Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1982 6_____________ stuttar fréttir ■ Úr hinu nýja náttúragripasafni í Valhúsaskóla, en þar era m.a. til sýnis margir mjög fagrir og sérkennilegir steinar sem Siguröur K. Árnason hefur fundið á feröum sínum viða um land og nú gefiö safninu. Náttúrugripasafn opnaðí Valhúsaskóla SELTJARNARNES: Nýtt náttúru- gripasafn var opnað í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi hinn 18. maí s.l. Þeir gripir sem nú eru til sýnis i skápum safnsins eru úr einkasafni Sigurðar K. Árnasonar. Eru það ýmsir erlendir náttúrugripir, íslenskir steinar og steingervingar. íslensku gripina hefur Sigurður gefið safninu, en þá hefur hann fundið á ferðum sinum viðs vegar um landið. Margir þeirra eru mjög fagrir og sérkenni- legir. Við opnunina lýsti Björn Jónsson, skólastjóri safninu fyrir gestum og sagði frá aðdraganda að stofnun þess. Magnús Erlendsson, forseti bæjarstjórnar þakkaði Sigurði fyrir gjöf hans til safnsins og hafði góð orð um stuðning bæjarstjórnar til að auka vöxt og viðgang þess. „Hér hafa stærri hlutir gerst en ég átti von á“ I sagði Sigurgeir Sigurðsson, bæjar- [ stjóri m.a. Þakkaði hann stjórn Lista- og menningarsjóðs Seltjarnar- ness fyrir gott starf. Ólafur H. Óskarsson, skólastjóri lýsti ánægju sinni með að hýsa safnið i Valhúsa- skóla, og kvað húsnæðisskort ekki þurfa að hindra stækkun þess fyrst um sinn. Stjórnarmenn Lista- og menning- arsjóðs beina þvi til manna að athyglisverðir náttúrugripir séu vel þegnir í hið nýja safn. - HEI Um 340 kosnir í ráð og nefndir á fyrsta bæjar- stjórnarfundi ■ AKUREYRI: Nýkjörin bæjarstjórn Akureyrar kom saman til sins fyrsta fundar þriðjudaginn 1. júní s.l. Og það var ekkert smáræðis verkefni sem fyrir lá á þessum fyrsta fundi, þvi samkvæmt dagskrá áttu bæjar- stjórnarmenn að kjósa ekki færri en 1 ® um 340 aðalmenn og varamenn í nær alls 50 nefndir, stjórnir, ráð og stofnanir bæjarins. Vist má telja að ■ sömu mennirnir hafi verið kosnir í nokkrar og jafnvel margar nefndir og stjórnir. En hefði hver maður aðeins verið kosinn i eina nefnd (sem kallast víst dreifing valdsins á finu máli) er ekki fjarri lagi að 4-5% kjörgengra Akureyringa hefði hlotið kosningu i einhverja nefnd eða stjórn. Þar sem þessar nefndir eru sennilega svipaðar í fjölmörgum bæjarfélögum getur verið fróðlegt að telja þær hér upp: Byggingarnefnd - Hafnarstjórn - Rafveitustjórn - Kjörstjórn - Hitaveitustjórn - Vatns- veitustjóm - Atvinnumálanefnd - Framkvæmdaáætlunamefnd - Dval- a’rheimilisstjórn - Félagsmálaráð - Bókasafnsnefnd - Leikhúsnefnd - Æskulýðsráð - Skólanefnd - Skrúð- garða- og vinnuskólanefnd - Sjúkra- hússtjórn - Iðnskólanefnd - Krossa- nesstjórn - Menningarsjóðsstjórn - Fjallskilastjórn - íþróttaráð - Fram- talsnefnd - Leikvallanefnd - Hús- stjórnarskólanefnd - Náttúrugripa- safnsnefnd - Skipulagsnefnd - Heil- brigðisnefnd - Umferðanefnd - Stjórn Eftirlaunasjóðs - Jarðeigna- nefnd - Stjórn Húsfriðunarsjóðs - Stjórn Sparisjóðs Akureyrar - Áfengisvarnanefnd - Minjasafns- stjórn - Kjarasamninganefnd - Stjórn Heilsuverndarstöðvar. Af þessu má nokkuð marka að það er margt sem fjalla þarf um í einu bæjarfélagi. - HEI Kosið r hreppsnefnd eftir afstöðu manna til Blöndu- virkjunar LÝTINGSSTAÐAHREPPUR: Að þessu sinni verða sveitarstjómar- kosningar í Lýtingsstaðahreppi hlut- bundnar, en ekki hafa komið fram listar til hrepps- og sýslunefndar- kosninga í byggðinni siðan 1966. Á K-lista framfarasinna eru í 5 efstu sætunum til hreppsnefndar: Sigurður Sigurðsson á Brúnastöðum, Borgar Simonarson i Goðdölum, Sveinn Jóhannsson á Varmalæk, Kristján Kristjánsson Lækjarbakka 9 og Ólafur Björnsson á Krithóli. - Fyrstu 5 menn á L-lista óháðra kjósenda eru: Rósmundur G. Ingvarsson á Hóli, Elín