Fréttablaðið - 10.01.2009, Side 2
2 10. janúar 2009 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI „Nú á dögum, þegar svo
margir Íslendingar eru hættir að
fara hérna í gegn, þá er þetta
algjör hvalreki,“ segir Kjartan
Kristjánsson, eigandi Optical
Studio-verslunarinnar í Leifs-
stöð, afar kátur með óvænta
komu 200 bandarískra hermanna
í flugstöðina.
Það var ekki nema von að hann
tæki þeim vel en farþegum hefur
fækkað verulega síðustu mán-
uði, til dæmis komu liðlega þriðj-
ungi færri í nóvember síðastliðn-
um en sama mánuð árinu á
undan. Tæplega níu prósent
færri ferðamenn komu á síðasta
ári en árinu þar á undan.
„Þeir voru að koma frá Írak en
lentu hér þar sem rúða brotnaði í
vélinni,“ segir Kjartan. „Þegar
þeir heyrðu af því að hægt væri
að láta mæla í sér sjónina og
kaupa gleraugu bara einn tveir
og bingó fjölmenntu þeir hjá
okkur og þeir eru afar ánægðir
með verðið og tala um að þetta sé
um hálfvirði miðað við það sem
gerist í þeirra heimalandi.“
Fimmtán hermenn voru sjón-
mældir og keyptu þeir gleraugu
hjá Kjartani og segir hann í gríni
að hafi þeir verið óbreyttir her-
menn hafi það breyst því þeir
tóku miklum stakkaskiptum eftir
kaupin. „Þeir voru allir með
alveg eins gleraugu sem herinn
hafði skaffað þeim. Þau voru
orðin sandbarin og svo sem engin
tískugleraugu en þeir fóru með
alveg nýtt lúkk.“
Lee Greenfield, yfirmaður í
hernum, sagði að hópurinn væri
ánægður með verðið í Leifsstöð
og hefðu því margir nýtt sér
þetta óvænta innlit til að versla.
Kjartan segir, eins og Elín
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Keflavíkurflug-
vallar ohf., að á meðan Íslending-
um hafi fækkað í Leifsstöð hafi
erelndir ferðamenn nýtt sér í
auknum mæli verslanirnar þar.
„Þeir eru farnir að opna veskin,“
segir Kjartan. Spurð um hvernig
verslunin gangi í Leifsstöð segir
Elín tölurnar um fjölda ferða-
manna endurspegla þá stöðu að
miklu leyti. Keflavíkurflugvöll-
ur ohf. tók við rekstri Keflavík-
urflugvallar og Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar um síðustu
áramót.
jse@frettabladid.is
Kaninn glæddi við-
skiptin á vellinum
Tvö hundruð bandarískir hermenn komu við í Leifsstöð á heimleið frá Írak og
glæddu viðskiptin sem hafa dregist saman vegna fækkunar ferðamanna síð-
ustu mánuðina. Farþegum fækkaði um 8,8 prósent milli áranna 2007 og 2008.
HER MANNA Í LEIFSSTÖÐ Lee Greenfield mælir hér til sinna manna en um 200
hermenn voru í Leifsstöð í gær.
Jón Vigfús, skaustu þér ref
fyrir rass?
„Já, þangað fer hann nú að lokum.“
Jón Vigfús Guðjónsson, tilraunakokkur
með meiru, matreiddi ref í brúnni sósu
og snæddi með bestu lyst. Hann segir
réttinn hafa helst minnt á gúllas af
fullorðinni kind.
EFNAHAGSMÁL „Meginregla
skilanefndar Kaupþings í
framvirkum gjaldmiðlasamning-
um almennt, er að þegar þeir eru
á gjalddaga sé miðað við skráð
gengi Seðlabanka Íslands. Það er
eina gengið sem við getum
notað,“ segir Steinar Þór Guð-
geirsson, formaður skilanefndar
gamla Kaupþings.
