Fréttablaðið - 18.12.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
18. desember 2008 — 346. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
SKOÐUN Þorvaldur Gylfason,
prófessor í hagfræði við Háskóla
Íslands, ritar sína 300. grein í
Fréttablaðið í dag.
Þorvaldur hefur ritað vikulega
grein í Fréttablaðið í fimm og hálft
ár. Fyrsta grein
hans birtist 20.
febrúar 2003 og
bar yfirskriftina
„Tengslin við
fortíðina“. Í henni
fjallaði hann um
eigendaskipti
Landsbankans og
gagnrýndi að
framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðis-
flokksins sæti áfram í bankaráðinu.
Í dag skrifar Þorvaldur um rætur
bankakreppunnar. „Höfuðskýringin
liggur að minni hyggju í rótgrónu
virðingarleysi stjórnmálastéttarinn-
ar gagnvart hagkvæmum og
réttlátum búskaparháttum.“
- bs/ Sjá síðu 24
Þorvaldur Gylfason prófessor:
Ritar 300. grein-
ina í Fréttablaðið
ÞORVALDUR
GYLFASON
veljum íslensktFIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2008EVA SÓLVEIG ÞRASTARDÓTTIR
Japönsk götutíska kem-
ur með ferskan blæ
• tíska • jólin • koma • heimili
FYLGIR Í DAG
VELJUM ÍSLENSKT
Kynjaskepnur, himin-
tungl og gamlir munir
Sérblaðið Veljum íslenskt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Markmiðin
mikilvæg
Erlendur Sveins-
son kvikmynda-
gerðarmaður er
sextugur í dag.
TÍMAMÓT 30
dagar til jóla6
Opið til 22Bráðum
koma
dýrðleg jól
www.postur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
8
-2
2
1
8
Á morgun er síðasti
öruggi skiladagur
fyrir jólapakka
og jólakort
innanlands
LÖGREGLUMÁL Afar óheppilegt er að
starfsmönnum efnahagsbrota-
deildar Ríkislögreglustjóra hafi
fækkað um tæpan þriðjung frá
árinu 2004, segir Bogi Nilsson,
fyrrverandi ríkissaksóknari.
Einum af fimm lögfræðingum
deildarinnar hefur verið sagt upp.
Starfsmenn efnahagsbrotadeild-
ar verða þrettán talsins eftir upp-
sögnina, auk eins starfsmanns í
fæðingarorlofi. Þeir voru mest
nítján árið 2004. Síðan hefur þeim
fækkað um einn til tvo á ári.
„Ég held að þetta geti ekki talist
heppileg þróun. Það hefur verið
talað um það í langan tíma að það
þurfi frekar að efla þessa starf-
semi,“ segir Bogi.
Deildin hefur sætt gagnrýni
fyrir að rannsókn og saksókn taki
langan tíma. Bogi segir ljóst að
fækkun starfsfólks verði síst til að
bæta þar úr. Réttara hefði verið að
ráða fleira fólk þar til starfa.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra vildi ekki veita viðtal vegna
málsins, en svaraði hluta af spurn-
ingum Fréttablaðsins í tölvupósti.
Hann sagðist ekki þekkja mála-
vöxtu og ákvörðun um uppsögn
lögfræðings nú sé ríkislögreglu-
stjóra. Björn benti á að stofnað hafi
verið embætti sérstaks saksóknara
sem fjalla á um möguleg brot í
aðdraganda bankahrunsins.
„Þetta sýnir ranga forgangs-
röðun, enda hefur efnahagsbrotum
fjölgað talsvert undanfarið,“ segir
Atli Gíslason, hæstaréttarlögmað-
ur og þingmaður Vinstri grænna.
Hann segir þetta sýna ranga for-
gangsröðun. Áherslan sé á sérsveit
og greiningardeild en efnahags-
brotadeild og ýmis lögreglustjóra-
embætti séu í fjársvelti.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri vildi ekki veita viðtal
vegna málsins. Engin svör fengust
frá embættinu um frekari upp-
sagnir. - bj / sjá síðu 6
Fækkað um þriðjung
í efnahagsbrotadeild
Ríkislögreglustjóri hefur fækkað lögfræðingum hjá efnahagsbrotadeild um
einn. Starfsmenn deildarinnar eru þriðjungi færri en 2004. Óheppileg þróun
segir fyrrverandi ríkissaksóknari. Röng forgangsröðun segir þingmaður VG.
Synirnir erfðu
tónlistargenið
Herbert Guðmundsson
spilar með son-
um sínum og
segir þá vera
tónlistar séní.
FÓLK 48
LEIKSÝNING „Það er árviss viðburð-
ur hjá okkur að 8. bekkur skólans
taki að sér að setja upp helgileik-
inn,“ segir Dagný Annasdóttir,
skólastjóri Öskjuhlíðarskóla.
Hópurinn hóf æfingar strax í
nóvember og segir Dagný mikið
lagt upp úr því að hver nemandi
fái hlutverk við sitt hæfi. Hún
segir mikla vinnu hvíla á
starfsfólkinu ekki síður en
nemendunum en verkefnið reyni
bæði á samvinnu og þol. Upp-
skera erfiðisins sé því alltaf
ánægjuleg.
