Tíminn - 22.08.1982, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
■ Edinburgh tók þátt í að verja skipalestimar til Möltu sem urðu tyrir gífuriegum árásum Þjóðverja og ítala. Edinburgh
slapp betur en mörg skip önnur. Hér er létta beitiskipið Penelope eftir milda árás úr lofti.
sigldi norður eftir á mikilli ferð en áður
en það gæti komist nærri Bismarck
töpuðu Bretar sjónar á þýska skipinu og
örvæntingarfull leit hófst. Tovey skipaði
svo fyrir að orrustuskipin Rodney og
Ramiíles og beitiskipin Dorsetshire og
Edinburgh skyldu gæta siglingaleiðar-
innar til Frakklands og sveimuðu skipin
um þetta svæði lengi vel, án þess að
nokkuð gerðist. Síðar kom reyndar í
Ijós, þegar sigling Bismarcks var þekkt
orðin af frásögnum þeirra sem eftir
lifðu, að síðdegis þann 25. maí hafði
Bismarck siglt framhjá Edinburgh í um
það bil 50 sjómílna fjarlægð eða rúmlega
það, en hvorugt skipið orðið vart við
hitt. Þegar Bismarck fannst svo loksins
daginn eftir var Edinburgh komið langt
í burtu og þó það hraðaði sér á vettvang
var allt yfirstaðið áður en beitiskipið
gæti orðið að liði: þýska orrustuskipið
horfið í hafið eftir harðar árásir
orrustuskipa, flugvéla frá Ark Royal,
beitiskipa og tundurspilla.
Þrekraun á Miðjarðarhafí
En þrátt fyrir að ógnunin af Bismarck
væri nú fyrir bí og þýsk ofansjávarher-
skip ættu ekki eftir að láta til sín taka á
Atlantshafinu framar var í nógu að
snúast fyrir beitiskip eins og Edinburgh.
Rúmum mánuði eftir að leitinni að
Bismarck lauk var ákveðið að styrkja
flota Breta á Miðjarðarhafi með öflugri
deild úr Heimaflotanum og til fararinnar
voru valin orrustuskipið Nelson og
beitiskipin Edinburgh, Manchester og
Arethusa. Skyldu þau slást í flokk hins
svokallaða „H-flota“ sem aðsetur hafði
í Gíbraltar. Mikið mæddi um þetta leyti
á þeirri flotadeild, sérstaklega þurftu
skip úr deildinni að fylgja kaupskipalest-
um til Möltu sem stöðugt varð fyrir
árásum ítalska lofthersins. Illmögulegt
hafði reynst að koma birgðum til Möltu
frá stöðvum Breta í Egyptalandi og
ákveðið var að gera tilraun til að brjótast
í gegn frá Gíbraltar. Fylgja átti sex
fullhlöðnum kaupskipum til eyjarinnar
og var fylgdarsveitin undir stjórn
E.N.Syfret, aðstoðarflotaforingja, sem
stjórnaði aðgerðum úr brúnni á Edin-
burgh. Orrustuskipin úr H-flotanum
fylgdu skipalestinni aðeins til sundsins
milli Sikileyjar og Túnis en eftir það
urðu Edinburgh og félagar að sjá um sig
sjálf. Syfret hafði undir sinni stjórn
beitiskipin Manchester og Arethusa,
tundurduflaslæðarann Manxman (sem
þarna gegndi hlutverki beitiskips) og tíu
tundurspilla auk flaggskipsins Edin-
burgh. Deildin varð fyrir afar hörðum
loftárásum undir eins og nálgaðist
Möltu. 23ða júlí varð beitiskipið
Manchester fyrir tundurskeyti og lask-
aðist svo illa að það varð að snúa aftur
til Gíbraltar, sama dag var tundurspill-
irinn Fearless fyrir svo miklum skemmd-
um að sökkva varð honum nokkru síðar.
Er annar tundurspillir, Firedrake, varð
skömmu seinna fyrir sprengjum svo
senda varð hann til Gíbraltar á ný ákvað
Syfret að eitthvað yrði að gera í málinu.
Hann breytti stefnu skipalestarinnar í
norður, í áttina til Sikileyjar, og tókst
þannig bæði að sneiða hjá tundurdufla-
lögnum og loftárásum ítala þar sem þeir
höfðu alls ekki búist við að óvinurinn
stefndi ótilneyddur í áttina til þeirra.
Daginn eftir brunuðu beitiskipin sem
eftir voru inn tii Möltu, settu vistir og
hermenn á land og flýttu sér svo sömu
leið til baka. Þó að ítalskar flugvélar og
kafbátar gerðu hverja atlöguna eftir
aðra að Edinburgh misheppnuðust þær
allar og skipið var nálega óskemmt eftir
þessa þrekraun. Engu að síður reyndist
brátt nauðsynlegt að senda skipið til
viðgerða og yfirhalningar, enda hafði
það þá verið í stríði í tvö löng ár og ekki
linnt látum. Leið líka að því að
Edinburgh tæki við sínu erfiðasta, og
síðasta, hlutverki: að fylgja skipalestum
til Rússlands.
