Tíminn - 12.09.1982, Blaðsíða 22

Tíminn - 12.09.1982, Blaðsíða 22
SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982. P*n fll Basmíss/Marwgement MANAGINGWITH COMPUTERS TKRRY ROWAN U) raakc thf hwt of cflmputm in bu»nm Sister Carrie. Höfundur: Theodore Dreiser. Útgefandi: Bantam ■ Hér er komin ný prentun af sígildri skáldsögu „hins gamla manns“ ameriskra bókmennta á öldinni, eins og Dreiser var oft nefndur áður á tíð. „Sister Carrie“ er fyrsta skáldsaga Dreisers sem verulega kvað að og hún gerist nú gömul, - gefin fyrst út árið 1900. Dreiser hristi duglega hina marggylltu þjóðfélagshöll um sína daga og í þessari sögu þótti hann vinna sér það til gildis að breyta hinni gömlu sögu um hina „föUnu konu“ verulega, með þvi að leiða hana fram á sjónarsviðið í máttugu skáldverki. Um leið og hann leiddi þessa kvenhetju frá mið-vestur ríkjum Bandaríkjanna inn í þröng og siðspillingu stórborgarinnar tókst honum að sýna samtíð sinni sjálfa sig frá nýju og varla þægilegu sjónarhomi og sú list þótti honum lagin allan sinn ríthöfundaferil. Sagt hefur verið að „Sister Carrie“ hafi borið bókmenntir Bandarikjanna inn í 20. öldina, en um leið var fæddur sá höfundur sem hvað mest frægðarorð fór af þar vestra á öldinni. Managing with Computers Höfundur: Terry Rowan. Útg.: Pan Books ■ Á öld tækni og tölvubúnaðar á þessi bók erindi til þeirra, sem vUja fá nokkra innsýn inn í þennan myrkvið, sem tölvur og það sem þeim við kemur er í augum margra. Segir á bókarkápu að bókinni sé ætlað að vinna bug á þeirri hjátrú að tölvur séu svo dularfullar og frábrugðnar eldri tækni að nauðsyn sé á fimalegri tækni, tækniþekkingu og sérþjónustu allt um- hverfis þær. Hér er þeim sem vilja fara að fást við tölvur kennt að átta sig á þeim möguleikum sem þær búa yfir og hvemig má hagnýta þær til margra góðra hluta t.d. í verslun. Sagt er frá þeim kerfum sem um er að ræða og hvaða kostum hvert þeirra býr yfir. Hér er þeim sem em að Idóra sér í kollinum ráðlagt hvaða kerfi og stærð búnaðar mundi henta þeim best og gefin em ráð um hvemig koma skuU tölvubúnaðinum upp stig af stigi. Áhugamenn um tölvubúnað eða þá þeir sem ætla að leggja sig eftir þvi að læra meðferð tölvu em sagðir finna hér fróðleik sem þeir síst mega án vera og hví skyldum við sem veltum fyrir okkur gataspjöldum eins og þau væm eitthvað sem dottið hefur niður af tunglingu, ekki hafa gaman af að glöggva okkur á þessum furðuverkum samtímans? Þó ekki væri nema foritninnar vegna. 2 Editor Frank Ketnnode SOCIAL ANTH ROPOLOGY Edmund Leach updated and revised Social Anthropology. Höfundur: Edmund Leach. Úgef.: Fontana ■ „Anthropology" þýðir í rauninni „athugun á manninum“ en samt er efnið ekki eins óendanlega víðtækt og nafnið kann að benda til. Hér ræðir höfundur um það hvcmig og hversvegna menn hafa farið að h'ta á þessa fræðigrein eitthvað öðmm augum en hverja aðra grein út úr dýrafræðinni. Aðaltilgangur hans er samt að sýna með nokkmm dæmum fram á í hverju hans eigin gerð af mannfræðinni felst, en hún á rætur að rekja til kenninga manna á borð við Malinowsky og Firth og „strúktúralismu" Lévi-Strauss, séu lesendur þá einhverju nær. Sir Edmund leggur áherslu á að breska þjóðfélagsmannfræðin sé nokkurskonar þjóðfélagsfræðileg smásjárrannsókn og að samtengsl ýmissa höfuðpóla þjóð- félagsins, sem kallaðir em nöfnum eins og „efnahagsmál,“ „stjómmál,“ „lög,“ og „trú,“ komi oft best í Ijós með því að skoða hegðunarmynstur fólks sem býr í mismunandi sambýliskjöraum og í þeim seremónium sem hefðuin samkvæmt em viðhafðar við brúðkaup. A Dictionary