Sigurðardótt- ir í Sölvanesi, Guðmundur Helgason i Árnesi, Friðrik Rúnar Friðriksson Lambeyri og Jón Guðmundsson frá Breið. - Til sýslunefndar eru i framboði: Ágúst Sigurðsson Mæli- felli af K-lista og Friðrik Ingólfs- son Laugarhvammi af L-lista. Skipun listanna er ekki flokkspól- itisk, heldur bundin afstöðu manna til Blönduvirkjunar, hins eldheita deilumáls. Eru á K-lista þeir, sem ýmist fylgja virkjuninni fast eftir eða sætta sig við hana skv. virkjunarleið nr. 1, en á L-lista þeir, sem barist hafa gegn þessari virkjun og andæfa enn og benda á virkjunarleið nr. 2 o.s.frv. sem kunnugt er af yfirlýsing- um landverndarmanna og blaðaskrif- um. - Á.S./Mælifelli HÆTT VIÐ UTHLUT- UN í SOGAMÝRINNI „Dýrri og vandaðri skipulagsvinnu kastad á glæ í sigurvímu kosninga’% segir fyrrverandi borgarstjórnarmeirihluti ■ „Við hljótum að harma að meiri- hluti sjálfstæðismanna skuli nú án nokkurra faglegra raka kasta á glæ dýrri og vandaðri skipulagsvinnu i sigurvímu kosninga og þar með svipta 120 Reykvíkinga möguleika á að byggja yfir sig á þessum ákjósanlega stað“, segir i bókun fulltrúa fyrrverandi meirihluta i borgarstjórn, þ.e. borgarfulltrúa Fram- sóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags, þegar núverandi meirihluti sjálfstæðismanna i borgarstjórn hafði samþykkt að falla frá fyrirhugaðri ibúðarbyggð i Sogamýri i Reykjavík. „Allur undirbúningur þessa skipulags sem nú er gerð tillaga um af Sjálfstæðis- flokknum að fellt verði úr gildi, hefur verið óvenju vandaður. Á öllum stigum málsins hefur skipulagstillagan verið kynnt opinberlega með sýningum og Lands- samband iðnaðar- manna 50 ára ■ „Það er nú almennt viðurkennt, ekki aðeins á Norðurlöndunum heldur einnig á öllum Vesturlöndum, að smá- og meðalstór fyrirtæki gegna þýðingar- miklu hlutverki í atvinnulifi einstakra landa,“ segir m.a. í samþykkt Norræna iðnráðsins, sem hélt stjórnarfund sinn hér á landi s.l. föstudag i tengslum við 50 ára afmælishátiðarhöld Landssam- bands iðnaðarmanna. En Norræna iðnráðið er jafnframt 70 ára nú í ár. Til að styrkja stöðu lítilla og n meðalstórra fyrirtækja hafa samtök þau er mynda Norræna iðnráðið mótað svokallaða „smáfyrirtækjastefnu“, en i henni felast hugmyndir um hvað fyrirtækin sjálf og stjórnvöld eigi að gera til að auka viðgang atvinnulífsins. Tekur þetta til mikilvægra sviða atvinnurekstursins, svo sem opinberra gjalda, lánafyrirgreiðslu, fræðslumála, endurmenntunar o.fl. Það er skoðun manna í Norræna iðnráðinu að í þrengingum þeim sem atvinnulifið, ekki sist iðnfyrirtækin, hafa gengið i gegn um undanfarin ár hafi það sýnt sig að lítil og meðalstór fyrirtæki hafi að öllu jöfnu verið betur i stakk búin til þess að bregðast við nýjum og óvæntum aðstæðum. En rekstur smáfyrirtækja lýsi sér oft á þann hátt, að miðað við það fjármagn sem i honum er bundið, skapi hann til muna fleiri störf heldur en stórar rekstrareiningar. Þótt stefnumörkun í atvinnumálum hafi viða tekið mið af uppbyggingu stórra fyrirtækja og margir hafi litið svo á að stórar rekstrareiningar tryggi hagkvæmni i rekstri, hafi reynsla siðasta áratugar sýnt og sannað, að þetta séu ekki algild visindi. Innan vébanda þeirra samtaka sem standa að Norræna iðnráðinu eru um 100.000 fyrirtæki og einstaklingar sem veita um einni milljón manna atvinnn. En þeir þyrftu þó að verða miklu fleiri, þvi atvinnuleysið er sagt númer eitt af þeim vandamálum sem við er að stríða á hinum Norðurlöndunum. umræðufundum auk þeirrar umfjöllunar sem málið hefur fengið í fjölmiðlum. ítarleg könnun á aðstæðum m.t.t. stofnkostnaðar svæðisins, félagslegrar þjónustu, verslunarþjónustu, þjónustu SVR o.s.frv. fór fram til að auðvelda ákvarðanatöku um leið og sýnt var fram á að sú íbúafjölgun sem af byggingu svæðisins leiddi myndi efla og styrkja þá þjónustu sem fyrir er í aðliggjandi hverfum. Almenningur hefur tekið tillögunni vel, ef undan eru skildir nokkrir íbúðaeigendur við Gnoðarvog. Bygging svæðisins hefði orðið mikilvæg- ur liður i þeirri viðleitni fyrri meirihluta að efla byggðina vestan Elliðaáa um leið og borgarmyndin hefði batnað", segir ennfremur í bókun fyrrverandi meiri- hluta borgarstjórnar. Á þessum sama fundi borgarstjórnar þegar ákveðið var að falla frá lóðaúthlut- un við Sogamýri, var einnig ákveðið að tillögu og með atkvæðum sjálfstæðis- manna að leggja niður Framkvæmdaráð borgarinnar, hætta við bryggjufram- kvæmdir út í Tjörnina, sem fyrrverandi meirihluti taldi fyrir löngu búið að ákveða að hætta við, og hætta við hugmyndir um ibúðarbyggð i Laugar- dalnum, sem fyrrverandi meirihluti sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um. Eins og kunnugt er þá gáfu sj álfstæðis- menn út loforðalista með niu loforðum sem efna átti ef flokkurinn næði á ný meirihluta í Reykjavík. „Þessi loforð voru það fyrsta og nær eina sem rak á mínar fjörur sem varðað getur stefnu- skrá þessa stóra og volduga flokks fyrir kosningar. Þegar maður litur á þessi niu stefnumið, þá kemst maður ekki hjá þvi að sjá að sum þeirra eru þess eðlis að ekki hefði verið rétt að gefa um þau sérstök loforð, þar sem þau eru á misskilningi byggð", sagði Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi, i umræð- unum i borgarstjórn. Sagði hann greinilegt að sum þeirra væru gefin í hita kosningabaráttunnar ög væru illa grund- uð, eins og ætti eftir að sýna sig. „Nú á greinilega að fara að efna hin smærri loforð á þessum loforðalista, en hin stærri bíða seinni tima. Hins vegar ber þau öll að sama brunni, sem er sá að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að breyta öllu til fyrra horfs, þegar hann missti meitihlutann fyrir fjórum árum, eins og þeir liti á að ekkert sem gerst hafi sl. kjörtimabil hafi komið að notum“, sagði Kristján Benediktsson. - Kás veiðihornið ■ Sigurjón Pétursson rennir fyrir lax opnunardaginn i fýrra ELLIÐAÁRNAR OPNAÁ MORGUN Davlð Oddsson rennir fyrir lax ■ Elliðaárnar opna með hefð- bundnum hætti á morgun og það er Davið Oddsson borgarstjóri sem rennir fyrir laxinn fyrstur. Nokkuð annað fyrirkomulag verður á röðun manna í fyrsta hollinu þar sem forseti borgarstjórnar verður ekki með að þessu sinni, eins og í fyrra, en þá stöðu skipar nú Albert Guðmunds- son. Fyrsta daginn i fyrra komu 11 laxar upp úr ánni og var Sigurjón Pétursson þáverandi forseti borgar- stjórnar manna fengsælastur, hann fékk 6 af þessum 11 löxum i fossinum og var af þeim sökum kallaður fossseti. Aðrir sem fengu lax fyrsta daginn í fyrra voru Egill Skúli Ingibergsson sem fékk tvo og Gunnlaugur Pétursson, Gunnar Ey- dal og Þórður Þorbjarnarson sem fengu einn hvor. Lítil veiði? Samkvæmt upplýsingum sem Veiðihornið aflaði sér hjá Friðrik Stefánssyni framkvæmdastjóra SVFR þá er ekki hægt að búast við svipaðri veiði nú á morgun og var fyrsta daginn í fyrra. Allt er seinna á ferðinni nú og i fyrradag voru aðeins 5-6 laxar komnir i gegnum teljarann i ánum. Það er þó örlítil von til að úr þessu rætist þar sem stórstreymt hefur verið og þvi líkur á að lax hafi gengið upp i ámar í einhverjum mæli. Þrjár stangir verða i ánum til að byrja með og kostar leyfið nú 500 kr. á stöngina fyrir hálfan dag sem ekki er hægt að telja mjög dýrt leyfi. 1074 laxar i fyrra Allt sumarið í fyrra komu 1074 laxar upp úr Elliðaánum og var meðalþyngd þeirra 5.5 pund. Þetta er ivið betri veiði en árið þar á undan er aðeins veiddust 938 laxar en mun verra ef mið er tekið af næstu sex árum og má sem dæmi nefna að veiðin 1975 nam 2071 laxi. -FRI - HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.