Fréttablaðið - 22.12.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
22. desember 2008 — 350. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Þessi jólapíramídi er frá Erz-gebirge, sem er svæði í fyrrum
Austur-Þýskalandi, nálægt Dres-
den. Handverkið er aldagamalt og
unnið úr skógi á svæðinu sem var
mjög fátækt bændasamfélag þar
sem fólk dundaði sér við tréút-skurð á veturna,“ segir Arianne
Gahwiller, kennari við Öskjuhlíð-arskóla. Arianne er frá Sviss oghefur búið hé á
gylltir, en pabba fannst hann fal-legastur úr viði, eins og mér
sjálfri,“ segir Arianne sem nýtur
þess að kveikja á þessu fádæma
fallega jólaskrauti alla aðventuna
og fram yfir jól.„Yfirleitt er jólapíramídi ein-göngu notaður sem jólaskraut,enda skreyttur með M
þegar hún stundaði göngur um
íslenskt hálendi.„Ég hreifst strax af íslenskri
náttúru og þótt Sviss sé geysilega
fagurt líka er það svo smátt að
maður mætir of mörgum á ferðum
sínum. Ég var svo farin að ksvo ft i Í
Jólapíramídi að austan
Hverju landi fylgja fallegir jólasiðir og sérkennilegt jólaskraut. Íslendingar búa við það ríkidæmi að eiga
að vinum og samferðamönnum fólk frá öðrum löndum sem sýnir þeim inn í töfraheim sinna jóla.
Arianne Gahwiller með undurfagran jólapíramída frá Austur-Þýskalandi. Á borðinu eru jólasveinavíkingar eftir ungan son hennar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÓNLEIKAR verða haldnir í Neskirkju í kvöld klukkan 20 í tilefni
þess að 150 ár eru liðin frá fæðingu Giacomo Puccini. Fram koma
söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara. Sendiráð
Ítalíu á Íslandi býður Íslendingum ókeypis aðgang að tónleikunum.
A
T
A
R
N
A
Siemens ryksugur á jólaverði.
Sjáið jólatilboðin áwww.sminor.is
Ryksuga - rauðVS 01E1800, 3 l poki, 1800 W.Jólaverð: 15.900 kr stgr
A
T
A
R
N
A
Mjúkur og
bragðgóður
Hátíðarostur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
–
2
4
3
3
dagar til jóla2
Opið til 22
ARIANNE GAHWILLER
Íslenskt og svissneskt
jólahald í bland
• heimili • jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
Bókajól
á Litla-Hrauni
Fangar fá hundruð
bóka til að gefa
sínum nánustu.
FÓLK 46
Elli á Bungalow 8
Milljarðamæringi hent
út vegna tónlistar-
ágreinings.
FÓLK 34
BÓKMENNTIR „Eitthvað verður
þetta að heita og ég nefni karakt-
erana mína oft í höfuðið á fólki
sem ég þekki. En ég drep ekki vini
mína,“ segir Ævar Örn Jósepsson
rithöfundur.
Í nýjum krimma hans, Landi
tækifæranna, eru mörg kunnugleg
nöfn þeim sem þekktu Ævar þegar
hann var skólapiltur í Hafnarfirði.
Nöfn æskufélaga hans, Gunnars
Viktorssonar og Sigþórs Jóhannes-
sonar, birtast þar sem heiti
vafasamra pappíra. Þeim þykir
þetta að vonum undarlegt og
Gunnar, sem er sjúkraþjálfari FH
og FH-ingur fram í fingurgóma,
segir það óforsvaranlegt að hann
birtist í bókinni sem Haukamaður.
„Það er rakinn óþverraskapur,“
segir Gunnar sem segist vita til
þess að Ævar Örn hafi hlegið
upphátt þegar hann gerði Gunnar
að Haukamanni. Ævar Örn segir
það lykilatriði að félagar hans eigi
ekkert sammerkt með karakterun-
um í bókinni. - jbg / sjá síðu 46
Ævar Örn Jósepsson:
Stelur nöfnum
vina sinna
Ballettþenkjandi
tónlistarmenn
Pétur Ben og Sigtrygg-
ur Baldursson semja
fyrir Íslenska dans-
flokkinn.
FÓLK 46
FJARÐARPÓSTURINN
Málpípa allra
bæjarbúa
Fagnar aldarfjórðungsafmæli
TÍMAMÓT 26
STORMUR Í dag verður vaxandi
suðaustanátt, 13-23 m/s sunnan
og vestan til síðdegis, annars 8-15
m/s. Rigning nálægt hádegi sunnan
til og vestan en slydda eða rigning
annars staðar síðar í dag. Hlýnandi.
VEÐUR 4
6
2
32
4
SÖNGGLAÐIR AÐDÁENDUR Fjölmörg börn og foreldrar þeirra komu saman í Smáralindinni í gær þar sem kvikmyndin Skoppa og
Skrítla í bíó var forsýnd. Kvikmyndin verður frumsýnd annan dag jóla en þær Skoppa og vinkona hennar, Lúsí, gátu ekki staðist
það að fá að hitta aðdáendur sína fyrir jólin til að syngja og spjalla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Utanríkisráðuneytið
hafnar útreikningum Neyðarlín-
unnar sem kveðst geta starfrækt
ratsjárkerfi fyrir 346 milljónum
króna lægri upphæð en rekstur-
inn kostar á þessu ári.
