Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 18.
desember, 353. dagur ársins.
11.20 13.24 15.29
11.37 13.08 14.42
Tveir mánuðir eru liðnir síðan skelfdur Haarde bað Guð að
blessa þjóðina. Þá þyrmdi yfir
hressustu stuðbolta og ég var með
í maganum dögum saman á meðan
daglegir blaðamannafundir skullu
á þjóðinni. Í nokkrar vikur var allt
á fullu í hausnum á mér, og í hverj-
um einasta haus á skerinu, að því
er virtist.
FÓLK át fréttamiðla upp til agna
því uppbyggingarstarf landsins
virtist eitthvað sem maður gat
sjálfur tekið þátt í. Hver um annan
þveran töluðu menn um Nýja
Ísland. Maður sá fyrir sér nýtt
upphaf, sanngjarna jafnaðar-
útópíu sem kæmi loksins eftir blý-
þung kreppuár. Það var allt hrunið
og það varð bara – og hlaut bara –
eitthvað frábært að taka við. For-
rík örþjóð hlaut að geta betur.
ÞETTA var örvæntingarfulla
bjartsýniskastið á botninum. Síðan
hefur allt nokkurn veginn runnið í
sama gamla farið og kannanir
sýna að fólk hefur gefist upp á
fréttatímunum. Nennir bara ekki
að hlusta á þetta þrugl lengur. Fólk
mun kannski sperra eyrun þegar
einhver tekur ábyrgð; skammast
sín, segir af sér og biðst grenjandi
afsökunar á því að hafa verið
svona mikið fífl. Einhverjir aðrir
en fríkaðir framsóknarmenn,
meina ég.
Í FRÉTTATÍMA nýlega voru maf-
íósar á Ítalíu leiddir burtu eftir
hreinsun lögreglunnar. Þetta var
hressandi frétt. Loksins einhvers
staðar verið að taka til, sópa út.
Fáum við einhvern tímann svona
frétt af þeim sem settu Ísland á
hausinn? Verða einhverjir leiddir
burt í járnum?
NEI, ábyggilega ekki. Í naflalónni
Íslandi halda menn störfum sínum
og stöðu, kannski undir nýju heiti,
enda eru allir með afsakanir á
hreinu. Þetta er fyrst og fremst
alþjóðlegt vandamál. Málið verð-
ur sett í nefnd. Við munum skoða
þetta allt saman seinna því það má
alls ekki rugga björgunarbátnum í
miðju slökkvistarfi. Jadda jadda
og bla bla bla. Svona hefur þruglið
bulið á manni. Og mun halda áfram
að bylja nógu oft þangað til sú
hugsun fer að ágerast að það sé nú
bara ekkert að. Það eru allir að
gera sitt besta. Er þaggi?!
LANDHREINSUNIN sem
maður bjóst við verður því líklega
aldrei. Sinnuleysi þjóðar og ráða-
manna sem kom í veg fyrir að tek-
ist yrði á við yfirvofandi banka-
hrun mun líka koma í veg fyrir
uppgjörið. Við munum humma það
fram af okkur.
Humm
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is