Rússlandsskipalestirnar
Eftir innrás Þjóðverja í Sovétríkin
sumarið 1941 höfðu Sovétmenn farið
miklar hrakfarir og misst mikið
landflæmi. Þá skorti átakanlega vistir og
hergögn og undir árslok 1941 voru
hafnar reglulegar skipaferðir til Rúss-
lands í sérstökum skipalestum. Þjóð-
verjum lá lífið á að sigra Sovétmenn og
var því mikið í mun að koma í veg fyrir
að kaupskipin næðu áfangastað og
Hitler lét sjálfur svo um mælt að öll þau
skip þýska flotans sem ekki væru í
Noregi væru á vitlausum stöðum. í
upphafi árs 1942 fóru því flestöll
ofansjávarherskip Þjóðverja að tínast
inn í norsku firðina og þeirra helst var
orrustuskipið Tirpitz, systurskip Bis-
marcks. Raunar voru það ekki ofan-
sjávarherskipin sem voru mest ógnun
við skipalestirnar, því þegar iil kom var
Þjóðverjum mjög illa við að leggja stóru
skipin sín í nokkra tvísýnu. Tirpitz
sjálft, með allan sinn byssukraft, réðist
til dæmis aldrei gegn skipalest Banda-
manna. Það voru því fyrst og fremst
kafbátar og flugvélar Þjóðverja sem
héldu uppi árásum á Rússlandsskipa-
lestirnar og gegn þeim þurftu Bretar að
verjast, auk þcss sem stóru skipin voru
stöðug ógnun. Næstu misserin og árin
fór mestallur flotastyrkur Breta í að
fylgja þessum Rússlandsskipalestum, og
beitiskipið Edinburgh var talin kjörið til
þess. Fyrstu mánuði ársins 1942 var
Edinburgh ýmist með Heimaflotanum
eða í fylgd skipalestanna til Rússlands.
Skipalestir þessar báru einkennisstafina
„PQ“ - og stóð PQ fyrir skipalestir á
leið til Rússlands en QP fyrir þær sem
voru á leið heim aftur. Breski flotinn var
einn ábyrgur fyrir öryggi þeirra á hinni
hættulegu leið norður fyrir Noreg, þar
eð sovéski flotinn tók einhverra hluta
vegna lítinn sem engan þátt í vörninni.
Hann var að vísu lítill og illa búinn en
bresku sjómönnunum sárnaói samt
aðgerðarleysi Sovétmanna sem nutu
góðs af þessari erfiðu siglingu. En hvað
um það: í lok apríl 1942 sigldu tvær
skipalestir samtímis af stað, PQ-15 á leið
til Múrmansk og QP-11 á leið til
Bretlands. Bretar höfðu þann síð að láta
tvær slíkar lestir jafnan sigla samtímis
þar sem Heimaflotinn, sem hélt sig í
nágrenninu ef Tirpitz gerði árás, ætti
auðveldara með að gæta beggja í einu.
Auk Heimaflotans hafði svo hvor
skipalest sína eigin fylgdarsveit. I fylgd
með QP-11, sem taldi 13 kaupskip, var
mjög öflug fylgdarsveit undir stjórn
S.S.Bonham-Carters, aðstoðarflota-
foringja og yfirmanns 18. beitiskipa-
deildar. Flaggskip hans var Edinburgh
en annars voru í fylgdarsveitinni sex
tundurspillar, fjórar korvettur og einn
vopnaður togari. Þetta virðist ef til vill
ekki öflugur floti en var þó mun sterkari
en Rússlandsskipalestirnar höfðu fengið
fram að þessu. Ef til vill var ástæðan sú
að um borð í Edinburgh var gull Stalíns,
sem náttúrlega var algert leyndarmál.
Skipalestin á leið til Rússlands, PQ-15,
hafði einnig öfluga fylgdarsveit auk þess
sem Heimaflotinn var á sveimi kringum
hana: Tovey með orrustuskipin King
George V, Duke of York og Rodney.
