Fréttablaðið - 22.12.2008, Page 54
46 22. desember 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
NÝJU JÓLASVEINARNIR
LÁRÉTT 2. ofstopi, 6. í röð, 8. laus
greinir, 9. kvk nafn, 11. mun, 12. spar-
semi, 14. hnupla, 16. skóli, 17. kelda,
18. flýtir, 20. þys, 21. skref.
LÓÐRÉTT 1. tamning, 3. íþróttafélag,
4. eyja í Miðjarðarhafi, 5. svelg, 7.
snuðra, 10. sigað, 13. gogg, 15. svari,
16. skraf, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ofsi, 6. gh, 8. hið, 9. una,
11. ku, 12. nýtni, 14. stela, 16. ma, 17.
fen, 18. asi, 20. ys, 21. stig.
LÓÐRÉTT: 1. ögun, 3. fh, 4. sikiley,
5. iðu, 7. hnýsast, 10. att, 13. nef, 15.
ansi, 16. mas, 19. ii.
„Þetta er algjör óþarfi og í raun
rakinn óþverraskapur að gera
„mig“ að Haukamanni. Og hann
viðurkennir að það var með vilja
gert!“ segir Gunnar Viktorsson,
sjúkraþjálfari og FH-ingur fram í
fingurgóma. „Sagðist meira að
segja hafa hlegið upphátt þegar
hann skrifaði það!“
Ævar Örn Jósepsson sendi
nýverið frá sér hinn krassandi
krimma Land tækifæranna. Þar
lendir persónan Árni, einn fjór-
menninganna sem mynda löggut-
eymi í glæpasagnaseríu hans, í
því að rannsaka morðmál sem
tengist gömlu skólaklíkunni hans
í Hafnarfirði. Ævar Örn sjálfur
gekk í skóla í Hafnarfirði. Og
gengst við því að á stundum er
Árni málpípa höfundar. Þegar við
bætist að í klíkunni úr Landi tæki-
færanna eru tveir sem heita
Gunnar Viktorsson eða Gunni
Viktors og Sigþór Jóhannesson
eða Sissó, þá vekur það upp grun
að þarna sé um lykilróman að
ræða. Uppgjör Ævars við sína
gömlu klíku úr Hafnarfirðinum,
því bæði Gunnar og Sigþór voru
bekkjarfélagar hans. Og mega
það heita kaldar kveðjur því per-
sónurnar eru vafasamir pappírar
svo ekki sé meira sagt. Og Árni
rannsóknarlögreglumaður var
þar utangátta. „Nei, ég var ekki
utangátta í minni gömlu skóla-
klíku sem myndaðist í Lækjar-
skóla. Mér leið afskaplega vel
þar,“ segir Ævar Örn. Og neitar að
um lykilróman sé að ræða. „Ég er
bara að skíra karakterana í höfuð-
ið á góðu fólki sem ég þekki. Sem
á ekkert sammerkt með þeim að
öðru leyti, það er lykilatriði. Og
hef gert það í öllum öðrum bókum
mínum einnig. En, já, Gunni er
enn einn minna allra bestu vina,
og þótt sambandið við Sissó sé
kannski stopulla þá er hann ein-
hver mesti ljúflingur sem ég
þekki.“ Sá fjórði í klíkunni heitir
Kristján Kristjánsson, nafn útgef-
anda Ævars á Skaganum og
fimmti er fórnarlambið Daníel
Marteinsson. „Það er út í loftið.
Ég drep ekki vini mína,“ segir rit-
höfundurinn.
Gunnar, er byrjaður á bókinni
og segir það svo sem í lagi sín
vegna að nafni hans í bókinni sé
vafasamur karakter en ítrekar að
honum þyki sérdeilis illkvittnis-
legt af félaga sínum að gera nafna
sinn að Haukamanni.
