunum. Fyrir Hidaldo yrði best að stilla upp í 4-4-2 til að ráða bót á markaleysinu. Á þann hátt gæfi hann aðalstjörnu liðsins Platini frjálsan tauminn sem fremsta mann sóknar- innar. Hið litla likamsþrek franska liðsins í leiknum gegn Wales er annar höfuðverkur fyrir Hildado fyrir byrjun- arleikinn gegn Englandi, segir í spænska blaðinu E1 Pais. Erík/röp ■ Rossi sendir knöttinn í net andstæðinganna í fyrsta leik sinum eftir knattspyrnubannið. Á innfelldu myndinni er hann niðuríútur i réttarsalnum er dómur féll í mútuhneykslinu. Paolo Rossi Madurinn sem á að tryggja gengi ítala íHM ■ Paolo Rossi, eöa „Pablito“ eins og hann er kallaður í heimalandi sínu, er maöurinn sem leiða á ítalska liðið til glæstra sigra i HM. Kappanum kann eflaust að veitast róðurinn þungur, einkum þar sem hann hefur litið leikið knattspyrnu siðustu tvö árin vegna mútu- hneykslis sem hann var flæktur í ásamt 37 öðrum knattspyrnu- mönnum árið 1979. Áður en Rossi lenti i hneykslinu hafði hann leikið 19 landsleiki fyrir blátreyj- urnar, Azzurro (ítalska landsliðið) og i Heimsmeistarakeppninni i Argentinu árið 1978 var hann lykilmaður í sóknarleik ftalanna. Þess má geta að Ítalía var eina landið sem lagði Argentínu að velli i þeirri keppni. Það var þvi hreint ótrúlegt hvi hann flæktist i mútumálið, milljónamæringur sem gerði sig að skúrki fyrir skitnar 18 þúsund krónur. En nú hefur Rossi semsagt afplánað dóm sinn og er til í slaginn. í fyrsta leiknum með félagi sínu, Juventus, skoraði hann eitt mark og lagði upp tvö. Stórkostlegt „come-back“ og hinir blóðheitu ftalir máttu vart vatni halda af hrifningu. Gamlingjarnir á HM: Eru á sfdasta snúningi ■ í fyrsta riðli HM leika margir gamlir jaxlar sem ætla nú að sýna knattspyrnu- heiminum að i fótbolta er ekki alltaf nóg að vera ungur og sprækur. Gömlu „rebbarnir“ fá nú sitt síðasta tækifæri til að sanna kenningu sina. ítalir slá öll met þvi i rammanum hjá þeim stendur Dino Zoff, 40 ára, og ekkert á þvi að leggja hanskana á hilluna. f framlínunni eru tveir „ungling- ar“ (sé miðað við Zoff), báðir 30 ára, Oriali og Graziani. í vörninni eru m.a. Gentile og Schirea, sem eru 29 ára. Þess má geta að flestir leikmenn italska liðsins eru yfir 27 ára. í liði Perúmanna eru gamlingjarnir allsráðandi: Cubillas, (33 ára), Quiroga (32 ára), Oblitas (31 árs), Diaz (30 ára) og Salguero (30 ára). Pólverjarnir koma ekki langt á eftir og þeir treysta á kappa eins og Lato, sem leikur með Arnóri hjá Lokeren (32 ára), Szarmach leikur einnig með Arnóri (32 ára), Mylnarczyk (30 ára), Janas (29 ára) og Zmuda (28 ára). Nú er bara að biða og sjá hvernig þeim gömlu reiðir af í síðasta stóra slagnum. Italir með einkakokk ■ Einn úr gamlingjahópnum, Pólverjinn Lato, sem leikur með Arnóri Guðjohnsen hjá Lokeren, er ákveðinn í að sýna og sanna að lengi lifir í gömlum glæðum. Frá Erik Mogensen fréttamanni Tímans á Spáni: ■ ítalska landsliðið i knattspyrnu sem telur 42 menn er komið til Spánar, með einkakokk og mikinn forða af matar- olíu, spaghetti skinku og osti. Liðið samanstendur af 22 leikmönnum fjórum sérfræðingum, þremur nuddurum, ein- um lækni, Ijósmyndara, einum kokk og heilum helling af aðstoðarfólki af ýmsu tagi. Hver leikmaður fær 100 dollara (1100 islenskar) i vasapening á dag og leyfi til að hringja eitt símtal á dag og má það takaallt að tíu minútum. Siðan eru í boði miklar upphæðir ef þeim vegnar vel. Hver leikmaður fær um 170 þúsund dollara (1870 þúsund íslenskar) ef þeir komast í úrslitaleikinn. Það var sjálfur landsliðsþjálfarinn Enzo Bearzot sem krafðist þess að fá einkakokk með í förina. Bearzot segir: „Leikmenn liðsins verða eingöngu að borða fæðu sem þeir eru nú þegar vanir. En ekki að leggja út i það ævintýri að breyta um matarvenjur“, segir Bearzot Fiskur, kjöt, grænmeti og ávextir verða eina spánska hráefnið sem italska liðið kemur til með að borða. Allt annað flytja þeir með sér, til að mynda hið bráðnauðsynlega pasta, spaghettí, skinku, ost og matarolíu. Áætlaður heildarkostnaður fyrir hóp- inn er um 850 þúsund dollarar (9 milljónir 350 þúsund) og eykst ef þeir komst áfram í úrslit Erik/röp -.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.