Tíminn - 09.06.1982, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1982
á hestaslódum
flokksstarf
Lögin um aldur
knapa standa
•— og Sigurbjörn hættir
vid að hætta
■ Tillaga Sigurðar Haraldssonar
um að fresta gildistöku reglanna um
lágmarksaldur knapa var felld i
stjórn L.H. á föstudaginn var. Eins
og rakið hefur verið hér í blaðinu
áður hafa verið uppi deilur um
réttmæti aldursmarkanna og gekk
svo langt að eigendur nokkurra
stökkhesta sem hafa verið sigursælir
i kappreiðum, drógu þá út úr keppni,
bæði á Hvitasunnukappreiðum Fáks
og á kappreiðum Mána i Keflavík nú
um helgina.
Stefán Pálsson formaður L.H.
sagði Timanum að á stjórnarfundi á
föstudaginn var hefði það verið
skilningur flestra að málið snerist um
hvort stjórnin hefði heimild til að
brcyta útaf fyrirmælum, sem ársþing
hefur gefið henni. Skilningur flestra
hefði verið sá að slik heimild væri
ekki fyrir hendi og því féllu atkvæði
þannig að einn greiddi tillögu
Sigurðar um frestun atkvæði sitt,
annar sat hjá cn hinir greiddu
atkvæði á móti.
Timinn hafði samband við Sigur-
björn Bárðarson, og spurði hann
hvort hestar þeir sem hann hefur til
umráða muni ekki sjást á kappreið-
um í sumar. Sigurbjörn hefur barist
manna harðast gegn aldurstakmörk-
unum og sumir töldu sig vita að hann
mundi ekki láta hesta sina hlaupa á
völlunum i sumar, nema hann fengi
undanþágu.
„Við verðum að taka þessu og við
erum búnir að fá knapa, sem við
erum að þjálfa. Það fer eftir þvi
hvenær hann er tilbúinn, hvenær við
tökum þátt i keppninni, ef til vill
verður það hjá Hcrði um næsta
helgi, kannski á Geysi um aðra helgi
og i siðasta lagi á landsmótinu",
sagði Sigurbjörn.
-SV
■ Frá landsmótinu ■ Skúgarhólum 1978, efstu gæðingamir.
Þekktirgæðingar á landsmóti
■ Úrtökukeppni gæðinga á nú að
vera lokið hjá öllum félögum og eiga
þau að vera búin að tilkynna hvaða
gæðingar keppa fyrir þeirra hönd á
landsmótinu. Langflestir gæðingar
koma til leiks frá Fáki i Reykjavík,
ellcfu talsins, en frá mörgum félög-
um koma aðeins einn í hvorum
flokki.
Meðal þekktra hesta úr Reykja-
vik, sem til keppninnar koma má
nefna Glæsi, sem sigraði á fjórðungs-
mótinu á Hellu i fyrra, Ljúf gamla,
sem nú er orðinn 24. vetra og hefur
marga hildi háð á völlunum um
æfma, Fannar þann gamalþekkta
vekring og fyrrum methafa í skeiði
og að sjálfsögðu sigurvegarann á
Fáksmótinu i ár, Fjölni.
Til gamans má geta þess að
Stefán Pálsson formaður LH. keppti
á hesti sinum, Kveik, í úrtökunni hjá
Gusti í Kópavogi, og varð efstur. Þar
með er hann orðinn keppandi á
landsmótinu.
SV
Jesús Kristur eða Sveinn
á Saudárkróki
Töluverð ólga er ' í ýmsum
fullorðnum, sem bera unglinga-
keppnina fyrir brjósti. Ástæðan er
sú að landsmótsnefnd hefur ákveðið
að keppendur í báðum unglinga-
flokkuin samanlagt skuli vera jafn-
margir og keppendur í öðrum flokki
gæðinga. Gagnrýnendum þykir hlut-
ur unglinganna þarna fyrir borð
borinn.
„Ég leyfi mér að halda aðJesúm
Kristur hafi meira vit á hvernig eigi
að umgangast börn, heldur en
landsmótsnefndin, undir forystu
Sveins á Sauðárkróki" sagði Guð-
björg Þorvaldsdóttir í Keflavík, en
hún hefur haft sig einna mest í
frammi i baráttunni fyrir jafnrétti
unglinganna við þ.á eldri og sendi
landsmótsnefndinni svohljóðandi
skeyti: „Leyfið börnunum að koma
til min og bannið þeim það ekki, því
slíkra er Guðsríki.“
Guðbjörg sagði í viðtali við
Timann að sér þættu þau rök að ekki
væri pláss fyrir fullt lið unglinga i
dagskránni, alls ekki fullnægjandi og
taldi að staðurinn væri ekki lands-
mótshæfur ■ ef ekki væri hægt að hafa
þar alla keppni, sem á landsmóti þarf
að vera, og verið hefur áundanförn-
um mótum. Hún sagðist ekki vera á
móti þeirri tilraun til Evrópumóts,
sem á að gera landsmótinu, en verði
hún á kostnað unglinganna verði hún
að vikja.
