Fréttablaðið - 18.12.2008, Side 36
18. DESEMBER 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Hangikjöt er einkennismerki íslenskra jóla. Kjötið er þó misjafnt
eftir því hver reykir það og hve lengi. Þá eru til tvær mjög mismun-
andi gerðir af reyktu kjöti, reykt og tvíreykt. Eðvald Sveinn Val-
garðsson, gæðastjóri hjá Kjarnafæði á Akureyri, þekkir muninn á
þessu tvennu.
„Munurinn er í raun mjög einfaldur. Þegar kjöt er tvíreykt er
tíminn í reykofninum um það bil tvöfaldaður miðað við venjulega
reykingu,“ útskýrir Eðvald,
sem segir þó misjafnt eftir
reykofnum hve langan tíma
reykingin taki. Meðan kjötið
sé fullreykt eftir sólarhring í
einum ofni taki það annan ofn
tvo sólarhringa að reykja kjöt
til fullnustu.
Eðvald segir vinsældir tví-
reykta hangikjötsins, eða hús-
karla-hangikjötsins eins og
það er stundum kallað, vera
að aukast ár frá ári. „Við höfum selt mikið inn í Jólahúsið í Eyja-
firði,“ segir hann og telur aukinn áhuga á tvíreykta kjötinu um allt
land. „Fólki þykir skemmtilegt að láta þetta hanga uppi og skera sér
flís af þessu, það er jólastemning í því,“ segir Eðvald. Við þessa tví-
reykingu þornar kjötið og geymsluþolið eykst og þolir betur að vera
í hita.
Hjá Kjarnafæði er allt kjöt reykt í taði og að öllu jöfnu er það
látið reykjast í um 36 til 48 klukkustundir. Til að tvíreykja kjötið er
tíminn tæplega tvöfaldaður. „Augað segir þó líka til og við skoðum
kjötið og athugum hvort við séum sáttir við útlit og áferð,“ segir Eð-
vald en Kjarnafæði reykir tugi tonna af hangikjöti fyrir jólin. - sg
Reykt og tvíreykt
Hér er hangikjöt einkennismerki jóla.
Ýmiss konar hátíðarbrauð er á boðstólum um jólin og má þar
nefna allt frá flatkökum og laufabrauði yfir í sætt ítalskt panett-
one og þýskt stollen. Partar og soðbrauð eru hins vegar einnig
gómsæt hátíðarbrauð sem steikt hafa verið í áraraðir á Íslandi.
Erfitt getur verið að sjá muninn á pörtum og soðbrauði og
finnst sumum hann jafnvel lítill sem enginn. Þó eru til parta-
og soðbrauðssérfræðingar sem telja sig finna mun og nefna til
dæmis að soðbrauðið sé feitara. Hins vegar eru uppskriftirn-
ar oft ólíkar frá manni til manns, hvort sem um er að ræða parta
eða soðbrauð, þannig að munurinn getur verið illgreinanlegur.
Helsti munurinn er kannski í því fólginn að partar eru algengari
fyrir sunnan en soðbrauð fyrir norðan.
Samkvæmt bókinni Matarást, eftir Nönnu Rögnvaldardóttur,
eru partar flatar kökur úr hnoðuðu hveitideigi sem flatt er frem-
ur þykkt út og síðan skorið í ferhyrninga eða tígla. Ferhyrning-
arnir eru síðan steiktir í vel heitri feiti þar til þeir verða gullin-
brúnir að lit og bragðast einkar vel með smjöri einu sér en líka
með áleggi. Yngri kynslóðin kallar þá stundum kodda eða púða og
fær sá misskilningur oft að halda sér, enda
krúttlegur og sniðugur.
Soðbrauð var hins vegar oftast úr
ósýrðu deigi, til dæmis rúgmjölsdeigi, og
voru gerðar úr því flatar, þykkar kökur
sem soðnar voru með kjöti eða í súpu. Í
dag er soðbrauð þó yfirleitt steikt í heitri
feiti og kallast líka steikt brauð. Hægt
er að kaupa soðið brauð frá Ekta brauð í
Hafnarfirði og svipar því mjög til part-
anna þó að vísu sé það ögn feitara.
Hvað sem því líður er ljóst að partar og soðbrauð
með smjöri eru gómsætt meðlæti með hangikjöti en er
einnig gott eitt og sér með jólaöli, malti og appelsíni. Sumir
setja kúmen í deigið og gefur það skemmtilegt bragð. - hs
Partur af jólahátíðinni
Mörg handtök liggja bak við
konfektið sem ferðast um
færiböndin hjá Nóa Síríusi
þessa dagana. Þar er það að
hefja sína leið til landsmanna
því bragð þess er orðið sam-
ofið jólahaldinu hjá flestum.
