Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 8

Tíminn - 09.06.1982, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1982 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurósson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiöslustjóri: Siguröur Ðrynjólfsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Rltstjórnarfulltriii: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaöur Helgar-Tlmans: lllugi Jökulsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefánsdóttlr, Egill Helgason, Frlörik Indriöason, Heiöur Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrlmsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Örn Pétursson (Iþróttir), Sigurjón Valdlmarsson, Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnsson. Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefénsdóttlr. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Marla Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrlfstofur og auglýslngar: Siöumúla 15, Reykjavlk. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86392. Verð I lausasölu 7.00, en 9.00 um helgar. Áskrlft á mánuði: kr. 110.00. — Setning: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Dökkt ástand í gjaldeyrismálum ■ Viðtalið við Steingrím Hermannsson sjávarútvegs- ráðherra,sem birtist hér í blaðinu í gær, hefur vakið mikla athygli. í viðtalinu dregur Steingrímur upp glögglega þá dökku mynd, sem nú blasir við í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Hann gerir hvorki að fegra hana eða dekkja. Þessi raunverulega mynd af efnahagsástandinu er vissulega allt annað en álitleg. Það er ljóst af henni, að nú er ekki aðstaða til að auka eyðsluna, heldur verður að draga úr henni á mörgum sviðum. Allar líkur benda nú til, að þjóðartekjur dragist saman um 2-3 af hundraði á þessu ári. Þetta hlýtur að koma jafnt við einstaklinga og þjóðarbúið, en meginmáli skiptir að það gerist réttlátlega. Alveg sérstaklega mun þessi samdráttur hafa áhrif á gjaldeyrismálin. Eins og fram kemur hjá Steingrími Hermannssyni í viðtalinu, mun þetta að líkindum rýra gjaldeyristekjurnar um 15 af hundraði. Það gerist svo á sama tíma og þessi samdráttur blasir við, að eftirspurn eftir erlendum gjaldeyri magnast stórlega. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hefur gjaldeyrisstaða bankanna versnað um 679 milljónir króna. Ekkert virðist þó draga úr eftirspurninni. Ef þannig heldur áfram, blasir við eins konar gjaldþrot, sem hafa mun ófyrirsjáanleg vandræði og höft í för með sér. Viðskiptaráðherra hefur þegar gert ráðstafanir til að draga úr gjaldeyrisútstreyminu, t.d. hert reglur langtímanefndar. Neitað hefur verið mörgum um- sóknum um vinnuvélar og fleira af því tagi, sem nóg er til af í landinu. Ein afleiðing þessa mikla gjaldeyrisútstreymis er sú, að fé hefur verið tekið úr bönkum í vaxandi mæli, en lítið hefur verið lagt inn í þá. Bankarnir eru komnir í um 500 milljóna króna skuld við Seðlabankann. Þeir hafa orðið að herða mjög allar útlánareglur sínar. Þetta hefur ekki hvað sízt bitnað á atvinnuvegunum. Mörg atvinnufyrirtæki þola þetta ekki, enda lítil sveigja, þegar afli dregst saman svo sem raun ber vitni. Steingrímur Hermannsson segir orðrétt um horfurn- ar í peninga- og gjaldeyrismálum: „Ég tel að þetta ástand í peninga-og gjaldeyrismál- um sé e.t.v. það alvarlegasta, sem að þjóðinni snýr í dag. Með svona mikilli ásókn í gjaldeyri, langt umfram það sem aflast, erum við að éta upp forðann. Enginn vafi er á að á þessu þarf að taka og það án tafar.” Þetta er vissulega staðreynd. Við þær miklu erlendu skuldir, sem stofnað hefur verið til vegna ýmissa nauðsynlegra og arðgefandi framkvæmda, má ekki bæta stórfelldum eyðsluskuld- um. Það væri hreinn voði, sem ætti eftir að reynast þjóðinni þungbær í framtíðinni. Þ.