Tíminn - 27.07.1982, Síða 1

Tíminn - 27.07.1982, Síða 1
Allt um íþróttir helgarinnar — bls. 11, 12,13, og 14 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Þriðjudagur 27. júlí 1982 168. tbl. - 66. árgangur. Kvikmynda- hornid: Metað- sókn f Amerlku - bis. 23 Heimspeki í pylsu- vagni — bls. 9 tákn? — bls. 2 Sumar- ferð bls. 16-17 Heildarflakasala á Bandaríkjamarkaði hefur dregist saman um 19% á fyrstu sex mánuðum ársins: „UM 32% SAMDRÁTTUR í SÖLU ÞORSKFLAKA — aldrei meiri verðmunur á kanadfsku og íslensku flökunum ■ „Á fyrstu sex mánuðum þessa árs hefur heildarsala flaka dregist saman um 19% miðað við sama tima í fyrra en ef við lítum aðeins á þorskflaka- söluna þá hefur hún dregist saman um 32% en þess ber þá að gæta að samdráttur í þroskflakaframleiðslunni er 28%“ sagði Guðjón Ólafsson forstjóri Iceland Seafood í Banda- ríkjunum í samtali við Tímann en Islendingar eiga nú í harðnandi samkeppni við Kanadamenn í fisk- flakasölunni á Bandaríkjamarkaði. Guðjón sagði ennfremur að verð- munur á kanadískum og íslenskum þorskflökum hefði verið með almesta móti á þessu ári, 5 punda pakkningar íslenskar kosta nú í kringum 1.80 dollara en kanadískar eru á bilinu 1.20 - 1.40 dollara. Þá hafa Kanadamenn stöðugt unnið að því á undanförnum 2-3 árum að bæta gæði flaka sinna og er hluti þeirra nú allþokkalegur að gæðum en Guðjón taldi engan vafa á því að enn væru íslendingar með bestu flökin á Bandaríkjamarkaði. Hún er iUa farín flugvélin, TF RAF, eftir brotlendinguna við Múlakotsflugvöll í Fljótshh'ð á laugardagskvöldið. Feðgar sem í flugvélinni voru slösuðust í j brotlendingunni. Telja sjónarvottar það mestu mildi að ekki för enn ver. Ámi Guðmundsson, bóndi í Múlakoti, sýnir fréttamanni Tímans flakið. Tímamynd Róbert. Flugslys r Fljótshlíð: FUIGVEL EYÐILAGÐIST 0G FEÐGAR SLÖSUÐUST ■ „Ég átti von á flugvélinni hingað og var búinn að heyra í henni um stund þegar ég skyndilega heyrði mikinn skell. Flugvélin hrapaði, „sagði Ámi Guðmundsson, bóndi í Múlakoti í Fljótshlíð. Árni var nærstaddur þegar tveggja sæta flugvél úr Reykjavík, TF RAF, hrapaði skammt frá flugbrautinni við Múlakot í Fljótshlíð um klukkan 20 á laugardagskvöld. Feðgar voru í vél- inni, maður á fertugsaldri og sonur hans tólf ára. Faðirinn slasaðist mikið, fótbrotnaði á báðum og skarst mikið víða á líkamanum. Sonurinn slapp hins vegar mun betur en var þó töluvert slasaður. Voru þeir báðir fluttir flugleiðis á sjúkrahús í Reykjavík. Flugmaðurinn er einnig flugvirki og var hann á leið austur að Múlakoti til að gera þar við einkaflugvél Arnor O. Johnsen, stjórnarformanns Flugleiða h/f. Vél hans TF KOT var lítillega biluð. TF RAF er gömul herkennsluvél. í aðfluginu að Múlakotsflugvelli virðist hún hafa misst hæð með þeim afleiðingum að hún brotlenti í gömlum árfarvegi skammt frá flugvellinum. Sjónarvottar telja líklegt að það hafi viljað feðgunum til lífs aö jarðvegur- inn í árfarveginum er blautur og mjúkur þannig að höggið varð minna en ella. -Sjó.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.