Suðusúkkulaðið má heldur
ekki vanta.
Vélarnar ganga linnulaust í
Nóa Síríusi og starfsfólkið rétt
gefur sér tíma til að líta upp og
brosa þegar blaðamaður og ljós-
myndari gægjast inn eins og jóla-
sveinar. Framleiðslan er í hámarki
og þrátt fyrir kreppu hefur fólki
verið fjölgað í fyrirtækinu á síð-
ustu vikum að sögn Kristjáns Geirs
Gunnarssonar sölustjóra. Fyrir
utan hina hefðbundnu konfektkassa
sem fara í verslanirnar segir hann
alltaf að aukast að fyrirtæki panti í
sérpakkningar. Handfimar stúlkur
raða í öskjurnar af natni. Kristján
segir mikið lagt upp úr því að engir
kassar fari út sem séu ekki 100 pró-
sent í lagi. „Allir taka þátt í því,“
lýsir hann. Starfsfólkið í vinnslunni
er margt af erlendum uppruna en
Kristján segir flest af því búið að
vinna þar í mörg ár. „Ég lít á það
sem Íslendinga,“ segir hann.
Sögu Nóa Síríusar má rekja allt
aftur til ársins 1920. Þá var stofn-
að fyrirtæki sem hét Brjóstsykurs-
gerðin Nói sem framleiddi brjóst-
sykur og karamellur í kjallaraher-
bergi á Óðinsgötu 17. Eftir nokkra
flutninga fékk það eigið húsnæði
árið 1933 að Barónsstíg 2 og keypti
sama ár súkkulaðiverksmiðjuna
Síríus frá Danmörku en rak hana
sem sjálfstæða rekstrareiningu þar
til 1977 að Nói og Síríus samein-
uðust. Nú hefur starfsemin verið
í stórhýsi á Hesthálsi síðan 1999.
Þar eru tíu vinnslusalir en að sögn
Kristjáns er misjafnt hvaða fram-
leiðsla er í gangi þar hverju sinni.
Um 160 manns starfa hjá Nóa Sír-
íusi, þar af nokkrir á söluskrifstofu
á Akureyri og örfáir annars staðar
á landinu. - gun
Mörg handtök eru
bak við hvern mola
Izabela frá Póllandi við konfektvélina.
Fimm tonn af suðusúkkulaði eru framleidd á dag. Óliver frá Þýskalandi við bandið.
Nú er bara eftir að smeygja lokinu á.
Starfsfólkið raðar í kassana af kostgæfni.
Gómsætir molar í glæsilegum umbúðum.
Saga Líf Friðriksdóttir og Selma Hauksdóttir útbúa girnilegar gjafakörfur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
● HIN ÍSLENSKA RÖDD ÚR ÆTIHVÖNNINNI Voxis-háls-
töflur eru unnar úr íslenskri ætihvönn. Þær eru með þeim mest seldu
á markaðinum bæði á Íslandi og Noregi að sögn Þráins Þorvalds-
sonar hjá fyrirtækinu SagaMedica sem framleiðir þær. „Töflurnar gefa
góða raun þegar sviði herjar á hálsinn. Algengt er að erlendir ferða-
menn sendi okkur tölvupóst og spyrjist fyrir um hvar þær fáist eftir
að þeir hafa prófað þær,“ segir hann og bætir
við að nafnið merki „hin íslenska rödd“ því Vox
sé rödd á latínu og IS einkennisstafir Íslands.
Síðan lýsir hann framleiðslunni.
„Hvannalaufið er skorið í júlí og mest tekið
í Mýrdalnum. Síðan fer það í þurrkun að
Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum eða hjá Land-
græðslunni að Gunnarsholti og eftir það í
verksmiðjuhús SagaMedica á Akranesi þar
sem unnið er úr því þykkni. Það er meðal
undirstöðuefna í Voxis-hálstöflunum sem
eru búnar til hjá Nóa Síríusi.“
Íslenskur saltfiskur
útvatnaður að hætti Spánverja
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood - fiskvinnsla frá árinu
Salisksteikurnar frá Ekta ski eru sérstaklega útvatnaðar fyrir
matreiðslu eins og hún gerist best við Miðjarðarhað.
466 1016
www.ektafiskur.is
pöntunarsími: