Tíminn - 12.09.1982, Blaðsíða 20

Tíminn - 12.09.1982, Blaðsíða 20
 20_________________ erlendir leigupennar ■ Götumarkaðir setja mikinn svip á höfuðborgina, og í raun mætti segja að London sé einn stór markaður a.m.k. var borgin upphaflega reist sem verslunarmiðstöð eins og margar aðrar borgir. Markaðir hafa verið haldnir hér allt frá 8. öld. Þá voru matvæli ýmiss konar flutt úr nærliggjandi sveitum í tvo aðalmarkaði Lundúnaborgar, East Che- ap og West Cheap (cheap er engilSax- neska orðið yfir markað). Á 18. og 19. öld. voru reistar varanlegar byggingar yfir nokkra helstu markaði s.s. Covent Garden markaðinn í miðborginni. Þegar minnst er á markaði höfuð- borgarinnar dettur eflaust flestum í hug götumarkaðir ýmiss konar sem eru einkar vinsælir meðal ferðafólks. Færri vita hins vegar um hina svokölluðu heildsölumarkaði enda fer starsemi ■ Það er enginn leikur að prútta við sölumenn Portobello-markaðar. ■ Hljóðfæraleikarar, trúðar og fleiri listamenn skemmta vegfarendum á hverjum sunnudagsmorgni. þeirra fram á meðan flestir sofa svefni hinna réttlátu. Óvíst er að margur ferðamaður kæri sig um að fara á fætur um miðja nótt til þess eins að sjá hvað þarna fer fram en ferðahandbækur telja það ómaksins vert auk þess sem bjórkrár á þessum svæðum hafa fremur óvenju- legan opnunartíma eða sama tíma og markaðirnir kl. 5-8 að morgni. Erfitt er að gera öllum Lundúna- mörkuðum greinagóð skil til þess eru þeir of margir en við hæfi að minnast á nokkra vinsæla. W embley-markaðurinn Það var einn undurfagran sunnudags- morgun snemma sumars að leið mín lá á Wembley markaðinn hjá samnefndum víðfrægum íþróttaleikvangi. Þarna er útimarkaður hvern sunnudagsmorgun allan ársins hring. Ferð þessi var aðallega farin í þeim tilgangi að sýna íslenskri konu hvernig útimarkaðir Lundúnaborgar eru. Auk þess sakaði ekki að kanna hvort gera mætti kjarakaup svipuð þeim er fram fóru tveimur árum áður þegar tvær barnayfir- hafnir voru keyptar á £5 stk. Áætlun um einhvers konar kaup runnu þó fljótt út í sandinn vegna óvenju mikils hita þennan dag. Ávaxta og grænmetisúrval- ið stóðst hins vegar engar freistingar enda aðaljarðarberjatíminn. Við yfir- gáfum þennan fjölmenna markað eftir að hafa sporðrennt einu pundi af gómsætum jarðarberjum. Heimferðin gekk því miður ekki eins greiðlega og akstur á markaðinn fyrr um morguninn. Þegar bílnum hafði verið snúið við og staðurinn skyldi yfirgefinn stóð allt í einu akfeit kerling með svart pottlok niður á nef í vegi fyrir bílnum, öskraði og pataði höndum í allar áttir. í fyrstu var ekki Ijóst hvað kerlingu vanhagaði, hvort eitthvað væri ósagt við bílstjóra fyrir aftan okkur en fljótlega kom hið sanna í Ijós, hún átti ýmislegt ósagt við mig. Hún taldi mig hafa ekið utan í bílinn sinn, þrátt fyrir að vera ekki viss um hvar bílnum mínum hafði verið lagt. Ég sagðist engan veginn hafa keyrt utan í bíl hennar. En það nægði henni ekki og viðhafði hún óþýðanlegt dónaorð- bragð, réðist inn í bílinn minn, hrifsaði bíllykla og hljóp með þá á brott. Á meðan á þessum aðförum stóð hafði safnast að dágóður áhorfendaskari er skemmti sér prýðilega við að horfa á aðfarir kerlingar. Eftir árasir hennar og bamshafandi stallsystur tókst mér loks að fá bíllyklana afhenta. Stuttu síðar bar lögreglu að sem tók skýrslu og kom þá hið sanna í Ijós. f stuttu máli endaði sagan á lögreglustöð Wembley hverfis þar sem spurt var hvort ég vildi kæra kvensur fyrir líkamsáverka (smá marblettir) sem í sjálfu sér var fáránlegt. Hins vegar frétti ég hjá lögreglu að kerlingar hefðu verið erfiðar viðureignar í yfirheyrslú og fundist meira en nóg um þegar lögregla kom í spilið. Mér fannst hins vegar ógn- vekjandi að lögreglu bæri skylda til að láta kvensur hafa heimilisfang mitt. Þrátt fyrir huggunarorð lögreglu þess eðlis að svertingjar frá