Sigþór, sem er lærður bakari en
starfar nú hjá Lyfjaveri sem
tölvumaður, segir það óneitanlega
afar sérstakt að lesa bók þar sem
alnafna sinn sé að finna. „Ekki
bara Sigþór Jóhannesson heldur
er hann kallaður Sissó! Þetta fer
ekkert á milli mála. Ég, bakara-
drusla úr Hafnarfirði, orðinn lög-
fræðingur og skíthæll. Nei, ég er
ekki ánægður með karakterinn
minn. Og veit ekki hvort Ævar
hugsar svona til mín? En ég er í
góðum félagsskap þarna í „ríjúní-
oninu“ því þar eru Elsa, Sigga,
Bragi, Gaui og Systa líka.“
jakob@frettabladid.is
GUNNAR VIKTORSSON: ÓÞVERRASKAPUR AÐ GERA MIG HAUKAMANN
Drepur ekki vini sína
FÉKK LÁNUÐ NÖFNIN AÐ ÞEIM FORSPURÐUM Æskufélagar Ævars, þeir Gunni og
Sissó, kunna honum litlar þakkir fyrir að nefna skíthæla í höfuð þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fangar á Litla-Hrauni fá góðan
glaðning í dag þegar fulltrúar frá
Félagi bókaútgefanda mæta með
hundruð bóka sem ætlað er að
verði pakkað inn til ættingja og
vina, komið fyrir á bókasafni fang-
elsisins auk þess sem kokkarnir fá
sinn skerf; úrval matreiðslubóka.
Fangarnir á Litla-Hrauni eru nefni-
lega með sitt eigið eldhús og geta
því gripið í uppflettiritin þegar
svo á við.
Kristján Bjarki Jónasson, for-
maður Félags bókaútgefanda,
segir þetta þó aðallega vera gert
til að gera föngum kleift að gefa
sínum nánustu jólagjöf. „Við létum
fangana útbúa óskalista og útgef-
endur tóku síðan mið af honum
þegar þeir gáfu bækur til fram-
taksins,“ segir Kristján en bæk-
urnar eru langflestar nýjar af nál-
inni þótt vissulega slæðist ein og
ein gömul með. Allir bókaútgef-
endur lögðu sitt af mörkum og því
er um mikið flóð bóka að ræða.
Kristján segir flóruna vera ótrú-
lega fjölbreytta, þarna séu barna-
bækur og lífsreynslusögur og allt
þar á milli. Aðspurður hvort að
einhverjar glæpasögur fái að fljóta
með segir Kristján það óhjá-
kvæmilegt, þær skipi enda vegleg-
an sess í jólabókaflóði landsmanna
um hver jól.
Skrifstofufyrirtækið Office One
leggur síðan til gjafapappír, slauf-
ur og kort svo að fangarnir geta
sjálfir skreytt gjafirnar sínar.
Auk þess leggur fyrirtækið
til inneign á tungumálanám-
skeið en margir af erlend-
um föngum Litla-Hrauns
hafa víst mikinn hug á að
læra íslensku. - fgg
Krimmar gefa krimma í jólagjöf
GEFA FÖNGUM
HUNDRUÐ BÓKA
Fangar á Litla-
Hrauni fá hundruð
bóka á mánu-
daginn. Flestar
þeirra fara þó
aftur út en
fangarnir geta
gefið sínum
nánustu bók.
Gísli Örn Garðarsson og félagar í
Royal Shakespeare-leikhúsinu fá
ágætis dóma fyrir leiksýninguna Don
John sem frumsýnd var fyrir helgi.
Gagnrýnandi Guardian gefur henni
til að mynda þrjár stjörnur af fimm.
Ekki eru þó einhver húrrahróp og
hávær uppklöpp heldur
virðist sýningin hafa
verið frekar auðmelt.
Hins vegar gefur
gagnrýnandi Oxford
Times Nínu Dögg
Filipusdóttur góða
umsögn og segir
spennuna á svið-
inu hafa vaxið um
helming þegar
hún birtist.
Fólkið í bókabúðunum er með sínar
eigin viðurkenningar á því hvaða
bækur eru bestar fyrir hver jólin. Og
þykir höfundum að vonum einkar
vænt um þær, það er þeir sem
verða fyrir valinu. Og nú bregður
svo við að þrír af sex sem hljóta
viðurkenningu þetta árið eru öll
fastir póstar í Mannamáli Sigmundar
Ernis Rúnarssonar; hann sjálfur,
Einar Kárason pistlahöfundur og svo
bókagagnrýnandinn og rithöfundur-
inn Gerður Kristný.
Menn hafa vakandi auga með útrás-
arvíkingum sem aldrei fyrr, það svo
mjög að á fimmtudaginn sást Pálmi
Haraldsson kenndur við Fons
koma á hlaupum inn í 10/11 búðina
við Hjarðarhaga. Hann
staldraði stutt við, fór
beint að blaðarekkanum
og fletti hratt í gegnum
nýútkomið Séð og
heyrt. Og fór svo út
úr búðinni. Tíðinda-
maður blaðsins fletti
einnig í tímaritinu
og sá þar ekki staf
um Pálma. - fgg, jbg
FRÉTTIR AF FÓLK
Félagarnir Sigtryggur Baldurs-
son, Pétur Ben og Frank Hall eru í
óða önn að semja tónlist við nýja
sýningu Íslenska dansflokksins
sem verður frumsýnd í febrúar.
