Tíminn - 14.07.1982, Síða 13
16
; i Vji íi í *t i
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1982.
Ódýrar bókahillur
Stærð: 184x80x30 Ijós eik kr. 1.395 -
Bæs " 1.350.-
Tréhurðir kr. 395.-, Glerhurðir kr. 495.-
Húsqögn og 0 A t
J ** Suðurlandsbraut 18
^■4innrettmgar sími86 9oo
Verktakar -
Húsbyggjendur
Geri tilboð í stór og smá verk
Ákerman beitagrafa
H 12-,23 tonn
iar
Brita
öryggissæti
fyrir börn
iilasala-Bilaleigay
13630
.19514
Nú eru engin
vandræði . ..
. . . með bílastæði, því við
erum fluttir í nýtt húsnæði
að Smiðjuvegi 3, Kópavogi.
Sími: 45000 — Beinn sími
til verkstjóra: 45314
PRENTSMIÐJAN
é^dda HF.
MIÐVIKUDAGUR 14. JÉfLÍ 1982
íþróttir
Tímaritið íþrótt-
ir komið út
■ Komið er út fyrsta tölublað af nýju
tímariti um iþróttir og heitir það (að
sjálfsögðu) Timaritið iþróttir. Ritstjór-
ar og ábyrgðarmenn eru Ragnar Óm
Pétursson og Stefán Kristjánsson.
Meðal fjölbreytts cfnis er viðtal
við Pétur Guðmundsson, körfubolta-
mann, sem segir þar m.a. frá tekjum
sinum i bandariska körfuboltanum,
Guðmundur Þórarinsson, frjálsí-
þróttaþjálfari segir frá getraunastarf-
semi (,,tippi“) sinni, Atli Eðvaldsson
skrifar um íslcnska knattspymu og
grein um graðhestinn Skarða að
störfum.
- IngH.
Iþrottír
,#Ég er
l íbestur a m, # V*?ef »
* Íslandi" JöÍS^
Blikadömurnar
næsta vísar
um sigur
■ Stclpumar úr Breiðabliki era enn
ósigraðar í 1. deild kvenna. Siðastlið-
inn föstudag sigraðu þær stöllur sinar
úr Val 2-0. Er nú næsta vist að
íslandsmeistaratitillinn hafnar í Kópa-
vogi. Þá gerðu KR og Vikingur
jafntefli 0-0.
Staðan i 1. deild kvenna er nú þessi:
Breiðablik .... 5 5 0 0 18-2 10
Valur........ 5 2 2 1 4-3 6
Akranes...... 4 2 0 2 7-8 4
KR...........3 1114-4 3
Vikingur .... 5 0 2 3 2-8 2
FH .......... 3 0 1 3 0-10 1
Sá efnilegasti
á Reykja-
vlkurleikunum
■ Einn efnilegasti kringlukastari og
kúluvarpari, sem fram hefur komið á
seinni árum, Bandarikjamaðurinn
Dean Crouser, mun keppa á Reykja-
vikurleikunum um næstu helgi. Crous-
er, sem aðeins er 22 ára, varð
bandariskur háskólameistari i báðum
greinunum fyrir skömmu.
í ár hefur Crouser varpað kúlu 21.07
m og kastað kringlunni rúma 65 metra.
Þá hefur kappinn þeytt spjótinu 75
metra og besti árangur hans i
sleggjukasti er um 63 metrar. I»gH.
Að leikslokum í HM
Italarnir I ögðu
alla þá sterkustu
Frá Erik Mogensen, fréttamanni
Tímans á Spáni:
■ Það var Brasilía sem var uppáhalds-
liðið i HM að þessu sinni. Það var
Brasilía sem hafði unnið hug og hjörtu
áhorfenda með fallegri og skemmtilegri
knattspyrnu. Og það voru Brasilíumenn
sem dönsuðu samba óslitið fram i miðja
keppnina. Allir reiknuðu með því að
Brassarnir yrðu sigurvegarar. En ef svo
ólíklega vildi til, að þeir myndu
bregðast myndu Vestur-Þjóðverjar
hreppa HM-titilinn. En hvað gerðist?
ítalir gerðu litið út öllum spádómum
og unnu sinn þriðja HM-titil og jöfnuðu
þar með met Brasilíumanna, einmitt í
keppni þar sem öllum hinum svokölluðu
„favoritos“ (þeim sigurstranglegu) mis-
tókst. Þegjandi og hljóðalaust (ef breim
blaðamanna ítalskra er undanskilið)
komust þeir i aðra umferð. Að vísu var
barningurinn allnokkur, en tækifæri til
hefnda var til staðar.
Önnur umferðin markaði upphafið að
velgengni ftala. Þeir byrjuðu á því að
leggja að velli fyrrverandi heimsmeist-
ara Argentinu í stórgóðum leik, þar sem
„blátreyjurnar“ komu mjög á óvart með
! frábærum vamarleik og vel skipulögðum
' skyndisóknum. Fyrsta ljónið úr vegin-
um. En næst voru það Brasilíumenn.
Fyrir leikinn lýsti Bearzot, þjálfari
ítalska liðsins, því yfir að hans menn
kysu það hlutskipti að mæta til leiks sem
fómarlömb. Goliat var að velli lagður í
viðureign þar sem allt gekk Davið í
haginn. Sigurinn varð Itölum sætur og
að sama skapi Brasiliumönnum súr.
„Pablito“ og Ítalía á forsíðum dagblaða
um gjörvallan heim.
Pólverjar vom mótherjar italska
liðsins í undanúrslitum og var því spáð
að um jafnan leik yrði að ræða. En svo
fór ekki. ítalir, sem vom komnir á skrið,
létu ekki stöðva sig. Þeir höfðu sigrað
sjálfa heimsmeistarana og Brasilíumenn
og nú varð ekki aftur snúið. Pólverjar
steinlágu og nú vom ítalskir komnir með
fingurgómana á HM-styttuna.
í úrslitaleiknum léku þeir eins og
sannir englar og vélmennin í vestur-
þýska liðinu áttu sér aldrei viðreisnar
von. ítalska knattspymulandsliðið mun
vafalítið verða lengi á vömm knatt-
Það besta, lengsta,
versta, reiðasta...f HM
Fallegasta sjálfsmarkið í HM er
mark Tékkans Larmos i leiknum gegn
Englandi kallað. Við skulum nú halda
áfram þulunni og taka fyrir nokkur fleiri
athyglisverð og skemmtileg atvik i HM:
Yngsti leikmaðurinn
■ Norður-írinn Normann Whiteside
var yngsti leikmaðurinn i HM að þessu
sinni, aðeins 17 ára gamall. Markvörður
liðsins, Jennings, er á sama aldri og
pabbi stráks.
Reiðasti þulurinn
■ Heinz Florian Oertel frá austuríska
sjónvarpinu varð svo reiður á leik
Austurrikis og V-Þýskalands að hann
sagði í beinni útsendingu: „Ég neita því
að taka þennan „farsa“ alvarlega og lýsi
þvi ekki meir.“ Hann þagnaði og sagði
aðeins nokkmm sinnum hve mikið væri
eftir af leiknum.
Spiiaði styst
■ Sovétmaðurinn Rodjanov lék að-
eins í eina sekúndu i HM. Hann var vart
kominn inn á leikvöllinn í leiknum gegn
Belgiu er dómarinn flautaði til leiksloka.
Verstu móttökumar
■ Hörð gagnrýni dundi á austurrisku
landsliðsmönnunum er þeir komu heim
eftir HM.
Föstustu skotin
■ Brasiliumaðurinn Eder er sagður
þruma boltanum fastar en aðrir i HM.
Þegar skotharka kappans var mæld kom
í ljós, að boltinn náði 175 km. hraða á
klst. Þá skaðar ekki að geta þess, að
Eder var útnefndur „mesti hjartaknúsar-
inn.“ Ekki meira um það.
Mesta hneykslið
■ Aðaisjeikinn í Kúvæt, Fahd Al-Ah-
mad Al-Jaber Al-Sabah, var aðalmaður-
inn i mesta hneykslismálinu i HM þegar
hann ruddist inn á völlinn i leik Kúvæt
og Frakklands. Sjeikur beinlinis stöðv-
aði leikinn og það sem meira er, komst
upp með það.
Mestu vonbrigðin
■ Knattspymuáhugamenn um allan
heim urðu fyrir miklum vonbrigðum
með frammistöðu Argentínumannsins
Maradona i HM. Hann sýndi lítið af
sínum umtöluðu snilldartöktum og
kórónaði siðan allt saman með þvi að
vera rekinn af leikvelli.
Helstu portkonurnar
■ Nei, nei nú erum við hættir og
segjum amen eftir efninu.
IngH
„Sárustu vonbrigðin“ getum við kallað þessa mynd af Uli Stielike eftir að hann hafði klúðrað vitaspymu gegn Frökkum.
spymuáhugamanna um allan heim eftir
þennan glæsilega sigur. Þeir sönnuðu að
þeir em bestir í dag, lögðu að velli öll
sterkustu liðin með glæsibrag.
Það er víst best að taka undir með
einum áhangenda ítalska landsliðsins,
sem öskraði áður en hann stakk sér til
sunds í gosbrunninum á Piazza del
Popola torginu í Róm: Ítaaaaaaaliiia.
' EM/IngH
Skúrkalið
HIVI 1982
■ Nokkrir blaðamenn danskir gerðu
sér það til dundurs að velja leikmenn í
lið sem þeir kölluðu „Skúrkalið HM“.
Eftirtaldir kappar fá þann vafasama
heiður að vera í liðinu: Markvörður:
Schumacher, V-Þýskalandi. Varnar-
menn: Cezero, Brasiliu, Passarella,
Argentínu, Barmos, Tékkóslóvakiu, og
hinn elskulegi Gentile, Ítalíu. Miðvallar-
leikmenn: Larios, Frakklandi, Cubilas,
Perú og Maradona, Argentínu. Fram-
linumenn: Schachner, Austurríki, Sergi-
hno, Brasiliu og Czazzely, Chile.
Sannkallað stólpalið.
Þá em gefnar upp ástæður þess að
liðið er þannig skipað. Hér eru nokkur
dæmi: Schumacher fyrir að rota Frans-
manninn Battiston og segjast síðan ætla
að borga brotnu tennumar, hafi Batti
ekki efni á því.. Larios fyrir að kokkála
Platini... Passarella fyrir að reyna að
gera Zico fatlaðan.. Gentile fyrfir brosið
undurblíða er hann hafði þmmað niður
mótherjana. -IngH
Junior vill
„mini HM”
■ Hinn snjalli bakvörður iiðs Brasiliu-
manna, Junior, hefur mælst til þess að
innan tveggja ára verði haldin eins konar
„mini-HM“ i Brasiliu, þar sem keppi
allar bestu þjóðimar á HM hér á Spáni.
Haft hefur verið eftir Junior, að i slíkri
keppni myndu Brasilíumenn fá gott
tækifæri til þess að sýna knattspymu-
heiminum fram á hvaða þjóð hefur besta
landsliðinu á að skipa. EM/IngH.
Hasta la vista
Erik Mogensen
■ Fjölmargir knattspyrnuáhugamenn
hafa beðið undirritaðan að koma á
framfæri opinberlega þökkum til frétta-
ritara (-snáps,-starfsmanns, þið vitið)
okkar á HM á Spáni, Eriks Mogensen,
fyrir liflegar fréttasendingar. við hér á
Timanum tökum undir kveðjumar og
segjum: Hasta la vista, Erik Mogensen.
IngH
Dean Crouser, kastarinn efnilegi.
Valsmenn vilja
fá Tim Dwyer
M Talsverður áhugi er á þvi meðal
körfuknattleiksmanna i Val, að ráða
Bandarikjamanninn Tim Dwyer sem
þjálfara næsta vetur, en Dwyer náði
frábærum árangri með Valsmennina,
gerði þá m.a. að íslands- og Bikar-
meisturum á sama árinu. —
Eftir að Dwyer fór frá Val dvaldist
hann i Frakklandi, og lék þar og
þjálfaði. Þegar Frakkar breyttu regl-
um varðandi útlendinga i körfuboltan-
um (aðeins einn leikmaður leyfilegur
hjá hverju félagi i stað tveggja áður)
varð Dwyer að taka pakkann sinn og
halda vestur um haL - IngH.
Pertini gaf
Bearzot
pípu sfna
■ Sandro Pcrtini, forsætisráðherra
ítaliu, vakti mikla athygli á meðan á
úrslitaleik ítala og V-Þjóðverja í HM
stóð og gat karlinn vart hamið sig fyrir
kæti. Hann néri saman höndum og
réri fram i gráðið i hve,rt sem sem
italska liðið skoraði. Þegar leikmenn
og þjálfaii ítalska liðsins komu að
heilsa uppá karl í heiðursstúkunni að
leikslokum þreif Pertini upp pipu sina
og rétti Bearzot með þeim orðum að
pipuna skyldi hann eiga. Vakti þessi
óvænta uppákoma mikla athygli
þeirra er með fylgdust. EM/IngH
Það var oft barist hart um knöttinn i leiknum i gærkvöldi. Hér er KR-ingurinn Óskar Ingimundarson að kljást við einn
ísfirðinginn.
Mynd: Ari.
Jafntefli í
fjörugum leik
KR og ÍBÍ
■ KR og ÍBÍ skildu jöfn á Laugardals-
vellinum i gærkvöldi eftir nokkuð
fjörlegan leik, 2-2. Vestanmenn voru
fyrri til að skora í bæði skiptin, en
KR-ingamir sóttu á brattann og jöfnuðu
jafnharðan. Sanngjöra úrslit, þó að
Vesturbæjarliðið hafi haft undirtökin
lengstum, einkum i seinni hálfleiknum.
KR-ingar áttu tvö fyrstu færin í
leiknum, Willum og Guðjón áttu báðir
skot á ÍBÍ-markið, sem ekki rötuðu rétta
leið. í sinu fyrsta færi i leiknum skoruðu
ísfirðingarnir. Á 30. mín. hamraði
Gunnar Pétur Pétursson boltann í mark
KR-inga eftir nokkuð hark i vítateign-
um, 1-0. En Vesturbæingamir voru ekki
seinir að taka við sér og aðeins 2 mín.
seinna voru þeir búnir að jafna metin.
Eftir laglega sókn barst boltinn út á
kantinn til Hálfdáns, sem lék í átt
aðÍBÍ-markinuog lyfti boltanum snyrti-
lega til Snæbjarnar. Hann var ekkert að
tvinóna við hlutina og skoraði með
föstu skoti viðstöðulausu, 1-1. Á siðustu
minútu hálfleiksins náðu vestanmenn
síðan forystunni á ný. Gústaf Baldvins-
son potaði i markið af stuttu færi eftir
aukaspymu, 2-1.
Hólmbert þjálfari Friðjónsson hafði
greinilega messað hressilega yfir KR-lið-
inu í hálfleik, þvi strax frá fyrstu mín.
Staðan
Staðan i 1. deildinni að afloknum leik
KR og ÍBÍ í gærkvöldi er þessi:
Vikingur ..........9
Vestmannaeyjar . . 9
KR................10
Breiðablik.......10
Valur.............10
Fram ..............9
Akranes...........10
Keflavik...........9
KA................10
ísafjörður .... 10
Einn leikur er ■ kvöld á Laugardals-
velli. Valur og ÍA mætast og hefst
viðureignin kl. 20.
4 4 1 14-10 12
5 1 3 12-9 11
2 7.1 1-6 11
13-14 10
8-10 10
11-9 9
10-10
6-8
8-11
13-15
vom undirtökin þeirra. Jöfnunarmarkið
lét ekkiásér standa. Hornspyma á 62.
min. Boltinn yfir markið, Jósteinn
skallaði á fjærstöngina, þar sem Ágúst
kastaði sér fram og skallaði í netið 2-2 .