Þ. á vettvangi dagsins Gleymd „auka búgrein”? eftir Bjarna Guðmundsson, Hvanneyri ■ Það telst ekki mjög frumlegt þessa mánuðina að leggja orð í belg um landbúnaðarmál. Höfundur vill þó láta undan löngun sinni að gera það, þótt ekki væri af öðru en því að kominn er góður ilmur úr jörðu, og framundan sá timi, sem eitt sinn var nefndur bjargræðistimi. En nú er sú sérkennilega staða komin upp, að liklega skiptir ekki megin máli, hversu ára muni; hvort það verður grasár eða ekki, eða hvort nýting heyja verður betri eða verri. Við framleiðum nefnilega nóg af helstu búvörum, og i sumum greinum er framleiðslan miklu meiri en nóg. Framundan er óhjákvæmilegur sam- dráttur, t.d. i sauðfjárrækt, eigi dilka- kjötið ekki að fylla öll hús, eins og óskagrautur i gömlu ævintýri. Eðlilega ræða menn mjög hvernig við skuli brugðist, því allir sjá, að röskun hefðbundinnar búvöruframleiðslu getur á viðkvæmum svæðum jafngilt röskun byggðar. Lausnir eru fáar í augsýn, þótt á margt hafi verið bent. Annmarkar aukabúgreinanna Aukabúgreinarnar svonefndu eru oft dregnar inn i umræðu um lausn á vanda landbúnaðarins. Á það hefur verið bent, t.d. í grein í aprilhefti búnaðarblaðsins Freys eftir Magnús B. Jónsson, skóla- stjóra á Hvanneyri, að nýjar búgreinar eru ekki eins nálæg lausn og oft er látið vaka i veðri. Það tekur tíma að vinna þeim fastan sess. Hitt er lika dálitið áhyggjuefni, að aukabúgreinarnar munu ekki verða til þess að styrkja hinn almenna bónda svo neinu nemi. Þær verða þeim að mestum notum, sem styrkir stóðu fyrir og sem núverandi kreppuástand hefur litil áhrif á. Um þetta mætti skrafa góða stund. Það er álit skrifarans, að þótt sjálfsagt sé að leita allra leiða til þess að styrkja búsetu til sveita, felist hvað mestir möguleikarnir til viðnáms innan land- búnaðarins enn sem fyrr í hinum hefðbundna búskap við ær og kýr. Til dæmis má benda á, að í þessum búgreinum eru framleiðslutæki fyrir hendi, auk starfsþekkingar og reynslu. Kostnað og fyrirhöfn vegna nýbúgreina verður þvi að vega á móti þeim kostnaði, sem fylgja myndi úrbótum i hinum hefðbundnu greinum landbúnaðarins. Þröngur markaöur Nú er það ljóst, að um teljandi útflutning mjólkurafurða og dilkakjöts verður ekki að ræða um fyrirsjáanlcga framtíð. Byggja verður á innlenda markaðinum einum, sem þýðir það að seljanlegt magn þessara afurða er bundin stærð. Heildartekjum bænda í þessum greinum eru þannig settar ákveðnar skorður. Auki einn fram- leiðslu sina, verður það því á kostnað nágrannans. Reglum um framleiðslu- stjórn er ætlað að koma i veg fyrir bræðravíg af þessu tagi. Möguleikum bænda til þess að auka tekjur sinar felast þvi nær eingöngu i hagræðing eigin búreksturs. Er þá komið að tilefni þess, að skrifarinn stakk niður penna. Síðustu áratugina hefur verið samfelld sókn í málefnum landbúnaðarins. Bænd- ur hafa glaðst yfir hverri kú, sem bættist í fjósið, hverri tvílembu, sem stækkaði hjörð þá, er rann á fjall, og horft með velþóknun á árlegan túnauka. Það er þvi ekki laust við, að nú verði vart nokkurrar deyfu í sóknarhug bænda: mörgum þykir, - að ýmsu leyti af eðlilegum ástæðum - sem nú sé bara að Nóbelsverðlaun í læknisf ræði eftir Einar Frey ■ Ahugi visindamanna fyrir mannsheilanum og starfsemi hans hefur aukizt mikið seinustu árin. Margar nýjar uppgötvanir hafa verið geröar, — uppgötvanir sem geta haft bæði læknisfræði- legt gildi og almennt gildi. Upp- götvanir þessara hafa einnig sett imyndunarafliö á fulla ferð bæði til gagns og gamans. Það er þvi