Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 2
2 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL Alvarleg nóró- veirusýking kom upp á Heilbrigð- isstofnun Austurlands á Seyðis- firði um miðjan nóvember. Flestallir sjúklingar og starfs- menn sjúkrahússins veiktust. Tveir sjúklingar létust vegna hennar. Loka hefur þurft deildum sjúkrahúsa og öldrunarstofnana vegna sýkingarinnar sem mjög hefur sótt í sig veðrið hér á landi undanfarin sex ár. Rúnar Reynisson, yfirlæknir á Seyðisfirði, segir að sýkingin hafi komið upp um miðjan nóvember og verið afar hastarleg. „Sýkingin breiddist afar hratt út og fjölmarg- ir sjúklingar og starfsmenn höfðu smitast áður en staðfest var um hvers konar sýkingu var að ræða. Það létust tveir sjúklingar á sjúkradeildunum í kjölfarið. Þetta lagðist á fólk sem var mjög veikt fyrir og varð því að aldurtila.“ Rúnar segir að oft sé um lítinn sem engan tíma að ræða því aðeins líði um tíu til tólf klukkustundir frá smiti þar til fólk verður mjög veikt. „Fullfrískt fólk hristir þetta auðveldlega af sér en þeim sem veikir eru fyrir getur stafað af þessu mikil hætta.“ Hann segir að rúmlega tuttugu hafi veikst á sjúkrahúsinu og ástandið hafi varað í rúma viku. Ása St. Atladóttir, verkefnis- stjóri hjá Landlæknisembættinu, segir að á undanförnum sex árum hafi faraldrar af sökum veirunnar í vaxandi mæli sett mark sitt á starfsemi margra deilda sjúkra- húsa og öldrunarstofnana, einkum yfir vetrarmánuðina. „Þá veikjast sjúklingar, vistmenn og starfsfólk með þeim afleiðingum að heilu deildirnar lokast tímabundið á meðan faraldurinn er að ganga yfir.“ Ása segir að engin tölfræði sé yfir hversu margir falla frá vegna sýkingarinnar. Aðgerðir sem grípa þarf til við að hefta útbreiðslu sýkingarinnar inni á heilbrigðisstofnunum eru í senn óþægilegar fyrir alla og kostnað- arsamar. „Það má nefna sem dæmi að nóróveirusýking hefur komið ítrekað upp á Landspítalanum, þar á meðal á hjartadeild þar sem hefur þurft að loka fyrir innlagnir á meðan þetta gengur yfir.“ Nóróveirusýkingar hafa komið upp með jöfnu millibili hér á landi á undanförnum árum. Alvarlegum tilfellum fór stórlega að fjölga árið 2002 án þess að skýringar hafi fundist á því. svavar@frettabladid.is Veirusýking dró tvo sjúklinga til dauða Alvarleg nóróveirusýking kom upp á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði í nóvember. Tveir sjúklingar létust. Meirihluti starfsfólks og sjúklinga veiktist. Sýkingin hef- ur ítrekað komið upp hér á landi síðan 2002 en orsök þess liggur ekki fyrir. Iðrasýkingar af völdum nóróveira eru mjög smitandi. Veirurnar skiljast út í hægðum og uppköstum hinna veiku og berast auðveldlega út í umhverf- ið og á milli fólks. Meðgöngutími sýkingarinnar er 12 til 48 klst. og gengur oftast fljótt yfir, á einum til þremur sólarhringum. Sýkingin getur staðið mun lengur hjá þeim sem eru langveikir og getur gengið nærri öldruðum og langveiku fólki. Afar áríðandi er að þeir sem eru veikir fari ekki að heimsækja ætt- ingja og vini á sjúkrahús eða öldr- unarstofnun meðan á veikindunum stendur því að slík heimsókn getur hæglega komið af stað faraldri inni á viðkomandi stofnun. Handhreinsun með handþvotti eða sprittun og vönduð þrif í umhverfi hins veika eru allt mikilvægar aðgerðir til að hefta útbreiðslu smits. NÓRÓVEIRUSÝKING - VARNAÐARORÐ HJARTADEILD Á Landspítalanum hafa komið upp alvarleg tilfelli nóróveirusýk- ingar og hefur þurft að loka deildum vegna þess. Það er nábýlið sem gerir það erfitt að fyrirbyggja útbreiðslu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Geir, hefur gengi Jens fallið að undanförnu? „Það hefur aldrei staðið.