Edinburgh sökkt
Þann 29. apríl 1943 flugu þýskar
eftirlitsvélar fram á QP-ll og árásir
hófust strax daginn eftir. Þá var
skipalestin komin 250 mílur frá Múr-
mansk og fyrsta skipið sem varð fyrir
skemmdum var flaggskip Bonham-
Carters, Edinburgh. Það var um
eftirmiðdaginn þann 30. að þýska
kafbátnum U-456 tókst að laumast upp
að beitiskipinu þrátt fyrir að það sigldi
í krákustígum. Tvö tundurskeyti hittu
stjórnborðsmegin og svo dró úr hraða
beitiskipsins að Bonham-Carter ákvað
að taka ekki neina áhættu, heldur reyna
að komast aftur til Múrmansk. Hefur
hann þá áreiðanlega haft í hug hinn
dýrmæta farm skipsins. Altént sneri
Edinburgh við og stefndi til baka ásamt
tveimur tundurspillum, en skipalestin og
afgangur fylgdarsveitarinnar hélt áfram
för sinni. Þýski kafbáturinn sem hafði
hæft Edinburgh tilkynnti þetta til
aðalstöðva sinna og þar var ákveðið að
senda þrjá tundurspilla til að ráðast á
skipalestina. Eftir miklar, en árangurs-
lausar loftárásir, eftir hádegið þann 1.
maí birtust þýsku tundurspillarnir á
staðnum. Þó svo að þýsku tundur-
spillarnir væru færri höfðu þeir bæði
fleiri og stærri byssur en Bretum tókst
að berja svo frá sér að undir kvöld gáfust
Þjóðverjar upp og tundurspillar þeirra
héldu í staðinn á eftir Edinburgh sem
kafbáturinn fylgdi enn eftir. Þá var
stýrisbúnaður beitiskipsins orðinn óvirk-
ur og hraðinn aðeins fáeinir hnútar. Að
morgni annars maí fundu þýsku tundur-
spillarnir Edinburgh og bresku tundur-
spillana tvo, og þrátt fyrir að Edinburgh
væri svo illa laskað sem raun bar vitni
tókst beitiskipinu að hæfa þýska tundur-
spillinn Hermann Shoemann svo illa áð
vélar hans stöðvuðust. Áður hafði
Þjóðverjum hins vegar tekist að skjóta
tundurskeytum og hitti eitt þeirra
Edinburgh bakborðsmegin. Skemmdir
urðu miklar en byssur Edinburgh héldu
áfram að skjóta af nokkurri nákvæmni.
Ekki tókst þó að laska hina tundurspilla
Þjóðverja sem á hinn bóginn ollu
þvílíkum skemmdum á bresku tundur-
spillunum Forester og Foresight að vélar
beggja stöðvuðust svo að segja. Nú
hefðu Þjóðverjar getað sallað bresku
skipin þrjú niður, en það vildi Bretum
til happs að Þjóðverjar kusu heldur að
bjarga félögum sínum af Hermann
Schoemann, sem var að sökkva. Líklega
hefur það orðið Bretum til bjargar að
kvöldin áður höfðu fjórir litlir tundur-
duflaslæðarar slegist í hópinn og
Þjóðverjar sáu ekki betur í því slæma
skyggni sem þarna var en að þeir væru
tundurspillar. Þeir höfðu sig því á brott
eftir að hafa bjargað áhöfn Hermann
Schoemann sem sökk við svo búið.
Áhöfnum Forester og Foresight tókst
þá aftur að koma vélum skipa sinna á
ferð en Ijóst var að ekkert gæti bjargað
Edinburgh. Vegna óveðurs og hættu-
legra aðstæðna var ekki talið þorandi að
reyna að bjarga gullinu áður en bresku
tundurskeyti var skotið að laskaða
beitiskipinu og þvi sökkt. Manntjón var
ekki sérlega mikið og meðal þeirra sem
komust lífs af var Bonham-Carter,
flotaforingi. Hann var reyndar ekki
gæfumaður þessa daga. Nokkru seinna
reyndi hann á ný að komast til Bretlands
og nú um borð í beitiskipinu Trinidad,
en því var sökkt af þýskum flugvélum.
23
Offsetprentari
Óskum eftir að ráða
offsetprentara.
PRENTSMIÐJAN
Smidjuvegi 3, Kópavogi
Sími 45000.
Utileikföng
Úrval leikfanga fyrir
krakka á öllum aldri.
Póstsendum.
LEIKFANGAVERZLUNIN J0J0
AUSTURSTRÆTI8 - SlM113707
- «r
Bújörð
í nágrenni Reykjavíkur eða ekki fjær en 100 km.
frá Reykjavík óskast í skiptum fyrir 250 m'
einbýlishús á Suðurnesjum, sem er 2 íbúðir 65m'
og 125m, geymslur, þvottahús og bílskúr. Góð
milligreiðsla. Tilboð óskast sent á Auglýsinga-
deild Tímans merkt: „1772“ fyrir 1. sept.
Ödýrar bókahillur
Stærð: 184x80x30 Ijós eik og bæs
Tréhurðir Glerhurðir kl’ 1-465>'
kr. 395,- kr. 495,-
Húsgögn og
innréttingar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900