Tíminn - 12.09.1982, Blaðsíða 9

Tíminn - 12.09.1982, Blaðsíða 9
SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982. Ný stéttaskipting er að skapast í þjóðfélaginu ■ „Það væri gaman að geta lánað öllum húsbyggjendum 90% af andvirði íbúðanna, en til þess eru ekki til peningar“ sagði í athyglisverðri grein sem Guðmundur G. Þórarinsson alþing- ismaður skrifaði í Tímann um húsnæðis- mál. Það eru aðeins þeir sem fá úthlutað íbúðum í verkamannabústöðum sem fá 90 af hundraði byggingarkostnaðar að láni úr Byggingarsjóði ríkisins. Sami sjóður skammtar örðum 17% af kostn- aði. Að öðru leyti verður hver að bjargast eins og best hann getur. Sumir hafa aðgang að láni úr lífeyrissjóði og reyna að kreista skammtímalán út úr bankakerfinu til viðbótar. Lífeyrissjóðirnir keppast við að aug- lýsa að það sé fráleitt að það borgi sig að taka lán hjá þeim, það sé svo dýrt og vextir, ásamt verðbótatilleggi, séu öllu venjulegu launafólki ofviða. Ekki er ástandið gott og til að gera illt verra eru fjölmennustu árgangar Is- landssögunnar farnir að setja saman bú og fjölga þjóðinni. í grein sinni sýndi Guðmundur G. Þórarinsson fram á að færri íbúðir hafi verið byggðar á síðustu árum, en áður var. Hins vegar kom ekki fram, hvort notuð hafi verið minni steinsteypa, en líklegt má telja að þróunin hafi verið sú, að færri íbúðir hafi verið byggðar en samanlegt rúmtak ekki minnkað í byggingariðnaðinum í heild. Það eru byggðar færri íbúðir en stærri. Satt best að segja hafa stjómvöld aldrei mótað heillega og gagnlega stefnu í húsnæðismálum. Að þessu leyti hafa ríkisstjómir og sveitarstjórnir setið við sama borð. Hér er ekki verið að halda því fram að ekkert hafi verið gert í þessum efnum. Byggingarsjóður ríkisins- hefur létt vel undir með húsbyggjendum. Verkamannabústaðir eru fyrirtak fyrir þá sem njóta og á síðustu árum hafa verið byggðar íbúðir fyrir aldraða, sem leysa brýnan vanda. Sjálfseignarstefnan úrelt Sú sjálfseignarstefna, sem ríkt hefur í húsnæðismálum, hefur gengið sér til húðar. Hún var í góðu gildi meðan verðbólgan eyddi skuldunum og því meiri dýrtíð því betra fyrir þá sem komu sér upp þaki yfir höfuðið. Með tilkomu verðtryggingar lána hefur viðhorfið gjörbreyst. Það er nóg að lesa hinar hrollvekjandi auglýsingar lífeyrissjóð- anna til að ganga úr skugga um það. Hér er verið að skapa kynslóðabil milli þeirra sem búnir vore að byggja fyrir verðtryggingu og hinna sem ætlast er til að borgi skuldir sínar að fullu. Það er bersýnilegt að of miklu fé hefur verið varið í of fáar íbúðir. Þótt víða um land sé húsnæðisskortur mun hann hvergi eins mikill og á Stórreykjavíkursvæðinu. Þar er íbúðar- verð hæst á landinu og leiga að sama skapi há. Bæjarstjómum í Reykjavík hefur oft verið legið á hálsi fyrir það að ekki sé nægilegt framboð á lóðum undir einbýl- ishús og raðhús, því þeir sem efnin hafa vilja búa svoleiðis. Nágrannabyggðimar hafa hlaupið undir bagga og skipulagt víðáttumikil hverfi fyrir einbýlishúsa- fólkið. Sumir borgarbúar sjá eftir sköttunum sem flytja út fyrir borgar- mörkin. Til að halda í útsvörin hafa borgaryfirvöld keppst við að koma upp einbýlishúsahverfum með æmum kostn- aði. Á sama tíma minnka fjölbýlishúsin og íbúðir í þeim ere hafðar stærri en tíðkaðist. Það segir sína sögu, að á íbúðarmark- aði, bæði sölu - og leigumarkaði, ere litlar íbúðir hlutfallslega miklu dýrari en hinar stærri. Þetta er einfalt markaðslög- mál, eftirspurn eftir litlum íbúðum er meiri. ■ Djúp gjá er að myndast milli verðbólgukynslóðarinnar og verðbótakynslóðar- innar. Þeir sem eignuðust íbúð fyrir verðbótatímabilið eru hólpnir. Hinir lifa ótryggu heimilislífi og stökkva út í ófært skuldafen ef þeir leggja í þá ævintýramennsku og reyna að eignast íbúð. Þetta virðast allir geta séð og skilio nema skipuleggjendur húsnæðismála. Hversu oft heyrir maður ekki þá, sem vitið hafa og þekkinguna tilkynna, að fslendingar vilja búa flott, þeir vilja hafa íbúðir sínar stórar og vandaðar, þeir vilja búa í einbýlishúsum, raðhúsum, parhúsum og hvað þetta nú allt