Tíminn - 12.09.1982, Blaðsíða 26
SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982.
26
Wmmm
nútfminn
Umsjón Friðrik Indriðason
■ Hljómsveitin KOS á Melarokki. Tímamynd FRI
Hljómsveitin KOS:
LÉKU FYRST
OPINBERLEGA
í SÆNSKA
ÚTVARPINU
— sem nær til 9 milljón hlustenda
n Sú hljómsveit sem vakti einna mesta
athygli á Melarokkinu var KOS eða
Komdu og Sjáðu en þeir höfðu áður lítt
leikið hérlendis. Hinsvegar hafa þeir
reynt að skapa sér nafn í Svíþjóð, léku
þar m.a. tvisvar með hljómsveitinni
ÞEYR er hún var þar á hljómleikaferða-
lagi fyrr í sumar.
Raunar komu þeir félagar í KOS fyrst
opinberlega fram í þætti Bent Grav-
ström í sænska útvarpinu og var þar um
að ræða klukkutíma „live“ tónleika en
sænska útvarpið nær til um 9 milljón
hlustenda í suðurhluta Scandinavíu.
Meðlimir KOS eru þeir Þröstur
Þórisson á bassa, Jón Björgvinsson á
trommur og Þröstur Þorbjörnsson á
gítar. Nútíminn áttu stutt spjall við þá
félaga og fyrst var forvitnast um þáttinn
í sænska útvarpinu.
„Við tókum upp „demó“ plötu hér
vorið 1981 en þá voru fimm menn í
hljómsvcitinni. Þröstur fór síðan með
„demóið" til Svíþjóðar og í útvarpið þar
og er Bent heyrði upptökuna vildi hann
strax fá okkur í þáttinn sinn. Af ýmsum
ástæðum gat ekki orðið af þessu fyrr en
12. maí í vor en þá varð þessi útsending
gerð, og við lékum fyrir áheyrendur í
einum salnum og var flutningnum
útvarpað beint“ segja þeir félagar.
„Þetta var í fyrsta skipti sem við
komum opinberlega fram, höfðum að
vísu áður leikið í fermingarveislu hér
heirna".
Með Þeyr á tveimur
tónleikum
Hljómsveitin KOS var stofnuð á s.l.
sumri en hefur verið í núverandi mynd
síðan um áramótin síðustu. Þeir hafa
búið út í Svíþjóð um tíma og er
hljómsveitin ÞEYR koma þar í tón-
leikaferðalagi sínu var KOS fengin til að
hita upp á tveimur tónleikum, í
Gautaborg og Stokkhólmi.." nokkuð
vel sótt gig bæði tvö“ segja þeir um þá
tónleika.
*
Ur Kópavogi
KOS er upprunnin úr Kópavogi og
hófu þeir Jón og Þröstur Þorbjarnar
tónlistarferill sinn með því að leika í
Hornaflokki Kópavogs og síðar í Big
Bandi undir stjórn Gunnars Ormslev.
Þeir segja tónlist sína vera blöndu af öllu
og þeir reyna að hafa prógramm sitt sem
fjölbreyttast... „við eigum okkur enga
uppáhalds tónlistarmenn. Við vorum
ekki ánægðir með nýju stefnumar í
rokkinu, pönk og nýbylgju og reynum
að nálgast það fólk sem hætti að hlusta
á lifandi tónlist er þessar stefnur komu
hér upp á klakann".
Allt efni þeirra félaga er frumsamið
ag á Melarokki mátti heyra áhrif víða
að í leik þeirra, reggae, sýrurokk og
fleira.
Plata í Svíþjóð?
Hvað framtíðina varðar segja þeir
félagar í KOS að þeir muni starfa áfram
í Svíþjóð en útgáfufyrirtæki þar hefur
áhuga á því að gefa út plötu með þeim..
„við höfum verið í sambandi við aðila
úti um þetta mál en ekkert ákveðið er
enn komið fram um hugsanlega plötu-
útgáfu“. -FRI
NÝTT STUÐ BLAÐ
' ■ 2. tbl STUÐ-blaðsins er komið út.
i Að venju er það sneysafullt af marg-
slungnu efni. Má þar til nefna:
plötudéma; Ijóð; lista yfir uppáhakis-
plötufsar hans Philip Lynetts söngvara
rofclwveitarinnar Thin Lizzy; gltargrip
við vinsælasta lagið um þessar wandir,
>„Bteytthr t(mar“ með EGó; hsta yfk M
vinstfhMtw |MÉMr um
Dead Köwicáys, Níhm Clash,
Lindsay Gooper, ftwhert Wýatt, gjafa-
piötur, félaga Valdimar, selstöðuversl-
un, diskómúsfk o.m.fl.