ekkert þvi til fyrirstöðu að spauga dálitiö með þessa hluti. Auðvitað ber að taka allar nýj- ungar með varúð og ekki trúa á þær i blindni. Umgangast skal nýjungar eins og nýja frétt, með rannsakandi hugarfari. Lita skal hlutlaust á nýjungar og án oftrúar eða með heilbrigðri tortryggni. Ef þær reynast vel þá er það gott, en ef þær reynast rangar eða hættulegar, ber vissulega að forð- ast þær eða vara við þeim. En hvernig er heilinn notaður aö áliti visindamanna? Menn ljúga af hræðslu: menn ljúga af öfund og afbrýðisemi. Menn reyna að viöhalda lyginni ef þeir álita sig hafa af þvi persónulegan hagnaö. Að trúa öllu sem maður heyrir en hefur ekki reynslu fyrir sjálf- ur, er gömul og ný heimska sem margir lifa við allt sitt lif og fram á grafarbakka. Margir hafa lif- aðalltsittlif við allskyns lygar og blekkingar. Slikt veldur kyrr- stöðu og oft afturförum, svo öm- urlegt sem það getur verið fyrir þá sem eftir lifa. En til er sálfræðileg aðferð til aö sporna upp lygina. Og ný sann- indi þýða vanalega nýjar fram- farir. Visindamenn hafa einnig sagt sem svo, að mannsheilinn sé lif- færi, ætlað manninum til að yfir- lifa ekkert siður en t.d. vigtennur ljónsins. Heilinn tekur þátt i þeirri lifsbaráttu, að éta eöa verða étinn. Enviö berjumstekki aðeinstil að yfirlifa, — fólk sættir sig ekki við hverskonar yfirlifnað sem, veraskal. Ekki myndu t.d. ibúar i löndum Norður-Atlantshafsins þola það að stórfyrirtæki heims- ins geri Norður-Atlantshafið að einu allsherjar klóaki eða sorp- haug. Kröfur þarf að gera til lifs- skilyrða. E n hvaö sem þessu liður þá er það nú staðreynd, að mannsheil- inn er yfirleitt mjög illa notaður þrátt fyrir hið mikla notagilid hans til velferðar og sköpunar. F'ólk notar heilann sem sagt allt of litið. Nú er ekki hægt að meta nota- gildi heilans á sama hátt og þegar vanaleg vöðvaorka er metin, — þessvegna er hætt þvi, að alls- kyns misskilningur læðist inn i myndina um starfsemi heilans. Auk þess er hin almenna fram- setning visindamannanna og orðalag ekki sérlega vel unnið. Þessvegna verður hver og einn að skila þessar nýjungar á sinn eig- inn hátt. Sagt er,að tilséu „vinstri-heila- fólk” og „hægriheilafólk” Að nota mikið „vinstri-heilann” er að sjá fyrst og fremst það sérstaka eða einstaka. Að nota „hægri-heil- ann” er að gera sér grein fyrir heildarmyndinni. Allar slikar hugmyndir um „sérstakt” eða „einstakt” og um „heildarmynd” eru kunnar frá hinni almennu sálfræði. Kapitalisti hugsar til dæmis ab- strakt, hann tilheyrir þvi hinum svokölluðu „vinstri-heilamönn- um”. Hann sér ekki heildina eða heildarmyndina, — heldur það einstaka eða sérstaka. Hann ein- blinir á peningagróðann. En hversumikið af heila sinum notar einn venjulegur kapitalisti...? En vandinn fer að aukast þegar einnig Einstein er sagður vera vinstri-heilamaður. En hversu mikið hefur hann notað af heila sinum? Það er ekki hægt að fullyrða það, að vegna þess að Einstein var „vinstri-heilamaður” að þá hljóti allir venjulegir kapitalistar að vera snillingar vegna þess að þeir eru ,vinstri-heilamenn” eins og Einstein. Hér kemur sem sagt vanda- málið um „stærð” heilans inn i myndina. Þetta er alls ekki létt verkefni. Málið verður enn flóknara þeg- ar þvi er haldið fram að t.d. Beet- hoven hafi verið „hægri-heila- maður”. Hér er semsagt um að ræða einskonar „heimspeki- kerfi”. En hvað skal segja um „stærð” heilans? Það mætti kannski at- huga þab lauslega. Nákvæmar skýringar fást ekki. Þegar kraftlyftingamaður lyft- ir þungum hlut sem vegur t.d. 600 kiló, þá notar hann ef til vill 100% af sinum vöbvakraft. En þegar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.