Tíminn - 20.07.1982, Side 13
17
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1982.
1 f réttaf rásögn
niK í-r-wmrwtt ■ &
fjilS
■ Koddaslagurinn byrjaði með einvigi á milli tveggja flokka Vinnuskólans, en á eftir var gestum boðið að reyna sig í slagnum.
starfa við viðhald skrúðgarða og opinna
svæða.
Forstöðumenn Vinnuskólans, þeir
Einar Bollason, Kristján Ingi Gunnars-
son garðyrkjustjóri, Helgi Helgason
yfirflokksstjóri og Marteinn Sigurgeirs-
son yfirmaður félagsmála skólans fóru
síðan með blaðamenn í kynnisferð um
Kópavogsbæ, og það má með sanni
segja að það eru vandfundin opin svæði
þar sem Vinnuskólinn hefur ekki komið
eitthvað við sögu. Fað voru fáir
vinnuflokkar að störfum þennan daginn
þar sem allir voru að undirbúa hátið
Vinnuskólans sem halda átti siðdegis i
skrúðgarði Kópavogsbúa, Hlíðargarðin-
um. Hátið þessi nefnist Hlíðargarðs-
hátíð, og er þetta annað árið i röð sem
hún er haldin.
A ferð okkar um bæinn var ýmislegt
að sjá og skoða>.. Við hjúkrunarheimili
aldraðrasemnýbúið er að taka i notkun
er Vinnuskólinn að ganga frá lóðinni, en
auk þess hefur skólinn stutt byggingu
heimilisins að ýmsu leyti, til dæmis rann
allur ágóði af Hliðargarðshátíðinni i
fyrra til hjúkrunarheimilisins, og svo er
einnig í ár. „Við erum örugglega allir
búnir að tryggja okkur pláss hér á
heimilinu" sagði Helgi, og það á við um
fleiri Kópavogsbúa.
Frá hjúkrunarheimilinu ókum við að
Digranestúni, en þar er skólinn að vinna
við einn lengsta göngustíg sem gerður
hefur verið á landinu að sögn þeirra
félaga, og á leiðinni ókum við yfir
hraðahindrun á Digranesvegi, þar sem
einhver hafði málað „Hvaða heili fann
þetta upp?“. En göngustígurinn sem
minnst var á áðan liggur frá Digranes-
skóla alla leið að Engihjallablokkunum,
á annað kílómetra langur. Eitt stærsta
verkefni sem skólinn hefur haft er aftur
á móti frágangur stórra svæða í eigu
Kópavogs við Breiðholtsbraut, en þar
hafa unglingarnir verið að slétta, sá og
tyrfa, auk þess sem nauðsynlegt var að
girða svæðin af þar sem óprúttnir
ökumenn voru stöðugt að aka þarna yfir
utan vega. Krakkarnir sem voru að
vinna þarna höfðu reyndar lagt til, að
sögn Kristjáns Inga, að svæðið yrði ekki
girt, heldur yrðu hálfniðurgrafnar
naglaspýtur látnar afmarka svæðið!
Að lokinni hringferð okkar um bæinn
komum við á Hliðargarðshátíðina sem
þegar var komin i fullan gang. í
„tívolíinu" hittum við Þuríði Baldurs-
dóttur sem var að vinna við pilukastið.
„Ég er búin að vera að vinna hér við
undirbúninginn i þrjá daga, við stelpurn-
ar löguðum til i beðunum, sópuðum og
máluðum, en strákarnir smiðuðu borðin
og annað sem þurfti“ sagði Þuríður.
Þetta var fyrsta sumarið sem hún var í
unglingavinnunni og hún var ekki viss
um hvort hún myndi vera þarna áfram.
„En það er alveg öruggt að ég fer ekki
í neina innivinnu“ sagði hún. „Það er
svo miklu skemmtilegra að vinna úti á
sumrin“. í flokki Þuríðar vorti bara
stelpur, og sagði hún að yfirleitt væri
kynskipt í flokka þótt verkefnin væru
þau sömu, nema i yngri flokkunum, þar
væri blandað strákar og stelpur. Hún var
alls ekkert óánægð með það að vinna
bara með stelpum. „Ég held það skipti
engu máli hvort maður vinnur með
strákum eða stelpum." sagði Þuriður.
Þær Ólöf Guðmundsdóttir, Ólöf
Sigurðardóttir og Hrönn voru að
afgreiða i sjoppu á svæðinu, og höfðu
mikið að gera við afgreiðsluna en gáfu
sér samt tima í stutt spjall. Hrönn var
þarna sitt þriðja sumar í Vinnuskólan-
um, og fannst henni ágætt að vinna þar
þegar veðrið væri gott. „Annars vildi ég
frekar vera í einhverri annarri vinnu sem
væri betur borguð, t.d. sendill. En það
er næstum ómögulegt að fá vinnu á
almennum vinnumarkaði nema i gegn-
um klíku".
Vinnuflokkur Hrannar hefur verið að
vinna á ýmsum stöðum í bænum við að
tyrfa og raka, planta blómum „og
svoleiðis".
Ólöf Sigurðardóttir hefur hinsvegar
unnið í allt sumar i Rútstúni við að
snyrta beð, raka gangstíga og annað i
sambandi við snyrtingur garðsins. Hún
sagðist frekar vilja vera i einhverri
annarri vinnu, hún vissi nú ekki hvaða
vinna það ætti að vera, „bara einhver
vinna“ sagði hún. Ólöf hafði verið eitt
sumar áður í Vinnuskólanum, og sagðist
ekki vilja alltaf vera í því sama, hana
langaði að breyta eitthvað til. Og þar
með voru þær stöllur komnar á kaf í
afgreiðslustörfin og við héldum áfram
rölti okkar um garðinn.
Á meðal skemmtiatriða var tívolíið
fyrrnefnda, koddaslagur í gosbrunnin-
um, fimleikasýning Gerplu og hljóm-
sveitin Sjálfsfróun, en mest áhersla var
lögð á að bæjarbúar skemmtu sér sjálfir.
-SVJ
Sveitavinna
16 ára stúlka óskar
eftir vinnu á sveita-
heimili sem fyrst.
Vön sveitavinnu.
Upplýsingar í síma
99-1591.
Nú eru engin
vandræði . ..
. . . með bílastæði, því við
erum fluttir í nýtt húsnæði
að Smiðjuvegi 3, Kópavogi.
Sími: 45000 — Beinn sími
til verkstjóra: 45314
PRENTSMIÐJAN
ddddo
la hf.
4 - HJÓLA BAGGAVAGNAR
£
SIMI 8150Q-ÁRMÚLA11
2ja hásinga baggavagnar með rennu.
Losun auðveld - hliðar opnanlegar.
Rúma allt að 210 bagga - 25 rúmmetra.
Verð aðeins kr. 29.950.- - Greiðsluskilmálar.