Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 4
4 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
15°
9°
1°
3°
8°
7°
4°
0°
7°
4°
19°
11°
6°
26°
4°
7°
11°
4°
Á MORGUN
8-13 m/s vestast á
Vestfjörðum annars hægari.
LAUGARDAGUR
Hæg breytileg átt.
-1
-1
-3
-5
-7
-5
-7
1
-4
2
-7
4
3
5
3 3
3
2
4
3
9
4
-3 -6
-2
-9
-4
-4
-5 -6
-10
-7
HELGARHORFUR
Í sjálfu sér eru ágætar
veðurhorfur um
helgina. Rétt er þó að
benda á að allt stefnir
í norðaustanstorm við
suðausturströndina
aðfaranótt sunnudags-
ins með ofan komu.
Að öðru leyti verður
vindur hægur. Á
laugardag verða él
með norður- og suð-
urströndinni og bjart
eystra. Á sunnudaginn
rofar til suðvestan til
en þá verða él nyrðra
og eystra.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
DÓMSMÁL „Þetta er mikill léttir og
ég er ósköp þakklátur og glaður
yfir að þessi niðurstaða skuli
liggja fyrir núna, sem ég var
raunar viss um að yrði með þess-
um hætti.“
Þetta segir Jón Ólafsson
athafnamaður eftir að ákæru
vegna meintra skattalagabrota
hans hefur verið vísað frá í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur. Ásamt Jóni
voru þeir Hreggviður Jónsson,
Ragnar Birgisson og Símon
Ásgeir Gunnarsson ákærðir. Var
málum Hreggviðs og Bjarna einn-
ig vísað frá en kröfu Símonar um
frávísun var hafnað. Verður mál
hans tekið fyrir hjá héraðsdómi.
„Mér er nú efst í huga þakklæti
til þeirra fjölmörgu sem trúðu
ekki þessum ávirðingum á mig og
sögðu að þetta væri ekki svona,
en treystu mér og sýndu mér full-
an stuðning,“ segir Jón enn frem-
ur. „Nú hrannast inn hjá mér
tölvupóstur frá þeim og öðrum
sem ég þekki ekkert með baráttu-
kveðjum og hamingjuóskum.“
Efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra gaf út ákæru á hend-
ur Jóni fyrr á árinu. Málið hafði
þá verið í rannsókn í um tæplega
sjö ára skeið. Honum var gefið að
sök að hafa svikið um 360 milljón-
ir króna undan skatti í tengslum
við rekstur Norðurljósa og
tengdra félaga.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir
meðal annars að krafa Jóns,
Hreggviðs og Ragnars um frávís-
un málsins frá héraðsdómi byggi
á því að þeir njóti ekki réttlátrar
málsmeðferðar í skilningi tiltek-
innar lagagreinar mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Séu þeir nú
fyrir dómi bornir sökum um refsi-
verða háttsemi sem þeim hafi
þegar verið ákveðin refsing fyrir
með álagningu 25 prósenta álags
á skattstofna, samkvæmt ákvörð-
un ríkisskattstjóra, og verði þeim
því ekki refsað öðru sinni fyrir
sömu sakir.
Spurður um ákvörðun Helga
Magnúsar Gunnarssonar, sak-
sóknara efnahagsbrota, að kæra
frávísunina til Hæstaréttar
kveðst Jón ekki hafa áhyggjur af
því.
„Ég er sannfærður um að þar
mun þetta fá sömu meðferð.
Dómurinn nú er í samræmi við
ákvæði í lögum mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Áfrýjunin
sýnir það enn á ný hvers konar
„batterí“ þetta eru og hvern
mann þessir menn hafa að
geyma. Nú verður haldið áfram
að eyða peningum skattborgara í
ekki neitt eins og gert hefur
verið í þessu máli öllu.“
Málskostnaður verjenda þre-
menninganna í héraðsdómi,
rúmar 3,7 milljónir króna falla á
ríkissjóð samkvæmt dómnum.
jss@frettabladid.is
Þakklátur og glaður
yfir niðurstöðunni
Jón Ólafsson athafnamaður segir það mikinn létti að niðurstaða héraðsdóms
skuli loks fengin í mál sem verið hefur í gangi á hendur honum vegna meintra
skattalagabrota. Baráttukveðjum og hamingjuóskum hefur rignt yfir hann.
