Fréttablaðið - 10.01.2009, Síða 12
12 10. janúar 2009 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is
ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf.
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI:
Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur
sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
M
argir þeirra sem nú eru á miðjum aldri lifa enn í þeim
hugmyndaheimi að fjölmiðlar okkar tíma tali hver
fyrir sig einni röddu. Þetta eru leifar sem hafa stein-
gervst í hugum þeirra sem ólust upp við flokkslínur.
Sannleikurinn megnar ekki að frelsa þá: fjölmiðlar
okkar tíma eru margradda, opnari fyrir skoðanaskiptum flestir.
Gáttir, heimasíður, tímarit, opnir útvarpsþættir, umræðusíður dag-
blaðanna sem eftir tóra: samastaðir opinnar umræðu eru margir.
Það eru helst sjónvarpsstöðvarnar sem eru reyrðar í klafa lokaðra
dagskrárkerfa og eru fyrir bragðið að daga uppi í hefðbundnum fín-
eríheitum. það er því rangt að tala um „fjölmiðlana“ sem eina rödd,
einsleitt fyrirbæri og gera því skóna að þar sé smíðuð ein silfruð
skoðun, háheilagur tilbúinn „sannleikur“, fabrikkeraðar skoðanir.
Margradda samfélag í fjölmiðlun landsins þrífst ekki vel ef
einstaklingarnir þora ekki að koma fram undir sínu rétta nafni.
Nafnleysið var lengi vel viðurkennd aðferð í skoðanaskiptum:
grímuklæddur mótmælandi, nafnleysingi á bloggi og Staksteinar
Moggans eru allir af sama meiði, úr óttafullu launsátri vega nafn-
leysingjarnir að hvaða skotspæni sem þeim sýnist. Til þess njóta
menn skálkaskjóls ritstjórna, til dæmis á Eyjunni og í Mogganum.
Skoðanir fjölmiðla eru ekki fabrikkeraðar lengur eins og iðnaðar-
ráðherra heldur fram á bloggi sínu. Þær spretta úr önn dagsins,
gæddar lífi og hugsun, knúðar siðlægum gildum. Færðar í orð eins
og best hentar erindinu og ástæðunni. Sá vandláti má hneykslast
á orðavali og ákafa, rétt eins hneykslast má á hinum settlegu sem
klæða hugsun sína í hinn hefðbundna vaðal sem á endanum geymir
klið hlutleysis eins og úr munninum hlaupi baðmullarhnoðrar sem á
endanum fylla rúmið og kæfa alla viðstadda með mjúkri þöggun. Þá
gjaldfalla orðin og verða máttlaus.
Þögnin er um þessar mundir afar virk í íslensku samfélagi,
einkum að hálfu þeirra sem búa við stjórnsýslulega ábyrgð. Hún
er skipuleg og stefnir samfélaginu öllu í voða. Hún kallar fram
ásakanir um getuleysi og vanhæfi þeirra sem með völdin hafa. Hjá
þögninni sitja svo systur hennar ábyrgðarleysi og valdhrokinn.
Tvær stærstu stjórnmálahreyfingar landsins treysta svo völdum
sínum að þær halla sér frekar að þögninni, samskiptaleysinu við
umbjóðendur sína, en hreinskiptu samtali. Það var því ámátlegt að
skorið var á fyrstu og einu umræðu leiðtoga stjórnmálaflokkanna í
beinni útsendingu á gamlársdag. En það er líka til marks um lítil-
vægt hlutverk hinna sjónrænu fjölmiðla að bæði fyrir og eftir þann
fund hefur ekki verið ráðist í að kalla þá í slíkan þátt aftur.
Stjórnvöld sem starfa með þögnina sem meginstjórntæki sitt eru
sjaldan langlíf í harðindaárum. Skoðanafabrikkur samfélagsins −
almenningur − vilja eiga opinská skoðanaskipti við stjórnmálamenn
um úrlausnir stórra mála jafnvel þótt tönnlast sé á orðunum „þið
eruð ekki þjóðin“ eins og barnaskólakennari ávíti börn. Enda langt
síðan stjórnmálamenn og opinberir ábyrgðarmenn hafa staðið við
svo djúpa gjá. Og það ber vott um stjórnmálalega flónsku að álykta
að sitjandi fulltrúar þjóðarinnar fái áfram umboð til þannig vinnu-
bragða.