heitir. Þessum óskum er síðan fullnægt. Yið vitum hvað fólkið vill Þetta minnir á bandarísku bílafram- leiðendurna: sem fyrir örfáum árem stóðu eins og nátttröll og litu yfir breiður af óseldum bílum og urðu að fá gífurlega ríkisaðstoð til að fyrirtæki þeirra yrðu ekki gjaldþrota. Þeir ákváðu upp á sitt eindæmi að Ameríkanar vildu stóra, þunga eyðslufreka ogvandaða bíla. Þeir hlógu að bílakrflunum sparúeytnu, sem Evrópumenn og Japanir smíðuðu. Við vitum hvernig bíla Ameríkanar vilja, sögðu þeir. Og þeir héldu áfram að smíða óskabílana sína þar til Japanir og Evrópumenn voru búnir að leggja undir sig nær allan heimamarkað vitringanna, auk þess sem þeir voru búnir að leggja undir sig markað á þessu sviði um allan heim. Þá fyrst skildu postular hins frjálsa markaðskerfis að markaðurinn hafi ekki sömu óskir og þarfir og þeir sjálfir. Brýnasta verkefni í húsnæðismálum í dag er að byggja litlar og ódýrar íbúðir á viðráðanlegu verði fyrir verðbótakyn- slóðina. þurfa að leigja. Leigan er yfirleitt há og fyrirframgreiðslur miklar. Þeir, sem á annað borð fá húsnæði leigt, lenda í vítahring. Hafi það fólk ekki meira en meðaltekjur er hætt við að lítið verði eftir til að leggja til hliðar til að láta þann draum rætast að komast í eigin íbúð. Auglýsingar í blöðum segja sína sögu um ástandið. Þeir sem eiga húsnæði, sem þeir þurfa ekki að nýta, auglýsa eftir hæstbjóðanda og fyrirframgreiðslur eru óheyrilegar. Fólk á hrakhólum, oft með mörg börn, sendir út neyðaróp ef það kynni að ná athygli einhverra. Börn ere oft óvelkomin í leiguhús- næði. Þau kunna að skemma þau dýrmæti sem verðbólgugróðinn hefur fært íbúðareigendum upp í hendurnar. Þetta er það sem lesa má út úr auglýsingum, sem daglega þekja marga dálka dagblaða. En sem betur fer eru einnig fjölmargir leigusalar, sem sýna leigutökum sínum sanngirni og með- borgurum kristilegt hugarfar. Áður var vikið að því, að sjálfseignar- stefnan í húsnæðismálum væri gengin sér til húðar er verðtrygging hefur tekið gildi. Það hefur hún gert eins og nú horfir, en takist að koma á jafnvægi í efnahagsmálum á verðtrygging ekki að valda stórvandræðum. En lánakjörin verður með einhverju móti að aðlaga getu fólks og koma verður í veg fyrir gífurlega stéttarskiptingu íbúðaeigenda og hrakningsfólks, sem er upp á náð og miskunn þeirra komið sem betur mega. | skömmtuðu ríflega. Um svipað leyti fundu íslenskir skipuleggjendur púðrið í svefnbæjarbyggingum. Græna bylting- ar og „útivistarsvæði" héldu innreið sína í þéttbýlið en fólk flutt á brott. Við tókum aðeins upp það sem Svíar voru að hafna. Hitt gleymdist að athuga, hvers konar eignarhald var á flestum þeirra fbúða sem þannig voru byggðar. Undirritaður átti fyrir nokkrum árum viðtal við forstjóra fyrirtækis sem reisti íbúðarhús og rak í Stokkhólmi. Skrif- stofa hans var í háhýsi í einu hinna frægu svefnhverfa, Vállingby. Fyrirtæki þetta er rekið sem hlutafé- lag en er eign Stokkhólmsborgar. Starfssvið þess er að reisa og reka íbúðarhús. Það á rúmlega átta þúsund íbúðir víðs vegar í borginni og umhverfis hana. Leigjendur, sem fá inni í íbúðum fyrirtækisins, ganga í sérstakt félag og ere þar ævilangt ef þeir vilja Leigan er seld á kostnaðarverði. Fjármagns - og viðhaldskostnaður er reiknaður út og einhverju er bætt við til að fyrirtækið hafi fjárhagslegt bolmagn til að halda áfram að byggja. íbúðir fyrirtækisins ere af ýmsum stærðum og víðs vegar um borgina eins og komið er fram. Þeir sem einu sinni hafa komist í íbúð hjá fyrirtækinu er ekki sagt upp - nema fyrir gróf brot á leigusamningi. Opinberem húsnæðismálum verður að beim í einn og sama farveg, til þeirra sem byggja eða kaupa íbúð í fyrsta sinn. Þeir sem eiga íbúðir, sem verðbólgan hefur hjálpað að greiða upp, verða að bjarga sér sjálfir við að koma sér upp stórem húsum eða íbúðum, ef þeir 1 hafa efni og nennu. Hin gífurlega eftirspum eftir íbúðum fyrir aldraða, sem góðu heilli hafa verið byggðar á síðustu árem, sýnir að mikil þörf er á litlum íbúðum, og að fólk vill gjaman búa í þeim. Mjög