JÓN ÓLAFSSON Hann segir að með því að kæra frávísun héraðsdóms til Hæstaréttar
sé einungis verið að eyða peningum skattborgara í ekki neitt eins og gert hafi verið í
þessu máli öllu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
REYKJAVÍK Siðareglur fyrir kjörna
fulltrúa í Reykjavík mættu að
ósekju ganga lengra en gert er
ráð fyrir í
drögunum, sem
nú eru til
umfjöllunar,
segir Júlíus
Vífill Ingvars-
son, borgarfull-
trúi Sjálfstæð-
isflokks.
Hann sjái til
dæmis ekkert
því til fyrir-
stöðu að upplýsa um eignir sínar
og hagsmunatengsl.
Júlíus gerir hins vegar
athugasemd við ákvæði um
eftirlitshlutverk borgarfulltrúa.
„Þetta er ekki það sem ég réð
mig til,“ sagði hann á borgar-
stjórnarfundi á þriðjudaginn;
borgarfulltrúar ættu að einbeita
sér að stefnumótun. - kóþ
Fulltrúi sjálfstæðismanna:
Siðareglurnar
gangi lengra
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
VINNUMARKAÐUR Ekki er von á að
forseti Íslands taki afstöðu til
hugsanlegrar launalækkunar hjá
sjálfum sér fyrr en eftir að
lagafrumvarp um kjararáð hefur
fengið lokaafgreiðslu á Alþingi
og meðan kjararáð er með
launalækkun helstu embættis-
manna og stjórnmálamanna til
skoðunar.
Frá forsetaskrifstofunni fást
þau svör að með frumvarpinu sé
verið að marka kjararáði nýjan
lagaramma. Forsetinn þurfi að
staðfesta lögin verði frumvarpið
að lögum. Forsetinn vilji ekki
hafa áhrif á mál í meðförum
Alþingis en fyrri afstaða hans sé
fullkomlega óbreytt. - ghs
Forseti Íslands:
Tekur ekki
ákvörðun um
launalækkun
FJÖLMIÐLAR „Sem stendur verður
að duga að það sé bara ég sem er
gefinn upp,“ segir Haraldur
Johannessen, ritstjóri Viðskipta-
blaðsins, um nýtt eignarhald á
blaðinu. Haraldur er skráður
eigandi Mylluseturs ehf. sem
keypti Viðskiptablaðið á dögun-
um. Hann kveður hóp fjárfesta,
sem þegar liggi fyrir, koma að
félaginu. Ganga þurfi frá ýmsum
tæknilegum málum áður en þeir
séu gefnir upp. „Við vinnum þetta
eins hratt og við getum,“ segir
Haraldur sem kveðst afar
ánægður að áframhaldandi útgáfa
Viðskiptablaðsins sé tryggð. „Það
var ekkert sjálfgefið með okkur,
frekar en ýmsa aðra fjölmiðla, að
það tækist að halda áfram.“ - gar
Ritstjóri Viðskiptablaðsins:
Enn leynd yfir
eigendahópi
MÓTMÆLI Hópur fólks veittist að
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
forstjóra Baugs, fyrir utan 101
Hótel við Hverfisgötu laust eftir
hádegi í gær. Lögregla var kölluð
til, en samkvæmt henni var um
lítið upphlaup að ræða og yfirgaf
fólkið staðinn eftir að rætt hafði
verið við það. Jón Ásgeir var
staddur á landinu ásamt Malcolm
Walker, forstjóra Iceland
verslunarkeðjunnar í Bretlandi,
en þeir áttu fund með skilanefnd
Landsbankans
Jón Ásgeir segir lítið hafa
gengið á. „Mér skilst að þetta hafi
verið reiðir mótmælendur á
ferðalagi um bæinn sem lögregl-
an hafði verið að elta. Einn af
þeim var ekki í jafnvægi en það
urðu engin handalögmál.“
Í gærkvöldi birti maður færslu
á bloggsíðu sinni þar sem hann
segist hafa kastað snjóbolta í
andlit Jóns, og fleiri hafi fylgt í
kjölfarið. - kg
Mótmæli í miðbænum:
Veist að Jóni
Ásgeiri í gær
MENNTAMÁL Nemendur í nágrenni
Reykjavíkur fengu hæstu meðal-
talseinkunnina í bæði stærðfræði
og íslensku í sjöunda bekk og í
stærðfræði í fjórða bekk í sam-
ræmdum könnunarprófum 2008.