og Dmgs Höfundar: Richard B. Fisher og George A. Christie ■ Þaraa er á ferðinni bók með skorinorðum upplýsingum um eðh og áhrif lyfja og það er ekki einskisnýtur fróðleikur á okkar tímum, sem er mikil lyfjaöld. í bókinni er fjallað um meinlítil lyf (eða holl) allt frá aspríni og vítaminum til sterkra meðala, sem ráðlögð eru við hinum erfiðustu sjúk- dómum. Lesandinn gctur fundið hér hin ýmsu lyf, bæði með því að fletta upp á þeim beint eða með því að skoða lista um lyf sem ráðlögð em við hinum ýmsu meinsemdum. Áhrifúm og aukaverkun- um ef einhverjar em, er lýst hér all nákvæmlcga, svo og efnafræðilcgri gerð lyfsins. Sérstakur kafh er um ýmis skynviUulyf. Hér er þó síður en svo verið að vísa fólki á leið til þess að búa sér sjálft til lyfseðilinn, en samt getur það varla verið nema til góðs að hafa einhverja nasasjón af því hvað líklegt er að gerist í Ukamanum, eltir að piUunni hefur verið rennt niður. ■ Ofannefndar bækur fást í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar. Tekið skal fram að hér er aðeins um kynningu að ræða, en enga ritdóma. „Sá eini sanni Albert” Ævisaga Alberts Guðmundssonar, og dagbók úr „Húsinu” á Eyrarbakka eftir Guðmund Daníelsson meðal útgáfubóka Setbergs í ár ■ Við höldum áfram að segja frá því nýjasta hjá bókaforlögunum og hvers sé að vænta. Að þessu sinni slógum við á þráðinn til Arnbjörns Kristinssonar hjá Setbergi og spurðum hann um það nýjasta hjá forlaginu. „Það er ný matreiðslubók sem er að koma út hjá okkur eftir nokkra daga,“ sagði Ambjörn, „en það er bókin „Léttir og Ijúffengir réttir“ sem Bára Magnúsdóttir hefur þýtt og staðfært. Þetta er þriggja vikna megrunarkúr með ljúffengum og næringarríkum matseðli. Bára hefur áralanga reynslu í líkams- rækt og við gátum því ekki fengið betri manneskju til þess að taka að sér þessa útgáfu og sýna hvernig þetta á að gerast. En ég verð líka að geta þess að við erum nýlega búnir að gefa út stóra og mikla bók sem heitir „Ljósmynda- bókin“, en þýðendur hennar eru feðgarnir Arngrímur, Lárus og Örnólfur Thorlacius. Þetta er 350 blaðsíðna bók með 1250 myndum og er handbók um ljósmyndatækni, búnað og aðferðir í ljósmyndun, einnig val myndefnis. Höfundurinn heitir John Hedéco. Næst má nefna að nú kemur út síðara bindið af bókinni „í fjórum línum,“ en það er vísna og ljóðasafn, sem Auðunn Bragi Sveinsson, skólastjóri, tekur saman. Hér eru rúmlega 800 lausavísur hvaðanæva af landinu og yfir 200 höfundar. í þessu bindi er það bætt upp sem helst vantaði í fyrra bindið, en það er kveðskapur Austfirðinga sem hér koma talsvert við sögu. „Dagbók úr Húsinu," er ný bók eftir Guðmund Daníelsson, sem við nú gefum út. Það er auðvitað „Húsið“ á Eyrarbakka, sem hér er átt við, en þar bjó Guðmundur á árunum 1947-1948, þegar hann var að bíða eftir íbúð. Þama skrifaði hann dag hvern og segir hér frá sínu lífi og fjölskyldunnar og samskipt- um sínum við fólk, ekki síst rithöfunda og listamenn. Þetta er allt birt hér og þótt Guðmundur segi á kápu bókarinnar að þetta hafi fyrst og fremst verið skrifað fyrir hann sjálfan á sfnum tíma þótti honum nú 30 árum síðar að þetta kynni að þykja all forvitnilegt efni. Nú, við gefum út skáldsögu í haust eftir amen'skan höfund af léttara taginu, - Daniel Steel. Hann er einn mest lesni höfundur í Ameríku af þeim höfundum sem eru á hans nótum. Þessi bók heitir GÓÐRA GRIPA VON FRÁ BÓKAtJTGÁFU ARNAR OG ÖRLYGS Nú kemur út „Landið og Landnáma” eftir dr. Harald Matthíasson og nýir skáldsagnahöfundar kveðja sér hljóðs ■ Bókaútgáfan Örn og Örlygur lætur ekki sitt eftir liggja hvað varðar góða gripi á bókamarkaði haustsins og það er vandséð á hverju á að byrja, en berum samt niður í þeim flokki sem segja má að varði land og lýð. Nú kemur út þriðja bindið af „Landið þitt“ og er þetta viðamesta bindið og nær yfir L-R. Vert er að geta sérstaklega um kaflann sem fjallar um Reykjavík, en hann er sjálfstæð heild innan verksins og með sérstöku uppsláttarstafrófi, A-Ö. Er hér nákvæm og aðgengileg alfræði- bók um borgina komin fram í þessu vandaða riti, sem enn eykur á gildi hennar, en Reykjavík hafa ekki fyrr verið gerð skil á þennan hátt. Mörg hundruð litmyndir prýða þetta bindi sem hin fyrri. Umsjónarmenn og höfundar verksins eru þeir Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson frá Hlöðum, en Páll Líndal ritar um Reykjavík. Eftir tveggja ára undirbúning hjá forlaginu en áratuga undirbúning af hálfu höfundarins, kemur nú út „Landið og Landnáma" eftir dr. Harald Matt- híasson á Laugarvatni. Haraldur hefur borið allt landið saman við frásagnir Landnámu og ferðast um í þeim tilgangi árum saman. Kort eru í bókinni af hverju landnámi og ljósmyndir af miklum fjölda Iandnámsjarða. Ernst Bachmann hefur myndskreytt þetta forkunnarvandaða verk. Nú kemur „Árbók íslands" út í þriðja sinn og er umsjónarmaður verksins Steinar J. Lúðvíksson, að leggja síðustu hönd á það þessa dagana. Efnisuppsetn- ing er nú enn fullkomnari og aðgengi- legri en í fyrri bókunum tveimur og liggur mikið verk hér að baki. Þá er að geta um „íslenskar árbækur", sem er fyrsta bindi nýstárlegrar saman- tektar úr íslenskum annálum. Anders Hansen blaðamaður tekur saman. Hér ■ Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Fyrra bindi æviminninga hans „Sól ég sá“ er nú að koma út. er unnið úr og safnað saman á einn stað heimildum íslenskra annála um helstu viðburði á því árabili sem þeir taka til. Nær fyrsta bindið yfír árin 1400-1450 og ritar höfundur stuttar skýringagreinar á milli um atriði sem varða hvern tíma, skilgreinir til dæmis valdsvið sýslu- manna og hirðstjóra og lýsir plágunni miklu í hnitmiðuðu máli. Anders ætlar að vinna úr þessu efni svo langt sem annálar endast. Haukur Halldórsson myndskreytir bókina. „Kvistir í lífstrénu" nefnist svo bók eftir Arna Johnsen, sem hér birtir mörg viðtala sinna og greina, bæði ný og nokkur áður birt. „Eyjaskinna“ nefnist bók eftir Guð- laug Gíslason, alþingismann og segir hann hér frá ýmsum merkum atburðum úr Vestmannaeyjum í gegn um tíðina. Myndir frá eldri og nýrri dögum prýða bókina. Ágúst Sigurðsson á Mælifelli heldur áfram að rita sögu „Fomra frægðar- setra“ og nú kemur út IV bindi bókanna, þar sem m.a. er ritað um Borg á Mýrum og Þönglabakka. „Þrautgóðir á raunastund" er ritröð sem reynst hefur eiga miklu gengi að fagna, enda kemur nú út 14. bindið í ár. Sem fyrr er það Steinar J. Lúðvíksson sem tekur saman, en hann vinnur efnið jafnan í samvinnu við SVFÍ. Hér fjallar hann um árin 1959-1962. „Sól ég sá“, er fyrra bindi æviminn- inga Steindórs Steindórssonar frá Hlöð- um og er aðalupplagið væntanlegt næstu daga úr vinnslu. Nú kemur út síðasta bindi annarra æviminninga, en það er fjórða bindið af minningum Jóns frá Garðsvík, „Bændur og bæjarmenn." Enn er að geta um síðara bindi stórmerkra æviminninga Karvels Ög- mundssonar, „Sjómannsævi." Þessar minningar þykja þeim sem lesið hafa einstæðar. Af æviminningum sem Örn og Örlygur gefa út, teljum við síðast „Dömur, draugar og dándimenn", æviminningar Sigfúsar á Austurrútunni sem Vilhjálmur Einarsson, skólastjóri,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.