Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 4
Kristján Thorlacius að loknu BSRB þingi: „Þolinmæði opinberra starfsmanna á þrotum” ■ „Það voru tvímælalaust samnings- réttarmálin og kjaramálin sem voru í brennidepli á þessu þingi,“ sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB þegar blaðamaður Tímans hitti hann að máli i þann mund er BSRB þinginu var að ljúka í gær.“ Á þinginu hefur verið mikil eining um öll höfuðmálin og þá sérstaklega kjaramálin. Það sem mest var áberandi var óánægja með kjörin og það er greinilegt að þolinmæði opin- berra starfsmanna er á þrotum." - Má þá reikna með mikilli hörku i komandi samningaviðræðum? Stjórnarkjörid á BSRB þinginu: Jafnræði með kynjunum ■ Konur réttu mjög hlut sinn við kjörið í stjórn og varastjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sem fram fór á þingi bandalagsins í gær. í aðalstjórn- ina voru kjörnar fjórar konur og fjórir karlar, en í varastjórnina voru kjörnar fjórar konur og þrír karlar. Aðalstjórnin er þannig skipuð: Ágúst Geirsson, Ásta Sigurðardóttir (ný), Einar Ólafsson, Guðrún Árnadóttir (ný), Haukur Helgason, Sigurveig Sig- urðardóttir, Sjöfn Ingólfsdóttir (ný) og Örlygur Geirsson. • Varastjórn: Vilborg Einarsdóttir, Elsa Eyjólfsdóttir, Þorgeir Ingvason (nýr), Ögmundur Jónasson (nýr), Helgi Andrésson, Hildur Einarsdóttir og Ragna Ólafsdóttir (ný). - Sjó. „Mér sýmst menn gera sér fyllilega Ijóst að leiðrétting kostar átök. Þótt allir voni að ekki þurfi til verkfalla að koma, þá virðist mér fólk vera tilbúið i verkfall ef nauðsyn krefur," sagði Kristján. - Það var gerð ályktun um kjaramál? „Já stefna í komandi kjarasamningum var mörkuð á þinginu. Það var ákveðið að fara fram á átta þúsund króna lágmarkslaun og verulega bætt kjör fyrir alla opinbera starfsmenn. Það liggur Ijóst fyrir að laun opinberra starfsmanna eru mun lægri en greidd eru á hinum almenna vinnumarkaði. Það hefur einnig komið fram að 53% starfsmanna hins almenna vinnumark- aðar eru yfirborgaðir, en yfirborganir þekkjast ekki meðal opinberra starfs- manna. Við. ásamt láglaunahópum innan ASÍ, erum greinilega þær stéttir sem orðið hafa á eftir í launabaráttu undanfarinna ára og það verðum við að fá leiðrétt i sumar," sagði Kristján. - Nú hefur heyrst að einhver félög vilji kljúfa sig út úr BSRB. Kom eitthvað fram á þinginu sem bendir til þess? „Það er fjarstæða að BSRB sé að klofna. Það sést best á samstöðunni sem rikti á þessu þingi. En hins vegar er alltaf viss keppni milli einstakra félaga i stóru sambandi. Það hefur verið og verður sennilega alltaf. - Þið viljið láta endurskoða samnings- réttarmálin? „Já. Við viljum fá fullan samningsrétt, og þar með verkfallsrétt, um öll atriði kjarasamninga og þar á meðal röðun í launaflokka. Við ætlum líka að leggja til að kjaradeilunefnd verði lögð niður og að ákvörðunarvald um undanþágu í verkfalli verði algjörlega i höndum samtakanna sjálfra,", sagði Kristján að lokum. - Sjó. Listahátíd: „Adsókn allsæmileg” ■ „Aðsókn á Listahátíð i Reykjavík hefur verið allsæmileg", sagði Guðríður Þórhallsdóttir miðasölustjóri Listahátið- ar í viðtali við Tímann, „og hefur selst Leiðrétting ■ Leiðinleg mistök urðu í myndatexta með grein um 75 ára afmæli Sláturfélags Suðurlands í blaðinu í gær. Var þar mynd af Hirti Eldjárn Þórarinssyni, en hann sagður heita Þórarinn Eldjárn. Er hann beðinn afsökunar á þessum mistökum. þónokkuð af miðum á mörg atriði hátíðarinnar11. Sem dæmi úm einstakar sýningar, sagði Guðriður að alltaf væri uppselt í Norræna húsið og uppselt að kalla á „Skilnað" Kjartans Ragnarssonar, en minna hlutfall miða hefði selst á tónleika i Laugardalshöllinni, enda tekur hún miklu fleiri