Tíminn - 20.07.1982, Side 4

Tíminn - 20.07.1982, Side 4
4 HAGKAUP Bændur-verktakar 14 M. LYFTIHÆÐ Tgk að mér málun, múrþéttingar og fleira. ^ Viðgerðir % Súrheysturnar Geri tilboð í stór og smáverk. Útvega allt efni.Áralöng reynsla. KJARTAN HALLDORSSON Upplýsingar í síma 99-3934 og á kvöldin 99-3863 Samdrátturinn hjá Cargolux vegna vafasamra flutninga m.a. við vopn? „ER KIAFTÆÐIFRA UPPHAFITIL ENDA” — segir Einar Ólafsson forstjóri fyrirtækisins, sem á- kveðið hefur að segja upp þriðjungi starfsmanna sinna ■ „Eg er vongóður,“ svaraði Einar Ólafsson forstjóri Cargolux, spumingu Tímans um hvort hann væri bjartsýnn á að fyrirtækið vinni sig upp úr þeirri lægð, sem það er nú i. Cargolux hefur ákveðið að segja upp þriðjungi starfsmanna sinna, um 150 manns, vegna erfiðleika í rekstrinum. Mestur verður niðurskurðurinn í við- haldsdeild, en þar vinna margir íslend- ingar. „í>egar erfiðleikar steðja að, eins og nú hjá okkur, er spurning um að setjast niður og gera þennan leiðinda skurð, sem gera þarf,“ bætti Einar við. „Ég held að það sé einróma álit manna að það sé ekki annarra kosta völ en það hlýtur að vera einstaklingsbundið hvað mikil skilningur er meðal starfsmanna á þessari aðgerð.“ Einar sagði að ekki væri enn búið að gefa neitt út um það eftir hvaða reglum verði farið við uppsagnirnar, enda væri erfitt að fara eftir ákveðnum reglum, þar sem samdrátturinn væri mestur i ákveðnum deildum. Hann sagði að t.d. væri útilokað að fara eftir starfsaldri i þessu tilviki. Einar staðfesti að all margir íslendingar muni verða fyrir niðurskurðinum og missa störf sin. „Það mun liggja fyrir innan örfárra daga hverjir fá uppsagnarbréf," sagði Einar. Spurningu um hvort stjómvöld í Luxemburg muni veita Cargolux aðstoð i einhverju formi, svaraði Einar á þá leið að það hefði hvorki verið boðið né eftir því leitað, formlega. Þvi væri það með öllu óljóst. „Við höfum ekki náð í þá samninga, sem við vorum að eltast við,“ sagði Einar, og höfum ekki von um að ná í utanaðkomandi vinnu fyrir megnið af okkar viðhaldsdeild. Þess vegna verðum við að gera þetta." í samtalinu kom fram að viðhalds- deildin hefði ekki misst nein verkefni, siðan í fyrra, þegar Bandaríkjastjórn setti okkur stólinn fyrir dyrnar vegna Lybiumannanna, sem við vorum að vinna fyrir. En framan af vori hafði gengið vel hjá deildinni, meðal verkefna var klössun á átta Fokker-vélum fyrir spánskt flugfélag. - Hvað veldur samdrættinum i ykkar flugrekstri? „Samkeppni og umframboð af flugvél- um. Og þegar umframboð er, eru alltaf undirboð. Ákveðnir aðilar verða að fljúga, og þá er ekki spurt um hvað þeir geta fengið á æskilegu verði, heldur ■ Einar Ólafsson hvað þeir geta fengið á einhverju verði. “ - Er fyrirtækið i hættu, vegna þessa ástands? „Þvi verður ekki neitað að það hefur syrt hjá okkur og þegar illa gengur lengi verður hvert fyrirtæki i hættu. Við höfum misst all verulega úr okkar aski. Mín persónulega skoðun er sú að við höfum ekkert misst úr okkar aski fyrir vopnabrölt islenskra dagblaða um Cargolux. Það hafði ekkert með það að gera, vegna þess að við vorum búnir að skera niður okkar flug til Hong Kong, löngu áður en það kom til. Að við séum að fara á hausinn af vafasömum flutningum, er kjaftæði frá upphafi til enda. Við höfðum fimm ferðir í viku til Hong Kong í fyrra. í janúar voru þær skornar niður í fjórar, í febrúar i þrjár og í april i tvær. Þetta mál út af Falklandseyjum byrjaði ekki fyrr en í maí og þá vorum við komnir niður í tvær ferðir og erum enn með þær. Það sem veldur er að stofnað var til áætlunarflugs milli Hong Kong og Evrópu, af aðilum sem fljúga undir fána Hong Kong i samvinnu við Lufthansa. Þeim óx mjög fljótt fiskur um hrygg og eru nú komnir með fjórar ferðir i viku með 747 vélum til Frankfurt og London. Við höfum ekki getað fengið okkar flutninga á þessari leið staðfesta með milliríkjasamningum, vegna ýmissa ann- marka, m.a. af því að Luxemburg er lítið land og gengur illa að ná milliríkjasamningum," sagði Einar Ólafsson og bætti svo við: „Við erum að sinna verkefnum innan Efnahagsbanda- lagsins, það þýðir ekkert að þræta fyrir það, því það er satt. En Luxemburg getur ekki krafist milliríkjasamninga og lendingarleyfa fyrir sitt flugfélag, byggt á því.