Í minnisblaði Neyðarlínunnar
er gert ráð fyrir að ratsjáreftirlit
yrði tekið úr höndun Varnarmála-
stofnunar og flutt frá Keflavík-
urflugvelli í Björgunarmiðstöð-
ina í Skógarhlíð í Reykjavík. Þar
með flyttist þessi starfsemi
undan utanríkisráðuneytinu og
undir dómsmálaráðuneytið.
Neyðarlínan telur kostnaðinn við
rekstur eftirlitsins í Skógarhlíð
mundu verða 476 milljónir króna.
Samkvæmt fjárlögum þessa árs
á reksturinn hins vegar að kosta
822 milljónir, eða 346 milljónum
króna meira eins og áður segir.
„Minnisblað Neyðarlínunnar
er því miður vanbúið gagn enda
ekki byggt á réttum forsendum
varðandi rekstur íslenska rat-
sjárkerfisins,“ segir í svari utan-
ríkisráðuneytisins til Frétta-
blaðsins.
Utanríkisráðuneytið segir
Neyðarlínuna ekki gera ráð fyrir
umsýslu loftvarnarkerfis NATO,
miðlun upplýsinga til herstjórna
bandalagsins, sértækra viðhalds-
samninga við NATO né ýmissa
annarra krafna. „Enginn stofn-
kostnaður er tilgreindur, ekki er
gert ráð fyrir kostnaði við nauð-
synlegar breytingar á húsnæði í
Skógarhlíð né þeim breytingum
sem gera þarf á nánasta umhverfi
vegna öryggiskrafna. Þá er
mannaflaþörf vanmetin í minnis-
blaðinu. Varnarmálastofnun er
nú rekin í húsnæði sem banda-
ríski herinn skildi eftir og mikið
hagræði er af að nýta. Mikill van-
nýttur húsnæðiskostur er á svæð-
inu sem gæti nýst fyrir hvers
kyns öryggis- og björgunarstarf-
semi.“
Ríkisstjórnin hyggst skipa
nefnd sem á að skoða leiðir til að
spara í rekstri Landhelgisgæsl-
unnar, Varnarmálastofnunar,
Siglingamálastofnunar og fleiri
stofnana með því að samnýta
aðstöðu eða starfsemi. „Eitt
markmiða með starfi samlegðar-
nefndarinnar hlýtur að vera að
finna hagræðingartækifæri fyrir
fleiri innlendar stofnanir á varn-
arsvæðinu í Keflavík en þangað
mætti til dæmis flytja starfsemi
Landhelgisgæslunnar og hugsan-
lega Neyðarlínunnar og spara
með því fé,“ bendir utanríkis-
ráðuneytið á. - gar
Neyðarlínan og Gæslan spari
og flytji á Keflavíkurflugvöll
Neyðarlínan segist geta rekið ratsjáreftirlit fyrir 346 milljónum króna minna en utanríkisráðuneytið sem
hafnar útreikningunum. Spara mætti með því að flytja Neyðarlínuna og Landhelgisgæsluna til Keflavíkur.
VEÐUR „Þetta er slagviðri með asa-
hláku sem verður sýnu verst á
sunnan- og vestanverðu landinu,“
segir Sigurður Þ. Ragnarsson veð-
urfræðingur um veðrið í dag.
Í gær var 19 sentimetra jafnfall-
inn snjór á höfuðborgarsvæðinu og
15 sentimetrar á Akureyri. „Þar
sem snjóalög eru þetta mikil eru
niðurföll hulin. Ég tel því ástæðu
til að minna fólk á að hreinsa frá
niðurföllum svo forðast megi tjón
af völdum vatns,“ segir Sigurður
sem spáir rigningu í dag.
Sigurður segir að auki stefna í
storm þegar líður á daginn. „Fólk
ætti því sérstaklega að huga að
jólaskreytingunum sem gætu þurft
að þola talsvert veðurálag. Það er
hálf súrt í brotið ef jólaskreyting-
arnar fjúka og kjallarar flæða bara
fyrir það eitt að fólk gleymir að
hreinsa frá niðurföllunum. Þetta er
asahláka af myndarlegustu gerð og
við erum að sigla inn í mikið hlý-
viðri næstu þrjá til fjóra daga.“
Sigurður spáir hlýju og vinda-
sömu veðri á Þorláksmessu og
minni háttar skúrum. „Á aðfanga-
dag jóla eru horfur á allhvassri
sunnanátt, hita á bilinu 6 til 12 stig
og rigningu og skúrum,“ segir Sig-
urður. - ovd
Hlýindi og asahláka af myndarlegustu gerð í veðurkortum næstu daga:
Spáir asahláku með slagviðri
Verður rosalegt
ævintýri
Ásthildur Helgadóttir
segir að íslensku
stelpurnar megi
ekki gleyma að
hvíla sig vel á
milli erfiðra
æfinga.
ÍÞRÓTTIR 40
VEÐRIÐ Í DAG