Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 73
FIMMTUDAGUR 18. desember 2008
Framleiðslufyrirtæki spjallþátta-
stjórnandans Opruh Winfrey
hefur gert samning við sjón-
varpsstöðina HBO um að
framleiða fyrir hana sjónvarps-
myndir, heimildarmyndir og
þáttaraðir.
Hingað til hefur Oprah átt í
samstarfi við aðra sjónvarpsstöð,
ABC, og framleitt fyrir hana
upplífgandi sjónvarpsmyndir á
borð við Tuesdays with Morrie og
Their Eyes Were Watching God
með Halle Berry í aðalhlutverki.
Oprah, sem er 54 ára, var fyrr í
mánuðinum kjörin áhrifamesta
konan í skemmtanaiðnaðinum af
dagblaðinu The Hollywood
Reporter.
Oprah semur
við HBO
OPRAH WINFREY Spjallþáttastjórnand-
inn vinsæli hefur samið við sjónvarps-
stöðina HBO.
Íslenska sprotafyrirtækið
Gogoyoko er eins árs um þessar
mundir og ætlar sér stóra hluti í
framtíðinni. Fyrirtækið verður
opnað formlega snemma á næsta
ári og verður svokallað tónlistar-
samfélag á netinu þar sem
tónlistarmenn geta komið tónlist
sinni milliliðalaust á framfæri á
alþjóðlegum markaði. Síðan fór
nýverið í loftið í lokuðu prufunar-
umhverfi og hefur hópi lista-
manna verið boðinn aðgangur.
Til að fagna eins árs afmæli
heldur Gogoyoko tónleika í
samvinnu við Hjálma og Mugison
eftir jól, nánar tiltekið laugar-
dagskvöldið 27. desember á Nasa.
Tónleikarnir heita Jólagrauturinn
2008 og hvert eðalatriðið rekur
annað. Þarna verða Hjálmar
ásamt sænska rapparanum
Timbuktu, Mugison, Motion Boys,
Borko og Egill Sæbjörnsson.
Heillangt er síðan Egill kom fram
á Íslandi en plata hans Tonk of
the Lawn gerði góða hluti fyrir
áratug eða svo.
Miðasala hefst í dag í Skífunni
og á Midi.is. Miðaverð í forsölu er
1.500 krónur. - drg
Jólagrautur
Gogoyoko
SPILAR Á JÓLAGRAUT Egill Sæbjörnsson
mætir á Nasa.
Madagascar: Escape 2 Africa tekur
upp þráðinn þar sem skilið var við
áhorfendur fyrir rúmum þremur
árum. Ljónið Alex, sebrahesturinn
Marty, gírafinn Melman og flóð-
hesturinn Gloria, sem voru áður
strandaglópar í Madagaskar ætla
nú að fljúga aftur heim til New York
með hjálp íbúa eyjunnar og mör-
gæsanna. En vegna bilunar brot-
lendir flugvélin í Afríku.
Líkt og með fyrri myndina ein-
kennist þessi af hröðum húmor þar
sem áhorfendum er ekki gefinn
mikill tími til umhugsunar. Sum
atriðin kæta krakka með skrípalát-
um, en önnur eru meira hugsuð
fyrir eldri áhorfendur, t.d. atriði
þar sem api mútar mörgæs með því
að segjast ætla að ljóstra um ástar-
samband mörgæsarinnar og Hawa-
ii-dansbrúðu.
Bandaríska talsetningin er til fyr-
irmyndar og kemur á óvart hversu
mörgum stjörnum er hægt að troða
í eina kvikmynd; Ben Stiller, Chris
Rock, Sacha Baron Cohen, Alec
Baldwin, Jada Pinkett Smith og
Bernie Mac heitinn. Þrátt fyrir allar
stjörnurnar er það mörgæsa-teymið
sem stelur senunni í myndinni.
Skrautleg og geðveik upp átæki
þeirra er helsti drifkraftur myndar-
innar, og þá sérstaklega bráðfyndið
opnunaratriði myndarinnar með
flugvélinni.
