Tíminn - 14.07.1982, Page 4
Timamynd Róbert
B Togarinn Jón
Baldvinsson í slipp
A innfejldu mynd-
inni má sjá sleð-
ann í dráttarbraut-
inni eftir að hann
brotnaði.
Jafnlaunastefna í nýgerdum
kjarasamningi við flugmenn:
DC-8 menn fá litla
sem enga hækkun
Ungt par braust inn í Heilsuverndar-
stöðina í leit að lyf jum:
Saklaus stúlka
var handtekin
■ Flugmenn munu leggja hina ný-
gerðu samninga FIA og Flugleiða fyrir
félagsfund hjá sér i kvöld. Samkvæmt
þvi sem blaðið hefur fregnað munu mest
nýmæli í samningunum þykja þau að
launabil milli flugmanna á innanlands-
leiðum og á DC-8 vélum minnkar nú
verulega, en DC-8 menn munu hafa
verið um það bil 17% hærri í launum til
þessa. Þessi munur færist nú niður í 5%
að sögn.
Margir félagsmanna FÍA hafa verið
hlynntir jafnlaunastefnu, þ.e. að laun
manna séu hin sömu án tillits til þess
hvaða gerð flugvélar er flogið. Þykir sem
hér sé áfanga náð í þá átt.
í nýja samningnum mun einnig gert
ráð fyrir nokkurri hækkun til flugmanna
á Boeing 727 vélum Flugleiða, en DC-8
menn munu litla sem enga hækkun fá.
Mun hafa gætt nokkurrar óánægju í
þeirra hópi af þeim sökum, en nokkra
leiðréttingu munu þeir hafa talið sig fá '
með þvi að þeim er nú heimilt að sækja
um störf á Boeing 727 vélum, sem varla
kom til greina áður.
Þá mun það þykja skref i jafnlaunaátt
að munur á launum flugstjóra og
flugmanns á vélum Flugleiða sem áður
var 25% verður nú aðeins 20%. Eftir
sem áður skeikar þó 5% á launum manna
í innanlandsflugi og millilandaflugi. AM
— en sökudólgarnir gáfu sig
fram slðdegis í gær
■ Kona um þrítugt og
lagsmaður hennar, eitt-
hvað yngrí, brutust inn á
Heilsuvemdarstöðina í
fyrrínótt. Skríðu þau inn
um glugga og ætluðu að
leita sér lyfja. Þegar inn
kom, gengu þau fram á
símastúlku sem var á
vakt. Náði símastúlkan að
hrópa svo maður sem var í
nærliggjandi herbergi
heyrði til. Lagði paríð þá á
flótta.
Skömmu siðar handtók lögreglan í
Reykjavik unga stúlku i húsagarði
nálægt Heilsuvemdarstöðinni. Lék
grunur á að hún hefði verið þarna að
verki og var hún færð til yfirheyrslu á
lögreglustöðina.
Ekki reyndist hún þó sek, því
skömmu eftir hádegið í gær hringdi
ungur maður til rannsóknarlögreglu
ríkisins og sagðist hafa verið þama að
verki. Vissi hann að rannsóknarlögregl-
an leitaði hans og bauðst hann til að gefa
sig fram ásamt lagskonu sinni. Fljótlega
komu þau á fund rannsóknarlögreglunn-
ar og viðurkenndu innbrotið.
Kváðust þau hafa verið undir áhrifum
áfengis fyrr um kvöldið, en þegar
vínbirgðirnar hefði þrotið, og þau ekki
átt þess kost að ná í meira, hefðu þau
ákveðið að fara inn á Heilsuvemdarstöð-
ina til að leita sér lyfja.
Parið hefur áður komið við sögu
sakamála.
- Sjó.
Stálu vind-
lingum f
Mosfellssveit
■ Talsverðu af vindlingum var stolið
í innbroti sem framið var i söluskála
Kaupfélags Mosfellssveitar í fyrri-
nótt. Innbrotið var kært til rannsóknar-
lögreglu ríkisins og hefur hún nú málið
til meðferðar.
- Sjó.