Ýmsir, til að mynda útgerðir
hafa rætt um að gera upp
afleiðusamninga með gjaldeyri á
tilteknu gengi. Þá hefur að
minnsta kosti eitt eignarhaldsfé-
lag krafist þess að gengi evr-
ópska seðlabankans á uppgjörs-
degi verði notað. - ikh / sjá síðu 10
Formaður skilanefndar:
Aðeins gengi
Seðlabankans
FARÞEGAFJÖLDI
Í LEIFSSTÖÐ
Janúar 116.607 11%
Febrúar 114.964 11,6%
Mars 146.969 8,8%
Apríl 137.503 -14,9%
Maí 173.191 -4,5%
Júní 249.957 -2,8%
Júlí 292.992 -5,2%
Ágúst 271.501 -7,6%
September 172.086 -8,2%
Október 142.552 -22,8%
Nóvember 91.500 -36%
Desember 90.076 -26%
Farþegafjöldi árið 2008 1.990.476
Farþegafjöldi árið 2007 2.182.232
Sem þýðir 8,8 prósenta fækkun.
Fjöldi
farþega
2008
Breyting
frá fyrra
ári
VEÐUR Í dag kólnar verulega á
landinu frá því sem verið hefur.
Eftir nokkra vikna hlýindakafla
taka frosthörkur við.
Samkvæmt spá Veðurstofu
Íslands mun kuldinn ná hámarki
fyrir austan og norðan á þriðju-
dag. Það kvöld gerir spálíkan
Veðurstofunnar á netinu ráð fyrir
22 stiga frosti á Akureyri og 19
stiga frosti á Möðrudalsröræfum
og á Egilsstöðum svo dæmi séu
nefnd.
Sunnan heiða má búast við
mesta frostinu í innsveitum. Til
dæmis er spáð 15 stiga frosti í
Húsafelli og 12 stiga frosti á
Þingvöllum á þriðjudag. Á höfuð-
borgarsvæðinu verður frostið 8
stig þann dag.
Reiknað að með að þessu kulda-
hreti fylgi bæði snjókoma og él,
aðallega norðanlands og austan.
Hvergi verður frostlaust en þó
mildast með suðausturströnd
landsins.
Á miðvikudag er gert ráð fyrir
að slakni tímabundið á klónni en
síðan á að kólna aftur á fimmtu-
dag. - gar
Eftir margra vikna hlýindakafla snýr veturinn tvíefldur aftur með 20 stiga frosti:
Fimbulkuldi leggst yfir landið
EFNAHAGSMÁL Utanaðkomandi sér-
fræðingar hafa, að beiðni Fjár-
málaeftirlitsins, skoðað ákveðna
þætti sem snúa meðal annars að
innri reglum bankanna og lögum
um fjármálafyrirtæki, segir í til-
kynningu sem Fjármálaeftirlitið
sendi frá sér í gær.
Þar segir að þessi skoðun snúi
til dæmis að óeðlilegum fjár-
magnshreyfingum innan sam-
stæða eða milli landa, skilmála-
breytingum lánasamninga,
breytingum á tryggingum og
veðum, meðferð afleiðusamninga,
viðskiptum með verðbréf og hlut-
deildarskírteini verðbréfasjóða
og meðferð rekstrarfjármuna.
Upplýsingum vegna þessarar
skoðunar, frumgögn upp á fleiri
hundrað blaðsíður, hefur verið
skilað til Frjármálaeftirlitsins og
er úrvinnsla hafin með það fyrir
augum að sannreyna hvort lög
hafi verið brotin.
Í tilkynningunni segir að í þeim
tilvikum sem niðurstöður bendi til
refsiverðs verknaðar verði beitt
stjórnvaldssektum eða málum
vísað til lögreglu. Upplýsingar um
niðurstöður rannsókna verði veitt-
ar á þann hátt sem lög leyfi og
eftir því sem verkinu miðar
áfram.
Jafnframt er minnt á að Fjár-
málaeftirlitið vinni innan ákveð-
ins lagaramma sem takmarki
möguleika þess á að tjá sig um mál
sem það hefur til skoðunar. Þá geti
opinber umfjöllun um einstök mál
á rannsóknarstigi spillt rannsókn-
um eða ónýtt mál fyrir dómi. - ovd
Rannsókn Fjármálaeftirlitsins á starfsemi bankanna haustið 2008 miðar áfram:
Sérfræðingar hafa skilað gögnum
BANKAR Fjármálaeftirlitið hefur falið
utanaðkomandi aðilum að skoða innri
reglur banka og lög um fjármálafyrir-
tæki.