V-lndíum láti skapið hlaupa með sig í gönur eitt morgni, þá svífa karlarnir með þung fiskihlöss á höfði og láta gamanyrðin fjúka. Margir nota höfuðföt sem nefnast „bobbing-hats“ og er búinn til úr Ieðri og tré, sléttur að ofan með börðum og auðveldar starfsmönnum að bera meiri þyngsli en halda samt jafnvægi. Sögur herma að bandarískur túristi hafi boðið of fjár fyrir einn slíkan en ekki fengið. Kl. 8 að morgni fellur allt í ljúfa löð, staðurinn hreinsaður og yfirgefinn þar til í dögun næsta morgun þegar sagan endurtekur sig. Smithfield kjötmarkaðurinn í City- hverfi er einn stærsti sinnar tegundar. Allt fram á 19. öld voru nautgripir reknir áfram eftir þröngum götum höfuð- borgarinnar á markaðinn og á tímabili var fjöldinn um 70.000 nautgripir á viku. Á ríkisstjórnarárum Maríu drottn- ingar voru næstum 300 manns brenndir á báli í trúarofsóknum sem þá áttu sér stað. Þetta gæti verið ástæðan fyrir því að fólk sem á leið um svæðið á nóttunni heyrir óp og vein og gneistahljóð eins og af eldi. Það var árið 1867 sem núverandi Renaissance bygging markaðarins var reist. Hún þykir mjög falleg og sérkennileg með hárri bogadreginni hvelfingu. Hæð húsnæðisins heldur nægilegum kulda innandyra jafnvel á ■ Wally og Smartie skemmta vegfarendum í Portobello Road. augnablikið en það næsta róist þeir niður og þori ekki að fylgja hótunum sínum eftir læsti ég bílinn í bílskúr næstu daga og börnin fengu vart að vera utandyra. Þessar varúðarráðstafanir vöruðu skamman tíma og sjálfsagt hefur Wembley lögreglan reynst sannspá. Þetta var upphafið að markaðsferðum sumarsins og hefði sjálfsagt einnig orðið endirinn ef nágrannakonan hefði ekki drifið mig á heildsölumarkað fyrir sunnan Thames. Covent Garden Nágranninn er bandarísk kona og hefur ákaflega gaman af að gera kjarakaup á ávöxtum og grænmeti sem síðan er ýmist soðið, sultað eða fryst. Með grein þessa í huga fór ég á fætur kl. 5 einn júlímorgun og ókum við sem leið lá suður fyrir Thamesá í hverfi sem heitir Nine Elms. Þangað flutti vel- þekktur Covent Garden markaður árið 1974. í Nine Elms voru sölumenn að fá morgunsopann og máttu varla vera að því að afgreiða fáeina kassa af grænmeti og ávöxtum vegna anna við stærri pantanir grænmetissala. Upprunalegi Covent Garden mark- aðurinn staðsettur rétt austan við Charing Cross götu í miðborg Lundúna dregur nafnið af garði er munkar Westminster Abbey ræktuðu á þessu svæði. Við útrýmingu klaustranna árið 1537 féll svæðið undir yfirráð jarlsins af Bedford. Tveimur öldum síðar var arkitektinum Inigo Jones falið að skipuleggja húsbyggingar svæðisins og risu þá hvelfingar í líkingu við markaðs- torg á Ítalíu en þær má sjá enn í dag. Frá 1670 varð Covent Garden mikil- vægasti grænmetis, ávaxta og blóma- markaður landsins. Umferðaröngþveiti leiddi til þess að markaðurinn var fluttur í Nine Elms mörgum til mikilla vonbrigða. En árangursrík skipulagning hefur átt sér stað í Covent Garden og er vel þess virði að ráfa um svæðið, líta inn í nokkrar af mörgum sérverslunum staðarins eða setjast og hvíla lúin bein á einum af fjölmörgum veitingastöðum á milli þess sem hlýtt er á hljóðfæra- leikara, trúða eða aðra skemmtikrafta leika listir sínar. Billingsgate og Smithfield Sjálfsagt er meiri upplyfting fyrir ferðamenn að heimsækja fisk- og kjötmarkaði borgarinnar en hinn nýja Covent Garden markað. Hraði, hávaði, mjög sérstök lykt og óvandað tungutak eru sérkenni Bíllingsgate markaðarins. Markaðurinn var fluttur í vetur frá Lower Thames Street austur með ánni á stað sem heitir The Isle Of Dogs eða Hundaeyjan. Menn hafa óttast þessa miklu breytingu en þrátt fyrir nýrri húsakynni er starfsandinn sá sami. Aðalfjörið er á tímabilinu 5-8 að Sigurborg Ragnarsdóttir skrifar frá London Markaðir í Lundúnaborg

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.