margir þeirra, sem sækja um þessar litlu íbúðir, eiga fyrir margfalt stærra húsnæði. Þeir vilja minnka við sig og lifa sem áhyggju- minnstu lífi. f þessum tilvikum er það að vísu fleira en íbúðarstærðin ein sem skiptir máli. Fullorðna fólkið fær einnig nauðsynlega umönnun á þessum eftir- sóttu stöðum. En það segir sitt, að það kýs að yfirgefa stórt húsnæði og flytja í lítið, sem fellur betur að þörfum þess. Neyðarástand Eftirspurn eftir leiguhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu er slíkt að h'kja má því við neyðarástand, það er fyrir þá sem Ein leiðin Það er mikill siður og vondur hér á landi að hallmæla Svíum fyrir hvernig þeir hafa staðið að félagslegri lausn mála heima hjá sér. Sumir hafa séð hina einu sönnu fyrirmynd í félagslegu vafstri Svía og flutt anga af því hingað til lands og stundum aðeins misskilninginn. Svíar byggðu svefnbæi utan við borgir sínar. Þar var öllum þörfum fólks fundinn staður á teikniborði. Síðar sáu borgarhönnuðirnir að þetta var á misskilningi byggt og hættu að reisa svefnhverfi með öllum þeim þjónustu- miðstöðum, sem sérfræðingarnir En leigutakar ere ekki bundnir við a vera í sömu íbúðinni ævilangt. E aðstæður breytast, fjölskylda stækka eða minnkar er hægt að skipta um íbúi og fá ýmist stærri eða minni efti: þörfum. Á sama hátt er hægt að flytjas á milli hverfa. Ef skipt er um vinnustac og farið að starfa á fjarlægum stað i borginni er hægur vandi að fá aðra fbúc nærri nýja starfsvettvangnum, ef heppi- leg íbúð er á Ieigu í nágrenninu. Ekki má gleyma því að þrátt fyrir allí félagshyggjuna eru Svíar praktískir. Þai er ekki ódýrt að taka svona íbúðir í leigu. Leigutakinn verður að greiða kostnaðarverð fyrir hana. Ef fyrirtækið Oddur Ólafsson, ritstjórnarfulltrúi, skrifar í heild stendur ekki undir sér þýðir ekki að hlaupa í borgarsjóð og láta hann jafna hallann. Húsaleigan stendur undir öllum kostnaði. Hitt er annað mál, að í Svíþjóð fá margir húsaleigustyrk og það ere sveitarfélögin sem veita hann. Þeir, sem þurfa á leigustyrk að halda og uppfylla skilyrði, sækja um hann til borgarinnar. En fyrirtækið sem byggir og rekur leiguhúsin verður að standa undir scr fjárhagslega. Hér er ekki verið að benda á neitt alfullkomið kerfi eða algilt. Aðeins að sýna að það er hægt að móta stefnu í húsnæðismálum á fleiri en einn veg. Einnig er rétt að taka fram, að í Svíþjóð eru húsnæðismálin leyst á margan veg annan en þennan. Reykjavíkurborg er umsvifamesti íbúðaeigandi á fslandi. Rúmlega 700 íbúðir eru í eigu borgarinnar. Leigan er lág, og er borgað með þessum eignum, enda eingöngu ætlaðar fólki, sem vegna lágra tekna eða af öðrum ástæðum hafa ekki möguleika á að eignast íbúð eða að keppa á almennum leigumarkaði. Ef borgin eignast fleiri íbúðir verður að greiða þær beint úr borgarsjóði. Hvers er þörf? Það vantar alls staðar peninga í þessu þjóðfélagi. En það er þegar eytt gífurlegum fjármunum f húsbyggingar og þær þarf að skipuleggja betur. Það verður að hugsa málin upp á nýjan leik. Rétt er að gefa kerfiskörlunum frí sem segja. „Við vitum hvað fólkið vill. íslendingar vilja búa í stórum vönduð- um húsum. íslendingar vilja stóran garð og tvöfaldan bílskúr." Vera má vel að íslendingar vilja þetta allt. En spumingin er ekki sú, heldur hvers þörfnumst við og hvað getum við? Unga fólkið, sem lífeyrissjóðirnir segja að eigi ekki að taka lán, er ekki að biðja um einbýlishús eða tveggja hæða raðhús. Það er ekki að biðja um að fá neitt gefins. Það er ekki að biðja um kastala sem arkitektar byggja sem minnismerki um sjálfa sig, og stendur óbiflegur næstu 1100 ár. Það biður ekki einu sinni um að eignast íbúð, enda óframkvæmanlegt eins og sakir standa. Það þarf aðeins þak yfir höfuðið og sæmilegt heimilisöryggi. Núna er því aðeins vísað út á óstöðugan leigumarkað þar sem farið er að leigja út íbúðir aðeins í nokkra mánuði í senn. Kannski var einfaldara að setja frjálslega fóstureyðingalöggjöf en skyn- samlega og nýtilega stefnu í húsnæðis- málum?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.