„Þetta er búið að ganga nokkuð
vel. Við erum búnir að dæla út
fullt af hugmyndum og þau hafa
verið að reyna að velja úr því,“
segir Sigtryggur. „Við ákváðum að
taka gömlu góðu bílskúrsleiðina á
þetta, settum upp hljóðfæri í bíl-
skúrnum hjá Pétri og svo er búið
að djamma og búa til alls konar
músík.“
Sigtryggur hefur áður samið
tónlist fyrir dansarann Margréti
Söru og veit því aðeins um hvað
málið snýst. „Ég hef voða gaman
af þessu en ég verð að játa að ég er
ekki beinlínis fastagestur á sýn-
ingum dansflokksins. Það verður
vonandi breyting þar á.“
Samstarfið má rekja til síðasta
árs þegar Vesturport fékk þá til að
spila á tónleikum til heiðurs Tom
Waits. Kata Hall, listrænn stjórn-
andi hjá dansflokknum, hreifst af
spilamennskunni og fékk þá til lðs
við sig. „Þessi tónlist er svolítið
andlega skyld við það verkefni,
svolítið hrá og „klonkí“. Maður
getur leyft sér ýmislegt þarna og
þetta er spennandi og öðruvísi
verkefni. Maður getur farið í
ýmsar áttir með þessar pælingar
sem maður myndi kannski ekki
gera frá degi til dags,“ segir Sig-
tryggur, sem mun sjálfur ekki
taka þátt í sýningunni. Ástæðan er
tónleikaferð Emilíönu Torrini um
Evrópu þar sem hann mun sitja
við trommusettið.
- fb
Þríeyki semur fyrir dansflokk
Ellefti var Hreiðar Már,
grái Kaupþingsmann,
fullt af monnípeningum
rann um gaurinn þann.
Þótt ballið virtist endalaust
loks hætti auradans,
það voru Bretadjöflarnir
sem stigu á tærnar hans.
Bækur frá
Forlaginu
Einar Björnsson
Gullengi 13
Einar V. Ingvarsson
Vallargata 19
Elísabet Árný Árnadóttir
Skarðshlíð 13f
Fannar Sigurpálsson
Norðurgarður 10
Guðný H. Þórhallsdóttir
Greniteig 6
Kári Böðvarsson
Knarrarberg 1
Margrét Ámundadóttir
Álftamýri 46
Óskar Gunnar Óskarsson
Skógarflöt 12
Petrína K. Sigurðardóttir
Suðurgata 119
Jólaleikurfréttablaðsins
Ragnar Einarsson
Álfaheiði 2 G
Sveinbjörn Pétursson
Karfavogi 37
Þórður Sigurðsson
Lerkigrund 2
Bíókort frá
Sambíóunum
Agnar Steinn Gunnarsson
Suðurholt 26
Anna K Ásbjörnsdóttir
Fjölnisvegur 6
Árdís Árnadóttir
Brekkutangi 12
Elvar Ingi Róbertsson
Gónhól 36
Gústaf Gústafsson
Digranesvegi 44
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir
Maríubakki 16
Hrefna Zoega
Nökkvavogur 36
Karen Bergsdóttir
Réttarbakki 7
Kristján Baldvinsson
Hamravík 58
Sigrún Guðnadóttir
Tinnubergi 10
Sigurlaug Siggeirsdóttir
Sólheimum 44
Valtýr B Sigríksson
Austurberg 20
Gjafakort frá
Þjóðleikhúsinu
Gróa Ólafsdóttir
Arahólar 4
Sigvaldi Kristjánsson
Langholtsvegur 46
Taktu þátt á visir.is
Vinningshafar
Vinninga skal nálgast í móttöku Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24.
Opið alla virka daga frá klukkan 8-17.
MARGRÉT FRÍ-
MANNSDÓTTIR
Forstöðumaður
fangelsisins hlýt-
ur að vera ánægð
með bókagjöfina.
SIGTRYGGUR
BALDURSSON
Sigtryggur segir
að vel hafi gengið
að semja tónlistina
fyrir Íslenska dans-
flokkinn.
PÉTUR BEN
Tónlistarmað-
urinn snjalli
hefur átt í góðu
samstarfi við
Sigtrygg og
Frank Hall.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á blaðsíðu 8
1 Í New York, Washington,
London og Ósló.
2 Skóm og snjó.
3 Aron Pálmarsson.