Nafn piltsins
sem fórst
í Eyjum
■ Pilturinn sem beið bana þegar
hann var við lundaveiðar í Sæfelli í
Vestmannaeyjum á sunnudag hét
Magnús Guðmundsson.
Magnús var átján ára gamall og var
hann til heimilis að Illugagötu 71 i
Vestmannaeyjum.
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLI 1982.
Á
„Nú-jazz” í
Félagsstofnun
■ Jazzleikarinn Leo Smith og New
Dalta Ahkri munu halda hér tónleika
á vegum Jazzvakningar undir nafninu
„Nú-jazz“ en tónleikarnir em i
Félagsstofnum stúdenta annað kvöld,
15. júlí. Þetta eru fyrri tónleikar
Jazzvakningar undir þessu heiti hinir
siðari verða i lok júlí og þá með
Roscoe Mitchell.
Síðan 1970 hefur Leo Smith ýmist
unnið með Marion Brown, Braxton og
Roscoe Mitchell eða einbeint sér að
eigin plötuútgáfu og tónsmíðum.
Allan áratuginn hefur hann rekið
hljómsveitina New Dalta Ahkri, en
hana skipa í dag: Bobby Naughton,
víbrafón; Dwight Andrews, saxafóna
og flautur.
Leo Smith og New Dalta Ahkri
koma hingað úr ferðalagi frá Evrópu,
þar sem þeim hefur verið mjög vel
tekið og verið lofaðir í hástert af
gagnrýnendum. Eins og áður segir
verða aðeins einir tónleikar í Félags-
stofnun Stúdenta og verður forsala
miða fram að 15. júlí í Fálkanum
Laugavegi.
fréttir^B ' ' — -I
Sleði í dráttarbraut Slippfélagsins brotnaði er verið var
að sjósetja togarann Jón Baldvinsson:
„FYRIR MESTD AD EKK-
ERT KOM FYRIR SKIPIД
— segir Björgvin Guðmundsson, annar framkvæmdastjóri BÚR
■ Sleði i dráttarbraut Slippfélagsins i
Reykjavík bilaði er verið var að sjósetja
einn af togurum BUR Jón Baldvinsson
í fyrradag og tefst því för togarans um
1-2 daga.
„Það er í sjálfu sér slæmt að frestun
verður um 1-2 daga á þvi að togarinn
fari út en hinsvegar er fyrir mestu að
ekkert kom fyrir skipið“ sagði Björgvin
Guðmundsson annar framkvæmdastjóra
BÚR í samtali við Tímann.
Togarinn fór ekki út úr brautinni en
þegar svona óhöpp koma upp getur allt
gerst. Það er verið að gera við þetta núna
og ég reikna með þvi að skipið komist
niður í kvöld“.
Þórarinn Sveinsson framkvæmdastjóri
Slippfélagsins sagði í samtali við Tímann
að þessi bilun i sleðanum væri lítilfjörleg
að þeirra mati. Hún myndi ekki hindra
starfsemi félagsins að neinu marki og
þeir reiknuðu með því að sjósetja Jón
Baldvinsson i dag, þá ætti viðgerð á
sleðanum að vera lokið. - FRI
Stroku-
fanginn
fundinn
■ Síðdegis í gær gaf strokufanginn af
Litla Hrauni sem stakk af frá Borgar-
spítalanum í Reykjavik sl. fimmtu-
dag, sig fram við lögregluna í
Reykjavík, en þá hafði hans verið
leitað á sjötta sólarhring. Kom hann i
fylgd lögmanns sins á lögreglustöðina
i Reykjavík.
Eins og fyrr segir tókst fanganum að
strjúka af Borgarspitalanum sl.
fimmtudag, en þangað hafði hann
verið færður til lækninga. Tókst
honum að slíta sig lausan frá
hjúkrunarkonu sem fylgdi honum
áleiðis í læknisrannsókn og þaðan út
af sjúkrahúsinu. Víðtæk leit var gerð
að honum. M.a. var hans ákaft leitað
í Keflavík á timabili.
Um kvöldmatarleytið í gær komst
fanginn á ný undir hendur fangavarða
á Litla-Hrauni, og getur hann búist við
að fá að dúsa í einangrunarklefa næstu
vikumar fyrir tiltæki sitt.
- Sjó.