gesti en hin húsin. Frumsýningin á Silkitrommunni gekk mjög vel, og einnig er lífleg aðsókn á myndlistarsýningarnar sem eru í gangi, að sögn Örnólfs Árnasonar fram- kvæmdastjóra Listahátíðar. - SVJ Átta lúðrasveitir á Landsmóti lúðrasveita í Hafnarfirði ■ Laugardaginn 12. júni verður 10. Forsætisráð- herra erlendis ■ Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra fór i gær til útlanda til að sitja fund æðstu manna rikja Atlantshafsbanda- lagsins. Fundurinn stendur í Bonn dagana 9. og 10. júní. í för með forsætisráðherra eru Gunnar G. Schram prófessor og Jón Ormur Halldórsson aðstoðarmaður for- sætisráðherra. - SVJ landsmót Sambands íslenskra lúðra- sveita haldið í Hafnarfirði. Sjö lúðrasveitir víða af að landinui taka þátt í mótinu aúk lúðrasveitar Hafnarfjarðar, sem hefur annast undir- búning mótsins. Dagskráin hefst með því að kl. 13:30 verður safnast saman við gatnamót Hringbrautar og Hvammabrautar og við Reykjavikurveg 50. Ganga fjórar lúðra- sveitir frá hvorum stað að Lækjarskóla. Þar munu þær leika nokkur lög hver og enda á þvi að leika allar sameiginlega. Slegið hefur verið merki mótsins úr málmi og verður það selt á mótssvæðinu. H U Wþœi&jíl*. fp 1 »■; l : wLt 'V 1 || Pr |1| ■ Veislugestir rómuðu mjög léttreykta islenska lambið sem var aðalrétturinn i kveðjuhófi Páls Hallgrimssonar, að Húsmæðraskóla Suðurlands á Laugarvatni, sl. laugardag. rimamyndir gbg - Seifossi Sýslumadur kvaddur eftir 45 ára starf ■ Sýslunefnd Árnessýslu hélt fráfar- andi sýslumanni sinum, Páli Hallgrims- syni, veglegt kveðjuhóf siðastliðinn laugardag, en Páll hefur gegnt embætti sýslumanns Árnessýslu undanfarin 45 ár, og lætur formlega af störfum 1. júli næstkomandi. Hófið var haldið í Húsmæðraskóla Suðurlands og voru allir boðnir til hófsins sem setið hafa með Páli á sýslufundum undanfarin 45 ár. Tíminn hafði samband við Gunnar Sigurðsson, bónda í Seljatungu, einn sýslunefndar- manna og spurði hann fregna af hófinu. „Þarna voru samankomnir allir þeir sem setið hafa sýslufundi með Páli Hallgrímssyni, bæði sýslunefndarmenn, varamenn og ritarar sýslunefndar siðast- liðin 45 ár. Það segir sig sjálft að ýmsir eru horfnir af sjónarsviðinu núna, en reynt var að ná til sem allra flestra, og niðurstaðan varð sú að 112 manns voru boðnir og liðlega 90 manns komu til hófsins.“ - Var þetta vel heppnað hóf? „Þetta var ákaflega vel heppnað hóf. Það fór þannig fram að nefndarmaður Gaulverjabæjarhepps, Gunnar Sigurðs- son, bauð gesti velkomna og afhenti sýslumanni málverk að gjöf frá héraðs- búum. Það er Þingvallamálverk sem Eiríkur Smith listmálari gerði fyrir sýslunefndina. Þá flutti Páll Lýðsson, nefndarmaður Sandvlkurhrepps sýslu- mannsfrúnni, frú Svövu Steingrímsdótt- ur ávarp og auk þess var almennur söngur. Að þessari athöfn lokinni var sameiginlegt borðhald og yfir borðum voru sýslumanninum fluttar nokkrar vísur, en önnur ræðuhöld voru ekki, enda hafði Páli verið lofað að svo yrði ekki, og var staðið við það. Að borðhaldi loknu spjölluðu gestir saman fram eftir kvöldi, og var hófinu lokið um kl. 23 á laugardagskvöld." í máli Gunnars kom einnig fram að nýskipaður sýslumaður Árnessýslu And- rés Valdimarsson og kona hans Katrín Helga Karlsdóttir voru einnig í þessu hófi, en Andrés tekur við embætti sýslumanns 1. júlí næstkomandi. Voru þau hjónin sérstaklega boðin velkomin af veislustjóra. - AB ■ Þrir góðir saman: Steinþór Gestsson frá Hæli, alþingismaður, Páll Hallgríms- son, sýslumaður og Siguröur Óli Ólafsson fyrrverandi alþingismaður. ■ Páll Hallgrimsson, sýslumaður Ámessýslu óskar eftirmanni sinum Andrési Valdimarssyni velfamaðar i starfi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.