Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Dr. Gunna Í dag er fimmtudagurinn 18. desember, 353. dagur ársins. 11.20 13.24 15.29 11.37 13.08 14.42 Tveir mánuðir eru liðnir síðan skelfdur Haarde bað Guð að blessa þjóðina. Þá þyrmdi yfir hressustu stuðbolta og ég var með í maganum dögum saman á meðan daglegir blaðamannafundir skullu á þjóðinni. Í nokkrar vikur var allt á fullu í hausnum á mér, og í hverj- um einasta haus á skerinu, að því er virtist. FÓLK át fréttamiðla upp til agna því uppbyggingarstarf landsins virtist eitthvað sem maður gat sjálfur tekið þátt í. Hver um annan þveran töluðu menn um Nýja Ísland. Maður sá fyrir sér nýtt upphaf, sanngjarna jafnaðar- útópíu sem kæmi loksins eftir blý- þung kreppuár. Það var allt hrunið og það varð bara – og hlaut bara – eitthvað frábært að taka við. For- rík örþjóð hlaut að geta betur. ÞETTA var örvæntingarfulla bjartsýniskastið á botninum. Síðan hefur allt nokkurn veginn runnið í sama gamla farið og kannanir sýna að fólk hefur gefist upp á fréttatímunum. Nennir bara ekki að hlusta á þetta þrugl lengur. Fólk mun kannski sperra eyrun þegar einhver tekur ábyrgð; skammast sín, segir af sér og biðst grenjandi afsökunar á því að hafa verið svona mikið fífl. Einhverjir aðrir en fríkaðir framsóknarmenn, meina ég. Í FRÉTTATÍMA nýlega voru maf- íósar á Ítalíu leiddir burtu eftir hreinsun lögreglunnar. Þetta var hressandi frétt. Loksins einhvers staðar verið að taka til, sópa út. Fáum við einhvern tímann svona frétt af þeim sem settu Ísland á hausinn? Verða einhverjir leiddir burt í járnum? NEI, ábyggilega ekki. Í naflalónni Íslandi halda menn störfum sínum og stöðu, kannski undir nýju heiti, enda eru allir með afsakanir á hreinu. Þetta er fyrst og fremst alþjóðlegt vandamál. Málið verð- ur sett í nefnd. Við munum skoða þetta allt saman seinna því það má alls ekki rugga björgunarbátnum í miðju slökkvistarfi. Jadda jadda og bla bla bla. Svona hefur þruglið bulið á manni. Og mun halda áfram að bylja nógu oft þangað til sú hugsun fer að ágerast að það sé nú bara ekkert að. Það eru allir að gera sitt besta. Er þaggi?! LANDHREINSUNIN sem maður bjóst við verður því líklega aldrei. Sinnuleysi þjóðar og ráða- manna sem kom í veg fyrir að tek- ist yrði á við yfirvofandi banka- hrun mun líka koma í veg fyrir uppgjörið. Við munum humma það fram af okkur. Humm Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.