-18
-22
-7
-16
-17
-3
1
-6
-9
2
5
5
19
2
5
4 1
3
VEÐURSPÁ Á MIÐNÆTTI AÐFARANÓTT MIÐVIKUDAGS
VEÐURSPÁ
Kuldalegt
verður um að
litast á landinu
á þriðjudags-
kvöld ef marka
má spá Veður-
stofu Íslands.
HEIMILD/VEDUR.IS
STJÓRNMÁL Björn Bjarnason lætur
af embætti dóms- og kirkjumála-
ráðherra að loknum landsfundi
Sjálfstæðisflokksins um næstu
mánaðamót.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er ákveðið að Bjarni
Benediktsson alþingismaður taki
við embættinu.
Líklegt er að frekari breytingar
verði á ríkisstjórninni við það
tækifæri.
Björn varð dómsmálaráðherra
eftir kosningarnar 2003. Áður var
hann menntamálaráðherra frá
1995 til mars 2002. Bjarni var
fyrst kjörinn á þing 2003. - bþs
Breytingar á ríkisstjórninni:
Bjarni tekur við
embætti Björns
BJÖRN
BJARNASON
BJARNI
BENEDIKTSSON
VIÐSKIPTI Nýja Úrvalsvísitalan
(OMXI6) féll um 5,51 prósent í
gær og endaði í 884,67 stigum.
Munar þar um gengishrun
Straums sem féll um rúm 26
prósent. Gengi bréfa í fjárfest-
ingabankanum hefur fallið um 64
prósent síðan viðskipti hófust á
ný með þau fyrir mánuði og fór
um skamman tíma undir eina
krónu á hlut í gær.
Kauphöllin tók saman nýja
Úrvalsvísitölu í byrjun árs og
samanstendur hún af þeim sex
félögum sem mesta veltu hafa á
markaðnum. Vísitalan, sem hefur
aldrei hækkað, hefur fallið um
11,5 prósent frá fyrsta degi. - jab
Úrvalsvísitalan í mínus:
Engin hækkun
frá áramótum
LÍF Í KAUPHÖLLINNI Nýja úrvalsvísital-
an sem Kauphöllin tók að reikna um
áramótin hefur fallið um 11,5 prósent frá
fyrsta degi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEILBRIGÐISMÁL Inflúensa er nú
farin að stinga sér niður. Í
desember síðastliðnum var
staðfest tilfelli af inflúensu A og
enn eitt í byrjun janúar á þessu
ári, að því er fram kemur í
Farsóttarfréttum landlæknisemb-
ættisins. Þá hefur orðið nokkur
aukning á inflúensulíkum
tilfellum á Læknavaktinni og
umtalsverð aukning á bráðum
loftvegasýkingum ásamt auknum
komufjölda sem allt eru vísbend-
ingar um að inflúensan kunni að
vera að skjóta rótum hér. Önnur
vísbending um yfirvofandi
inflúensufaraldur er umtalsverð
aukning á inflúensutilfellum í
nágrannalöndum okkar síðustu
vikurnar. - jss
Komum á Læknavakt fjölgar:
Flensan komin
SÓMALÍA Sómalskir sjóræningjar
slepptu í gær sádí-arabíska
risaolíuskipinu Sirius Star sem
þeir rændu í nóvember síðastliðn-
um.
Sjóræningjarnir fengu um
þrjár milljónir bandaríkjadala
greiddar í lausnargjald fyrir
skipið sem jafngildir rúmum 373
milljónum íslenskra króna. Í
skipinu eru tvær milljónir
olíutunna og er það stærsta skip
sem rænt hefur verið. Engan í 25
manna áhöfn skipsins sakaði. - ovd
Sjórán við Sómalíu:
Sjóræningjar
sleppa olíuskipi
SPURNING DAGSINS