Nemendurnir fengu 7,3 í íslensku
og 6,9 í stærðfræði í sjöunda bekk
og 7,1 í stærðfræði í fjórða bekk.
Nemendur á Norðurlandi eystra
fengu hæstu meðaltalseinkunn-
ina í íslensku í fjórða bekk, eða
6,7.
Nemendur á Vestfjörðum og
Austurlandi fengu lægstu meðal-
talseinkunnina í stærðfræði og
íslensku í sjöunda bekk. Í fjórða
bekk fengu nemendur á Suður-
landi lægstu
meðaltalsein-
kunnina í stærð-
fræði og á Vest-
fjörðum í
íslensku.
Nemendur í
fjórða bekk á
Norðurlandi
vestra hækka
sig verulega í
stærðfræði í
fjórða bekk eins og sjá má á norm-
aldreifðum einkunnum, fara úr
27,8 hjá krökkunum í fyrra, í 29,8
í ár og eru þá nærri landsmeðal-
talinu sem er 30,0. Nemendur á
Austurlandi og Norðurlandi
vestra hækka sig nokkuð í
íslensku en lækka sig á Vestur-
landi og Vestfjörðum.
Í sjöunda bekk hækka sig nem-
endur í nágrenni Reykjavíkur,
Suðurlandi og á Norðurlandi
vestra í íslensku en lækka sig á
Norðurlandi eystra og Austur-
landi miðað við frammistöðu
nemendanna í fyrra.
Sigurgrímur Skúlason, sviðs-
stjóri hjá Námsmatsstofnun,
segir að skýringin á miklum
breytingum milli ára geti legið í
því að hóparnir úti á landi séu litl-
ir og breyting milli ára endur-
spegli hreinlega muninn milli
árganga. - ghs
SIGURGRÍMS
SKÚLASONAR
Nemendur í fjórða og sjöunda bekk fá niðurstöðu úr samræmdu prófunum:
Lægstir fyrir vestan og austan
AP, DETROIT Tvö af stærstu
dagblöðunum í bandarísku
bílaborginni Detroit munu innan
skamms einungis bjóða upp á
útburð til lesenda þrjá daga
vikunnar. Vefútgáfum blaðanna
verður gert hærra undir höfði í
staðinn. Þetta tilkynnti The
Detroit Media Partnership,
útgáfufélag blaðanna tveggja.
Blöðin verða þó enn um sinn
prentuð og seld á sölustöðum á
degi hverjum. Fastir áskrifendur,
sem fá blöðin ekki heim að dyrum
nema þrjá daga vikunnar, geta
lesið blöðin á vefnum.
Aðgerðirnar eru liður í baráttu
blaðanna til að halda lífi. - kg
Blaðaútburður í Detroit:
Aukin áhersla á
vefútgáfur
GENGIÐ 17.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,6133
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,84 114,38
175,74 176,60
160,69 161,59
21,567 21,693
16,861 16,961
14,581 14,667
1,2871 1,2947
177,32 178,38
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR