Tíminn - 16.07.1982, Blaðsíða 1
ingar, seinni hluti - bls. 8-9
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Föstudagur 16. júlí 1982
159. tbl. - 66. árgangur.
Síðumúla 15-Pósthólf370Reykjavik-Ritstjórn86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla
Erlent yfirlit:
mm
Afvopnun-
arþingiö
.7
Dallas
stjömur
— bls. 2
Ólga vegna
reyks og óþefs
frá porti
Sindra-Stáls
í Sundahöfn:
„Þessar
íkveikjur
stórhættu-
legar”
■ fbúar í nágrenni Sundahafnar hafa
ítrekað kallað út slökkviliðið í Reykja-
vik vegna mikils reyks og óþefs sem lagt
hefur frá porti Sindra-Stáls i Sundahöfn
að undanförnu. Reykinn og óþefinn,
leggur frá bílhræjum sem allt lauslegt er
brennt úr áður en þau eru sett í
brotajárn. Að sögn Hjalta Benedikts-
sonar, aðalvarðstjóra hjá slökkvi-
liðinu, hefur sérstaklega rammt kveðíð
að þessum íkveikjum að undanförnu.
Sagði hann að þær væru að verða
vandræðamál.
„Við höfum itrekað farið þess á leit
við forráðamenn Sindra-Stáls að þessum
íkveikjum verði hætt. Peir gera þetta í
óleyfi, því það er algjörlega bannað að
kveikja í með þessu móti innan
borgarmarkanna," sagði Rúnar Bjarna-
son, slökkviliðsstjóri, i samtali við
Tímann í gær. „Fyrir utan það að vera
til mikilla óþæginda fyrir fólkið i
grenndinni geta þessar íkveikjur verið
stórhættulegar," sagði Rúnar.
Loks sagði Rúnar að þetta væri
lögreglumál og að hann skildi ekkert i
þvi hvað'lögreglan í Reykjavík gerði
lítið til að stöðva þetta.
Magnús Einarsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn i Reykjavík, sagði í
samtali við Tímann i gær, að mál þetta
væri í könnun hjá lögreglunni.
-Sjó.
Garpur
án strlds
— bls. 19
Dagur
í Iffi
- bls. 12
. - •;
■I
■ Hliðargarðshátíð var haldin i HUðargarði i Kópavogi í gær, en þetta er útiskemmtun sem Vinnuskóli Kópavogs stendur
fyrir, nú annað árið i röð. Meðal skemmtiatriða var koddaslagur sem háður var í gosbrunninum, og voru oft mikil tilþrif
i slagnum.
Timamynd: Ari
Menntamálaráöherra um hugsanlegt eignarnám á Keldnalandi:
DÓMSTÓLARNIR SKERI
ÚR UM RÉTTMÆÍI ÞESS
„Kemur ekki
af landi sínu
; ■ „Það kemur ekki til greina að
Keldur geti látið svo mikið af landi
sinu sem stjómendur borgarinnar
ætlast til. Ætli Reykjavíkurborg að
taka Keldnaland með eignamámi, þá
verður naumast hjá þvi komist að láta
dómstóla skera úr um, hvort það er
réttmæt aðgerð, sagði Ingvar Gislason,
menntamálaráðherra, er Tíminn bar
undir hann eignamámshugmyndir
nýja borgarstjómarmeirihlutans á yfir
100 hekturum af landi Tilrauna-
stöðvarinnar á Keldum.
„Ég vildi leysa þetta mál með
til greina að Keldur geti látið svo mikið
sem stjórnendur borgarinnar ætlast til”
samkomulagi á þeim grundvelli að
áætlað yrði hvað Keldur og Háskólinn
þyrftu þarna mikið land miðað við
eðlilega þróun næstu áratugina og að
síðan yrði samið um að borgin fengi
það sem umfram væri til lóðaúthlut-
ana. En vitanlega vill Menntamála-
ráðuneytið hafa í sínum höndum
hvaða þróunarmöguleikar stöðinni
verða búnir, en ekki láta Reykja-
víkurborg ákveða það. Slíkt
kemur ekki til greina. Staðurinn er
mjög hagkvæmur fyrir Tilrauna-
stöðina, bæði vegna landrýmis og
nálægðar við Háskólann. Einnig er
reiknað með að fleiri Háskólastofn-
anir geti þróast á þessu svæði,“ sagði
Ingvar.
- Er eignarnámsheimildin þá vafa-
söm?
„Fljótt á litið hefur borgin heimild
til að taka land eignamámi. Hins vegar
teljum við að það kunni að bresta
algerlega lagaheimild til að taka
Keldnaland ef á reynir. Við eignarnám
verður almannaheill að vera fyrir
hendi. En við viljum efast um að hægt
sé að halda því fram að það sé ótviræð
almannaheill að taka Keldnaland
undir íbúðabyggð. Það þurfi líka að
líta á hagsmuni stofnunarinnar, Há-
skólans og fleira."
Varðandi tal bæjarfulltrúa um að
flytja stöðina sagði Ingvar að þeir
verði þá lika að geta sagt hvert á að
flytja hana og í öðru lagi hvað slíkt
kostar. En áætlað hefur verið að það
væri vart undir 100 millj. kr. á
núgildandi verðlagi.
-HEI