Fréttablaðið - 10.01.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.01.2009, Blaðsíða 4
4 10. janúar 2009 LAUGARDAGUR ÍSRAEL „Ég tel að það sé vítavert af þeirra hálfu og vítavert að svara ekki kröfu alþjóðasamfélagsins um að gera þarna vopnahlé,“ segir Geir Haarde forsætisráðherra um framferði Ísraela, sem sögðust í gær ekki ætla að taka neitt mark á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. „Það stendur líka upp á þá sú ásökun að þeir hafi brotið alþjóð- legar mannréttindareglur – meðal annars af hálfu alþjóðanefndar Rauða krossins þannig að þeir verða bara að hætta þessu – það er ekkert sem heitir,“ segir Geir. Öryggisráðið samþykkti í fyrri- nótt ályktun, þar sem þess var krafist að vopnahlé gengi án tafar í gildi á Gazasvæðinu. Ísraelar héldu engu að síður áfram heift- arlegum árásum sínum á íbúa þessa þéttbýla svæðis. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði að Ísrael hefðu „aldrei fallist á að leyfa utanað- komandi stofnun að ákveða um rétt landsins til að vernda öryggi borgara sinna“. Ríkisstjórn Ísraels sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem álykt- un öryggisráðsins er ótvírætt hafnað. Stjórnin muni ekki fallast á vopnahlé og herinn verði ekki kallaður frá svæðinu fyrr en tryggt hafi verið að vopnasmygl frá Egyptalandi yfir á Gazasvæð- ið verði stöðvað. Hamassamtökin hafa einnig hafnað ályktun Sameinuðu þjóð- anna, þar sem í henni sé dreginn taumur Ísraels. Ályktunin var samþykkt með fjórtán af fimmtán atkvæðum í öryggisráðinu, en Bandaríkin sátu hjá. Venjulega hafa Bandaríkin beitt neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að öryggisráðið sam- þykki ályktanir sem Ísraelsríki fellst ekki á. Í ályktuninni er fullyrt að Ísra- elar hafi drepið að minnsta kosti 257 börn frá því að árásirnar hóf- ust. Í gær höfðu árásirnar, sem staðið hafa í tvær vikur, kostað nærri 800 manns lífið og á fjórða þúsund manna voru særðir. Geir Haarde fór í gær ekki leynt með afstöðu sína: „Mér finnst Ísraelsmenn hafa gengið allt of langt í sínum hernaði og hafa staðið fyrir algjörlega órétt- lætanlegum árásum á Gazasvæð- inu. Það er sama hvað líður skoð- unum manna á því sem Hamashreyfingin hefur aðhafst þá eru þessi viðbrögð við eld- flaugaárásum Hamashreyfingar- innar algjörlega úr hófi fram.“ gudsteinn@frettabladid.is, kolbeinn@frettabladid.is Ísraelar hunsa fyrir- mæli öryggisráðsins Tveggja vikna árásir á Gazasvæðið hafa kostað nærri 800 manns lífið. Geir Haarde segir vítavert að Ísraelsstjórn taki ekki mark á öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Árásirnar hafi gengið alltof langt: „Þeir verða bara að hætta þessu.“ HUNDRUÐ BARNA DREPIN Tvö þeirra barna, sem orðið hafa árásum Ísraela að bráð. NORDICPHOTOS/AFP UTANRÍKISMÁL Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir vel koma til greina að Nató taki að sér friðargæslu á milli Ísraels og Palestínu. Friði verði að koma á hvað sem það kostar. „Það er fyllsta ástæða til að velta því fyrir sér hvort Nató geti orðið milligönguaðili í þess- ari deilu, gæti gengið á milli deiluaðila og verið þetta alþjóð- lega lið sem ýmsir telja að þurfi að vera á vettvangi. Framferði Ísraela gefur tilefni til þess að málið sé rætt á vettvangi Nató,“ segir Ingibjörg. Árni Páll Árnason, varaformað- ur utanríkisnefndar Alþingis, segir að huga verði að öllum leið- um til að koma á friði. „Það er álitamál hvort ekki þurfi alþjóð- legt friðargæslulið á svæðið. Það er mjög viðkvæmt fyrir Ísraela, en ég held að reynslan af sam- skiptum þeirra við skæruliða Hamas séu með þeim hætti að það mæli margt með því að það komi alþjóðlegt friðargæslulið sem hafi ríka heimild til að afvopna skæruliða og koma á friði.