Margar raddir heyrast.
Skoðanafabrikkur
samfélagsins
PÁLL BALDVIN BALDVINSSON SKRIFAR
Óveður ríkir í íslensku efnahags-lífi. Neyðarástand er að skapast
á þúsundum heimila í landinu og
gjaldþrot blasir við mörgum þeirra.
Atvinnulausir eru orðnir yfir 10
þúsund og enn fleiri ráða ekki við
greiðslubyrði sína. Fjöldi fyrir-
tækja á í miklum greiðsluerfiðleik-
um og spáir Creditinfo Ísland að á
fjórða þúsund fyrirtækja verði
gjaldþrota á næstunni.
Viðbrögð ríkisins við þessu
ástandi hafa verið að hækka skatta,
auka álögur í formi þjónustugjalda,
kjaraskerðing og nú síðast
uppsagnir opinberra starfsmanna.
Til þess að koma í veg fyrir þá
flóðbylgju gjaldþrota sem blasir
við og leggja mun líf þúsunda
fjölskyldna í rúst verður að grípa
til aðgerða strax og aðstoða fólk út
úr öngstrætinu.
Margt þarf að koma til, svo sem
greiðsluaðlögun, félagsleg aðstoð
og víðtækur stuðningur við
fyrirtæki í landinu.
Greiðsluaðlögun
Frá því að núverandi ríkisstjórn tók
við völdum hefur lögum um
greiðsluaðlögun ítrekað verið lofað.
Greiðsluaðlögun þýðir að skuldur-
um er hjálpað að komast út úr
mesta svartnættinu og lánskjörum
breytt til að létta greiðslubyrðina.
Það getur falið í sér að vöxtum og/
eða lánstíma sé breytt eða skuld
lækkuð eða fryst um tíma á meðan
fólk leitar lausna á tímabundnum
erfiðleikum. Mikilvægt er að
greiðsluaðlögun nái jafnt til skulda
við ríki, innlánsstofnanir, lífeyris-
sjóði, verkalýðsfélög sem og
húsnæðisskulda.
Þá er nauðsynlegt að bjóða
einstaklingum, sem hafa tekið á sig
miklar persónulegar skuldbinding-
ar vegna reksturs fyrirtækja, upp á
greiðsluaðlögun, að því gefnu að
viðkomandi hafi ekki orðið uppvís
að neinu ólöglegu í sínum rekstri.
Það síðasta sem heyrðist frá
ríkisstjórninni um þetta mál var
viðtal við Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra á Stöð 2 þar
sem hún lýsti hversu gríðarlegum
vandkvæðum væri bundið að
afskrifa skuldir einstaklinga og
engrar niðurstöðu væri að vænta á
næstunni. Það er af sem áður var,
því Jóhanna taldi þetta litlum
vandkvæðum bundið þegar hún
lagði fram frumvarp um greiðslu-
aðlögun ár eftir ár á meðan hún var
í stjórnarandstöðu.
Þá hafa Vinstri grænir og
framsóknarmenn einnig lagt fram
frumvarp um greiðsluaðlögun og
því má spyrja hvort Sjálfstæðis-
flokknum, varðhundi auðvaldsins,
hafi tekist að sannfæra félagsmála-
ráðherra um hversu flókið og erfitt
það væri að styðja við fólk sem er
ófært um að greiða skuldir sínar.
Henni verður hins vegar
velkomið að styðja við frumvarp
framsóknarmanna sem lagt verður
fram þegar þing kemur saman.
Félagsleg aðstoð
Páll Pétursson, fyrrum félagsmála-
ráðherra, setti á stofn ráðgjafar-
stofu heimilanna til að aðstoða fólk
í greiðsluerfiðleikum. Frá því
stofan var stofnuð hefur hún
aðstoðað mörg þúsund einstaklinga.
