Tíminn - 22.08.1982, Blaðsíða 19

Tíminn - 22.08.1982, Blaðsíða 19
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982 alniUTa; 19 bókamarkaði Gúnter Grass: The Tin Drum Penguin 1982 Bókin sem gerði Gunna gras heims- frægan þegar hún kom fyrst út árið 1959 og hefur síðan selst í voða stórum upplögum út um allan heim og verið þýdd á fjölda margar tungur, en ekki íslensku ennþá. Eins og flestum mun vera kunnugt gerði Volker Schlöndorf nýlega kvikmynd eftir bókinni sem taldist til tíðinda og fékk slatta af verðlaunum, það á ennþa éftir að sýna hana hér. Grass hóf feril sinn sem eins lags absúrdisti og þess má víða sjá merki hér. Söguhetjan er dvergmenni á geðsjúkrahúsi, þetta er ævisaga að formi og nær allt frá upprunanum í Danzig, spannar nasistatímann og eftir stríðsárin sem Fassbinder hefur annars fjallað um manna mest. Allan þennan tíma er tintromman nálæg, í fyrstu leikfang en síðar tákn ellegar vopn gegn blekkingar- veröld, vonsku og gleymsku umheims.. Tja. Það er athyglisvert að enskur gagnrýnandi lét hafa eftir sér að bókin væri sennilega hin besta sem kynslóð Grass væri fær um að skrifa. Hvað á það að þýða?? Kraftur þessarar bókar liggur í stílnum og uppbyggingu - við höfum fyrir satt að hún sé ágætlega þýdd. Colin Forbes: The Stockholm Syndicatc Pan 1981 Eru bækur, reyfarar, eftir Colin Forbes hættir að koma út á íslensku? Það væri nú agalegt! En þá geta aðdáendurnir náttúrulega kynnt sér þessa nýjustu bók hans í enskri pappírskilju. Hún fjallar um terrorista, sem að sjálfsögðu eru ekkert annað en einn hluti viðbjóðslegs samsæris sem upphaf og endi á í Moskvu, og um harðlynda menn með hjörtu úr gulli sem berjast gegn þessum ófögnuði. Glannalegar konur koma við sögu og það er stöku sinnum farið í rúmið. Allt hefur þetta sést ótal sinnum áður, ótal, ótal sinnum, en þetta er víst lesið meira og minna upp til agna. Vilja kallmenn sjá sjálfa sig í hlutverki góðu, töffaralegu hetjunnar sem bjargar varnarlausum konum og leggst með þeim, ægifögrum. Þeir um það. Og þessi bók er líklega ekkert verri en hver önnur. En frumleik- inn - maður lifandi, frumleikinn... iUI/miMÞ The Prehistory of theMediterranean D.H. Trump: The Prehistory of the Mediterranean Pelican / Penguin 1982 í eldgamla daga var Miðjarðarhafið nafli alheimsins, að minnsta kosti í okkar vitund. Þar risu og féllu menningarríkin hvert af öðru: Egyptaland, Föníkía, Krít, Hellas, Róm, Karþagó... Allt þekkjum við nokkuð vel. En hitt gleymist oft að áður en ritlistin var upp fundin og tekin var einnig fjölskrúðugt mannlíf og í sumum tilfellum menningar- líf við Miðjarðarhafið. Þessi bók dregur það fram í dagsljósið. Trump, sem er fornleifafræðingur menntaður frá Cam- bridge og sérfræðingur í Ítalíu og Möltu, rekur hér söguna frá upphafi og styðst við fornleifafundi fyrst og fremst. Bókin er náttúrulega stórfróðleg og hana prýðir fjöldi mynda, bæði teikninga, Ijósmynda, korta og skýringateikninga, en að vísu þyrftu menn helst að hafa nokkra innsýn í fornleifafræði sem fag til að njóta bókarinnar til fullnustu. Það spillir að minnsta kosti ekki fyrir, því Trump á stundum erfitt með að gleyma að hann er sérfræðingur en flestir lesendur ekki. En gerum ekki of mikið úr því, hér er á ferðinni fróðleg bók og einnig læsileg. Thc BiognipliyofEgyptS most bcautlful and famous ipiecn by thc bcstsellmg author of Ct'RSE OFTKE WIARUttiS Phillpp Vandenberg: Nefertiti Coronet 1982 Bók þessi ber undirtitilinn „An Archaeological Biography" og vill sýni- lega vera nokkuð traust fræðirit, auk þess að vera alþýðlegt sögubrot, söluhæft. En í heimildaskránni er meðal annars minnst á bók eftir Immanuel Velikovsky - er fornleifastimpillinn þá vaskaður af? Ekki endilega: Philipp Vandenberg, sem er ungur þýskur blaðamaður, hefur sýnilega viljað vinna verk sitt vel og nokkuð samviskusamlega, tekur oftast ekki meira upp í sig en hann getur staðið við. Og það er auðvitað minniháttar afrek að hafa getað smíðað ævisögu egypsku drottningarinnar Nefertiti úr þeim fátæklegu heimildum sem til eru - Nefertiti sem talin var fegurst kvenna í heimi og hélt meira eða minna um stjórnartaumana í Egyptalandi svo árum skipti, lét sér sjaldan bregða. Hún lifði í allsnægtum en dó utangarðsmaður og smáð, byggði heilaga borg sem síðan lagðist í eyði eftir dauða hennar og fannst ekki aftur fyrr en á þessari öld. Drottning, móðir, heimspekingur og kona - allt þetta var Nefertiti. En hvað með Kleópötru? ■ Bækumar hér að ofan era fengnar hjá Bókabúð Máls og menningar. Teldð skal fram að hér er um kynningar að ræða en öngva ritdóma. Lausar stöður Tvær stöður lögregluvarðstjóra í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu eru lausar til umsóknar. 1. Með aðsetur í Stykkishólmi. 2. Með aðsetur í Grundarfirði. Umsóknarfrestur er til 10. sept. 1982. Sýslumaður Snæfellsnes- og Hnappadals- sýslu. Snjóruðningstæki: Framleiðum snjóruðnings- tennur fyrir vörubíla og dráttarvélar. Pantanir þurfa að berast sem fyrst svo hægt verði að afgreiða þær fyrri part vetrar ItálIækni sf. Síðumúla 27, sími 30662 '*>■*«£ Ntl° AUÐVITAÐ GETUR BANG & OLUFSEN FRAMLEITT HLJÓMTÆKI EINS OG ALLIR HINIR — EN ÞÁ HEFÐIR ÞÚ EKKI ÞENNAN GLÆSILEGA VAL- KOST, BEOSYSTEM 2400 Við erum rígmontin að geta boðið þessi glæsilegu hljómtæki, sem eru einstök á fleiri en einn hátt. Útlitið er augnayndi, en bættu við háþróaðri tækni sem tryggir afburða hljómgæði og ofan á það svo fjarstýringu sem gerir þér kleift að stýra og stilla tækið þannig, að þú njótir hljómlistarinnar sem best. Komdu, sjáðu, hlustaðu, og okkur er ánægja að sýna þér tækin. Bang&Olufeen VERSLIÐ í SÉRVERSLUN MEÐ LITASJÓNVÖRP OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SlMI 29800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.