Tíminn leitaði til skrifstofu lands-
mótsins, þar sem Egill Bjarnason
varð fyrir svörum. Hann sagði að
þetta mál hefði verið ákveðið fyrir
löngu, en i fréttaflutningi hefði
brugðið fyrir misskilningi, sem
hefði skapað viðbrögð frá litlum hópi
manna. En Egiil upplýsti síðan að
málið verði rætt á fundi fram-
kvæmdanefndar i dag og vildi ekki
segja neitt um hver niðurstaða þar
yrði. SV
Sigurjón
Valdimarsson \
blaðamaður
skrifar iT
ORÐSENDING
frá Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið verður i happdrættinu 16. þ.m. ogeruþeir, sem fengið hafa
heimsenda miða vinsamlega beðnir að gera skil næstu daga. Drætti verður
ekki frestað.
Greiðslum má framvisa samkvæmt meðf. giróseðli i næsta pósthúsi eða
peningastofnun. Einnig má senda greiðslu til Happdrættisskrifstofunnar,
Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Þar eru einnig lausamiðar til sölu.
Vorferð Félags Framsóknarkvenna í Reykjavík
Hin árlega vorferð Félags Framsóknarkvenna í Reykjavík verður farin
laugardaginn 12. júni n.k.
Lagt verður af stað frá Rauðarárstíg 18 kl. 14.00 og ekið að Klaustrinu
í Hafnarfirði og það skoðað.
Á heimleiðinni verður stansað og drukkið kaffi.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til flokksskrifstofunnar Rauðarárstíg 18,
simi: 24480.
Stjórnin.
Hverfisteinar
Rafdrifnir hverfisteinar 220 volt.
Steinninn snýst 120 snúninga á min. i báð-
ar áttir.
Verð kr. 1346.- m. söluskatti.
Sendum hvert á land sem er.
IVPTPRA-OG
VCIAMÓnUSTAn
Smiðjuvegi 54, Kópavogi Sími 7-7740
^orvaldur
Guöjónsson
Söólasmíðameistari Hrtavertuvegur8 Rvík Sími 84058
HNAKKAR
Kvikmyndir
Eldríbekkingar
(Seniors)
THAT
Spcnnandi ný amcrlsk mynd um
unglinga scm lenda í alls konar klandri
við lögreglu og neningja.
Aðalhlutvcrk: Pulríck Wayne, Prisdlla
Barnes, Anthony James
Bönnuð innan 12 ára
Sýnd U. 5, 7, 9, 11
Allt í lagi vinur
(Halleluja Amigo)
Scrstaklcga skemmtilcg og spcnnandi
vcstcrn grinmynd mcð Trinity bolanum
Bud Spencer scm cr i cssinu sinu i
þcssari mynd.
Aðalhlutverk: Bud Spencer, Jack
Palance
Sýnd kl. 5, 7, 9
Fram í sviðsljósið
(Being There)
(4. mánflður)
Grinmynd i algjörum sérflokki.
Myndin er talin vera sú albesta
sem Peter Sellers lék i, enda fékk
hún tvenn óskarsverðlaun og var
útnefnd fyrir 6 Golden Globe
Awards. Sellers fer á kostum.
Aöalhlutv.: Peter Sellers, Shirley
MacLane, Melvin Douglas. Jack
Warden.
tslenskur texti.
Leikstjóri: Hal Ashby.
Sýnd kl. í)
IThe Exterminator |
[ (GEREYOANDINN)
The Exterminator cr framleidd I
af Mark Buntzman og skrifuft og I
stjórnaftaf James Cilckenhaus og I
fjallar unt ofbeldi i undirheimum I
New York. Byrjunaratriftift er I
eitthvaö þaft tilkomumesta staft-l
gengilsatrifti sem gert hefur ver-1
ift.
Myndin er tekin I Dolby sterio og I
sýnd i 4 rása Star-scope
Aftalhlutverk:
Christopher George
Samantha Eggar
Hobert Ginty
tsl. texti.
Sýnd ki. 11
Bönnuð innan 16 ára
Texas Detour
ELDRIBEKKINGAR
Stúdcntarnir vilja ckki útskrifast úr
skólanum vilja ckki fara út í hringiðu
lifsins og ncnna ckki að vinna hcldur
stofna félagsskap scm ncfnist Kyn-
fræðsla og hin frjákskólastúlka.
Aðalhlutverk: Priscilla Barncs, JefTrcy
Byron, Gary ImhofT
Sýnd kl. 5, 7, 9, 11
Moröhelgi
(Death Weekend)
baö er ekkert grin aö lenda i klón-
um á þeim Don Stroud og félög-
um, en þaö fá þau Brenda Vacc-
aro og Chuck Shamata aö finna |
íyrir. Spennumynd i sérflokki.
Aftalhlutverk: Don Stroud,
Brenda Vaccaro, Chuck Sha- |
mala. Hichard Ayres
lsl. texti.
Bönnuft innan 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 11.20