Helstu ástæður greiðsluerfiðleika í
gegnum tíðina hafa verið veikindi
og vankunnátta í fjármálum, en nú
bætist atvinnuleysi við. Stórauka
þarf framlög til ráðgjafarstofunnar
svo hún geti staðið undir auknum
verkefnum og auka samstarf
hennar við félagsþjónustu sveitar-
félaganna. Einstaklingar sem eru í
fyrirtækjarekstri hafa átt í fá hús
að venda þegar þeir hafa lent í
greiðsluerfiðleikum, auk þess sem
ríkið hefur innheimt opinber gjöld
af hörku. Setja þarf á stofn
ráðgjafarstofu fyrirtækja sem gæti
starfað með ráðgjafarstofu
heimilanna, Nýsköpunarmiðstöð
eða sem sjálfstæð stjórnsýsluein-
ing. Hlutverk hennar yrði að
aðstoða eigendur og stjórnendur
fyrirtækja við að yfirfara rekstur-
inn, semja við lánardrottna og
ráðleggja um hvort halda skuli
rekstri áfram eður ei.
Stuðningur við fyrirtæki
Sambærilegur stuðningur við
starfandi fyrirtæki í landinu hefur
verið enginn. Ekkert hefur heyrst
af neinum tillögum þeim til handa á
meðan útbúnir eru milljarða
ívilnanapakkar fyrir stórfyrirtæki
og fjárfestingarsjóði.
Ýmislegt er hægt að gera auk
laga um greiðsluaðlögun og
ráðgjafarstofu fyrirtækja.
Aðgangur að lánsfé og ábyrgðum
er mjög takmarkaður. Ríkið getur
sett á stofn endurreisnarsjóð til að
kaupa hlutafé og lána til fyrir-
tækja, ekki bara sprota heldur
einnig starfandi fyrirtækja. Önnur
leið til að auðvelda sjóðstreymi
fyrirtækja er að leyfa þeim að skila
virðisaukaskatti þriðja hvern
mánuð í stað annars hvers og
einfalda regluverk og eftirlit hins
opinbera.
Ef ekkert verður að gert mun
fjöldi gjaldþrota einstaklinga og
fyrirtækja margfaldast. Afleiðing-
arnar verða aukinn kostnaður í
velferðar- og dómskerfinu, en ekki
síst örvænting einstaklinga og
fjölskyldna og sár í þjóðfélaginu
sem seint munu gróa.
Það munu framsóknarmenn
aldrei sætta sig við.
Höfundur er þingmaður Fram-
sóknarflokksins.
Út úr öngstrætinu
UMRÆÐAN
Katrín Jakobsdóttir skrifar um aðgerðir
Ísraelshers í Gasaborg
Okkur berast nú á hverjum degi fréttir frá Gasaborg. Þar hafa Ísraelsmenn ráðist
inn og drepa daglega óbreytta borgara,
konur og börn. Þeir reyna að halda fjölmiðla-
mönnum sem mest frá svæðinu því eðlilega
vilja þeir ekki að heimsbyggðin sjái
grimmdarverkin. Þeir þverbrjóta alla
alþjóðlega samninga sem snúast um að hlífa óbreytt-
um borgurum í stríði, skólar eru sprengdir upp,
starfsmenn alþjóðlegra hjálparsamtaka eru drepnir.
Óbreyttum borgurum, þ.á m. börnum, er smalað inn í
hús sem eru svo sprengd í loft upp.
Þessi árás er réttlætt með því að Ísraelar verji
hendur sínar gagnvart Palestínumönnum og er þá
gjarnan vísað til hryðjuverka Hamas-samtakanna. En
ef horft er t.d. á eldflaugaárásir kemur fram í skýrslu
Human Rights Watch-samtakanna að árið 2007 skaut
Ísrael 14.617 eldflaugum yfir á Gasasvæðið. Á sama
tíma var 2.700 flaugum skotið inn í Ísrael. Þessar
tölur sýna auðvitað að svæðið er púðurtunna. En
hlutföllin sýna líka að réttlæting Ísraels-
manna stenst enga skoðun. Hér er um
árásarstríð að ræða þar sem fórnarlömbin
eru einkum óbreyttir borgarar.
Ísraelsher hefur lengi virkað sem tilrauna-
stofa alþjóðlegra vopnaframleiðenda.