Þá fylgir blaðinu afsláttarúrklippa frá
hljómtækjaversluninni Steina, Skúfa-
götu 61.
STUÐ-Maðið er málgagn sjátfrar
WjómfrtötwversltHiaiiHmar STUÐe, vett-
vangs nýbylgjuanar.
S'fU» Mwðtiiu er thwifc ékeypis
meðat viðsfciptavhw STU©» Laugavegi
20.
Steinar:
Sólóplata
með Jakobi
Magnússyni
■ Plötuútgáfan Steinar mun í þessum
mánuði gefa út nýja sólóplötu með
Jakobi Magnússyni. Platan er í jazzrokk
stíl, tekin upp í Bandaríkjunum en með
Jakob á henni er valið lið góðra og
kunnra tónlistarmanna þeirra á meðal
Steve Anderson og Freddy Hubbart.
Platan, sem er 33 sn lp-plata, hefur
enn ekki hlotið nafn en að sögn þeirra
sem heyrt hafa upptökurnar er hér á
ferðinni feikigott verk af hendi Jakobs.
Jakobs Magnússon dvaldi sem kunn-
ugt er hérlendis í sumar og tók m.a. þátt
í nokkrum Stuðmannatónleikum, þar á
meðal í Atlavík sællar minningar.
Hann hefur á undanförnum árum
dvalið löngum í Bandaríkjunum og
gefið þar út verk sín undir nafninu Jack
Magnet. Samkeppnin á þeim markaði er
hinsvegar geysihörð og hefur Jakob ekki
enn „slegið í gegn“ eins og það kallast.
- FRI
■ Jakob Magnússon. Sólóplata með
honum er væntanleg í þessum mánuði.
,\i íf | fyíi
\| 1] 1 |í|| :Oj
mfÞm
■ Hljómsveitin Tappi tíkarrass.
Spor:
FYRSTA PLATA
TAPPA TÍKARRASS
■ Plötuútgáfan Spor mun í þessum
mánuði gefa út fyrstu plötu hljómsveit-
arinnar Tappi tíkarrass og að sögn
Jónatans Garðarssonar framkvæmdar-
stjóra Spor er hér um fimm laga 45 sn.
plötu að ræða sem hlotið hefur nafnið
„Tappi tíikarrass“.
Öll lögin á plötunni eru frumsamin og
er sveitin sem heild skrifuð fyrir þeim
öllum.
Tappi tíkarrass hefur á undanförnum
mánuðum skipað sér í hóp meðal þeirra
bestu af nýju nýbylgjurokksveitunum
hérlendis og ekki er að efa að margir
bíða eftir þessari plötu þeirra með
mikilli eftirvæntingu.
Fyrir utan þessa plötu sagði Jónatan
að Spor myndi síðan væntanlega gefa út
stóra plötu með Grýlunum seinna á
árinu. _ frj
NÝPLATA
MEZZOFORTE
■ í næsta mámiði munu Steinar gefa út
nýja plötu með hljómsveitinni Mezzo-
forte. Platan kemur til með að heita
„Fjögur“ en hún er fjórða plata
hljómsveitarinnar. Mezzoforte tók
þessa plötu upp f Londou undir stjóm
Geoff Calver.
Þetta kemur tvímarialaust til með að
verða besta ptata Mezzoforte segja
iuuimtgir e» á hen»»i far* þeir mikið út
í fank eins og það gerist núna á öretlandi
og hefor náð miklam vinsældum.
Bjöm Þórarinsson mun vera hættur í
Mezzoforte en með sér í þessari nýju
plötu hafa þeir félagar í sveitinni bætt
við sig trompetleikara og percussion
leikara.
Af öðrum væntanlegum plötum hiá
Steinum má nefria nýja ptótu Þú og Eg
dúettsins í október og safnplötuna
GlymakraMmt wm verður í stíl við Á
fnliu þ.e. með basði íatenskum ag
ertemfoni liatamönnum.
-m