“ Geir Ólafsson söngvari og bloggarinn Jens Guð deila þessa dagana um hvort sá fyrrnefndi sé vinsæll í Færeyjum eða ekki. BANDARÍKIN, AP Tímaritið Time skýrði frá því í gær að Barack Obama hafi orðið fyrir valinu sem maður ársins. Áður hafa til dæmis George W. Bush, Bill Clinton, Vladimír Pútín, Mikhaíl Gorbatsjov, Jósef Stalín og Adolf Hitler verið menn ársins að mati tímaritsins. Í gær kynnti Obama til sögunnar tvo nýja ráðherra í ríkisstjórn sinni, sem tekur við í næsta mánuði. - gb Obama maður ársins: Tilkynnir um fleiri ráðherra MAÐUR ÁRSINS Nicolas Sarkozy og Sarah Palin komu einnig til greina við valið í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MÓTMÆLI Um sjötíu manna hópur mótmælti í Landsbankanum í gærmorgun. Hópurinn hóf mótmælin á skrifstofum Landsbankans við Austur- völl, færði sig þaðan í útibú bankans við Austur- stræti og loks í útibúið við Laugaveg. Fólkið hrópaði slagorð á borð við „Borgið ykkar skuldir sjálf“. Í yfirlýsingu frá hópnum er þess krafist að skuldir bankans lendi ekki á íbúum landsins og saklausum börnum. Ekki sé hægt að plata fólk með nýjum kennitölum og forstjórum, sama fólkið og sama hugmyndafræðin sé við völd. Einnig var veru Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, í Landsbankanum mót- mælt. Mótmælin fóru friðsamlega fram. Þá mótmælti svipaður fjöldi fólks fyrir utan útibú Landsbankans í Lúxemborg í gær. Var þess krafist að staðið yrði við loforð um greiðslu lögbundinna launa í uppsagnarfresti eftir að bankinn fór í þrot. Um 160 manns, þar af um fjörutíu Íslendingar, misstu vinnuna við gjaldþrot bankans. - kg Tugir manna mótmæltu við útibú Landsbankans í miðbænum og Lúxemborg: Mótmælt í tveimur löndum MÓTMÆLI Hópur fólks mótmælti friðsamlega á skrifstofum og útibúum Landsbankans í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STJÓRNMÁL „Ljóst er að ekki var vilji til þess að koma til móts við áherslur ASÍ og voru það mikil vonbrigði,“ segir í yfirlýsingu forseta ASÍ, Gylfa Arnbjörnsson- ar, eftir fund sem hann átti ásamt varaforseta sínum með oddvitum ríkisstjórnarinnar. Gylfi kveðst hafa kynnt áherslur og kröfur miðstjórnar ASÍ varðandi fjárlagafrumvarpið og ráðstafanir í ríkisfjármálum. „Einkum strandar á vilja ríkisstjórnarinnar til að endur- skoða áform um mikla skerðingu bóta elli- og örorkulífeyrisþega nú um áramótin. Einnig lýsti forysta ASÍ miklum áhyggjum sínum með afdrif frumvarps til laga um greiðsluaðlögun sem heimili niðurfærslu og skilmála- breytingu á húsnæðisskuldum heimilanna,“ segir í yfirlýsingu Gylfa. - gar Forseti ASÍ óánægður: Ríkisstjórnin vill engu breyta BANKAMÁL Ákveðið hefur verið að Nýi Glitnir taki upp nafnið Íslandsbanki hinn 20. febrúar næstkomandi. Í tilkynningu frá bankanum er haft eftir Birnu Einarsdóttur bankastjóra að nafnið Glitnir hafi beðið hnekki. Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að breytingarferl- ið, sem muni eiga sér stað á næstunni, hafi verið kynnt starfsmönnum bankans í gær. Samhliða nafnbreytingunni hafi verið kynntar áherslubreytingar í starfsemi bankans. Kostnaði vegna breytinganna verði haldið í lágmarki. - kg Nafnabreyting hjá banka: Glitnir verður Íslandsbanki STJÓRNMÁL „Við landsmenn förum þess einarðlega á leit við yður, hæstvirtan forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, að þér í krafti embættisins hafnið samþykki á fjárlögum þeim sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt fram,“ segir í áskorun hóps sem nefnir sig Landsmenn gegn ríkisstjórninni. „Fjárlagafrumvarpið mun velta gríðarlegum skuldaklafa yfir á almenning í landinu til margra ára, skuldum sem til var stofnað af óheilindum af hálfu athafna- manna sem störfuðu í skjóli stjórnmálaflokka, stjórnsýslu og stofnanaumhverfis sem hafa algerlega brugðist hlutverki sínu,“ segir hópurinn sem kveður landsmenn eiga skýlausan rétt á að segja hug sinn til frumvarps- ins í þjóðaratkvæðagreiðslu. - gar Áskorun frá mótmælendum Forsetinn synji fjárlögunum VIÐSKIPTI „Enginn starfsmaður okkar er á tvöföldum launum,“ segir Atli Atlason, starfsmanna- stjóri Nýja Landsbankans. Hann staðfestir að Björn Ársæll Pétursson, sem stýrði útibúi bankans í Hong Kong, hafi fengið starfslokagreiðslu, enda þótt hann starfi nú í bankanum. DV fullyrðir að greiðslan hafi numið hátt í einni milljón Hong Kong-dala. Um fjórtán krónur eru í hverjum slíkum dal. Atli segist ekki geta staðfest upphæð- ina. „Við greiddum honum hluta af uppsagnarfrestinum. En að sjálfsögðu tökum við tillit til þess, þegar hann er ráðinn til nýja bankans, að hann hefur hlotið greiðslu. Hann fær þá ekki laun hjá okkur á meðan, og ekki fyrr en hann hefur unnið það af sér.“ - ikh Björn Ársæll Pétursson: Er ekki á tvö- földum launum STJÓRNMÁL „Það er svolítið skrítið að fimm þúsund manns geti farið fram á kosningu aftur og aftur á sama kjörtímabilinu um sömu spurninguna,“ segir Pétur Óskarsson, talsmaður samtakanna Sól í Straumi, sem eru andvíg stækkun álversins í Straumsvík. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær voru 5.014 undirskriftir afhentar bæjarstjóranum í Hafnarfirði í fyrradag með áskorun um að íbúakosningin sem fram fór 2007 um stækkun álversins verði endurtekin. Samkvæmt samþykkt- um bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þarf 25 prósent atkvæðisbærra manna til að knýja fram íbúakosn- ingu og nær fjöldi undirskriftanna því lágmarki. Pétur segir að á meðan bæði sé óljóst með afstöðu eigenda álversins og með raforkuöflun sé naumast grundvöllur fyrir nýrri íbúakosningu um stækkun. Hann telji að ekki ætti að kjósa aftur um stækkun álversins fyrr en í sveitarstjórnarkosn- ingum vorið 2010. „Það er í raun fásinna að draga Hafnfirðinga að kjörborðinu fyrr en allar forsend- ur liggja fyrir,“ segir hann. Pétur segir það skjóta skökku við að í kjölfar þess að hætt hafi verið við íbúaþing í haust í sparnaðarskyni eigi að verja tíu til tólf milljónum í kosningar um mál sem sé í raun ekki á dagskrá. Bæjarstjórinn eigi að efna fyrri loforð að ekki verið kosið aftur um stækkun álversins á kjör- tímabilinu. Þá gildi samþykktin um íbúakosningar einu. „Þetta eru vinnureglur sem Samfylkingin setti og þeir ráða hvernig þeir vinna úr því.“ - gar Andstæðingar stækkunar álvers í Straumsvík efins um nýja íbúakosningu í bráð: Skrítið að kjósa sífellt um sama mál ÁLVERSKOSNINGAR Pétur Óskarsson ásamt Lúðvík Geirssyni bæjarstjóra. Á milli þeirra stendur Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.