Palestínumenn hafa orðið fórnarlömb
nýjustu tækni og vísinda í vopnageiranum í
því áralanga ofbeldi sem þarna hefur fengið
að viðgangast og má nefna sem dæmi að
eyðileggingarmáttur eldflauga þeirra er gríð-
arlegur. Helsta nýmæli Ísraelshers eru
svokallaðar þrýstisprengjur sem nánast húðfletta
fórnarlömbin. Ísraelsher hefur líka verið óhræddur
við að beita vopnavélmennum sem skjóta á allt sem
hreyfist, sama hvort það eru börn eða hermenn.
Árásin á Gasa jólin 2008 er skelfileg aðgerð sem
ekki á að líðast. Núna hafa nærri 770 óbreyttir
borgarar verið drepnir á tveimur vikum, þar af 257
börn. Á sama tíma hafa sjö ísraelskir hermenn fallið.
Alþjóðasamfélagið getur ekki horft upp á að börnum
sé slátrað og óbreyttir borgarar séu stráfelldir. Ef
framferði Ísraelsmanna gefur ekki tilefni til að slíta
stjórnmálasambandi við ríkið þá er það tilefni
vandfundið. Höfundur er alþingismaður.
Börnum slátrað
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
EYGLÓ HARÐARDÓTTIR
Í DAG | Greiðsluerfiðleikar
Fréttnæmt
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðis-
ráðherra tilkynnti um sameiningu
heilbrigðisstofnana. Sú ráðstöfun
hefur vakið mikla óánægju og
ráðherrann fengið yfir sig holskeflu
gagnrýni, ekki síst frá starfsfólki innan
heilbrigðisgeirans. Þeim sjónarmiðum
hafa ekki verið gerð skil á heimasíðu
heilbrigðisráðuneytisins. Ekki eru þó
allir óánægðir með skipu-
lagsbreytingar heilbrigðis-
ráðherra. Starfsfólk á heilsu-
gæslustöðinni í Ólafsvík
sendi frá sér ályktun þar
sem það fagnar samein-
ingu heilbrigðisstofn-
ana á Vesturlandi
og segir það skapa
sóknarfæri til að
þróa heilsugæsluna. Heilbrigðisráðu-
neytið greinir frá þessu á vef sínum.
Tímabundin aðgerð?
Yfirvofandi niðurskurður í heilbrigðis-
kerfinu nemur um það bil sjö millj-
örðum króna. Guðlaugur Þór hefur
sagt niðurskurðinn óhjákvæmilegan
vegna fjármálakreppunnar; þetta sé
illskásti kosturinn. Ráðamenn hafa
aftur á móti verið duglegir að
fullvissa þjóðina um að þótt það
harðni á dalnum í ár komum
við til með að rétta úr kútnum
innan skamms og verða jafnvel
sterkari eftir. Má þá búast við
að þessum sjö milljörðum,
eða jafnvel meira, verði veitt
aftur til heilbrigðismála
áður en langt um líður?
Réttnefni?
DV birtir í helgarblaði sínu mikla úttekt
á risi og falli Finns Ingólfssonar fram-
sóknarmanns og segir hann hafa farið
í stjórnmál til að auðgast. Yfirskrift DV
er „Kafbáturinn Finnur Ingólfsson“ og
vísar til þess að hann lúri undir niðri,
þar sem enginn sér hann, og véli um
þar – sé nokkurs konar machiavelskur
kolkrabbi.
Margir þeir sem hafa lagt lag sitt
við Finn hafa hins vegar ekki átt
glæsta framtíð fyrir sér í flokknum.
Því er spurning hvort kafbátur sé
réttnefni; er Finnur ekki
frekar tundurduflið sem
engu eirir?
bergsteinn@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is
A
IK
ID
O
WWW.AIKIDO.IS
BARNA- OG UNGLINGA-
NÁMSKEIÐ Í AIKIDO
Ný námskeið eru að
hefjast fyrir börn og
unglinga.
Allar upplýsingar á
www.aikido.is
eða í símum:
840-4923
669-9374
Aikido er bardagalist
fyrir fólk á öllum aldri
sem hefur áhuga á að
læra eitthvað nýtt.