Fréttablaðið - 10.01.2009, Side 3

Fréttablaðið - 10.01.2009, Side 3
ORKU- OG TÆKNISKÓLI K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I - S Í M I : 5 7 8 4 0 0 0 - W W W . K E I L I R . N E T B.S. gráða í orkutæknifræði og mekatróník Keilir og Háskóli Íslands bjóða nú nám til B.S. gráðu í tæknifræði við framúrskarandi aðstæður á Keilissvæðinu undir leiðsögn sérfræðinga í fremstu röð. Í námslok útskrifast nemendur með B.S. gráðu frá Háskóla Íslands. Orkutæknifræði er þverfaglegt nám þar sem veittur er sterkur grunnur í beislun og nýtingu jarðvarmaorku og virkjun á öðrum grænum, endurnýjanlegum orkugjöfum auk hagnýts grunns í því að nýta bæði rafeinda- og hugbúnað til að stjórna vélbúnaði, og notkun mælitækja. Í mekatróník (e. mechatronics) náminu fá nemendur þverfaglegan grunn í hönnun og smíði rafeinda- og tölvustýrðs vélbúnaðar. Meðal þess sem kennt verður er mælitækni, merkjavinnsla, stýritækni og hönnun vélhluta. Auk þess verður kennd rafmagnsfræði, rafeindafræði og önnur fög sem eru mikilvæg í starfi tæknifræðinga með sérhæfingu í mekatróník. Lögð er áhersla á verklegar æfingar í rannsóknarstofu þar sem sköpunargáfa nemenda fær að njóta sín. Samstarf við fyrirtæki á svæðinu undirbýr nem- endur fyrir atvinnulífið, þar sem vaxandi þörf er fyrir sérfræðinga á þessu sviði. Umsóknarfrestur er til 20. janúar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.