“ SV Gullskipsgröfturinn: „Ljóst að eitthvað er þarna undir,” segir Einar Halldórsson, hjá Björgun hf. ■ „Við fregnuðum i morgun að mælitækin gæfu skýrari svör eftir þvi sem dýpra er grafið. Þvi virðist ljóst að eitthvað er þarna undir, hvort sem það er gullskipið sem leitað er að eða eitthvað annað,“ sagði Einar Halldórs- son, hjá Björgun h/f þegar Tíminn innti hann frétta af gullskipinu, sem grafið er eftir á Skeiðarársandi, i gær. Einar sagði, að nú væri búið að gera við kranann sem notaður er við gröftinn. Væri þvi unnið á fullu við að grafa allan sólarhringinn. - Sjó Þrjú innbrot um helgina ■ Þrjúinnbrotvorukærðtilrannsókn- arlögreglu ríkisins um og eftir helgina. Farið var í verslunina G. Ólafsson og Sandholt við Laugaveg 36. Þar var stolið um fimm þúsund krónum. Innbrotsþjófar voru á ferð í tannlækna- stofu við Laugaveg 74. Eitthvað var rótað til á stofunni en ekki er vitað til að nokkru hafi verið stolið. Loks var brotist inn hjá ísól, umboðs og heildverslun við Skipholt. Talsvert var skemmt. En engu stolið svo vitað sé. - Sjó Skotglað- ir vamar- liðsmenn ■ Lögreglan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði tvo varnarliðsmenn við skot- æfingar nálægt oliutönkunum við Ytri Njarðvik. Það var um klukkan 21 á laugardags- kvöldið að ibúar i Ytri Njarðvik létu lögregluna vita um tiða skothveili sem bárust frá stað nálægt oliutönkunum. Þegar lögreglan kom á vettvang voru þar tveir landgönguliðar að æfa sig að •skjótapúðurskotum. Gerði lögreglan þeim grein fyrir þvi, að skotæfingar væru bannaðar nema á vissum af- mörkuðum svæðum innan vamarliðs- girðingarinnar. Sögðust þeir þá hafa fyrirmæli frá yfirmönnum sinum um að stunda skotæfingar á þessum stað. Hættu þeir þó þegar að skjóta og var þeim sleppt. - Sjó. Hreindýra- kvótinn ákveðinn ■ Ákveðið hefur verið að leyfa veiði á 805 hreindýrum i ár, og er veiðitimabilið frá 1. ágúst til 20. september. Miðað er við að stofninn sé rúmlega þrjú þúsund dýr, eða svipað og í fyrra, enda virðist svo vera, samkvæmt áriegri talningu, sem þegar hefur verið gerð. Í fyrra veiddust 505 dýr af 655, sem heimiiað var að veiða. í allt á 31 sveitarfélag veiðirétt, mismunandi stóran, eða frá fjórum dýrum til 75, hvert. Hreindýraeftirlitamaður hvers sveit- arfélags annast veiðarnar. Meirihluti tækninefnd- ar hvalveidi ráðsins med algjöru banni ■ „Störfm hér ganga mjög hægt fyrir sig,“ sagði Kjartan Júlíusson einn fulltrúa íslands á Alþjóða hvaiveiði- ráðstefnunni í Brighton á Englandi í viðtali við Tímann, síðdegis í gær. Kjartan sagði að nú væri verið að ræða stjórnunarreglur um framkvæmd veiðanna. Samt sem áður cru það umræður um bann við hvalveiðum, sem mestar umræður verða um. Fyrir þinginu liggur tillaga um hvalveiði- bann frá Seychelleyjum og hafa orðið miklar umræður um hana, en engin atkvæðagreiðsla um efnisatriði hennar hefur enn farið fram. Umræðum um tillöguna var svo frestað, en hún verður til umræðu aftur síðar á þinginu. Innan tækninefndar þingsins mun vera yfirgnæfandi meirihluti fyrir algjöru banni, frá og með árinu 1985. Bandaríkjamenn eru meðal þeirra þjóða, sem þvi eru fylgjandi, en Japanir halda uppi harðri baráttu gegn þvi. Úrslitin ráðast í atkvæðagreiðslu i sjálfu ráðinu og þarf 2/3 hluta atkvæða til að tillagan nái fram að ganga. SV

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.