Madagascar: Escape 2 Africa er
enn eitt dæmið um hversu breiður
áhorfendafjöldi teiknimynda getur
orðið með blöndu af ólíkum húmor,
ekki ólíkt Kung Fu Panda frá því í
sumar. Í raun er ekki mikið sem
situr eftir nema léttur og góður
húmor og að sjálfsögðu mörgæsirn-
ar, sem væri óskandi að fengju sína
eigin kvikmynd.
Mörgæsagrín
KVIKMYNDIR
Madagascar: Escape 2 Africa
★★★
Stjörnum prýdd og ágætlega fyndin
teiknimynd.
Vignir Jón Vignisson - Topp5.is
Nám fyrir skapandi
tónlistarmenn
- í samstarfi við Digidesign framleiðanda Pro Tools
HAUSTNÁMSKEIÐIN HEFJAST Í FEBRÚAR
Sponsored Digidesign School
Lærðu að nota nútíma upptökutækni til að taka upp,
útsetja og hljóðblanda tónlistina þína. Þeir Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson (Todmobile), Vignir Snær Vigfús-
son (Írafár) og Markús Leifsson (Sertified Pro Tools
Operator) kenna ferlið hvernig hugmynd af lagi verður
að fullunnri afurð tilbúinni til útgáfu eða spilunar í
útvarpi með notkun Pro Tools hljóðupptöku forritsins.
Markús leiðir menn í gegnum Pro Tools fræðin í
fullkominni tölvustofu þar til menn eru tilbúnir í að
taka alþjóðlegu Pro Tools gráðurnar 101 og 110.
Þorvaldur Bjarni sýnir mönnum inn í heim
tónsmíðanna og kennir nemendum að hljóðblanda
lögin sín, hvernig maður notar EQ, Compressor og
hljóðeffekta til að draga það besta fram í hverri
upptöku í fullkomnu hljóðveri skólans.
Vignir Snær kennir mönnum hvernig forritin
Melodine og Reason eru notuð til að útsetja og laga
til upptökur að hugmyndum lagasmiðsins eða
hljómsveitarinnar. Farið er í helstu míkrafónstað-
setningar fyrir t.d. trommuupptökur, gítarupptökur,
söngupptökur o.s.f.
Teknar eru tvær viðurkenndar gráður í Pro Tools hljóðupptöku- forritinu (101 og 110)
sem veita rétt á framhaldsnámi erlendis. Þar fara menn í Pro Tools 201 og 210 sem
gerir menn að viðurkenndum "Pro Tools Operator". Það gefur möguleika á störfum
hér og erlendis í hljóðverum og kvikmyndaverum.
TÓNVINNSLUSKÓLI ÞORVALDAR BJARNA - “DIGIDESIGN (PRO TOOLS) SPONSORED SCHOOL”.
VEITIR RÉTT TIL FRAMHALDSNÁMS
Í miðju námskeiðsins gefst nemendum tækifæri á að eyða 3 dögum með þeim
Þorvaldi Bjarna, Vigni Snæ, Magnúsi Þór Sigmundssyni við laga og textasmíðar
auk þess mun Guðmundur Jónsson (Sálin) leggja hönd á plóginn og miðla af
reynslu sinni. Afrakstur þessara vinnutarnar verður svo notað sem efni í náms og
útsetningarferli seinni hluta námsins. Lögin verða svo boðin útgefendum til
notkunar fyrir listamenn sýna og fá menn þannig innsýn inn í ferlið hvernig
lagasmiðir koma efni sínu á framfæri.
Þetta fimmta árið sem Tónvinnslunámskeiðið er haldið og hafa um 160 manns tekið þátt.
Margir hafa haldið beint áfram í framhaldsnám erlendis meðan aðrir hafa
hafið störf sem skapandi tónlistarmenn á eigin spítur.
NÝJUNG!
Námskeiðin
hefjast í
febrúar.
Skráningar í
síma 534 9090
eða á
heimasíðunni
www.tonvinnslu
skoli.is
ESKIMOS