„Þetta er ekki eitthvað sem við
hristum fram úr erminni og við
sjáum í þessu verki hvað
maðurinn getur ef hann ætlar sér
það. Það er dásamlegt að sjá
hvernig þeim fer fram með
hverjum deginum.“
Tvær sýningar verða á
helgileiknum í dag og á morgun.
- rat, kg/sjá Allt
Helgileikur Öskjuhlíðarskóla:
Frumsýning á
helgi leik í dag
EFNAHAGSMÁL Ætla má að um hundr-
að milljarðar króna séu á viðskipta-
reikningum ríkisins í Seðlabankan-
um.
Samkvæmt yfirliti frá síðustu
mánaðamótum átti ríkið um 163
milljarða. Mismunurinn hefur farið
í að greiða fyrir 100 milljarða króna
skuldabréfaflokk sem féll í gjald-
daga um miðjan mánuðinn. Ríkið
gaf út skuldabréf nú í desember, en
útgáfan dugði hvergi nærri til að
mæta gjalddaganum. Mismunurinn
hefur farið út af reikningi ríkisins í
Seðlabanka.
Helmingur bréfanna sem féllu í
gjalddaga í mánuðinum voru verð-
bréfalán til svonefndra aðalmiðlara.
Í þeim hópi voru gömlu bankarnir
þrír. Óvíst er hversu langt trygging-
ar bankanna dugi upp í skuldabréf-
in. Hluti þeirra var í óvörðum banka-
bréfum, segir Björgvin Sighvatsson
hjá Seðlabankanum.
Óvíst er að allt falli á ríkið þegar
upp er staðið. Fjármálaráðuneytið
hefur hins vegar ekki ákveðið hvað
gert verður við veðin. Ríkisvíxlar
verða boðnir út á morgun.
Ríkisskuldabréf fyrir um 84 millj-
arða króna falla í gjalddaga um mitt
næsta ár og yfir 50 milljarðar
snemma árið eftir. - ikh / Sjá síðu 22
Um 100 milljarðar króna eru eftir á viðskiptareikningi ríkisins í Seðlabankanum:
Ríkið hefur greitt 60 milljarða
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Þennan kjól fékk ég frá Japan en
þetta er japönsk götutíska frá
merkinu VM. Kjóllinn er eins konar
blanda af viktoríönskum stíl og
poppi,“ segir Eva Sólveig Þrastar-
dóttir, hönnuður og verslunareig-
andi.
Að sögn Evu hefur henni alltaf
þótt japönsk götutíska skemmti-
leg. „Þetta er ferskur blær í tísk-
unni en mér hefur alltaf fundist
sami blærinn vera í tísku á ÍslandiÞað kemur einhv i
anum og götutísku en þessi er með
þeim sætari. Í búðinni minni Krakk
verður meira af fatnaði sem teng-
ist japanskri götutísku eftir jól en
okkur langar að brjóta aðeins upp
þær tískulínur sem hafa verið hér
á landi.“
Auk þess að vera mikil áhuga-
manneskja um tísku þá hannar Eva
eigin fatalínu. „Mín föt verða til
sölu í Krakk eftir jól undiA li
inlega korselett við flest allt sem
ég klæðist og þá úr ýmsum efnum
og litum. Þau gera svo fallegar
línur og auðveldlega má breyta
hversdagslegum fötum með
þeim.“
Auk þess að hanna föt er Eva
yfirteiknari hjá Latabæ og hefur
meðal annars hannað BT músiog Offic O
Sér listina allt í kringÞegar Evu Sólveigu Þrastardóttur ber fyrir augu er deginum ljósara að hér er athyglisverð og skapandi
stúlka á ferð. Eva hannar fatnað, semur teiknimyndasögur og býr til teiknimyndir, skúlptúra og bangsa.
Eva segir þennan japanska kjól vera einn af þeim sætari sem hún á og valdi að sýna hann þar sem jólin eru á næsta leyti. Hún á líka svip-aðan kjól með lífstykki, sem er hins vegar biksvartur.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
LÖGREGLUKÓR REYKJAVÍKUR heldur jóla-tónleika í Grafarvogskirkju sunnudagskvöldið 21. desember klukkan 20.30. Einsöngvarar eru Anna Margrét Óskarsdóttir og Eiríkur Hreinn Helgason en stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson. Miðaverð
er 1.500 kr.
ÁFRAM RÓLEGT Í dag verður víð-
ast hæg suðvestlæg eða breytileg
átt. Él sunnan til og vestan annars
úrkomlítið og bjart með köflum
norðaustan og austan til. Frost 0-10
stig, kaldast til landsins.
VEÐUR 4
-1
-3
-7
-7
-4
ALLIR Á SVIÐ Nemendur 8. bekkjar Öskjuhlíðarskóla hafa síðan í nóvember lagt hart að sér við æfingar á helgileiknum. Upp-
skera erfiðisins verður til sýnis í dag og á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bændabylting?
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar
um áhrif nýs fjárlagafrumvarps á
landbúnað.
UMRÆÐAN 28
Stabæk seldi
Veigar Pál
Veigar Páll Gunnars-
son er á leiðinni
til franska
liðsins Nancy.
ÍÞRÓTTIR 50