“ Árni segir það geta verið skyn- samlegt að sækja í smiðju Nató, enda sé mikil þekking þar á því að koma á friði á átakasvæðum. Venjulega komi alþjóðlegt friðar- gæslulið í kjölfar friðarsamn- inga. Hins vegar hafi skort á að fyrri friðarsamningar, svo sem Óslóarsamningarnir, hafi komið til framkvæmda. - kóp Utanríkisráðherra segir verða að stöðva blóðbaðið á Gaza: Nató gæti sinnt friðargæslu INGIBJÖRG SÓL- RÚN GÍSLADÓTTIR ÁRNI PÁLL ÁRNASON 20–70% afsláttur RISA- ÚTSALA ELLING SEN Reykjavík, Fiskislóð 1 Opið mánudag–föstudag 10–18 laugardag 10-16 Akureyri, Tryggvabraut 1–3 Opið mánudag–föstudag 8–18 laugardag 10-16 VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 11° -1° 0° 1° 5° 0° -1° 4° 5° 5° 19° 3° 1° 25° 2° -1° 13° 3° Á MORGUN 8-13 m/s en hvassara við SA- ströndina síðdegis MÁNUDAGUR 5-10 m/s 5 13 18 13 10 13 6 6 3 5 8 2 6 4 5 1 0 -2 -1 1 -4 -3 -5 -5 -5 0 -5 -5 -7 -9 -7 -2 STÓRHRÍÐ Á FJÖLLUM NYRÐRA Það er harðavetur í kortunum næstu daga. Núna með morgninum er norðaustan hvassviðri eða stormur vestast á Vestfjörðum og með ströndum norðvest- an til og síðar í dag hvessir einnig með norðurströnd landsins. Snjókoma verður nyrðra í dag en framan af degi má búast við skúrum fremur en éljum syðra. Úrkomulítið verður þar síðdegis. Yfi rleitt verður úrkomulaust eystra. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur UMHVERFISMÁL Blaðberanum, endurvinnslutösku Fréttablaðs- ins, verður dreift í Smáralind í dag frá klukkan 13 til 18 og á morgun frá klukkan 12 til 16. „Viðtökurnar eru framar öllu sem við bjuggumst við,“ segir Ásta Kristín Reynisdóttir, kynningarstjóri Fréttablaðsins, en nú þegar hefur rúmlega 50 þúsund Blaðberum verið dreift. „Til að byrja með dreifðum við Blaðberanum á fjölförnum stöðum en síðan hefur verið stríður straumur af fólki í Skaftahlíðina að sækja sér Blaðbera.“ Áfram verður hægt að sækja Blaðbera í afgreiðslu Frétta- blaðsins í Skaftahlíð. - ovd Blaðberi Fréttablaðsins: Töskum dreift í Smáralind BLAÐBERINN Endurvinnslutöskurnar hjálpa til við að halda utan um dagblöð í endurvinnslu. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA GRIKKLAND, AP Grímuklædd ungmenni lentu í átökum við lögregluþjóna í miðborg Aþenu í gær. Nokkurt hlé hefur verið á átökum undanfarið, en stjórnin hefur sagst ætla að taka hart á ofbeldi. Þúsundir mótmælenda komu saman í miðborginni til að mótmæla breytingum á fyrir- komulagi skólamála. Minni hópur fór út úr mannsöfnuðinum og tók að kasta grjóti og eldi að lögreglu- mönnunum, sem brugðust við með táragasi og ljósblossasprengjum. Hörð mótmæli urðu í Grikk- landi í síðasta mánuði eftir að lögreglumaður varð unglingspilti að bana. - gb Mótmæli í Grikklandi: Hópur í átök- um við lögreglu ALÞJÓÐAMÁL Framkvæmdastjórn Evrópuráðsþingsins samþykkti í gær, að beiðni Íslendinga, að ræða aðgerðir Breta gegn Íslendingum í laga- og mannrétt- indanefnd og efnahagsnefnd Evrópuþingsins. 28. nóvember síðastliðinn voru aðgerðir Breta, þegar þeir beittu hryðjuverkalögum gegn Íslend- ingum í október síðastliðnum, rædd að frumkvæði Íslandsdeild- arinnar á stjórnarnefndarfundi Evrópuþingsins í Madríd. Steingrímur J. Sigfússon fór fyrir hópnum en einnig eiga sæti í Íslandsdeildinni Ellert B. Schram og Guðfinna S. Bjarnadóttir. - jse Deila Íslendinga og Breta: Tekin fyrir í Evrópuráðsþingi MÓTMÆLI Fjórtándi mótmælafund- ur Radda fólksins fer fram á Austurvelli í dag klukkan 15. Fundarmenn vilja ríkisstjórnina burt og stjórnir Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og að kosning- ar fari fram svo fljótt sem unnt er. Í tilkynningu frá Röddum fólksins segir að á undanförunum vikum hafi liðlega 40 manns flutt ávörp á Austurvelli. Á fundinum í dag munu Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður, Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og Lárus Páll Birgis- son, sjúkraliði, flytja ávörp. - ovd Fjórtándi fundurinn: Mótmælt á Austurvelli MÓTMÆLI Á AUSTURVELLI Þúsundir Íslendinga hafa mótmælt á Austurvelli á undanförnum vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Böðvarsvaka sem haldin er í tilefni af 70 ára afmæli Böðvars Guðmunds- sonar, og sagt var frá í blaðinu í gær, verður á sunnudaginn kemur klukkan 17.00 í Íslensku óperunni. ÁRÉTTING Opinn fundur í Iðnó Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir opnum fundi í Iðnó í dag undir yfirskriftinni „Fjöldamorðin á Gaza.“ Fundurinn hefst klukkan 16 og lýkur honum með kertafleytingu á Tjörn- inni þar sem fórnarlambanna á Gaza verður minnst. ÁTÖKIN Á GAZA GENGIÐ 09.01.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 208,4419 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,82 124,42 188,67 189,59 169,63 170,57 22,759 22,893 17,855 17,961 15,769 15,861 1,3641 1,3721 189,86 191 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.