Eftir jöfnunarmarkið færðist mikið fjör
í leikinn og bæði lið fengu sannkölluð
dauðafæri. Fyrst skaut Gústaf framhjá
KR-markinu og í sömu sókninni gerði
Gunnar Pétur það einnig. Hinum megin
komst Hálfdán innfyrir vörn ÍBÍ, en
skaut rétt framhjá stöng (með hægri
fæti, úff). KR-ingarnir vom meira með
boltann, en fsfirðingamir sáu um að
klúðra síðasta marktækifærinu í leikn-
um er þremur þeirra tókst ekki að ná til
knattarins eftir aukaspyrnu.
ísafjarðarliðið barðist vel í þessum
leik og uppskar eitt stig. Jón Oddsson
var sprækur i framlinunni og í vörninni
vann Gunnar Guðmundsson flest návígi.
Hjá KR voru ungu strákamir.Snæbjörn
og Magnús, friskir. Nettir leikmenn
báðir tveir.
-IngH.
Reykjavíkur-
ieikarnir
í frjálsum:
Sterkir
■ Fjórir sovéskir frjálsiþróttamenn
i verða meðal keppenda á Reykjavík-
urleikunum i frjálsíþróttum, sem
haldnir verða á Laugardalsvellinum
17. og 18. júli. Alll eru það mjög
' frambærilegir íþróttamenn og koma
þeir til með að setja svip sinn á
mótið. íslenska frjálsiþróttafólkið
fær þaraa verðuga andstæðinga við
að glima.
Sovésku keppendumir eru:
Sergey Gavyushin, sem varpað
hefur 20,40 í kúluvarpi,
Nikolai Sidorov, sem hleypur 100
á 10,38 sek og 200 á 21,14 sek,
Irina Podyalovskya, sem hleypur
800 á 2:00,2 og er góð í 400 m,
Lyudmila Belova, sem á 52,10 í
400 m og er einnig góð í 200 m.
Af þessu má sjá, að Gavryushin
kemur til með að veita Óskari
Jakobssyni og Dean Crouser harða
keppni i kúluvarpinu. Óskar hefur
varpað 20,61 í ár, Crouser 21,07, en
hann varð bandarískur háskóla-
meistari í greininni í vor, og einnig
keppir sænski frjálsíþróttakappinn
Ricky Bruch i kúluvarpinu, en hann
hefur varpað 20,18 metra, svo
keppnin ætti að geta orðið skemmti-
leg í kúluvarpinu á Reykjavíkurleik-
unum.
Sidorov er sterkur, en búast má
við að Oddur Sigurðsson, sem er
mikill keppnismaður, veiti honum
harða keppni, einnig Austurrikis-
maðurinn Roland Jokl, úrslitamaður
i spretthlaupum á Evrópumeistara-
móti unglinga í fyrra, sem hlaupið
hefur 100 á 10,56 sek., og 200 á 21,15
sek í ár.
Jón Dikk
ætlar
að setja
met
■ Jón Diðriksson hlaupari úr
UMSB keppir í 1500 og 5000 metra
hlaupum á Reykjavikurleikunum í
frjálsíþróttum 17. og 18. júli og
reynir hann við íslandsmet í siðar-
nefndu greininni.
íslandsmetið í 5 km hlaupi á Sigfús
Jónsson ÍR, 14:26,2, sett 1975, en
Jón hljóp á 14:39,6 við slæmar
aðstæður á Akureyri i fyrra.
Jón hefur æft vel í vetur og sumar
og hlaupið betur en nokkru sinni fyrr
í keppnum. Á hann góða möguleika
á að setja met í 5 km., en þá munar
mikið um stuðning og hvatningu frá
áhorfendum, rétt eins og þegar
Bretinn Moorcroft setti heimsmet i
greininni á dögunum, hann sagði
góðan stuðning áhorfenda hafa
jafngilt sekúndu á hverjum hring, en
það er einmitt munurinn á meti
Sigfúsar og árangri Jóns á Akureyri,
að jafnaði sekúnda á hring.